Helgarpósturinn - 22.08.1996, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST1996
Sjónvarpsáhorfendur vilja sjá bíl-
ana æða á brekkurnar með hávaða
og látum.
Dellukarlar
Aðspurður hvað valdi því að
íþróttagrein sem þessi hefur
náð fótfestu hér á landi segir
hann að þar liggi nokkrar
ástæður að baki. „Fjórhjóla-
drifnir bílar eru ákaflega al-
gengir hér á landi. Það má
leiða getum að því að þeir séu
um 25% af heildarbílaeign
landsmanna, enda engin van-
þörf á. Fjarlægðir eru miklar á
milli staða og samgöngukerfið
ekki gott. Þarafleiðandi eru
breytingar á jeppum viðbrögð
mannsins við aðkallandi þörf.
íslendingar eru hins vegar
miklir dellukarlar og þurfa að
reyna sig og bíla sína við erfið-
ustu og oft á tíðum ótrúlegustu
aðstæður. Þannig hefur
íþróttagreinin þróast í áranna
rás,“ sagði Bragi Bragason,
framkvæmdastjóri LÍA, að lok-
um.
„Telja okkur heilalausa"
Þeir sem eru kunnugir tor-
færukeppnum segja að Sigurð-
ur Axelsson hafi svo sannar-
lega komið á óvart í Jósefs-
dalnum þegar heimsbikarmót-
Torfærukeppni verður vinsælli meðal almennings
með hverju árinu sem líður. Nú virðist þessi alíslenska
íþróttagrein einnig hafa náð fótfestu erlendis og
erlendar sjónvarpsstöðvar sýna henni mikinn áhuga...
Sigurður Axelsson torfærutröll er öllum stundum í nálægð við bíla:
bæði í leik og starfi.
Það er allt gefið í botn í keppnum sem þessum.
innar. „Nú liggur fyrir samning-
ur um þreföldun sýningarefnis
næstu tvö árin, en krafa Euro-
sport um einkarétt efnisins í
Evrópu stendur í okkur.“
Bragi sagði að margt væri í
deiglunni, meðal annars samn-
ingur við japanska sjónvarps-
stöð og jafnvel við amerísku
sjónvarpsstöðina ESPN, en hún
er nokkurs konar Eurosport
Bandaríkjamanna. Hann sagði
ennfremur að mikill áhugi væri
Fyreta
atvinnuíþróttagreinin
„í raun kemur þessi áhugi
erlendra aðila á þessari ís-
lensku íþróttagrein mér ekki á
óvart. Torfærukeppni er til-
komumikil að sjá og einstakt
sjónvarpsefni sem býður upp
á mikla spennu fyrir áhorfend-
ur. Bílar þeysast upp hrikaleg-
ar og brattar brekkur með há-
vaða og látum og stundum
velta þeir niður og skemmast.
ast auðvelt að sannfæra þessa
menn um ágæti íþróttagrein-
arinnar."
Bragi taldi að ef rétt yrði
haldið á málum væri ekkert
því til fyrirstöðu að torfæran
yrði fyrsta atvinnumanna-
íþróttin á íslandi. „Ég og fleiri
sem að þessari íþróttagrein
standa höfum mikla trú á að
það takist, því efnið er vinsælt
hér á landi og það sama ætti
að gerast úti í heimi.“
ið var haldið um síðustu
helgi og skaut reyndari
ökumönnum ref fyrir
rass. Sigurður hefur ver-
ið meðal bestu torfæru-
ökumanna landsins síð-
ustu ár en honum hafði
ekki tekist að vinna mót
á þessu ári. Verðlaunin
voru Sigurði því kær-
komin og ef hann sigrar í
næstu keppni, sem haldin
verður í lok ágúst, telst hann
heimsbikarmeistari. „í raun
var um svipað mót að ræða,
nema nú var ákveðið að kenna
keppnina við heimsbikarinn.
Nokkrir erlendir keppendur
mættu og það fór nú litlum
sögum af þeirra árangri. Þeim
leist ekkert sérlega vel á þess-
ar bröttu og erfiðu brautir.
Þeir hristu bara hausinn þegar
við brunuðum af stað og
sögðu að við hlytum að vera
heilalausir að þora þetta. Það
þýðir ekkert að vera banginn
við þessar brekkur heldur
stíga bara fast á bensínið og
æða af stað. Og ef eitthvað
gerist þá er öryggis gætt í hví-
vetna og bílarnir eru sérlega
traustir. Keppendur eru þaraf-
leiðandi aldrei í neinni hættu.
Því er hins vegar ekki að neita
að bílarnir beyglast og
skemmast mikið. Það hefur
meðal annars nokkrum sinn-
um kviknað í bílnum mínum,
en það var ekkert alvarlegt.
Keppnirnar sem haldnar eru í
Svíþjóð eru af allt öðrum toga.
Brekkurnar eru hærri og und-
irlagið þyngra. Hér eru brekk-
urnar hins vegar mun brattari
og hrikalegri."
