Helgarpósturinn - 17.07.1995, Side 12

Helgarpósturinn - 17.07.1995, Side 12
MEIRA MANNLIF HRUTURINN Ef þú verður akandi þarftu að vara þig á bráðlyndi þínu. Þessi vika verður hrútum sem eru f viðskiptum happadrjúg. Eitt- hvað sem þú hefur þurft að bíða með um tíma verður í sjónmáli á föstudag. Helgin á eftir að verða skemmtilegri en þú gerðir þérvon um. NAUTIÐ . Minnkandi áhrif frá Satúrnus gera það að verkum að þú átt betra með að skipuleggja þig en að undanförnu. Um miðja vik- una getur sú staða komið upp að þú standir á krossgötum góðs og ills varðandi mál sem snertir ástvin þinn. Þó að helgin verði í þínum augum rósrauð, þá fer ekki hjá því að þú þurf- ir að taka hlutina alvarlega. TVÍBURINN Þú þarft að vara þig á þeirri til- hneigingu þinni að vera tvístíg- andi í ákvarðanatöku. Afstaða stjarnanna er góð fyrir tvíbura sem eru á ferðalagi. Ef þú ert I föstu sambandi verður maki þinn undrandi á hvað þú ert rómantísk(ur). Líklegt er að um helgina verið leitað til þín um ráðgjöf í máli sem þú ættir að kunna skil á. KRABBINN Þú þarft að vara þig á villandi upplýsingum og þér er ráðlagt að staðfesta vissa hluti áður en þú gengur endanlega frá þeim. Haltu áfram að sýna ákveðni í máli þar sem þú veist að þú hefur rétt fyrir þér. Það er margt jákvætt að gerast í atvinnu- málum þínum. Ef þú ert á lausu eru ævintýri I námd. LJÓNIÐ Þér hentar vel að vinna aö mál- um sem gera það að verkum að tekið verður eftir þér. Farðu var- lega í samskiptum þínum við ráðamann við peningastofnun. Þetta verður rómantísk helgi hjá flestum ykkar. Þú ert I góðu formi en þarft að varast að vera með áhyggjur. Sólin verður sterk í merkinu þínu um helgina og mikil bjartsýni mun einkenna Þíg- MEYJAN Þú hefur mikið að gera framan af vikunni og ef þú ert á ferða- lagi þarftu að vera viðbúin(n) því að eitthvað tefji þig og ferðaáætlun fari úr skorðum um tíma. En þú þarft ekki að hafa áhyggjur því, þetta er ekkert alvarlegt. Það verður heilmikið að gerast I kringum þig um helgina og stjörnurnar verða þér hagstæðar. VOGIN Vissir erfiðleikar virðast Vera að baki og þér er óhætt að líta björtum augum fram á veginn. Þér er ráðlagt að skipuleggja þig betur svo að þú komir meiru í verk en að undanförnu. Venus er ráðandi í merkinu þínu og það er mikil rómantík I kringum þig. SPORÐDREKINN Ef þú átt í einhverjum erfiðleik- um finnurðu nýjar leiðirtil að 1 hlutirnir fari að ganga vel aftur. Ef þú ert í föstu sambandi þá máttu eiga von á skemmtilegri helgi. En ef þú ert ein(n) og ert að vonast eftir því að hitta spennandi persónu um helgina geturðu bókað að það verður ekkert af því. BOGMAÐURINN Einhver persóna sem þú þekkir eða vinnur með á í erfiðleikum með sjálfa(n) sig og mun biðja þig um aðstoð. Þú færð góðar fréttir um miðja vikuna sem tengjast vinnu- stað þínum. Aukin áhrif frá Júpiter gera það að verkum að þú átt I vændum skemmtilega helgi og hittir mikið af fólki. STEINGEITIN Forðastu að vera með áhyggjur út af smámunum, en reyndu heldur að nota orkuna I að koma vissum hlutum í umhverfi þínu I lag. Þegar líður á vikuna verða áhrif stjarn- anna þér hagstæð og þú færð hvatningu til að hefjast handa um aö gera ákveðnar breytingar og umbætur á heimili þínu eða vinnustað. Þú finnur fyrir auknu sjálfsöryggi um helgina. VATNSBERINN Góðar fréttir af fjármálunum berast um miðja vikuna. En þér er ráðlagt að skoða vel hug- mynd sem þú fékkst fyrir nokkru og laga hana til svo að hún verði not- hæf. Um helgina verður eitthvað æsandi I sambandi við rómantíkina en þér er rálagt að halda ást og vináttu aðskildum. FISKARNIR Ekki verða allar ferðir farnar til fjár og þú ættir að varast að kenna öðrum um þó að áætlun sem þú gerðir fari út um þúfur. Þegar nálgast helgina fara áhrif frá tunglinu minnkandi og þú verður rólegri og átt betra með að taka réttar ákvarðanir. Þú átt á hættu að lenda í orðasennu við persónu af gagn- stæðu kyni. Þau voru ýmis andlitin sem létu sjá sig á kynning- arkvöldi Uxans á Astro fyrir komandi hátíð á Kirkju- bæjarklaustri um næstu verslunarmannahelgi en slegið var á létta strengi á sviði sem í salarkynnum og skemmtu gestir sér hið besta... Móa Júníus, betri helmingur Bong, ásamt vinkonu sinni Astu eskimóadrottningu. Og Emiliana Torrini, einn þeirra tónlistar- manna sem tekur lagið á Kirkjubæjarklaustri með frísklegt bros og sólbrúnar kinnar. Heiða litla í Unun, innskeif og prúð með lita gleðina rokkandi framan á sér... Harpa litla hugprúða í innilegum faðmlögum við Henny Hermanns, framkvæmdastjóra netcafé’s Síberíu. Tískuparið úr Noi, Vala ásamt sínum ítalska eigin manni, Claudio. Vertarnir í poppbransanum, þeir Helgi Björns poppari við hlið Baldvins Jónssonar útvarpseiganda. DYRASTI Ef heppnin er með þér vinnur þú Lundúnar- ferð fyrir tvo með Emerald Air í sumar. Það eina sem þú þarft að gera er að svara laufléttri spurningu og senda svarið til Mánudagspóstsins, Vesturgötu 2. Rétt svör fara i pott sem dregið verður úr þann 7. ágúst næstkomandi. Nafn vinningshafans verð- ur birt í Mánudagspóstinum 8. ágúst. Spurningin í dag er: Hvað heitir fyrverandi kona Karls bretaprins? [ Nafnið þitt:_____________ l Heimilisfang: ____________ ] Póstnúmer:________________ I Setjið í umslag og skrifið utan á: Símanúmer:______ Ferðahappdrætti Mánudagspósturinn Vesturgötu 2 101 Reykjavík Morguti rald AirY Posturifín

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.