Helgarpósturinn - 17.07.1995, Síða 6

Helgarpósturinn - 17.07.1995, Síða 6
FRETTIR Útgefandi Ritstjóri Aðstoðarritstjóri Framkvæmdastjóri Auglýsingastjóri Miðill hf. Gunnar Smári Egilsson Sigurður Már Jónsson Kristinn Albertsson Kristinn Karlsson Setning og umbrot: Morgunpósturinn Filmuvinnsla og prentun: Oddi hf. Verð í lausasölu kr. 99.- SKOÐANIR BLAÐSINS Fyrirbyggjandi fundir? ■ ■ Það er ekki hægt að gagnrýna foreldra í Fossvoginum fyrir að óttast um öryggi barna sinna. Þeir hafa til þess ástæðu. Hins vegar er einkennilegt hvernig þeir standa að svokallaðri foreldravakt. Búast mætti við að þeir gengju skipulega um hverfið sitt og litu eftir börnunum. Svo er hins vegar ekki. Það eina sem vaktin gerir er að halda fundi um vandann. Það verður að segjast eins og er að litlar líkur eru á að þeim takist með þessu að leysa vandann. Þeir geta í mesta lagi fundið huggun og öryggi hvert hjá öðru. Börnin verða hins vegar ekki-öruggari. Mikil trú á Benny Hinn ■ ■ Pósturinn hefur birt viðtöl við nokkra einstak- linga í undanförnum blöðum sem þakka bandaríska predikaranum Benny Hinn bót meina sinna. í fyrra þegar hann kom hingað til lands fyllti hann Kapla- krika í Hafnarfirði. Nú stendur til að hann haldi ekki aðeins eina samkomu í Laugardalshöll heldur þrjár. Það ættu því rúmlega tíu þúsund manns að geta séð hann og heyrt. Og án efa mun stór hópur fólks fjöl- menna í Höllina. Þrátt fyrir að ekki fari mikið fyrir trúarhita Islendinga þá eru þeir ákaflega trúhneigðir og helst á það sem ekki fellur að túlkun Þjóðkirkj- unnar. Og það er dálítið einkennileg staða, sérstak- lega í ljósi þess að svo til allir landsmenn eru í Þjóð- kirkjunni. Ef þeir hins vegar leita trúar sinnar þá leita þeir oftast alls staðar annars staðar en þessari sömu kirkju. Þjóðvegaræningjar ■ ■ Hér á opnunni má lesa frásögn af dálítið ein- kennilegu fólki sem ferðast ruplandi og rænandi um landið. Þetta par hefur verið stórtækt í ránum sínum að ekki er annað hægt en að líkja þeim við banda- rísku þjóðsagnapersónurnar Bonnie og Clyde. Þessi frásögn hlýtur að verða þeim umhugsunarefni sem hafa lifað í þeirri trú að íslendingar væru friðelskandi og löghlýðnir. Sagan af þessu fólki og önnur dæmi úr undirheimunum sýna að ef íslenskt samfélag hefur einhvern tímann einkennst af þessum þáttum þá er svo ekki lengur. Freistandi kokkteill ■ ■ Þeir voru fáir sem fengu boðskort í franska sendiráðið á bastilludaginn og gátu neitað sér um að þiggja kokkteilinn. Það væri ekki í frásögur færandi ef Frakkar væru ekki einmitt þessa dagana að sprengja kjarnorkusprengjur í Kyrrahafi. Þeir sem skáluðu fýrir franska ríkinu á föstudaginn geta velt því fyrir sér hvaða hug þeir bæru til þeirra sem skálað hefðu fyrir þeim sem stæðu fyrir kjarnorkutilraunum í hafinu í kringum Island. Þá hefði þetta sama fólk án efa æskt þess að fólk sýndi sér frekar samhug í verki og mótmælti fremur en að hylla kjarnorkuhöfðingj- ana. Vesturgötu 2, 101 Reykjavík, sími 552-2211 fax 552-2311 Bein númer: Ritstjórn: 552-4666, símbréf: 552-2243 Tæknideild: 552-4777 Auglýsingadeild: 552-4888, símbréf: 552-2241 Dreifing: 552-4999 Fréttaskotið: 552-1900 Smáauglýsingar: 552-5577 Skrifstofa Morgunpóstsins er opin mánudaga til föstudaga frá 9:00 til 17:00 Dreifingar- og áskriftardeild er opin mánudaga og fimmtudaga frá 8:00 til 19:00, aðra virka daga frá 9:00 til 17:00 Auglýsingadeild er opin mánudaga og fimmtudaga frá 9:00 til 18:00, aðra virka daga frá 9:00 til 17:00 Smáauglýsingadeildin er opin frá 9:00 til 21:00 virka daga, nema miðvikudaga, til 18:00, 12:00 til 16 á laugardögum og milli 12:00 og 18:00 á sunnudögum. Enginn Hilmar í kveðjuveislu Hilmar Sigurðsson grafískur hönnuður og formaður Félags ís- lenskra teiknara hefur nú selt fimmtungspart sinn í auglýsinga- og hönnunarstofunni Grafít sem hann átti ásamt Finni Malm- quist, Önnu Sigríði Guðmunds- DÓTTUR, ÖNNU Svövu SVERRIS- DÓTTUR Og HÖLLU HELGADÓTTUR. Hinir fjórir keyptu hlut Hilmars eftir mikil læti. Hart var deilt um kaupverð og eftir árangurslausa samninga voru lögfræðingar látnir í málið. Salan endaði í full- Hilmars komnu ósætti með tilheyrandi hurðaskellum en gengið var formlega frá henni 30. júní og Hilmar hætti samstundis á stof- unni. Starfsmennirnir ákváðu þó að halda Hilmari kveðjuhóf á Austur-Indíafélaginu um síðustu helgi. Þei_r skemmtu sér hið besta en FÍilmar mætti ekki í