Helgarpósturinn - 03.04.1996, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL1996
En gœti hann ekki engu að síður
orðið heppilegur forseti?
„Ég held að Ólafur Ragnar Gríms-
son yrði ekki heppilegur forseti. For-
seti Islands á að sameina þjóðina en
ekki sundra henni. Hann hefur sundr-
að öllu og öllum þar sem hann hefur
komið nálægt og er mjög umdeildur
maður. Hans stíll og hans starfsað-
ferðir eru svipaðar þeim og Jónas
Jónsson frá Hriflu beitti á sínum
tíma. Sífelldar kröfur um rannsóknar-
nefndir, sífelidar utandagskrárum-
ræður, sífelldar árásir á einstaklinga.
Slíkur maður á ekki vel heima á
Bessastöðum. Þar þarf að vera mild-
ur og ljúfur, velmenntaður maður
sem komið getur virðulega fram inn-
anlands sem utan. Það er athyglis-
vert að Ólafur Ragnar skreytir sig
mjög með vinum sínum erlendis. En
hverjir eru þessir vinir? Þetta eru oft-
ast menn sem hrökklast frá vegna
spillingar eða ósvinnu í sínum stjórn-
málastörfum. Nægir þar að nefna Ra-
úl Alfonsín í Argentínu sem hrökkl-
aðist frá við þúsund prósent verð-
bólgu; Carlos Salinas de Gortari í
Mexíkó sem nú er landflótta í Banda-
ríkjunum; Andreas Papandreu í
Grikklandi sem hlaut dóm fyrir spill-
ingu. Einnig ýmsar valdafjölskyldur á
Indlandi þar sem bilið á milli ríkra og
fátækra er miklu breiðara en á Vest-
urlöndum og þar sem skýra má auð-
legð hinna ríku með fátækt hinna
snauðu, ólíkt því sem gerist á Vestur-
löndum," sagði Hannes Hólmsteinn
Gissurarson.
Alltaf umdeildur
Þungaviktarmenn úr Sjálfstæðis-
flokknum sem haft var samband við
voru af einhverjum ástæðum tregir til
að láta nokkuð hafa eftir sér um Ólaf
Ragnar Grímsson í tilefni af framboði
hans. En Matthías Bjarnason, fyrrver-
andi þingmaður og ráðherra, hafði
þetta að segja um Ólaf:
„Ég hef þekkt hann mjög lengi og
góða hliðin á honum er sú að hann er
duglegur maður sem hefur brotist
áfram og yfirleitt náð settu marki.
Þegar menn yfirgefa flokk, svo ekki sé
talað um fleiri flokka, eiga þeir oft
ekki margra kosta völ í nýjum flokki.
En þrátt fyrir andstöðu innan Alþýðu-
bandalagsins sigraði hann og varð
formaður svo lengi sem lög og reglur
flokksins leyfa. Ólafur hefur alltaf ver-
ið umdeildur og á marga andstæðinga
en þeir eru líka margir sem eru hrifnir
af honum. Hann var ekki lengi ráð-
herra en fór með erfitt ráðuneyti sem
er fjármálaráðuneytið. Þó deila megi
um hvernig til hafi tekist held ég þó
að það verði að segja að á margan
hátt hafi hann skilað sínu hlutverki
mjög sómasamlega. Hann er víða
þekktur erlendis og hefur tekið þátt í
alþjóðasamtökum, ekki síður utan
Evrópu en innan, og komist þar til
metorða. Ég efast ekkert um að hann
muni skila forsetahlutverkinu vel.
Hann er það vel gefinn að hann færi
ekki út í neina tvísýnu í þeim efnum.
Ólafur veit að samkvæmt stjórnar-
skrá okkar er forsetaembættið valda-
lítið og aðalvandamálið er þegar
mynda þarf ríkisstjórn og gengur erf-
iðlega. Þá hvílir mikil ábyrgð á for-
seta,“ sagði Matthías Bjarnason.
