Helgarpósturinn - 17.07.1995, Side 17
iftWl
MWNUJÐWGUR
sxsáSSíK-. %&m&4»&»va-'v\\ . <
IÞROTTIR
Amfiríki ihika rinn
Eric Wynalda skorar fyrir Banda-
ríkjamenn í 3-0 sigri þeirra gegn
Argentínu í riðlakeppninni.
Kókimbia afram
Uruguay og Kólumbía eru kom-
in áfram í fjögurra liða úrslit Am-
eríkubikarsins. Uruguay sigraði
Bólivíu 2-1 í gærkvöldi eftir að
hafa verið 2-0 yfir í hálfleik. Það
voru Marcelo Otero og Daniel
Fonseca sem gerðu mörk Uruguay
en Oscar Sanches svaraði fyrir Ból-
ivíu.
Það þurfti hins vegar víta-
spyrnukeppni í viðureign Kól-
umbíu og Paraguay. Eftir venju-
legan leiktíma var staðan 1-1 en
það var Juan Carlos Villamayor
sem skoraði fyrir Paraguay en
Fredy Rincon svaraði fyrir Kól-
umbíu. Ekki er framlengt í Amer-
íkubikarnum og Kólumbía sigr-
aði 5-4 í vítaspyrnukeppni. Það
var hinn litríki Rene Higuita sem
bjargaði sínum mönnum með
því að verja síðustu spyrnuna.
Hin liðin sem keppa um tvö
laus sæti í fjögurra liða úrslitun-
um er Brasilía og Argentína ann-
ars vegar og Mexíkó og Banda-
ríkin hins vegar en þeir leikir
fara fram í dag. Argentína tefldi
fram hálfgerðu varaliði á föstu-
daginn í riðlakeppnninni og
héldu að sigurinn væri vís.
Bandaríkjamenn unnu hins veg-
ar 3-0 sem varð til þess að Arg-
entína þarf að mæta firnasterk-
um Brasilíumönnum í átta liða
úrslitunum í dag.B
í gærkvöldi fóru fram þrír leikir
í 1. deildinni. Efsta liðið, Akranes,
fékk neðsta liðið, Val, í heimsókn
og sigraði með einu marki gegn
engu. Það var Stefán Þórðarson
sem skoraði með skalla á 84. mín-
útu. Hann ætlar sér greinilega
ekki að detta út úr liðinu en flest-
ir telja að hann víki sæti fyrir
Bjarka Gunnlaugsson.
KR sigraði Breiðablik á heima-
velli sínum 2-1. Blikarnir voru
sterkari í fyrri hálfleik en eina
mark þeirra gerði Arnar Grétars-
son á 3. mínútu leiksins. í síðari
hálfleik voru KR hins vegar mun
betri aðilinn. Mihajolo Bibercic
skoraði strax eftir 20 sekúndna
leik og Guðmundur Benediktsson
skoraði svo á 87. mínútu og
tryggði KR sigurinn. Þetta er
ÍA 8 8 0 0 16-2 24
KR 8 5 0 3 10-8 15
Leiftur 7 4 0 3 13-10 12
Keflavík 6 3 2 1 6-3 11
ÍBV 8 3 1 4 18-11 10
Grindavík 8 3 1 4 12-12 10
Breiðablik 8 3 1 4 12-13 10
FH 7 2 0 5 11-18 6
Fram 6 1 2 3 4-12 5
Valur 8 1 1 6 6-19 4
KR-Breiðablik 2-1
Grindavik-ÍBV 1-0
ÍA-Vaiur 1-0
fyrsta deildarmark Guðmundar í
sumar en hann er nú óðum að ná
sér af meiðslunum og er að fær-
ast í sitt fyrra form. Grindvíkingar
sigruðu Eyjamenn á heimavelli
sínum með einu marki gegn engu.
Það var turninn í vörn Grindvík-
inga, Milan Jankovic, sem skoraði
eina mark leiksins úr vítaspyrnu
á 80. mínútu.B
Valur tapaði ekki nemal-O
Valsmenn gerðu góða ferð á
Skagann í gærkvöldi. Þeir töp-
uðu ekki nema 1-0 fyrir íslands-
meistarakandídötunum. Eins og
íþróttapressan hefur verið að
ýja að var sæti Harðar Hilmarsson-
ar orðið heitt, en svo skemmti-
lega vill til að úrslitin í gær hljóta
að vera Valsmönnum gleðiefni.
