Helgarpósturinn - 17.07.1995, Qupperneq 7

Helgarpósturinn - 17.07.1995, Qupperneq 7
OG Stebbi Hilmars TAKA LAGIÐ ^Rétt áður en þau brut- ust inn í Íslensk-Amer- íska voru þau á ferð um Norðurland. Þar skildu þau eftir sig langa slóð af ógreiddum hótel- reikningum. í að minnsta kosti fimm skipti skráðu þau sig inn á Edduhótel eða bændagistingu í Eyja- firðinum og lifðu hátt en stungu alltaf af áður en reikningurinn var greiddur. Samkvæmt öruggum heimildum blaðsins tel- ur lögregian sig hafa óyggjandi heimildir fyrir heróínneyslu þeirra, að minnsta kosti í Amster- dam og Kaupmanna- höfn. Hér heima sprauta þau sig með amfetamíni og læknalyfjum. Á sunnudeginum 9. júlí brut- ust þau svo inn í Heilsugæslu- stöðina á Kirkjubæjarklaustri og stálu þaðan miklu magni af læknadópi, lyQum, töflum, morfíni og fleira en bæði eru þau langt leiddir sprautufíklar. Bíllinn þeirra þekktist og þau voru loks handtekin í Grímsnes; inu af lögreglunni á Selfossi. í bílnum fanst megnið af því góssi sem þau höfðu tekið í Austur- landsreisunni. Síðar fann svo lögreglan á Selfossi mikið magn lyfja við þjóðveginn í Grímsnesi en parið hafði skilið þau þar eft- skráðu þau sig inn á Edduhótel eða bændagistingu í Eyjafirðin- um og lifðu hátt en stungu alltaf af áður en reikningurinn var greiddur. Á milli hótelanna óku þau um á bifreið sem þau stálu á Akureyri og líklega fleiri en ein- um. 3EIFALIFNAÐUR A HOTELUM OG STOLNUM BIL Bæði eiga þau langan afbrota- feril að baki og Sigurjón var síð- ast dæmdur í Héraðsdómi íeykjavíkur þann 27. maí 1993. Rétt áður en þau brutust inn í Íslensk-Ameríska voru þau á ferð um Norðurland. Þar skildu þau eftir sig langa slóð af ógreiddum hótelreikningum. í að minnsta kosti fimm skipti PRAUTJJNOTKUN OG HEROINNEYSLA Sigurjón og Sigríður eru vel þekkt innan lögreglunnar enda eiga þau langan afbrota- og fíkni- efnaferil að baki, einkum Sigur- jón. Hann er 31 árs gamall en hún 24 ára. Fyrir utan fíkniefna- neyslu er hann einkum þekktur fyrir mikla afkastagetu í innbrot- um. „Hann hefur feikilega reynslu í innbrotum,“ eins og einn lögreglumaður, sem þekkir vel til Sigurjóns, sagði. Bæði hafa þau verið í mikilli fíkniefnaneyslu og hafa verið mjög langt leiddir sprautunot- endur um langt skeið. Sigríður er skráð með lögheimili í Dan- mörku en samkvæmt öruggum heimildum blaðsins telur lög- reglan sig hafa óyggjandi heim- ildir fyrir heróínneyslu þeirra, að minnsta kosti í Amsterdam og Kaupmannahöfn. Hér heima sprauta þau sig með amfetamíni og læknalyfjum. JNNIE OG CLYDE Ástæðan fyrir nafngift parsins er vitaskuld þau Bonnie Parker og Clyde Barrow sem gerðu garðinn frægan í kreppunni í upphafi fjórða áratugarins. Það voru svo Warren Beatty og Fay Dunaway sem gerðu þau síðar ódauðleg á hvíta tjaldinu. Þau voru frá Tex- as í Suðurríkjunum og sam- kvæmt myndinni hittust þau þeg- ar hún allsnakin stöðvaði Clyde þar sem hann var að stela bíl móður hennar. Hann var þá ný- sloppinn úr Ríkisfangelsinu fyrir vopnað rán. Þau hrifust hvort af öðru og ferðuðust saman um landið og rændu söluturna og banka. Þau skildu eftir sig blóði drifna slóð og voru lengstum hundelt af lögreglunni sem náði þeim á endanum og drápu.B félagar Stefdn Hilmarsson og Eyjólfur Kristjdnsson að taka lagið. Árni Johnsen mun síðan taka upp þráðinn að nýju á miðvikudags- kvöld ásamt hljómsveit- unum Karma og Tveety. Fimmtudags- föstudags- og laugardagskvöld er