Helgarpósturinn - 12.12.1996, Side 5
FlMIVmJDAGUR 12. DESEMBER1996
5
RADGRODSUffí
TIL ALLT AÐ 36 MANAÐA
Allt verð er með virðisaukaskatti og miðast við staðgreiðslu.
Verkalýðshreyfingin er um þessar mundir að setja fram
launakröfur fyrir komandi kjarasamninga og leiðtogarnir eru
að venju nokkuð kokhraustir. Launakröfur nú tengjast að hluta
vinnutímatilskipunum Evrópusambandsins, sem
augljóslega munu hafa í för með sér styttri
vinnutíma. Fyrirsjáanlegt er að yfirvinnukaupið
sem framfleytt hefur svo mörgum fjölskyldum
heyri brátt sögunni til og því vilja menn nú
hækka dagvinnulaun verulega. Dagsbrún hefur
sett fram kröfu um 41% launahækkun. Halldór
Björnsson, formaður félagsins, sagði á fundi
með verkamönnum að ef atvinnurekendur vildu ekki samþykkja
þessa hækkun þegjandi og hljóðalaust yrði krafan hækkuð í
100% og svo blásið til verkfalls...
Framundan eru annatímar í þinginu. Fjárlög þarf að sjálf-
sögðu að afgreiða fyrir jól og venjan er sú að stjórnarliöar
þrýsti á um afgreiðslu mála fyrir jólaleyfi. í fjárlaganefnd þings-
ins bregður hins vegar svo við að nefndin hefur ekkert aö gera.
Ástæðan er aö allt situr fast í ríkisstjóminni. Um þetta spunn-
ust reyndar umræður í þinginu á þriðjudaginn. Svo rammt kveö-
ur að atvinnuleysinu í fjárlaganefnd að þar er þessa dagana
verið aö ræða atriði í fjárlögum sem venjulega er ekki litið á fyrr
en fyrir þriðju og síðustu umræöu. Sumir nefndarmenn hafa
jafnvel haft á orði að rétt væri að nota þessa daga til að vera
heima og búa til músastiga fyrir jólin.
H<
V
Ikvæmdastjóri Alþýðubanda-
lagsins, skrifaði grein T Vikublaðið
í síðustu viku þar sem hann opnaði
á þann möguleika að ísland yrði '
áfram í NATÓ og tæki að sér ýmsa :T*
starfsemi bandarfska hersins á .
Miðnesheiði. Heimir er þarna á lík-
um slóðum og Bjöm Bjamason menntamálaráðherra, sem
stakk upp á íslenskum her fyrir skömmu og fékk í kjölfarið
blessun Heímis Steinssonar útvarpsstjóra. Ungir Alþýðubanda-
lagsmenn voru ekkert ofsakátir með grein framkvæmdastjór-
ans, þótt foringi þeirra, Róbert Marshall, hafi lýst yfir áþekk-
um skoðunum um NATÓ og Heimir. Ástæðan er sú að fram-
kvæmdastjórinn snuprar ungu mennina fyrir vanþekkingu á
sagnfræði í tenglsum við sameiningarumræðu vinstrimanna...
Hrafn Jökulsson, ritstjóri Alþýðublaðsins og
varaþingmaður, hættir eftir áramót á mál-
gagni Alþýðuflokksins. Hrafn er orðaður við starf
ritstjóra Mannlífs, eins tímarita Fróðaútgáfunnar,
en hann þvertekur fyrir að vera á leiðinni þang-
að. Ritstjórinn segist ætla að hefja störf á öðr-
um vettvangi en fjölmiðlun. Ekki fyrr en eftir ára-
mót verður Ijóst hvaða starf það er...
