Helgarpósturinn - 12.12.1996, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR12. DE5EMBER1996
V
Dýr mundi
Súsann
í fullri lengd
— krefur Apple-umboðiö um 600.000
krónurfyrir 1,13 sekúndur
Súsanna Svavarsdóttir, rit-
höfundur og blaðamaður, hef-
ur stefnt Apple-umboðinu fyrir
að birta örstutt myndskeið af
sér í tölvuauglýsingu. Krefur
hún fyrirtækið um 600.000
krónur en málið verður tekið
fyrir í dag, fimmtudag, í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur.
Um síðustu jól auglýsti
Apple-umboðið í auglýsinga-
tíma sjónvarpsins nýja tölvu,
sem var meðal annars með
sjónvarpsglugga. í auglýsing-
unni voru tíundaðir kostir tölv-
unnar og jafnframt sýnt hvern-
ig hægt væri að skipta á milli
sjónvarpsstöðva með lítilli fyr-
irhöfn. Svo óheppilega vildi til
fyrir Apple-menn að á einu ör-
stuttu myndskeiði sást Sús-
önnu bregða fyrir í 1,13 sek-
úndur í Dagsljóssþætti. Hún
hafði skömmu síðar samband
við fyrirtækið og sagði að það
hefði birt myndina af sér í leyf-
isleysi. Krafðist hún upphaf-
lega um 300.000 króna í bætur
en fyrirtækið vildi ekki verða
við kröfum hennar. Þá stefndi
hún fyrirtækinu og krafði það
um 600.000 krónur fyrir þessa
rúmu sekúndu, sem myndi
gera 32 milljónir króna fyrir
mínútuna.
Þegar blaðamaður bar málið
undir Súsönnu vildi hún ekkert
kannast við það. „Nei, ég kann-
ast ekki við það... hvaðan
heyrðirðu þetta?“
Hættulegt
ferdahappdrætti
- vinningshafar geta tapað stórfé
Fyrirtækið GCI beitir uppá-
þrengjandi söluaðferðum til
að lokka til sín viðskiptavini.
Það tjáir þeim að þeir hafi ver-
ið dregnir úr potti og hreppt
utaniandsferð út í heim. Eina
skilyrðið sem fyrirtækið setur
er að „vinningshafinn" mæti á
rúmlega klukkustundarlanga
kynningu. Vonir viðskiptavina
um að hljóta utanlandsferð
verða að engu þegar þeir
mæta á staðinn og gera sér
grein fyrir að fyrirtækið er að-
eins að bjóða orlofshlutdeild í
gististað á Spáni, en bæði
Neytendasamtökin og aðilar
innan íslenskra ferðaskrifstofa
hafa varað við slíkum við-
skiptamáta og telja hann vafa-
saman, svo ekki sé fastar að
orði kveðið. Ingólfur Guð-
brandsson hjá Heimsklúbbn-
um segir ennfremur undarlegt
að slíkt fyrirtæki skuli fá ferða-
skrifstofuleyfi, ekki síst í ljósi
þess að svipað fyrirtæki hefði
Jóhann Gunnar Bergþórsson breiðir úr sér í Hafnarfirði þrátt fyrir gjaldþrot og sektardóm.