Hann bætti síðan við:
„Þó að ég segi þetta er ég ekki að
gefa yfirlýsingu um að ég ætli að
styðja hann. En ef það kemur einhver
fram sem mér er mjög í nöp við veit
ég ekki nema ég kjósi þann mann. Ég
hef nefnilega aldrei fengið forseta
kosinn. Þeir sem ég hef kosið hafa
alltaf fallið,“ sagði Matthías.
Vel hæfur
Siv Friðleifsdóttir alþingismaður
sagði að Ólafur Ragnar yrði mjög hæf-
ur forseti. „Kostirnir eru þeir að hann
fylgist mjög vel með utanríkismálum
og hefur talsverð tengsl við erlenda
stjórnmálamenn, sem mundi nýtast
þjóðhöfðingja vel fyrir okkar hönd.
Hann er mjög vel máli farinn á erlend-
um tungumálum, að minnsta kosti á
ensku og norrænum tungum, og kem-
ur vel fyrir,“ sagði Siv.
En hvað kemur til með að spilla
fyrir honum?
„Það gæti spillt fyrir honum hvað
hann hefur verið áberandi í stjórn-
málaumræðunni og stundum nei-
kvætt. Ég er hins vegar ekki viss um
að það spilli mikið fyrir honum. Það
er svo, að þegar menn eru í stjórnmál-
um þurfa þeir stundum að taka sárs-
aukafullar ákvarðanir og segja mein-
ingu sína hreint út. Það er því ekki
hægt að finna stjórnmálaleiðtoga sem
forsetaefni sem er óumdeildur. Ólafur
hefur marga góða kosti og á sam-
henta fjölskyldu. íslendingar væru því
fullsæmdir af að fá hann sem forseta,
en það má raunar einnig segja um
hina frambjóðendurna," sagði Siv
Friðleifsdóttir.
Virtur í Asíu
Þekkingu Ólafs Ragnars á málefnum
Asíu og persónulegum tengslum hans
við ýmsa ráðamenn þar hefur talsvert
verið hampað. En er rétt að hann hafi
eins góð sambönd í þessum heims-
hluta og af er látið? Gunnar Scheving
Thorsteinsson verkfræðingur, sem
rekur verkfræðistofuna Feril, hefur
verið að vinna að öflun verkefna í Ví-
etnam. Hann var spurður hvort Ólaf-
ur Ragnar hefði komið þar við sögu.
„Ólafur Ragnar hefur verið okkur
mjög hjálplegur þar og sýnt þessu
mikinn áhuga. Hann hefur
greinilega góð sambönd og
þekkir marga í þessum heims-
hluta og er mjög virtur þar,
sérstaklega á Indlandi. Ólafur
gerði okkur mikið gagn með
því að koma með okkur á
fyrsta fundinn sem við áttum
með æðsta manni People’s
committee í Ho Chi Minh í Ví-
etnam vorið 1994. Það Iyfti
fundinum upp á allt annað
plan en ella. Sá fundur gekk af-
ar vel og mjög mikilvægt að fá
fund með þessum manni. Það
hefði aldrei tekist nema fyrir
tilstilli Ólafs Ragnars. Hann
var staddur á Indlandi þegar
þetta var en gerði það fyrir
okkur að koma til Víetnam,
sem er fimm til sex stunda
flug, án þess að þiggja nokkra
borgun. Þetta er eins og að
biðja einhvern mann sem
staddur er hér að koma til
New York af því hann er hvort
sem er í Evrópu! Mig minnir
að hann hafi bara gist eina
nótt áður en hann hélt aftur til
Indlands. Ég held að Ólafur
muni pluma sig mjög vel í for-
setaslagnum,“ sagði Gunnar
Scheving Thorsteinsson.
