Helgarpósturinn - 17.07.1995, Síða 19

Helgarpósturinn - 17.07.1995, Síða 19
 FRETTIR % -skýrslur • Það var sumarið 1976 um miðjan júlí klukkan tvö að nóttu að kona ein vaknaði við að ókunnugur maður var kominn í svefn- herbergi hennar á annarri hæð hússins. Maðurinn stóð fyrir framan skáp sem var við norðurvegg herbergisins. Hann snéri frá henni að skápnum og var að horfa á barnaleikföng sem voru bak við gler í tveimur efstu hillum skápsins. Konan bjó ein með börnum ar á buxunum voru í styttra lagi sínum sem voru á aldrinum sjö til sextán ára í húsi sem þá var í útjaðri Reykjavíkur. Ekkert hús var á móti hinum megin götunn- ar sem var götuslóði heim að nokkrum húsum. Var þetta hús úti á enda og þar tók við óbyggt iand. Konunni var eðlilega mjög brugðið og óttaðist hún að mað- urinn væri búinn að gera börn- um hennar mein. Lítii stofa að- skildi herbergi hennar frá her- bergjum barnanna. Um stund stóð maðurinn við skápinn og sá konan vei hnakka- svip og bakhluta hans. Á þess- um árstíma er náttbjart og því gat konan virt vel fyrir sér vaxt- arlag og kiæðaburð mannsins. Hún telur að hann hafi verið á að giska um eða rétt innan við þrítugt, grannur, yfir meðallagi Íiár, ijósskolhærður. Hann var klæddur í gráan tvíddjakka og brúnar terlínbuxur. Hann var með dökka skó á fótum, í skjannahvítum sokkum sem krupuðust við skóna. Skálmarn- og sýndist konunni maðurinn ekki vera neinn skartmaður í klæðaburði en þokkaiegur til fara. ÞÓTTIST SOFA Kona þessi var atvinnurek- andi og á meðan maðurinn var að virða fyrir sér skápinn varð konunni hugsað tii peningatösk- unnar sinnar, en í henni var nokkuð af peningum eða inn- koma dagsins eftir hádegi. Hún hafði þess vegna sett töskuna undir dýnuna í rúminu sínu. Nokkuð verðmætur bíll stóð í innkeyrslunni og hefur hann ef til vill átt þátt í áhuga mannsins fyrir heimilinu. Konan sá ekki vel framan í manninn en sýndist hann vera fölleitur. Hún þorði ekki annað en næstum því loka augunum svo það liti út sem hún svæfi en hún sá þó móta fyrir umhverf- inu. Maðurinn gekk út að glugg- anum og var ekki að sjá neina styggð á honum. Hann fór síðan c Hún vaknaði um miðja nóttvið það að ókunnur maður varaðskoðasig um ísvefnherberginu hennar. Maðurinn var rólegur en leit- aði einhvers. hring um herbergið og var létt- stígur. En þegar hann hafði skoðað herbergið um stund fór hann fram og stuttu síðar heyrði konan útidyrahurðinni skellt í lás. Hún beið þá ekki boðanna og snaraðist fram úr rúminu, út að glugganum sem vissi í áttina að götuslóða sem lá fram með húsinu út á aðalgötuna. Mann- inn sá hún hlaupa hálfboginn út á götuna og í hvarf við nálæg hús. LEIT BAR EKKIÁRANGUR Konan gætti að börnunum en ekki var að sjá að þau hefðu orð- ið gestsins vör, þau steinsváfu. Hún fór því næst að huga að því hvar maðurinn hefði farið inn í húsið. Rúður í framdyrum og bakdyrum voru heilar og engin sjáanieg merki um innbrot við fyrstu sýn. Við bakdyrnar var hins vegar opinn gluggi sem maðurinn hefði geta komist inn um án þess að valda skemmd- um. Það dróst í nokkrar mínútur að konan hefði samband við lög- reglu og má vera að ef hún hefði strax leitað aðstoðar við að finna manninn hefði hann náðst. En öll eftirgrennslan lögreglu eftir manni sem svaraði þessari lýsingu bar ekki árangur. í fyrstu var talið að maðurinn hefði ekki tekið neitt, en um morguninn kvartaði yngsta dótt- irin yfir því að hennar peningar, sem voru í skál á borðinu í her- berginu um kvöldið, væru horfn- ir. Ekki leið nema vika til hálfur mánuður þar til mannsins varð aftur vart í húsinu. Það var einn- ig um nótt en líklega um klukkan þrjú. Þá sá hann kona sem var gestkomandi og svaf í herbergi barnsins sem tapaði peningun- um við fyrri næturheimsókn