Helgarpósturinn - 17.07.1995, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 17.07.1995, Blaðsíða 2
 Hvao segir tdda Björgvinsdóttir ieikkona um mótmæli veana kvennaráðstefnunnar „Hver afstöðumyndun er viröingarverö og kost^þrek" „Reyndar hef ég sjálf ekki kom- ið mér í þá stöðu að taka afstöðu með eða á móti fyrirhugaðri kvennaráðstefnu í Kína þar sem ég hef verið önnum kafin' að und- anförnu við að koma út menning- arhandbók nokkurri sem ber undirtitilinn Leikur og list. Það verkefni hefur fangað mig alger- Iega að undanförnu og héfur Kína af þeim sökum verið mér jafnvel fjarlægara en nokkru sinni fyrr. Ég hef af þeim sökum hvorki tekið afgerandi afstöðu með eða á móti málefninu, en finnst þó að á þessum málum séu alltaf tvær hliðar. Spurningin er alltaf sú þó, hvort eigi að snúa baki við mál- efninu og mótmæla á þann hátt- inn eða hvort fara eigi beina leið inn að miðju og ráðast á garðinn þaðan frá. Ég er persónulega afar rugluð og get af þeim sökum ekki gert upp við mig hvort ég ætti að fara eða ekki, skyti sú spurning upp kollinum í mínu lífi. Þó hef ég skilning á afstöðu beggja þessara hópa og styð fyrst og fremst alla þá sem þora að taka afstöðu til þessa máls í hverja áttina sem hún kann að vera. Það eitt að taka afstöðu krefst hugrekkis þar sem slíkt krefst skoðanamyndunar sem getur svo aftur reynt á fyrir ein- staklinginn fyrir opnum dyrum. Slíkt þor er virðingarvert og það styð ég heils hugar.“H fékk lögbannskröfunni á hnekkt Leynsiausi m eiuu * Æ Sonurinn sem er skráður eigandi sést ekki. Valur Magnússon opnaði Óðal á fimmtudaginn í skugga lögbannskröfu Þórar- ins Ragnarssonar og félaga á Kaffi Reykjavík. Þegar þeir keyptu Kaffi Reykjavík af Vali á 140 milljónir króna í vetur var ákvæði í samningnum þess efnis að Valur mætti -ekki opna kaffihús eða sam- bærilegan rekstur næstu þrjú árin. Þrátt fyrir það var lögbannskröfunni hafnað enda er sonur Vals, Magnús Freyr Valsson, skráður eig- andi staðarins. Jóhann Jó- hannsson, veitingastjóri Óð- als, sagði við Póstinn að Val- ur væri einungis ráðgjafi og kæmi „hvergi nálægt rekstri Óðals“. Þrátt fyrir það hefur Valur alla tíð verið talsmað- ur staðarins og stýrt öllum framkvæmdum en Magnús Freyr hefur lítið sem ekkert sést á staðnum. Það er hins vegar athyglis- vert að Óðal hefur ekki enn fengið brunaleyfi. Þess vegna hafa þeir einungis Ieyfi fyrir 250 gesti en þeir vildu leyfi fyrir 350. Þá ætiar Valur Magnússon skráði son- inn fyrir rekstrinum og lög- bannskröfunni var hnekkt. Valur að byggja gylltar tveggja metra langar svalir Austurvallarmegin en enn hefur nauðsynlegt bygging- arleyfi ekki verið veitt.B ✓^pað er dálítið^v 'svakalegt að Bonnie og Clyde skuli aka ruplandi og rænandi um þjóðvegina. S Já, maður var eiginlega öruggari þegar þau héldu v sér í bíó. Ólafur G. Einarsson varkærðurtif boðsmanns Alþin fyrra fyrir að fresta stöðuveitingu í skóla- stjórastöðu við Gru'nn- skólann í Stvkkis- rottakennari tekinn fram yfir kennara með mastersgráðu í skðlastjórnun Sorska strandgœslan kom togaranum Má frá Ólafsvík til hjálpar við Honningsvag og hélt Márþegar af stað í Smuguna. Kafarar úr norska varðskipinu Nor- den skáru net úr skrúfu togarans. í dag hefst herœfíng Bandaríkjamanna hér á landi. 40 herþotur og B- 1 og B-15 sprengjuflug- vélar taka þátt í œfíng- unni. Þœr munu fljúga í 500 til 1500 metra hœð á um 800 kílómetra hraða. Willy Claes, aðalfram- kvœmdastjóri NATO, kemur í opinbera heim- sókn á miðvikudag. Samtökin Frjálst val af- henti Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra undirskriftalista með 17 þúsund nöfnum sem mótmœla skylduáskrift aðRÚV. Kurt Wolfensberger, framkvœmdastjóri ál- sviðs Alusuisse, sagði að endanieg ákvörðun um stœkkun álversins lœgi fyrir í lok ágúst og taldi að af stœkkuninni yrði. Bjórneysla hefur aukist á þessu ári og er hún öll falin í meiri innflutn- ingi. Hlutur íslensku öl- gerðanna er nú 60 pró- sent en var 70 prósent á sama tíma í fyrra. 