Brögö hafa verið að því að fólk hafi kvartað yfir því bæði við
apótek og landlæknisembættið að lúsameöul hafi ekki virk-
aö sem skyldi — aðeins drepið lúsina en skiliö nitina eftir
sprelllifandi og fjöruga. Eru þess dæmi að fólk hafi fleygt og
fryst fatnað og sængurföt um leið og það hefur notað lyfin en
án árangurs. Er sagt að lúsin sé ónæm gegn einstökum meðul-
um sem á markaði eru. Lyfjafræðingar halda því fram að lyfin
hafi ekki verið rétt meðhöndluð en sjálfsagt eru fjölmargir for-
eldrar, sem hafa reynt af öllum mætti að losna undan þessu
skaðræöisdýri, þeim ekki sammála...
Fyrir skömmu gerði fyrirtækið Gallup skoðanakönnun meðal
Hafnfirðinga um hvort þeir styddu núverandi meirihluta T
bæjarstjórn. Niðurstaðan er án efa fróðleg, en Gallup-menn
liggja á henni eins og ormur á gulli. Sjálfsagt klæjar pólitíkusa í
fingurna eftir að komast yfir hana...
Meðal þeirra höfunda sem voru svo lánsamir aö bækur
þeirra voru tilnefndar til íslensku bókmenntaverðlaunanna
T ár er Dagný Kristjánsdóttir. Bók hennar Kona verður til var
Macintosh Performa 6320/1 20
Óvænt jólagjöfl Innbyggt mótald og
mánuður á netinu fylgir með tölvunni
Apple Color StyleWriter 1500 er góður en ódýr litaprentari
fyrir Macintosh-tölvur. Þessi fullkomni bleksprautuprentari
hentar vel fyrir heimili, nám og fyrirtaeki, þar sem þörf er
fyrir litaprentun á viðráðanlegu verði. Tekur lítið pláss og er
ótrúlega hljóðlátur.
Með tölvunni fylgir, tilbúið til notkunar:
• Stýrikerfi á íslensku
• Ritvinnsla, töflureiknir, gagnagrunnur og teikniforrit, allt saman á tslensku
• Handbækur um stýrikerfi ogforrit á íslensku
• Ritvöllursem leitar uppi stafsetningarvillur
• Málfræðigreining (kennsluforrit í íslenskri málfræði)
• Viskubrunnur - spumingaleikurfyrir alla fiölskylduna
Macintosh er tolvan - isiensKa er malio
Fjöldi landsmanna hefur átt þess kost að nota fslensku á tölvunni sinni. Hvað með þig og
bömin þín? Gerðu þá sjálfsögðu kröfu að bömin þín alist upp við íslensku í leik og starfi.
Aladdin, Lion King og Toy
Story geisladiskar fylgja
tölvunni ásamt 10 öðmm
spennandi diskum með fjöl-
breyttu fræðsluefni, leikjum
og kennsluforritum af ýmsum toga.
VAZ,
O '<
00
i o
■: ■
Color StyleWriter 1500
Apple-umboðið
Skipbolti 21 • Sími 511 5111 • http://www.apple.is
Varaþingkona Kvennalistans, stjórnmálafræðingurinn Þórunn Svein-
bjamardóttir, er nýfarin til fýrrverandi Sovétlýðveldisins Azerbai-
djan, þar sem hún mun starfa næsta
hálfa árið sem upplýsingafulltrúi al-
þjóðasambands Rauða krossins. Þór-
unn er enginn nýgræðingur T hjálpar-
starfi í þróunarlöndunum, því hún hef-
ur einnig verið upplýsingafulltrúi í
flóttamannabúðum í Tansaníu. Gamli
fjölmiðillinn Ómar Valdimarsson hef-
ur og starfað í þessum búðum. Þriðji íslendingurinn sem hefur unnið
sem fjölmiðlafulltrúi erlendis er Þórir Guðmundsson, sem er um
þessar mundir staddur í fyrrverandi Sovétlýðveldinu Kazakhstan.
Tólf Islendingar eru nú staddir erlendis á vegum Rauða kross ís-
lands. Starfa íslendingarnir í fyrrverandi lýðveldum Sbvétrikjanna,
Júgóslavíu og Afriku. Fyrir utan fjölmiðlafulltrúa eru hjúkrunarfræðingar
starfandi á sjúkrahúsum fyrir stríðshrjáða svo og fólk sem vinnur að
skipulagningu hjálparstarfs svo sem dreifingu matvæla...