Yfirburðamaður
Jón Ormur Halldórsson,
lektor í stjórnmálafræði við
Háskóla íslands, hefur Iengi
þekkt til forsetaframbjóðand-
ans^
„Ólafur er yfirburðamaður á
mörgum sviðum. Hann býr til
snjallari áætlanir en aðrir
menn. Gallinn við þetta í pólit-
ík er sá að leikflétturnar hafa
orðið flóknari en veruleikinn
sjálfur. Hann hefur líka alltaf
þegið stuðning manna án þess
að telja sig bundinn af þvi að
gefa eitthvað til baka. Það hef-
ur pirrað samverkamenn hans
og valdið honum erfiðleikum í
pólitík, en kosturinn við þetta
er sá að menn geta treyst því
að Ólafur hampar ekki vinum
sínum á kostnað annarra,"
sagði Jón Ormur.
Hann sagði að Ólafur hefði
nokkra mjög stóra kosti í emb-
ætti forseta íslands. Jón Ormur taldi
Ólaf besta frambjóðandann fyrir ís-
lenskt viðskiptalíf og kvaðst eiga von
á að hann fengi stuðning þaðan. Ann-
ar kostur væri sá að Ólafur þekkti út í
hörgul hvernig hlutirnir gengju raun-
verulega fyrir sig á æðstu stöðum er-
lendis og þekkti það örugglega betur
en nokkur annar íslendingur. Hann
kynni ekki bara að umgangast erlenda
valdamenn heldur líka að koma hlut-
unum áfram gagnvart slíkum mönn-
um. „Ólafur er í senn heimsborgari og
bundinn sínu landi sterkum tilfinning-
um og skyldum," sagði Jón Ormur.
Hann er refur
Þingkonur Kvennalistans vilja ef-
laust sjá konu áfram í embætti for-
seta íslands. En Kristín Ástgeirsdótt-
ir sér ýmsa góða kosti í Ólafi Ragnari.
„Það er alveg ljóst að hann er vel
menntaður og reyndur maður sem
hefur mikið sinnt alþjóðamálum og
hefur mikil alþjóðleg sambönd. Ég
hef orðið vör við það þegar ég hef
verið innan um þingmenn erlendis að
hann er ótrúlega vel þekktur. Það er
meðal annars fyrir það starf sem
hann hefur unnið í friðarsamtökum
þingmanna og víðar. Hann beitir sér
yfirleitt hvar sem hann er. Ólafur er
skarpur að greina aðstæður þótt mér
hafi oft fundist viðbrögð hans vera
röng. Hann hefur hvað eftir annað
komið fram með tillögur um þjóð-
stjórn og svoleiðis samkrull sem mér
hefur fundist tóm della," sagði Krist-
ín.
„Hann er kaldur raunsæismaður í
pólitík og ekki hlýr persónuleiki. Það
er ýmislegt í fortíðinni sem varpar
skugga á hann. Þá nefni ég sérstak-
lega átökin við Bandalag háskóla-
menntaðra ríkisstarfsmanna þegar
hann sem fjármálaráðherra ógilti
samninga við þá með bráðabirgða-
lögum. Þetta var síðan dæmt ólöglegt
og kostaði ríkið fleiri hundruð millj-
ónir króna. Ólafur er bardagamaður
og fylginn sér. Hann er auðvitað refur
sem alltaf er að spá í spilin og kort-
leggja þróunina framundan. En hvað
sem því líður hefur hann ýmislegt í
þetta starf og myndi gegna því með
sóma,“ sagði Kristín Ástgeirsdóttir.
þetta lengi. Hann hefur varla stigið í
ræðustól Alþingis í allan vetur og hef-
ur haldið sig til hlés. Hins vegar hefur
hann verið úti um allan bæ, mætt á
opnun allra málverkasýninga og mik-
ið látið sjá sig. Einnig hefur hann ver-
ið mikið erlendis, þar sem hann hefur
notfært sér öll þessi sambönd sem
hann hefur," sagði stjórnarandstöðu-
þingmaður sem lengi hefur þekkt Ól-
af.