Viðskiptaveldi
Jóhanns G. Bergþórsson
í Hafnarfirði
Bæjarfulltrúinn og fyrrver-
a '
íandi eigandi Hagvirkis-
Kletts, Jóhann Gunnar Berg-
þórsson, er síður en svo hætt-
ur öllum umsvifum í fyrir-
tækjarekstri þrátt fyrir um-
fangsmikið gjaldþrot í tengsl-
um við Hagvirki-Klett. Hann er
víða stofnandi eða í stjórn fyr-
irtækja sem staðsett eru í
Hafnarfirði um leið og hann sit-
ur í bæjarráði. Meðal annars er
hann stofnandi þriggja hópbif-
reiðafyrirtækja sem hafa með
Magnús Gunnarsson,
oddviti sjálfstæöis-
manna
Magnús Jón Arnason,
bæjarfulltrúí Alþýöu-
bandalagsins
„Miklar
kröfur
„Jóhann
situr allt í
gerðar til
sveitar-
kringum
borðið"
höndum skólaakstur bæjarins
auk aksturs til og frá Hafnar-
firði. Andstæðingar hans í pól-
itíkinni telja tengsl hans sem
bæjarfulltrúa við einstök fyrir-
tæki óeðlileg og meðal annars
segir Magnús Jón Árnason,
fyrrverandi bæjarstjóri, að
hann sitji allt í kringum samn-
ingaborðið þegar útdeiling
verkefna af hálfu bæjarins er
annars vegar. Þá telur flokks-
bróðir Jóhanns, Þorgils Óttar
Mathiesen, varafulltrúi sjálf-
stæðismanna í Hafnarfirði, að
íhuga beri að koma á fót
stjórnsýsludómstól, þar sem
viðskipti Hagvirkis-Kietts og
bæjarfélagsins hafi brotið gegn
sveitarstjórnarlögum. Þorgils
Óttar telur að bæjarsjóður
Hafnarfjarðar muni fyrir vikið
tapa um 50 milljónum króna.
Ummælum um siðleysi og
óhæfi sem bæjarfulltrúi vísa
samherjar hans í meirihluta
bæjarráðs á bug og Tryggvi
Harðarson, bæjarfulltrúi Al-
þýðuflokksins, segir að það
geti vart talist óeðlilegt að
menn eigi smáhlutdeild í fyrir-
tækjum þótt þeir séu bæjarfull-
trúar.
Viðskipti...
Hópbílar: Rekstur langferöabif-
reiöa auk rekstrar fasteigna og
tækja.
Hagvagnar: Rekstur almennings-
vagna, vörubifreiða og vinnuvéla,
lánastarfsemi og rekstur fast-
eigna.
Hópbilamiöstööin: Tilgangur fé-
lagsins er rekstur hópferöabif-
reiöa, bílaleiga, skipulagning
feröaþjónustu og skyld starfsemi
Verkfræöiþjónusta Jóhanns 6.
Bergþórssonar: Alhliöa ráögjafar-
og tækniþjónusta viö mannvirkja-
gerö og skylda starfsemi, lána-
starfsemi og rekstur fasteigna.
Bensi: Verktakastarfsemi og
mannvirkjagerö, véla- og bifreiöa-
leiga og skyld starfsemi.
Hagtak: Byggingarstarfsemi,
kaup og sala fasteigna, landþró-
un og lánastarfsemi.
og stjórnmál
Bæjarfulltrúi Sjálfstæöisflokks-
ins í bæjarstjórn í Hafnarfiröi
Aöalfulltrúi í bæjarráöi
Tæknilegur ráögjafi Hafnarfjarö-
arbæjar í Miöbæ
Formaöur Framkvæmda- og
tækniráös
í framkvæmdanefnd um reynslu-
sveitarfélög
Formaöur Miðbæjarnefndar
Stjórnarmaöur í húsfélagi Miö-
bæjar
í stjórn Atvinnueflíngar hf.
í nefnd um íþróttamál (sam
starfssamningar)
í starfskjaranefnd
stjómar
manna
„Það eru gerðar miklar
kröfur til sveitarstjórnar-
manna og enn frekar á sfðari
tfmum eftir að nýju stjórn-
sýslulögin voru tekin í gagn-
ið svo að einkahagsmunir
bæjarráðsfulltrúa skarist
ekki við hagsmunl bæjarfé-
lagsins. Það sama á við um
Jóhann og alla aðra,“ sagði
Magnús Gunnarsson, odd-
viti sjálfstæðismanna í Hafn-
arfirði.