eig- in kveðjuveislu enda mun hann afar ósáttur við söluverðið. ALEIÐ TIL ÍTALÍU Ástæðan fyrir því að Hilmar vildi losa sig út úr samstarfinu er sú að hann er á leið til Milano á Ítalíu þar sem hann ætlar að „- meika það“. Hann starfar nú að eigin verkefnum hér heima en samkvæmt heimildum blaðsins fer hann út í byrjun september og er þegar kominn með talsvert af verkefnum ytra. Ástæða brott- fararinnar er hins vegar sú að hans heittelskaða Hrafnhildur Stefánsdóttir er að fara í fjög- urra ára nám í sviðsmyndahönn- un í Mílanó. ■ Hilmar Sigurðsson seldi félögum sínum í Grafít. Lögfræðingar sátu sveittir og málið endaði með vin- slitum og hurðaskellum. (ristín A. Jónsdóttir og Arni Svav- arsson með sautján þúsund undir- skriftir. Vilja ekki borga af- notagjöldin Á föstudaginn var gengu full- trúar samtakanna Frjálst val, þau Kristín A. Jónsdóttir og Árni Svavarsson, á fund Björns Bjarna- sonar menntamálaráðherra og af- hentu honum sautján þúsund undirskriftir þeirra er vilja mót- mæla skylduáskrift að Ríkisút- varpinu. í menntamálaráðherratíð Ólafs G. Einarsonar höfðu samtökin ít- rekað reynt að koma þessum undirskriftum á framfæri en af einhverjum ástæðum sá Ólafur ekki ástæðu til að veita þeim við- töku. En nú hefur Björn undirskrift- irnar undir höndum og ef marka má yfirlýsingar hans má búast við einhverjum tillögum af hans hálfu sem ganga að einhverju leyti til móts við hugmyndir þessa fólks. Fundahöld í þessum samtök- um eru nokkuð tíð því opnir stjórnarfundir er haldnir á hverju mánudagskvöldi á veit- ingastað formannsins í Grafar- vogi. ■ Velti stolnum bíl Ungur, ölvaður ökumaður velti stolnum bíl skammt frá Akureyri aðfaranótt sunnudagsins. Piltur- inn sem er grunaður um þjófnað- inn er 23 ára gamall og er frá Húsavík. Um kvöldið hafði hann verið með félögum sínum á dansleik í Freyvangi. Hann varð viðskila við félaga sína og var leitað að honum um nóttina. Bílnum sem var stolið var 84 ár- gerð af Galant og stóð í hlaðinu með lyklunum í skammt frá Frey- vangi. Bíllinn valt í Víkurskarði eða Norðurlandsvegi um 700 metra frá Grenivíkurafleggjaran- um. Bíllinn fannst 25 metra frá veginum og er talinn ónýtur en var mannlaus þegar hann fannst. Strákurinn, sem talið er fullvíst að hafi ekið bílnum, var handtek- inn á heimili sínu á Húsavík. ■ Sigurjón Pétursson og Sigríður Hákonardóttir Waage hafa ferðast um landið ogjifað hátt á hótelum og brotist inn í fjölda fyrirtækja. I Íslensk-Ameríska stálu þau 75 milljónum. • Sigurjón Pétursson og Sigríður Hákonardóttir Waage voru handtekin með mikið þýfi um síðustu helgi eftir fjölda innbrota á Austurlandi. Stuttu áður höfðu þau stolið 75 milljónum af ís- lensk-Ameríska verslunarfélaginu og gert víðreist um Norður- land þar sem þau lifðu kóngalífi á hótelum án þess að borga reikninga og keyrðu um a stoln Þau eiga langan brotaferil að baki enda langt leiddir fíkniefna- neytendur sem nota sprautur og hafa neytt heróíns erlendis. Vegna ferilsins hafa þau nú feng- ið viðurnefnið Bonnie og Clyde. 75 MILUÓNA STULDUR Stærsta innbrot þeirra skötu- hjúa er þegar þau brutust inn í fslensk-Ameríska verslunarfé- lagið þann 28. júní síðastliðinn. Þar tóku þau rúmlega 70 millj- ónir króna í alls kyns viðskipta- ri bil. skjölum og víxlum auk rúmlega 4 milijóna króna í ávísunum. Ekki er þó líklegt að þau hefðu getað nýtt sér þessi auðæfi enda erfitt að koma jiví í verð. Fyrir- tækið varð heldur ekki fyrir þungum búsifjum því þetta er allt .tölvukeyrt og því nákvæm- lega vitað hverjir skuldararnir voru og greiðslur héldu því áfram að berast eins og ekkert hefði í skorist. Hins vegar hefði verið mjög dýrt að láta auglýsa og ógilda alla þessa pappíra. Fyrir utan þetta tóku þau ýmsa muni og hluti í innbrotinu í ís- lensk-Ameríska. F0G VÍN Á AUSTURLANDI Eftir innbrotið í Islensk-Amer- íska lá leiðin út á land og nú varð Austurland fyrir valinu. Á Vopnafirði brutust þau inn í fjögur fyrirtæki, skrifstofurnar hjá Kaupfélagi Vopnafjarðar, Bókhalds- og viðskiptaþjónustu Kristjáns Magnússonar, verslun- ina Kauptún og flugstöðina á Vopnafirði. Þaðan tóku þau nokkur ávísanahefti og samtals 75 þúsund krónur í peningum. Einnig tóku þau ýmsan varning, talsvert af geisladiskum, mat- væli auk mikils magns af áfengi og bjór sem þau komist yfir í flugstöðinni. Þetta gerðist fimmtudaginn 6. júlí.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.