Helgarpósturinn - 12.12.1996, Síða 8
QOTT FÓLK / 8lA
8
FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1996
Gamalt vín á nýjum belgjum
Lögmálin sjö um
velgengni
Höfundur: Deepak Chopra
Þýöandi: Gunnar Dal
Vöxtur
★ 1/2
Höfundur bókarinnar er
sagður Bandaríkjamaður af
indversku bergi brotinn. Lög-
málin sjö, segir á bókarkápu,
hafa verið á metsölulista The
New York Times og selst í á
þriðju milljón eintaka. Þýðand-
inn Gunnar Dal fylgir bókinni
úr hlaði með allmiklum for-
mála þar sem hann lofar höf-
undinn og telur hann einn
þeirra er leggi grundvöll að
nýrri lífssýn komandi aldar. En
ekki er bara um lífssýn að
ræða, heldur eru lagðar leiðar-
stikur að velgengni með iðkun
nýs lífsstíls. Hér er því eins
konar vegahandbók á ferðinni,
sem á að færa þeim sem rata
eftir tilvísan hennar velgengni,
vellíðan og farsæld í lífinu.
MÍTNkÆÍmiM
Gert er úr því að hér í kveri sé
á ferðinni eitthvað nýtt og
ferskt. Reyndin er þó önnur
sýnist mér. Hér er safnað sam-
an margskyns brotum aust-
rænnar speki í bland við nokk-
urn forða af vestrænum rótum.
Allt nánast, sem hér er á ferð-
inni, má til að mynda tína sam-
an og lesa úr guðspekiritum ís-
lenskum sem erlendum liðinna
áratuga, þó að ýmsu séu hér
gefin ný nöfn. Þarna eru þó
kunnuglegu hugtökin mörg,
sem gefa grunn í kenning-
arnar, svo sem alheims-
orkan, karmalögmálið og
guðdómsneistinn í sálinni
svo nokkuð sé tilgreint.
Það verður að segjast eins
og er að afskaplega lítill
ferskleiki er yfir þeim and-
Öll viljum við halda í okkar jólahefðir.
Láttu okkur aðstoða þig við að senda
þínu fólki í útlöndum eitthvað virkilega gott
sem minnir þau á jólinh eima.
Allar sendingar
fara með DHL
sem um ræðir, þó að þannig sé
auglýst. Bókin er lagleg útlits,
á góðu máli sem búast má við
af skáldinu Gunnari Dal. Og
víst má segja að í lesningunni
er sitthvað sem getur haft bæt-
andi áhrif á menn ef farið væri
BÆKUR
eftir og iðkað. Þessi bók er lík-
leg til vinsælda hjá mörgum
sem kunna þar um sinn telja
sig finna nokkur svör í sogandi
leit fyrir tilgang lífi sínu og
sporum, en slík leit setur mjög
svip á samtímann og ófáir sem
bjóðast til að svara og seðja.
Allt á að verða auðvelt og
átakalaust ef þú ferð eftir regl-
um kenninganna í þessari bók.
En seint held ég að þær nái
þeim áhrifum til langframa
sem höfundur virðist trúa og
segir að unnt sé að ná með
notkun lögmálanna: „Með því
að nota þetta lögmál... verður
þér unnt að skapa þér hvað-
eina sem þú vilt, hvenær sem
þú vilt. Þú verður áhyggjulaus
og glaðsinna..." Ekki amalegt
að tarna! Þórleif Ólafsson
NÝ SAGNFRÆÐIRIT
Veglegar bækur fyrir alla áhugamenn
um þjóðleg fræði og sögu þjóðarinnar.
ÁLFTANESS
SAGA
Anna Ólafsdóttir Björnsson
NOATUN117, HRINGBRAUT 121, AU8TURVERI, ROFABí 39, KLEIFAR8EL118,
LAUGAVEG111 B.HAMRABORG KQP., FURUGRUND HÚP., MOSFELLSBÆ.
SAGA
NJARÐVÍKUR
Kristján Sveinsson
HtlWU>-Þ0RU'FSS0N
ÞJÓÐSAGA
PÓSTSAGA
ÍSLANDS
1776-1873
Heimir Þorleifsson
Jólapakkatilboð Póstsins
Póstur og sími býður viðskiptavinum sínum sérstakt jólapakkatilboð fyrir jólapakkana
innanlands. Skilyrði er að sendingin sé send í sérstökum umbúðum (sjá mynd).
