Helgarpósturinn - 17.07.1995, Page 11
UTLOND
Frakkar
Vilja ekki
banna betlara
Samkvæmt skoðanakönnun
sem gerð hefur verið í Frakk-
landi er meirihluti frönsku þjóð-
arinnar andvígur reglum sem
settar hafa verið í mörgum borg-
um landsins og banna mönnum
að betla. AIls 55 prósent að-
spurðra segjast andvígir bann-
inu en 42 prósent eru því fylgj-
andi. 6 prósent sögðust stund-
um gefa betlurum peninga en
tuttugu prósent segjast aldrei
gefa neitt.
Þessar nýju reglur hafa vakið
miklar deilur meðal þjóðarinnar.
Þeir sem eru þeim fylgjandi
benda á að opinberir aðilar reki
umfangsmikla og dýra félagslega
þjónustu og að ágeng betlistarf-
semi eigi engan rétt á sér. And-
stæðingar bannsins benda á
móti á að margir falli gegnum
þetta sama net enda sé það
gisið. ■
Hugh Grant hefur nú beint
þeirri ósk til fjölmiðla að þeir
hætti að fjalla um viðskipti hans
og gleðikonunnar Divine Brown.
Grant er nú á mikilli yfirreið um
sjónvarpsheiminn, en hann er að
kynna nýjustu mynd sína, Níu
mánuði. Grant vísar því á bug að
hann sé „fallinn" maður. Hann
neitar einnig sögusögnum þess
efnis að hann hafi farið með
meðleikara sínum úr Níu mánuð-
um, Tom Arnold, á pöbbarölt að
kíkja á nektardansmeyjar.
Forstjóri BBC í Bretlandi, John
Birt segist harma umfjöllun
stöðvarinnar um málefni
Grants. Birt segir fjölmiðla hafa
gengið alltof langt og nefnir sér-
staklega aðgangshörku við
Grant og unnustu hans, Liz Hurl-
ey, þegar þau hittust í sumar-
húsi sínu eftir hrösun Grants í
Los Angeles. „Ég harma að við
skyldum taka myndir af þeim
með aðdráttarlinsum þar sem
þau sátu í eigin' bakgarði, ég
harma að við skyldum opinbera
heimilisfang þeirra og ég harma
þá áherslu sem við lögðum á
mál þeirra og ég veit að það eru
margir í blaðamannastétt sam-
mála mér í
þessum efn-
um,“ segir Birt,
en lofar hins
vegar að BBC-
menn læri af
mistökunum. ■
Hugh Grant er
búinn aö fá nóg
af umfjöllun um
sjálfan sig.
Italskur
dómari
handtekinn
- mafíu-
forinqi
ákærour
fyrir morö
ttalskur dómari Giacomo Foti
hefur nú verið fangelsaður fyrir
spillingu og eftirlátssemi við ma-
fíuna. Foti hafði sleppt 28 með-
limum mafíunnar lausum á
grundvelli tæknilegs atriðis.
Hann gaf sig sjálfur fram við lög-
reglu þegar hann frétti að gefin
hefði verið út handtökuskipun
hans. En Goti er ekki sá eini sem
var handtekinn vegna þessa
máls því Raffaele Barcella, sem er
fangelsisstjóri í bænum Reggio
Calabria, hlaut sömu meðferð en
hann er sakaður um víðtæka
greiðasemi, gegn greiðslu í
reiðufé við þá meðlimi mafíunn-
ar sem gista geymslur hans.