mannsins. ÓVENJULEGA GRÁAUGU Konan vaknaði við að maður laut yfir hana í rúminu og taldi hún sig sjá inn í óvenjulega grá augu. Maðurinn sagði ekki orð þegar hann sá að konan var vöknuð en snérist á hæl og hljóp niður stigann og út á göt- una. Eins og í fyrra skiptið slapp hann án þess að lögregiari næði að berja hann augum. í þetta skipti fór hann inn um svaladyr á efri hæð og til þess að komast að krækjunum á hurðinni hafði hann notað járntein á efri krækjuna og sett hann inn um opinn giugga sem var of lítill til að hann gæti sjáifur skriðið inn um hann. Neðri krækjuna spennti hann frá. En eftir fyrri heimsókn mannsins hafði glugganum við dyrnar út í garð verið læst sem og öllum gluggum neðri hæðar hússins. Ekki hafði maðurinn neitt upp úr krafsinu í þessari ferð og varð ekki vart við hann framar í húsinu. Síðar um sumarið fréttu húsráðendur af manni sem víða hafði farið um borgina í nætur- heimsóknir og gekk síðar undir nafninu Náttfari. Lýsingu ber þó að mörgu leyti ekki saman við iýsingu á þess- um eina og sanna Náttfara. ■ Ungir þvotta- menn hasla sér völl í gluggaþvotti • Ungir gluggaþvottamenn lögðu leið sína á ritstjórn Póstsins en þeir voru að kynna þjónustu sína. „Við gerðum samning við ýmis fyrirtæki," sögðu strákarnir hressir. „Við höfum gert þetta í tvo mánuði og tökum hundraðkall á gluggann. Við erum með þriggja metra framlengingu á skaftinu og getum því þvegið stóra glugga.“ Þeir Sverrir Þór Gunnarsson tíu ára og Magnús Örn Magnússon sem er tólf ára gamall kvöddu þvínæst vegna þess að þeir eru ekki „góð- ir í orðurn" eins og þeir sögðu þótt við vonum að þeir séu þeim mun betri í gluggaþvotti. En þeir mæta harðnandi samkeppni. „Aðrir strákar eru stundum af- brýðisamir og reyna að vera eins og við en þeir hafa ekki jafn góð efni. Þeir eru stundum að hóta að lemja okkur ef við hættum ekki. Þetta er hörkubisniss en við er- um svo eyðslusamir og eyðum öilu jafnóðum í Nonnabita eða tí- volíið. Við erum líka búnir að fara tvisvar í Sirkusinn." ■ # E VO’STIK TJÖRUBÖND Rakaþolin sjálflímandi tjörubönd til viðgerða é. ÁRVÍK ÁRMÚL11 • REYKJAVÍK • SÍMI 568 7222 • MYNDRITI 568 7295 nmg Nokkrir i'búar I Þingholtunum hugsa Guojóni Friðrikssyni ÞEGJANDI ÞÖRFINA. Horft inn uivi ■n ÞINGHOLTUNUM Fyrir skömmu kom út bókin Indœla Reykjavík eftir Guðjón Friðriksson sagnfrœðing. Þar eru les- endur leiddir um borgina og sagt frá því helsta sem fyrir augu ber, hvaða frœgðarmenni bjuggu hvar og hvaða arkitekt teiknaði húsin. Athygli þeirra er meðal annars vakin á skreytingum fyrir ofan glugga ogjafnvel trjánum í garðinum. Á einum stað í Þingholtun- um skrifar Guðjón jafn- vel: „Þegar við göngum niður eftir aftur skulum við gœgjast aðeins yfir háan skíðgarð sem um- lykur garðinn... “ Um- rœddur skíðgarður er mannhœðarhár svo nokkuð þarf að hafa fyr- ir því að gœgjast yfir hann. Ef íbúar húsanna verða varir við að ókunnugt fólk sé að horfa upp í gluggana hjá þeim, eða séjafnvel farið að stika um garðana, gœti skýringanna verið að leita í bók GuðjónsM Kolfinna heldur áfram með Fisk án reiðhjóls. Kolfinna wmsEsm FRÉTTUNUM Kolfínna Baldvinsdóttir, sem undanfarna mánuði hefur starfað sem frétta- þulur í 19:19, fréttaþœtti Stöðvar2, kveðurnú fréttaþyrsta sjónvarps- áhorfendur þegar hausta tekur og farfuglarnir fljúga aftandi brott. Kol- fínna hefur þó ekki yfír- gefíð stöðina að fullu og öllu, þar sem tískuþátt- urinn Fiskur án reiðhjóls sem ornaði íslendingum síðasta vetur mun taka til við göngu sína á ný nú í haust. Það gefur af þeim sökum auga leið, hvert stúlkan muni leggja leið sína í fjöl- miðlaheiminum með lœkkandi sól, eða beina leið inn að nálarauga tískuheimsins á ný.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.