Þegar þú sendir jólagjafirnar með Póstinum í þessum umbúðum greiðir þú aðeins
310 kr. fyrir pakkann, þyngd hans skiptir ekki máli. Þetta jólapakkatilboð gildir
frá 1.-23. desember 1996 og skiptir þá engu hvert þú sendir pakkann hér innanlands.
Svo lengi sem hann er í þessum umbúðum kostar sendingin aðeins 310 kr.
Umbúðir stærð BJ
(23x31x12 cm.)
+ burðargjald = 310 kr.
Má senda hvert sem er
innanlands.
Umbúðirnar eru til sölu á öllum póst-og
símstöðvum. Með því að nota jólapakkatilboð
Póstsins hefur þú valið eina fljótlegustu, öruggustu
og ódýrustu leiðina til að senda jólagjafirnar í ár.
PÓSTUR OG SÍMI
Stórfróðleg
bókum
íslenska siði
Merkisdagar
í mannsævinni
Árni Björnsson
Mál og menning
★★★1/2
Eins og fyrri bækur Áma
þjóðháttafræðings er þetta rit
stórfróðlegt og jafnframt læsi-
legt og vel skrifað. Hér er fjall-
að um og
raktir „ís-
lenskir siðir
og venjur
við hátíðis-
og merkis-
daga í ævi
h v e r s
m a n n s “.
Heiti kafl-
a n n a
gefa til
k y n n a
efnisvalið: Lífið
kviknar, fæðing, nafngjöf og
skírn, afmæli, ferming, festar
og trúlofun, brúðkaup, andlát
og útför. Leitað er fanga að
fornu og nýju, bæði að bein-
hörðum staðreyndum er efni
varða, sem og munnmæli birt,
sagnir og kímnisögur, orðspor
og skáldskapur af ýmsum toga
sem höfundur kryddar með
fræði sín. Hlýtur óhemjuvinna
að liggja að baki heimildaöflun
og úrvinnslu við gerð þessarar
bókar. Margur mun án efa hafa
gagn af ritinu sem uppflettiriti
þegar henta þykir og í annan
stað yndi af að lesa sleitulaust.
Mestallt efni bókarinnar snert-
ir að einu eða öðru leyti siði og
háttu sem trú og kirkja hafa
mótað. Höfundur gefur glögga
mynd og nákvæma af uppruna
siða og venja merkisdaga, svo
sem þekkja má slíkt, og gæðir
jafnframt fræðilegu þættina lífi
með hvers kyns lýsingum og
sögum, oft skoplegum. Rétt
eins og Saga daganna er Merk-
isdagar á mannsœvinni gagn-
merk bók og eiguleg, þrátt fyr-
ir að kryddið sem blandað er í
fræðin sé að mínum smekk
stundum fullsterkt til að hæfa
slíku riti.
Þórleif Ólafsson
FaUegbók
um
náttúruperlu
Þórsmöik—landogsaga
Þóröur Tómasson
Mál og mynd
★★★
Þórður Tómasson, sem
lengst af var safnvörður
byggðasafnsins á
Skógum, er fyrir
löngu orðinn þjóð-
kunnur fræðimaður
og hefur ritað fjölda
bóka og blaðagreina
um þjóðleg fræði. í
bók þessari er lýsing
á náttúru og stað-
háttum Þórsmerkur
og nágrennis. Einnig
er í henni rakin saga
Þórsmerkur, búseta,
landnýting og friðun.
Þá er ritið jafnframt
afmælisrit til heiðurs
Þórði safnverði 75
ára og fylgir Tabula
Gratulatoria fremst í
bókinni. Bókin er lit-
prentuð og í henni
um 300 ljósmyndir
margra fremstu
myndsmiða þjóðar-
innar, teikningar og
kort. Þetta er afskap-
lega falleg bók og
vönduð um eina
helstu perlu íslenskr-
ar náttúru, á ljósu og
kjarngóðu máli eins
og Þórði Tómassyni
er munntamt og eðli-
legt.
Þórleif Ólafsson