Annar ítalskur dómari hefur
ákveðið að draga mafíuforingj-
ann Salvatore Riina til ábyrgðar
vegna morðs sem framið var ár-
ið 1988. Talið er að Riina hafi lagt
á ráðin um morðið á saksóknar-
anum Antonio Setta, en hann
barðist ötuliega gegn starfsemi
mafíunnar. Auk Riina eru tveir
aðrir mafíuforingjar ákærðir fyr-
ir morðið á Setta. ■
Átján kafna
úr hita í
flutningabíl
Átján Sri Lanka-búar fundust
látnir úr hita í flutningabíl í Ung-
verjalandi á laugardag. 19 aðrir
farþegar úr bílnum hafa verið
handteknir. Fólkið segist hafa
greitt 55 þúsund krónur fyrir
flutning til Þýskalands. Þriggja
manna úr hópnum er nú leitað
auk þess sem lögreglan vill hafa
tal af þremur rúmenskum bíl-
stjórum flutningabílsins. Þeir átj-
án sem létust voru í tengivagni
en hinir voru í bílnum sjálfum.
Lögreglunni hafði borist kvört-
un vegna flutningabílsins, en
honum hafði verið lagt í útjaðri
borgarinnar Gyor í vesturhluta
Ungverjalands. Bíllinn þótti lykta
illa og að honum safnaðist
flugnager. Búist er við að eftirlif-
andi farþegar bílsins verði send-
ir til síns heima. ■
• Umfang tryggingasvika í Evrópu er nú talið mælast í hundruð-
um milljarða króna. Viðhorf almennings til tryggingasvika valda
tryggingafélögum höfuðverk. í Bretlandi áætla menn að sextíu
milljarðar króna hafa verið sviknar út úrtryggingafélögun á síð-
asta ári.
Frakkinn Michael Dandonneau
keypti sér átta líftryggingar. Síð-
an fann hann umrenning og
myrti. Líki flækingsins kom
hann fyrir í bíl sínum, ýtti bíln-
um niður í gjá og kveikti í hon-
um. Þegar bíllinn fannst var lík
flakkarans óþekkjanlegt. Dand-
onneau ætlaði síðan með dyggri
aðstoð kærustunnar að njóta
tryggingafjárins í Karabíska haf-
inu. En lið fyrrum lögreglu-
manna sem vinna fyrir Samtök
trggingafélaga gegn svikum,
Alfa, kom upp um kauða og
hann fékk tíu ára fangelsisdóm
fyirr morðið á flakkaranum.
Þessi saga er aðeins eitt dæmi
af mörgum í þeirri plágu trygg-
ingasvika sem nú virðist herja á
álfuna alla og valda stórhækkun
á iðgjöldum. Samband breskra
tryggingafélaga áætlar að falsk-
ar kröfur á meðlimi sambands-
ins hafi numið um sextíu millj-
örðum króna á síðasta ári og
hækkuðu iðgjöld sín um fjögur
prósent.
SAGÐIST VÍRA HUNDRAÐ
PROSENT ORYRKI — VARÐ
SIÐAN ALHEILBRIGÐUR FYRIR
KRAFTAVERK
Á Spáni er ástandið síst betra.
Þar hafa svikadeild iögreglunn-
ar og tryggingafélögin nú hafið
samstarf og berjast sameigin-
lega gegn sívaxandi trygginga-
svikum. Spánverjar áætla að allt
að tíu prósent allra tekna trygg-
ingafélaganna séu greidd út
vegna falskra krafna. Áður voru
ekki mörg tryggingasvik upplýst
á Spáni en nú er barist gegn
þeim á kerfisbundinn hátt.
Kröfur vegna umferðaró-
happa eru algengar og dæmi um
kröfur vegna óhappa sem hrein-
lega hafa aldrei átt sér stað.
Einn kröfuhafa fékk fullar bæt-
ur vegna 100 prósent örorku,
fór síðan í pílagrímsferð til Lo-
urdes nokkrum mánuðum síðar
og sneri heim alheilbrigður.
Þetta vakti að sjálfsögðu grun-
semdir og mál hans var tekið til
rannsóknar.