„Það er ekkert óeðlilegt
þótt menn starfi hjá fyrir-
tækjum sem itafa einhver
tengsl við bæjarfélagið en
það er óæskilegt ef tengslin
eru of mikil.“
„Það er alveg ljóst að í
gegnum árin hefur Jóhann
Gunnar ekki setíð beggja
vegna borðsins heldur allt í
kringum það. Ég hef fram til
þessa fylgst með stofnun fyr-
irtækja hans en er hættur
því, enda eru þau orðin fjöi-
mörg. Þetta eru fyrirtæki á
fyrirtæki ofan sem hann hef-
ur stofnað. En miðað við það
sem ég hef séð til hans þá
kemur það mér ekki á óvart
að hann skuli enn vera að
stofna ný fyrirtæki. Það er
ekkert nýtt að Jóhann Gunn-
ar kaupi fyrirtæki til að
breiða úr sér og auka velt-
una. Það hefur hann gert í
gegnum tíðina,“ sagði Magn-
ús Jón Árnason, forystu-
maður Alþýðubandalagsins í
Hafnarfirði.
í rútubflabransann
Eftir að fyrir lá að fyrrver-
andi fyrirtæki Jóhanns, Hag-
virki- Klettur, stefndi í þrot og
hann sem forstjóri og stjórnar-
maður var dæmdur vegna van-
goldinna greiðslna til hins op-
inbera hafa flestir aðrir en
Hafnfirðingar talið að við-
skiptaferli hans væri lokið. En
svo er aldeilis ekki því hann
tengist að minnsta kosti ófáum
fyrirtækjum þar I Hafnarfjarð-
arbæ. Einkum hefur Jóhann
haslað sér völl ásamt við-
skiptaféiögum sínum í lang-
ferðabílabransanum og er
tengdur þremur fyrirtækjum á
þeim vettvangi: Hagvögnum,
Hópbílum og Hópbílamiðstöð-
inni.
í október árið 1991 tóku
sveitarfélögin sex á höfuðborg-
arsvæðinu tilboði Hagvirkis-
Kletts um akstur strætisvagna.
Samið var við fyrirtækið um
akstur í Hafnarfirði, Kópavogi,
Garðabæ og Bessastaðahreppi
og hraðleið milli þessara sveit-
arfélaga og Reykjavíkur. Utan
um akstur fyrir sveitarfélögin
var svo stofnað fyrirtækið Hag-
vagnar og er Jóhann einn
stofnenda. í upphafi árs 1992
var svo fyrirtækið Hópbílar
stofnað á grunni fyrirtækis
sem Pálmi Larsen átti, en
hann hafði í fjölmörg ár séð
um skólaakstur fyrir Hafnar-
fjarðarbæ. Hópbílar fengu fljót-
lega umboð fyrir skólaakstur-
inn en auk annarra verkefna sá
fyrirtækið um rekstur fast-
eigna og tækja. Og Jóhann og
félagar hafa þar ekki látið stað-
ar numið í langferðabílabrans-
anum því á þessu ári var stofn-
að annað fyrirtæki sem ber
nafnið Hópbílamiðstöðin. Auk
rekstrar hópferðabíla er til-
gangur þess fyrirtækis að reka
bílaleigu og skipuieggja ferða-
þjónustu. I öllum fyrirtækjun-
um er Jóhann skráður annað-
hvort stofnandi eða í stjórn
auk Gísla Jens Friðrikssonar,
en sá hinn sami er fram-
kvæmdastjóri bæði Hagvagna
og Hópbíla og var áður fram-
kvæmdastjóri verktakafyrir-
tækisins Fórnarlambsins.
Jóhann hefur heldur ekki
sagt skilið við mannvirkjagerð
og verktakastarfsemi þrátt fyr-
ir að hafa lent í umfangsmiklu
gjaldþroti og verið ákærður
fyrir vanskil á opinberum
gjöldum upp á tugi milljóna.
Hann tengist ennþá fyrirtækj-
um sem bera nöfn eins og Hag-
tak og Verkfræðiþjónusta Jó-
hanns Gunnars Bergþórssonar
og er annaðhvort í stjórn eða
meðal stofnenda. í báðum
þessum fyrirtækjum hefur
hann ennfremur prókúruum-
boð ásamt fleirum. Þá er ótaiið
verktakafyrirtækið Bensi, þar
sem bæði Verkfræðiþjónusta
JGB og Hagtak eru skráðir
stofnendur.