„Hann er maður sem hefur varnar-
vegg í kringum sig: Hann hleypir
manni aldrei að sér. Ég hef aldrei tal-
að við hann um hans persónulegu
mál né hann við mig um mín mál, eins
og fólk sem vinnur saman gerir gjarn-
an. Öll hans pólitík snýst um hann
sjálfan og hann er ekki hugsjónamað-
ur. Hann er í núinu. Hann er einn af
þeim sem ég treysti ekki yfir þveran
þröskuld í pólitík. Hann reynir að not-
færa sér allt í eigin þágu og er ósvíf-
lagsmálum. Fyrir nokkrum árum átt-
um við nána samleið bæði í blaða-
mennsku og pólitík og get ég vitnað
um að þvert á það sem margir halda
getur hann verið hrifnæmur og hress
félagi. Það er til dæmis margra gjöf-
ulla stunda með honum að minnast í
samstarfi á Þjóðviljanum í þá daga.
Auðvitað er hann ekki gallalaus frem-
ur en önnur mannanna börn og þær
stundir komu að manni þótti hann
helst til breyskur," sagði Óskar.
„í pólitíkinni var uppstokkun
flokkakerfisins og sameining jafnað-
armanna markmiðið þá eins og nú.
Vissulega vorum við gömlu samherj-
arnir hans Ólafs Ragnars, sem studd-
um hann af miklu kappi til forystu í
stjórnmálum, stundum óánægðir
með pólitík hans. Okkur fannst meira
að segja að hann hefði brugðist okk-
ur. Töluverður hópur fólks sleit
flokkslegar samvistir við hann og
það varð vík milli vina. Sumir
fóru í Alþýðuflokkinn, aðrir urðu
utanflokka eða fóru í Þjóðvaka á
leiðinni heim til Jafnaðarmanna-
flokks íslands. Þrátt fyrir þetta
eru mörg okkar sem urðum
flokkspólitískt ósátt við Ólaf
Ragnar Grímsson meðal einlæg-
ustu stuðningsmanna hans nú í
embætti forseta íslands. Segir
það ekki mikla sögu um virðingu
fólks og traust til hans? sagði
Óskar ennfremur.
„Ástæður þess að hann er
einkar vel til þess fallinn að
gegna embætti forseta íslands
snúa að stöðu þjóðarinnar á al-
þjóðavettvangi í framtíðinni. ís-
land fer nú hraðstiga inn í hring-
iðu mun nánari alþjóðlegra sam-
skipta en við höfum áður
kynnst. í gegnum þátttöku sína í
alþjóðamálum hefur Ólafur
Ragnar aflað sér einstæðrar
reynslu og átt meðal annars
samskipti við þjóðhöfðingja og
stjórnmálaleiðtoga í öllum
heimsálfum. Við lifum líka á tím-
um þar sem reglusemi og heil-
brigðir lífshættir skipta máli.
Forseti þarf að búa yfir reisn og
geta varið sóma þjóðarinnar inn
á við og út á við. Ólafur Ragnar
er heldur ekki úr hinum hefð-
bundnu valdaættum og klíkum
sem ráðið hafa íslandi síðustu
áratugina. Það er því einnig hollt
fyrir jafnvægið í þjóðfélaginu að
maður með hans bakgrunn sitji í
embætti forseta lýðveldisins,“
sagði Óskar Guðmundsson.
„Sumir tóku fram að þeir gerðu skýran greinarmun á Ólafi Ragnari pólitík-
usi og svo manninum sem persónu. Hann væri stundum ofstopamaður í
pólitík en persónulega kynnu þeir vel við hann og hann væri mjög góður
kostur sem forseti. Þó er eins og Ólafur Ragnar eigi ekki marga nána per-
sónulega vini og hann virðist leggja mikið upp úr því að verja stopulum tóm-
stundum með fjölskyldu sinni. Kappkostar að halda sér í góðu líkamlegu
formi og.er bindindismaður á vín og tóbak.“
Ótrúlegt sjálfstraust
Gunnar Helgi Kristinsson, dósent
við Háskóla íslands, vann með Ólafi á
sínum tíma við Háskólann og hann
segist hafa hitt margt fólk í útlöndum
sem kannast við Ólaf.