það hljómsveitin Hálft i hvoru sem heldur mönnum við efnið. ■ Íslensk-Ameríska verslunarfélagið. Þar brutust þau inn og stálu 70 milljónum í viðskiptaskjölum og 5 milljónum í ávísunum. Bonnie og Clyde. Sigurjón Péturs- son og Sigríður Hákonardóttir Waage hafa ferðast um landið og lifað hátt á hótelum og brotist inn í fjölda fyrirtækja. Þessa vikuna œtlar Kaffí Reykajvík að hita upp fyrir þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Marg- ir alþekktir og -rœmdir skemmtikraftar œtla að skemmta gestum með hljóðfœraslœtti og söng frá því á þriðjudags- kvöld og fram á laugar- dagskvöld. Og það er enginn annar en Herra Vestmannaeyjar, Árni Johnsen sjálfur, sem fyrstur stígur á stokk annað kvöld. Ef tími gefst til leika hljóm- sveitirnar Sálin hans Jóns míns og Vinir vors og blóma seinna sama kvöld. Einnig œtla þeir MWNÚÐWGUR FRETTIR- Islensk gleðikona eftirsótt „Algjör engill næturinnar. Ótrúlega falleg, grönn íslensk stúlka, 22 ára, stór yndisleg brjóst". Þannig hljómar auglýs- ing í danska Extrablaðinu í vor. „Ég verð nú eiginlega að viður- kenna að ég hef aldrei búið á ís- landi. Satt best að segja er ég ekki alveg íslensk. Ef ég á að vera alveg heiðarleg, sem ég neyðist víst til að vera, þá er sannleikur- inn sá að ég er hálf norsk og hálf dönsk“, segir Chora, en hún aug- lýsir þjónustu sína sem íslensk gleðikona á til þess gerðri smá- auglýsingasíðu Extarblaðsins í Danmörku. „Ég tala dönskuna með hreim og þurfti því að velja mér eitt- hvert þjóðerni annað en danskt, og ákvað að segjast vera íslensk. Ég er þekkt í Noregi og vildi því ekki segjast vera norsk því þá gæti ef til vill spurst þangað í hvernig starfi ég er en það vil ég alls ekki því mér er annt um mannorð mitt, ekki síst vegna þess að ég er tveggja barna móð- ir. Það eru margir sem hafa for- dóma gagnvart þessu starfi. En ef ég segist vera íslensk þá spyr enginn um neitt og ef einhver gerir það segist ég bara vera frá Reykjavík en það er tiltölulega stór staður skilst mér og enginn spyr neitt nánar út í það,“ segir Chora. „Jú, ég fékk gott start og það er búið að vera nóg að gera hjá mér. Það selur mjög vel að segjast vera íslensk. Það er öðru- vísi, auk þess sem gott orðspor fer af íslenskum stúlkum.“ Að- spurð segir Chora að hingað til hafi enginn þeirra sem uppgötv- að hafa að hún er ekki íslensk hætt við viðskiptin eða orðið móðgaðir af þeim sökum. „Þegar þeir sjá mig er þeim alveg öld- ungis sama hvaðan ég er. Eg vil nú ekkert vera að monta mig en ég lít mjög vel út,“ segir Chora og bætir við: „Mér fyndist heimskulegt að vera ekki í þess- um bransa, tekjurnar eru mjög góðar. Þetta er hins vegar ekki starf fyrir hvern sem er, sumar stelpurnar fara illa út úr þessu, en ég hef fulla stjórn á því sem ég er að gera. Þú ert velkominn í heimsókn ef þú átt leið til Kaup- mannhafnar.“ ■ Borgin gerir út njosnara Nú hefur Fegrunarnefnd Reykjavíkur sent starfs- menn sína út af örkinni til að finna að húsum og görðum borgaranna. Ef út- sendararnir sjá eitthvað sem þeir telja aðfinnslu- vert er skrifaður miði þar sem talið er upp það sem húseigandinn er beðinn um að lagfæra. Mönnum er síðan bent á að taka ábendinguna til athugun- Fegrunarnetnd Reykjayikur t,f ~l~ Miði frá Fegrunarnefndinn með áskorun til húseig- anda að fara nú að mála hjásér þakið. ar og lagfæringar eins fijótt og mögulegt er. ■

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.