Helgarpósturinn - 22.08.1996, Page 21
FIMMTUDAGUR 22. AGUST1996
21
rosalega mikið fyrir að tala og geri
mikið af því að kjafta við kúnnana.
Það kemur misflatt upp á þá. Ég hef
reyndar aldrei unnið við þetta áður.“
Hvernig finnst þér viðmót gesta?
„Það er ofsalega misjafnt. Sumt fólk
er mjög kurteist, sérstaklega konur og
stelpur, en hjá karlmönnum fer það
eftir persónuleika þeirra og hversu
mikið þeir eru búnir að fá sér í glas“.
Hvað meinarðu?
„Til dæmis þegar maður kemur
með vísanótur og biður þá að skrifa
undir spyrja þeir oft hvort ég vilji ekki
fá símanúmerið hjá þeim. Þetta á að
vera voða fyndið en er alls ekki snið-
ugt. Maður kreistir samt fram smá-
hlátur.“
Verðurðu fyrir kynferðislegri
áreitni?
„Maður tekur þetta ekki alvarlega.
Flestir eru voðalega kurteisir en inn á
milli eru nokkrir alveg óþolandi. Það
eru alltaf svartir sauðir með athuga-
semdir eins og „áttu kærasta?", „viltu
koma út að borða með mér“ og svo
framvegis. Maður Iærir bara að taka
ekki mark á því.“
Er borin virðing fyrir starfinu?
„Já, af vinnufélögum og flestum
kúnnum, en inn á milli eru alveg glat-
aðir gaurar sem eru ekkert fyndnir
þótt þeir haldi sig vera það.“
Gripið um afturendann
„Það er ofsalega óþægilegt þegar
menn halda að þeir séu voðalega
fyndnir og taka utan um mann, þá
taka þeir einmitt utan um afturend-
ann á manni og segja: Sestu hjá okkur
elskan. Þeir sitja og ég stend, þannig
„Já, ef það er eitthvað sem telst til
óhreininda þá þarf ég að hreinsa það
upp, jafnvel þvag og þvíumlíkt."
Drepið í sígarettu
á hendinni á mér
Finnst þér þú njóta virðingar í
starfi?
„Nei, ekki get ég sagt það, ég er
náttúrulega ekki neinn vaktstjóri eða
neitt svoleiðis. Maður ber auðvitað
virðingu sjálfur fyrir því sem maður
gerir; ef staðurinn væri drulluskítugur
þá myndi enginn koma, svo einfalt er
það.“
En finnst þér kúnnarnir bera
virðingu fyrir þér?
„Ég er nú eiginlega ekkert að pæla í
því.
Feerðu ekki að heyra meinlegar
athugasemdir frá kúnnum ogslíkt?
„í rauninni hef ég verið böggaður
þvílíkt; það hefur verið drepið í sígar-
ettu á hendinni á mér og fólk þurrkar
af sér óhreinindi í mig. Eg er gólftuska
á fótum, þannig séð. En ég segi að ef
maður pælir of mikið í þessu þá er
maður bara í tómu rugli.“
Er þetta vel borgað
„Já, nokkuð, það fer þó auðvitað eft-
ir stöðum."
Eftirsóknarvert?
Vera kann að sá ljómi sem hefur
leikið um starf á skemmtistöðum sé
nú farinn að dofna talsvert. Kannski
verður þetta greinarkorn til þess að
ofurmáta ókurteisir íslendingar taki
örlítið meira tillit til starfsfólks veit-
inga- og skemmtistaða — ég held þó
varla.
Gangandi gólftuskur
Sú starfsstétt sem hvað minnstrar
virðingar nýtur á skemmtistöðum er
glasabörn. Til að forðast allan mis-
skilning skal tekið fram að um er að
ræða starfsstétt en ekki hóp fólks sem
kom í heiminn fyrir tilstilli læknavís-
indanna. HP þótti tilhlýðilegt að fræð-
ast um starfið hjá einu víðförlasta
glasabarni samtímans, Alfreð Rafn
Ingólfssyni, 19 ára myndlistarnema í
FB. Alfreð hefur víða haft tekjur af
þessari vinnu. Hann hefur unnið á
Kaffibarnum, Kaffi Óliver, Astró og nú
á Brennslunni.
„Ég er búinn að vera glasabarn í um
tvö ár. Starfið felst í því að skipta um
öskubakka á borðum, sjá til þess að
borðin séu hrein, taka tóm glös og
flöskur. Þetta er hálfgert gólftusku-
starf, en það er náttúrulega um að
gera að skemmta sér í vinnunni, ann-
ars deyr maður úr leiðindum.“
Eru það semsagt þú og þínir lík-
ar sem lenda í því að hreinsa upp
œlu og annan viðbjóð?
að þessi vinahót eru mjög hvimleið.“
Hefurðu gaman af þessu?
„Nei, það hef ég ekki, en það lenda
allar stelpur í þessu og barþjónarnir
lenda líka í einhverjum daður-
drósum."
Telurðu að útlit hafi mikið að
gera með hvort fólk fœr vinnu í
þessum bransa?
„Ég veit það ekki, en ef ég væri at-
vinnurekandi myndi ég hiklaust velja
fólk sem væri ágætlega útlítandi með
eitthvað í hausnum frekar en beib og
birnbó."
svona fólki.“
Hefur það komið fyrir að þú haf-
ir fengið árninningu fyrir að hleypa
ekki inn kúnna?
„Nei, ég sinni bara mínu starfi eins
vel og ég get.“
Grípa um afturendann
EÍín Hrönn Jónasdóttir, 20 ára
nemi, vinnur í salnum, eins og það
heitir, á Kaffibrennslunni.
/ hverju felst starfið?
„Starfið felst í að taka niður pantan-
ir hjá kúnnanum, fara með þær til bar-
þjónsins, fara svo með drykkina til
kúnnans og rukka. Svo hjálpar maður
glasabörnunum ef þau hafa ekki und-
an.“
Hefurðu gaman afþessu?
„Já, mér líkar mjög vel, því ég er
Kristján Kristjánsson:
Enga sieikipinha takk
- stattu úti.