Valsmenn virðast vera að sækja í
sig veðrið og líkurnar á að Hörð-
ur verði látinn fara hljóta að hafa
minnkað til muna. Ekki datt
nokkrum manni í hug að halda
að Herði yrði sagt upp störfum
fyrr en eftir leikinn gegn ÍA, sá
leikur var tapaður hvort sem er.
Það hefði ekki verið fýsilegt fyrir
nýjan þjálfara að þurfa að spila
við Skagann fyrsta leik. Þessi úr-
slit breyta þó því ekki að Vals-
menn eru í „djúpum skít“ eins og
Hörður orðaði það svo skemmti-
lega og eitthvað mikið verður að
gerast eigi liðið ekki að falla.
Pósturinn hefur eftir áreiðanleg-
um heimildum að Valsmenn hafi
verið á höttunum eftir Árna Gauti
Arasyni landsliðsmarkverði U-21
árs liðsins. Gamla góða klisjan
um að nóg sé eftir af mótinu dug-
ir skammt, krafan um breytingar
í brúnni verða æ háværari meðal
stuðningsmanna Vals. ■
Ingi Björn er markahæstur ís-
lenskra knattspyrnumanna frá
upphafi. Það er spurning hvort
hann tekur ekki bara fram skóna á
ný, ekki virðist veita af.
Hvernig gastu reddað okkur
svona ódýrum sætum?
Hvað áttu við? Þetta er bara
venjulegt fargjald hjá Emerald Air.
London 26.140 Belfast 21.140
öll gjöld innifalin i verði
Sölustaðir:
Ferðaskrifstofan Alis, slmi 565-2266 Ferðaþjónusta bænda, slmi 562-3640
Ferðaskrifstofan Ferðabær, slmi 562-3020 Ferðaskrifstofa Stúdenta, slmi 561 -5656
Ferðaskrifstofa Reykjavíkur, sími 562-1490 Norræna ferðaskrifstofan, slmi 562-6362
EMERALD AIR
- lengra fyrir lægra verð
Steffi Graf
í SKATTRANNSÓKN
Nýkrýndi Wimbledon-
meistarinn, Steffi Graf, er
nú til rannsóknar ásamt
föður sínum Peter Graf
vegna meintra skattsvika
í heimalandi sínu,
Þýskalandi. Lögreglan
hefur tekið í sína vörslu
skjöl sem tengjast mút-
inu og voru geymd á
heimili Grafí Bruehl.
Lögreglan réðst til inn-
göngu í besta löggu-
myndastíl í dagrenningu.
Talið er að rannsóknin
muni taka langan tíma
og að mánuðir muni líða
áður en gefin verður út
ákœra. Graf, sem talið er
að hafi unnið sér inn 4,2
milljarða króna á ferli
sínum sem tennisleikari,
hefur ólíkt mörgum koll-
egum sínum kosið að
flytja ekki frá heima-
landi sínu til einhvers
annars lands þar sem
skatthlutfallið er ekki
eins hátt. ■
Monicu Seles
EKKI HYGLAÐ
Monica Seles, tennis-
kona frá fyrrum Júgó-
slavíu, nú bandarískur
ríkisborgari, er að búa
sig undir að hefja keppni
að nýju. Seles hefur nú
verið frá keppni í tvö ár
eða allt frá því að geð-
bilaður þýskur áhorf-
andi stakk hana í bakið
því honum þótti hún
skyggja á Steffi Graf.
Seles mun hefja keppni
þann 29.júlí en þá leik-
ur hún sýningarleik við
Martinu Navratilovu. Þá
er talið fullvíst að Seles .
taki þátt í Opna banda- —£
ríska mótinu í haust. En
þá byrja vandamálin.
Navratilova, sem er for-
maður samtaka tennis-
leikara vill skipa Seles,
ásamt Graf, efst á styrk-
leikalistann fyrir mótið.
Þetta segjast keppinaut-
ar Seles ekki geta sœtt
sig við og vilja að hún
byrji bara á botninum að
nýju. Navratilova mun
hafa boðið Seles þetta
sasti á listanum án þess
að ráðfœra sig við aðra.
Það errjóminn aftenn-
ishonum sem nú hefur
skipað sér í sveit, með
þœrSteffi GrafogAr-
antxa Sanchez Vicario í
framlínunni, og mót-
mœlt allri sérmeðferð á
Seles. ■