„Hann er feikilega frambærilegur
maður. Hefur ótrúlegt sjálfstraust og
kemur vel fyrir hvar sem hann fer.
Þar að auki er hann vel skipulagður,
afskaplega duglegur og vel greindur.
Hann hefur því verulega kosti, en
ókosturinn er sá að hann veit vel af
þessum kostum sínum. Ólafur á það
líka til að fara offari og ég held að per-
sónuleg samskipti séu kannski ekki
hans sterkasta hlið,“ sagði Gunnar
Helgi.
Eigjnhagsmunaseggur
„Ólafur er búinn að vera að plana
inn maður. Enda ber ferill hans það
með sér að hann hefur alltaf verið að
leita að bestu kostunum fyrir sjálfan
sig. Maður veit aldrei hvar maður hef-
ur Ólaf Ragnar. Hins vegar ætti það
ekki að skyggja á hann í embætti for-
seta,“ sagði þessi þingmaður.
Býr yfir reisn
Meðal fyrrverandi samherja og
samstarfsmanna Ólafs Ragnars í Al-
þýðubandalaginu er Óskar Guð-
mundsson blaðamaður. Hann styður
framboð Ólafs.
„Ólafur Ragnar er prýddur mörg-
um góðum kostum. Hann getur verið
eiturskarpur og skemmtilegur, hann
er hugmyndaríkur og afar fylginn sér
í stjórnmálum. Hann er auk þess
gæddur analýtískri greind og nýtur
yfirburðaþekkingar sinnar á þjóðfé-
Hefur verulegt fylgi
Auk þeirra sem að ofan eru
nefndir var rætt við ýmsa aðra
sem ekki vildu láta bera sig fyrir
neinu. En það kom berlega fram
hjá mörgum að þeim líst vel á
framboð Ólafs til forseta og hann
sækir greinilega fylgi víða. „Ég
hafði eiginlega andstyggð á hon-
um sem ófyrirleitnum pólitíkus.
Svo kynntist ég honum gegnum
starf mitt og þá fór mér að líka
vel við hann,“ sagði háttsettur
embættismaður í einu ráðuneyt-
anna. Kona sem mikið hefur
starfað innan Sjálfstæðisflokks-
ins kvaðst hiklaust kjósa Ólaf:
„Hann er sá yfirsendiherra sem við
þurfum í þetta embætti og ég sé ekki
annan betri,“ sagði þessi kona.
Sumir tóku fram að þeir gerðu
skýran greinarmun á Ólafi Ragnari
pólitíkusi og svo manninum sem per-
sónu. Hann væri stundum ofstopa-
maður í pólitík en persónulega kynnu
þeir vel við hann og hann væri mjög
góður kostur sem forseti. Þó er eins
og Ólafur Ragnar eigi ekki marga
nána persónulega vini og hann virð-
ist leggja mikið upp úr því að verja
stopulum tómstundum með fjöl-
skyldu sinni. Kappkostar að halda
sér í góðu líkamlegu formi og er bind-
indismaður á vín og tóbak. Sagt er að
mesta drykkja sem sést hafi til hans
hafi verið er hann á námsárunum á
Bretlandi drakk einu sinni einn lítinn
bjór á krá. Að endingu má vitna í
ónefndan þingmann sem sagði:
„Ég styð eindregið framboð Ólafs.
Bæði af því hann er afar hæfur í emb-
ættið og líka vegna þess að ég má
ekki hugsa þá hugsun til enda hvað
gerist ef hann tapar. Það væri ekkert
gefið að hann færi aftur í Alþýðu-
bandalagið. Hann mun vinna með
fjölda fólks úr öllum flokkum í kosn-
ingabaráttunni og ómögulegt að
segja hvað það getur leitt til ef hann
kemst ekki á Bessastaði."