UNGUfÓLKI FINNST ALLT í LAGI
AÐ SVIKJA TRYGGINGAFELOGIN
Viðhorf almennings til trygg-
ingasvika er ekki beint uppörv-
andi. Fjórði hver Þjóðverji sér
ekkert athugavert við þau, sam-
kvæmt skoðanakönnun. Og það
sem veldur tryggingafélögunum
hvað mestum áhyggjum er sú
staðreynd að eftir því sem fólk
er yngra virðist það vera kæru-
lausara í þessum efnum og
framtíðarsýnin því ekki glæsileg
fyrir félögin. Þátttakendur í áð-
urnefndri skoðanakönnun voru
meðal annars spurðir um við-
horf sitt til þess að segja að
hlutir, sem voru löngu horfnir
áður en til hugsanlegs innbrots
kemur, hafi verið stolið í því inn-
broti. Fimmtíu prósent að-
spurðra í aldurshópnum 16 til
26 ára fannst það í góðu lagi.
í Bretlandi setti maður einn
eigin dauða á svið en fannst síð-
an í holu sem hann hafði grafið
undir gólfið í svefnhergbergi
sínu. Hann átti rétt á fimmtán
milljóna króna líftryggingu en
var nú í staðinn dæmdur til að
dúsa í fangelsi í fjögur ár auk
þess sem eiginkona hans og fað-
ir fengu eins árs fangelsi.
í Frakklandi eru tryggingasvik
með svipuðum hætti og í öðrum
Evrópulöndum, en þeir eru þó
nokkuð iðnir á einu sérstöku
sviði tryggingasvika. Margir
franskir læknar virðast viljugir
að gefa fólki vottorð vegna veik-
inda eða slysa sem eiga sér litla
eða enga stoð í raunveruleikan-
um, eftir því sem talsmenn Alfa
segja. ■
Leeson berst
FYRIR LÍFI SÍNU
í FJÖLMIÐLUM
Breski bankamadurinn,
Nick Leeson, sem fyrr á
þessu ári var sakaður um
að hafa steypt einni öflug-
ustu bankasamsteypu
Bretaveldis i gjaldþrot
með svimandi áhœttufjár-
festingum í Mið- Asíu,
berst nú fyrir lífi sínu í
breskum fjölmiðlum.
Bankinn, sem beið hvorki
meira né minna en 1,4
billjóna sterlingspunda
fjárþrot í febrúar féll í
hendur þýskra fjárfestiað-
ita og mun tjánið sem Lee-
son varð valdur að, óbœt-
anlegt.
Leeson á nú yfír höfði sér
þungan fangelsisdóm og
vilja dómstólar í Singa-
pore fella dóm í málinu en
þar í landi á Leeson yfír
höfði sér eina tólfákœru-
liði verði dœmt í málinu
þar. Leeson, sem nýverið
skrifaði breskum fjölmiðl-
um örvœntingarfullt bón-
arbréfog lesið var upp af
grátklökkri konu hans fyr-
ir milljónum sjónvarps-
áhorfenda, segirþarað
réttarhöld í Kína yrðu
sýndarleikur einn og til
þess eins gerð að staðfesta
myndrœna aftöku hans.
Hefur Leeson boðið bresk-
um dómstólum að fallast
á eina fjóra ákœruliði og
jafnvel fleiri, verði mál
hans tekið fyrir í eigin
heimalandi en það er um
helmingur þeirra ákœru-
atriða sem hann verður
dreginn til saka fyrir í
Singapore þar sem hann
starfaði áður hjá Barings-
banka með fýrrgreindum
afleiðingum. Leeson hefur
alla tið haldið því fram að
þátttaka hans og hlutdeild
í gjaldþrotinu hafí einung-
is verið smánarleg og hafí
hann verið peð í mun
stœrra tafli sem nú hafí
verið fleygt í úlfagryfjuna.
Vtan ákœru um ólöglega
ráðstöfun fjármuna bank-
ans, hefur Leeson einnig
verið sakaður um glœfra-
starfsemi og sviksamlegar
ákvarðanatökur. Leeson
berstþó enn og neitar
staðfastlega sakargiftum.
Bresk yfirvöld eru þó treg
til og hafa enn ekki gefið
jákvœtt svar um framsal
LeesonsM