13 kíló af œðadúni að andvirði 400 þúsund krónur var stolið að Miðhúsum í Reykhóla- sveit. LÍÚ krefst þess að út- gerðarmenn fái lengri frest til að uppfylla reglugerðarskyldu um sleppibúnað björgunar- báta Ólafía Hrönn Jónsdóttir hefur stefnt Hótel Sögu og Ríó tríó. Ólafía Hrönn stefnir Hótel Sögu og Ríó tríó Lolla stefnir Hótel Sögu Leikkonan Ólafía Hrönn Jóns- dóttir hefur stefnt Hótel Sögu og krefst skaðabóta vegna fyrir- varalauss brottreksturs. Ólafía var ráðin til að koma fram með Ríó tríó í sögu sveitarinnar. Frumsýning var 18. febrúar en eftir tvær sýningar var Lolla beð- in um að hætta. Það gerði hún vitaskuld samstundis enda var traustið farið við það eitt að biðja hana um að fara. Stefnan byggist á því að hennar nafn hafi verið notað til að auglýsa upp skemmtidagskrána enda hafi verið búið að selja miða á sýn- inguna langt fram á vorið. „Þetta er fyrst og fremst prinsippatriði að láta þá ekki koma svona fram við mig. Mér finnst þetta ferlega lúalegt af þeim,“ segir Ólafía Hrönn. Hún segir að ekkert hafi verið rætt við sig til þess að komast að samkomulagi og því hafi þetta verið eina leiðin. Hún vill ekki gefa upp hvað það er sem hún fer fram á en segir það „sann- gjarnt". Hún segir mjög leiðinlegt að þetta skyldi fara svona en það gangi ekki að nafn hennar sé not- að svona í auglýsingaskyni. ■ • Kristinn Breið- fjörð Guðmundsson þótti vænlegri kostur þegar skólastjóra- | staðan var auglýst í fyrra. Ráðherra ákvað hinsvegarað fresta stöðuveiting- unni og þegar stað- an var auglýst aftur var Kristinn veginn og léttvægur fund- j inn. Gunnar Svan- laugsson íþrótta- kennari var skipaður skólastjóri. „Það er | tvímælalaust hagur þeirra sem hafa j veitingavaldið að hafa óskýrar reglur j því að þannig geta menn komist hjá því að taka tillittil menntunar og starfs- reynslu þeirra sem sækja um auglýstar stöður,“ sagði Krist- ( inn í samtali við PÓSTINN. Þetta VAR LÍKA í FRÉTTUIVI r hala veitingavalif ð Gunnar Svanlaugsson var nýlega skipaður skólastjóri Grunn- skólans í Stykkishólmi en hann hefur veriö aðstoðarskólastjóri þar um hríð og var settur skólameistari þar á síðasta ári. Tveir sóttu um stöðuna en Kristinn Breiðfjörð Guðmundsson hlaut ekki náð fyrir augum skólanefndarinnar þrátt fyrir að hafa miklu meiri menntun, en hann er Kennaraskólagenginn með masters- próf í skólastjórnun. Pað hefur verið gagnrýnt að ekki sé nægi- legt tillit tekið til menntunar umsækjanda um skólastjórastöður en engar skýrar reglur eru til um þessa hluti. í fyrra þegar staðan var aug- lýst sóttu þessir sömu menn um en þá stóð meirihluti skóla- nefndar á bak við Kristin. Þáver- andi menntamálaráðherra, Ólaf- ur G. Einarsson, frestaði stöðu- veitingunni á þeim forsendum að skólanefndin gæti talist ólög- leg vegna kosningar um samein- ingu Stykkishólms við Heiga- felissveitina. Kristinn kærði þessa ákvörðun á sínum tíma til umboðsmanns Alþingis þar sem málið er enn í athugun og niður- stöðu þaðan fer að vænta. í samtaii við PÓSTINN sagði Krist- |Jrin að ef þannig færi að álit um- boðsmanns yrði honum í hag, þá færi málið fyrir dómstóia. Eftir að menntamáiaráðherra hafði ákveðið að fresta ráðning- unni var Gunnar Svanlaugsson íþróttakennari settur skóla- meistari til bráðabirgða um eins árs skeið. Þegar staðan var aug- lýst aftur núna mælti skóla- nefndin með Gunnari og menntamálaráðherra skipaði hann skólameistara. ÓÁNÆGJA 0G ÓSAMSTAÐA Kristinn Breiðfjörð Guð- mundsson hafði hins vegar einnig sótt um skólastjórastöðu við Grunnskólann á ísafirði þar sem hann var einn þriggja um- sækjanda og hafði meirihluta skólanefndar á bak við sig og mun hann hefja þar störf á næsta ári. „Það eru margar hliðar á hverju máli og ég hef sætt mig við hvernig málið fór í Stykkis- hólmi. En þau eru að gera upp sín mál í Hólminum og mér hef- ur heyrst að það sé óánægja meðal minnihlutans í skóla- nefnd. Fyrir stéttina í heild er þó erfitt að kyngja því að það önn- ur sjónarmið en fagleg vegi þyngra á metunum. Menntun er vegin og léttvæg fundin og það liggur því beinast við að álykta sem svo að við ættum ekki að vera að ieggja á okkur svona langt nám og mikla vinnu. En það er tvímælalaust hagur þeirra sem hafa veitingavaldið að hafa óskýrar reglur því að þannig geta menn komist hjá því að taka tillit til menntunar og starfsreynslu þeirra sem sækja um auglýstar stöður." ■

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.