Sitt sýnist hverjum í bæjar-
ráði um tengsl Jóhanns Gunn-
ars við fyrirtæki í Hafnarfirði
en deilurnar eru ekki síst harð-
ar í flokki Jóhanns, Sjálfstæðis-
flokknum, en þar hafa menn
deilt hart og sumir veigra sér
ekki við að benda á meintar
vafasamar ef ekki ólöglegar
greiðslur bæjarstjórnar til
Hagvirkis-Kletts á sínum tíma.
Því setja margir spurningar-
merki við tengsl Jóhanns, sem
bæjarfulltrúa, við fjölmörg fyr-
irtæki í Hafnarfirði.
skilið eftir sig sviðna jörð og
nokkrir íslendingar farið flatt á
viðskiptum við það. Þá hefur
komið í ljós að GCI fer ekki að
lögum um evrópska efnahags-
svæðið þrátt fyrir að Iög um
slíkt liggi fyrir þingum bæði
hér á landi sem annars staðar í
Evrópu.
GCI stundar uppáþrengjandi við-
skiptahætti og vafasama sölutækni
Regium ekki framfylgt
Samkvæmt upplýsingum HP
er viðskiptavinum GCI gert að
greiða meðal annars inn á
kaupverð og umsjónargjald
við undirskrift, en það er sam-
kvæmt tilskipun Evrópuþings-
ins og -ráðsins óheimilt. Til-
skipunin, sem er frá 1994, fjall-
ar um verndun kaupenda
vegna tiltekinna þátta í samn-
ingum um kaup á réttindum til
að nýta fasteignir á skiptileigu-
grunni. Þar segir meðal annars
að fyrirframgreiðslur kaup-
anda séu óheimilar og hann
hafi rétt til að falla frá samn-
ingi án þess að tilgreina ástæð-
ur innan tíu daga og rétt til að
segja samningnum upp innan
þriggja mánaða frá því að báð-
ir samningsaðilar undirrita
hann. Ástæðan fyrir þessari
reglugerð er sú að seljendur
nota ýmsar söluaðferðir sem
oft á tíðum teljast á mörkum
þess að vera góðir viðskipta-
hættir, eins og segir í reglu-
gerðinni. Þá segir að kaupend-
ur séu oft fengnir til þess að
festa kaup á orlofshlutdeild án
nægilegrar ígrundunar.
Eins og áður segir er þessum
reglum ekki framfylgt í
greiðsluskilmálum GCI við ís-
lenskan kaupanda, en þar
stendur að innborgun skuli
innt af hendi við undirritun og
hún sé ekki endurkræf. Þegar
Terry Bishell, markaðsstjóri
GCI hér á landi, var spurður
um þetta tiltekna atriði sagði
hann að öllum þeim sem hættu
við yrði borgað til baka
Ingólfur Guöbrandsson
hjá Heimsklúbbnum
Blekkinga-
vefur
„Fyrir nokkrum árum starf-
aði hér fyrirtæki að nafni Fram-
tíðarferðir og lagði stund á
svipaða söiumennsku. Ég hef
því ekki trú á öðru en GCI sé
bara ný útgáfa af Framtíðar-
ferðum. Þessi sölumennska
gengur meðal annars út á að
nota pressu á fólk án þess að
það geti gengið úr skugga um
að fjármunir þess séu á nokk-
urn hátt tryggðir. Ég undrast
að samgönguráðuneytið skuli
liggja marflatt fyrir slíkri starf-
semi, en ég lét það vita á sín-
um tíma um Framtíðarferðir.
Það félag fékk heldur aldrei
leyfi þrátt fyrir að það veifaði
um sig blekkingum. Það er því
fyllsta ástæða til að vara al-
menning við þegar nýtt fyrir-
tæki af þessum toga kemur
fram á sjónarsviðið.“
F