Jólakauptíðin stendur sem hæst með tilheyrarndi auglýsingamennsku
og sölubrögðum en ekki fer þó allt að ósk-
um. Á fimmtudagskvöldið voru auglýstir tón-
leikar með Bubba Morthens I Kaffileikhús-
inu. Tónleikunum var aflýst á síðustu stundu.
Ástæðan: 1 Kaffileikhúsið mætti nánast ekki
hræða. Sama kvöld lásu rithöfundar upp úr
verkum sínum á Sóloni íslandusi. Þessum
bókmenntaviðburði var reyndar ekki aflýst
enda mættu þó nokkrir — rithöfundar sem
svo lásu upp hver fyrir annan...
Það var þó síður en svo að ReykvTkingar sæktu ekki
skemmtistaði um síðustu helgi. Straumurinn lá á nektar-
dansstaðina Vegas og Óðal. Ljósmyndari HP hefur rekið sig á
að myndatökur eru ekki leyfðar innandyra á þessum stöðum.
Það er út af fyrir sig kannski skiljanlegt að viðskiptavinirnir,
sem a.m.k. sumir eru vel efnaðir karlmenn í góðum Stöðum,
hafi ekki sérstakan áhuga á að sjá myndir af sér í blöðum,
troðandi peningaseðlum ofan í efnislitlar nærpjötlur fatafell-
anna. Það er heldur aldrei að vita hvað eiginkonurnar segðu...
tilnefnd T flokki fræðirita. Dagný er vafalaust vel að tilnefningunni komin
en það vill á hinn bóginn svo kátlega til aö hún á einmitt sæti í þeirri
dómnefnd sem kemur til með að úthluta íslensku bókmenntaverðlaun-
unum — í flokki fagurbókmennta...
Enhver stærsta uppákoma þessarar bókatíðar veröur í Leikhúskjallar-
anum á sunnudagskvöld. Tugir skálda koma þar fram, þar á meðal
höfðingjarnir Ólafur Gunnarsson og Guðmundur Andri Thorsson og
fjöldi annarra. Það sem vekur þó
mesta athygli er að T þessum stóra
hópi skálda er Ijóðskáidið Gyrðir El-
íasson, sem hingað til hefur forðast
fjölmenni eins og heitan eldínn.
Stjórnendur samkomunnar eru leik-
konurnar Helga Bachmann og Edda
Þórarinsdóttir...
Iuppsiglingu er óvænt nýársball sem á að halda í Kolaportinu fyrsta
kvöld nýs árs. Það er umboðsskrifstofa Eskimo Models, ásamt Alnæ-
missamtökunum á íslandi, sem hefur unnið aö undirbúningi skemmtun-
arinar, sem virðist ætla að verða hin veglegasta. Margir vilja styrkja
góðan málstað, t.d. listamennirnir Tolli og Eiríkur Smith, sem ásamt
tugum annarra ætla að gefa verk á uppboð til styrktar Alnæmissamtök-
unum. Hljómsveit kvöldsins verður Skárr’ en ekkert með IngvarSig-
urðsson leikara fremstan í flokki, veitingahúsið Astró sér um veislu-
borð, Filippía Elísdóttir hönnuður stendur fyrir glæsilegri tískusýningu
og ef Jarvis Cocker, söngvari Pulp, heimsækir Björk um áramótin er
hann ákveðinn I að líta inn í Kolaportið. Miðaverð er áætlaö innan við
3.000 krónur með öllu. Og þótt erfitt sé að sjá það fyrir sér er ætlunin
að hafa Kolaportið afar hlýlegt á nýárskvöld....
littp: / /tliis. is/ne
lifandi vefur um Internetið, fólkið, fyrirtækin og framþróunina
s ur
Performa6320
169.900,
Performa 6320 er 120 megariða tölva með 12 Mb vinnsluminni,
8x geisladrifi, innbyggðu 28,8 kb mótaldi og 1200 Mb harðdiski.