„Fljúgandi klósett"
Bíll Sigurðar er talinn einn
vandaðasti bíllinn í torfær-
unni, hann er byggður úr rör-
um og yfirbyggingin er úr
plasti. Fyrir þá sem vilja vita
og hafa vit á vélum skal þess
getið að torfærutækið er með
400 hestafla Chevy 355-vél.
Svokallað „fljúgandi klósett"
[flying toilet] prýðir vélina og
fæðir hana á meira bensíni en
hefðbundnir blöndungar og
innspýtingar.
Sigurður sagði mikla pen-
inga og mikinn tíma fara í
áhugamál þetta og það væri al-
veg á mörkunum að hann réði
við það fjárhagslega. „Það er
óhemjudýrt að smíða svona
grip og ég held að það hafi far-
ið um 5.000 vinnustundir í tor-
færutækið. Ætli gripurinn
kosti ekki orðið nokkrar millj-
ónir. Það er ekki mikið um að
bílar gangi kaupum og sölum
en það er allt falt fyrir rétta
upphæð."
Sigurður sagði að hann og
aðrir torfærukeppendur biðu
spenntir eftir því hvernig við-
brögðin verða við sýningu
Eurosport á keppnum. „Ef vel
tekst til getum við átt von á að
erlendir aðilar styrki keppend-
ur fjárhagslega, enda í raun
ógjörningur að stunda þetta án
verulega traustra bakhjarla. Ég
geri mér góðar vonir um að
sýningarnar beri árangur,
enda skilst mér að þessir þætt-
ir hafi margsinnis verið endur-
sýndir. Nú er bara að bíða og
sjá hvað gerist," sagði Sigurð-
ur Axelsson, næstum því
heimsmethafi í torfæru. -gþ
Torfæra þykir allsérstæð
íþróttagrein og er eflaust
með þeim yngstu sem keppt er
í hér á landi. Keppni sérútbú-
inna ökutækja í núverandi
mynd var fyrst haldin árið
1989 og síðan hefur vegur
keppninnar farið vaxandi.
Grein þessi hefur notið mikilla
vinsælda í íslensku sjónvarpi
og jafnframt náð fótfestu á
Norðurlöndunum, svo sem í
Svíþjóð og Noregi. Vinsældir
keppninnar í íslensku sjón-
varpi gáfu aðstandendum tor-
færunnar tilefni til að kanna
hvort áhugi reyndist meðal er-
lendra sjónvarpsstöðva og í
framhaldi hófst markviss
kynning á íþróttagreininni er-
lendis.
Bragi Bragason, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
íslenskra akstursíþróttafélaga
(LÍA), sagði í samtali við HP að
kynning þessi hefði, nú þrem-
ur árum síðar, borið talsverð-
an árangur. Á síðasta ári náð-
ist meðal annars samningur
við sjónvarpsstöðina Euro-
sport um sýningar á níu þátt-
um, sem hver er tíu mínútur að
lengd, og hefðu þeir fengið
ákaflega góðar viðtökur bæði
hjá sjónvarpsáhorfendum sem
og forsvarsmönnum stöðvar-
meðal erlendra ferðamanna og
hefðu fjölmargar fyrirspurnir
borist í sumar um væntanlega
keppnisdaga.
Liður í áframhaldandi kynn-
ingu á þessari íþróttagrein var
heimsbikarmót torfæruöku-
manna sem haldið var í Jósefs-
dal um síðustu helgi, þar sem
keppt var í sex þrautum á sér-
útbúnum jeppum og sérútbún-
um götujeppum. Bragi sagði að
í raun hefði keppnin verið ákaf-
lega þjóðleg. „Við áttum ekki
von á neinum útlendingum en
svo mættu tveir Svíar og einn
Norðmaður ásamt þrjátíu
manna hópi til að skoða
aðstæður. Annars var
það ekkert keppikefli að
fá erlenda keppendur
svona í fyrsta skipti, held-
ur var okkur meira í mun
að halda fyrstu heimsbik-
arkeppnina áður en ein-
hverjir aðrir gerðu það.
Tilfellið er að líklega þró-
ast íslenska torfæran í al-
þjóðlega keppnisgrein og
þetta heimsbikarmót er
liður í markaðssetningu
okkar á þeim vettvangi.
Einnig er heimsbikarmót
betri söluvara í sjónvarpi
en íslenskt bikarmót,"
sagði Bragi.
Þetta lítur því út fyrir að vera
hættulegt sport en er það
ekki. Ávallt er gætt fyllsta ör-
yggis. Það hafa aldrei orðið
nein alvarleg slys á keppend-
um, sem sýnir hve hættulitlar
þessar keppnir eru ef fyllsta
öryggis er gætt.
Það eru miklir möguleikar í
stöðunni ef okkur tekst að ná
góðum samningum við þessa
aðila. Erfiðasti hjallinn er
ávallt að komast í samband
við þetta fólk. Það kostar oft
mikla fyrirhöfn og frekju af
okkar hálfu að ná til þeirra en
þegar það er yfirstaðið er oft-
samningar
í bígerð
Stórir