Helgarpósturinn - 12.12.1996, Page 13
FIMIVmiDAGUR 12. DESEMBER1996
13
Enn er ekki vitað hversu góð sjón fæst með nýja „rafeindaauganu". Sumir vísindamenn álíta að „sjón“ á
borð við þessa mynd geti verið innan seilingar. Okkur þykir hún ekki skýr en fyrir blindan mann væri þessi
sjón stórkostlegur árangur.
Dauffir heyra,
blindir ffa sýn
- tækninýjungar á við svæsnustu kraftaverk!
Daufir heyra og blindir fá sýn. Grein sem
hefst á þessum orðum hljitur að fjalia um
kraftaverk, vera trúarlegs eðlis. Eða hvað?
Reyndar ekki. Það eru vísindamenn en ekki
guðir eða kraftaverkalæknar sem nú gefa
þessa yfirlýsingu.
Nýjasta tölvu- og rafeindatækni gagnast
mönnum á æ fleiri sviðum og ekki síst innan
læknisfræðinnar þar sem leysigeislar og fjar-
stýrðir vélskurðlæknar hafa gert flóknar og
erfiðar skurðaðgerðir tiltölulega viðráðanleg-
ar. Öld tæknikraftaverkanna er á næsta leiti.
Nú sjá vísindamenn fram á að geta innan til-
tölulega fárra ára gefið blindum sjón og dauf-
um heyrn með hjálp örsmárra rafeindatækja
sem komið verður fyrir í augum og eyrum og
gert lömuðum kleift að hreyfa sig og jafnvel
ganga með því að stjórna
vöðvunum með tölvustýrð-
um rafboðum.
Allt byggist þetta á því að
tengja tölvubúnað við tauga-
frumur iíkamans þannig að
boð geti gengið á milli. Raf-
eindabúnaðurinn á þannig
að brúa bilið milli þeirra
taugastöðva sem eru sam-
bandslausar sín á milli.
Heilinn tengdur
myndavél
Vísindamönnum hefur
þegar tekist að láta blinda
skynja ljós með því að senda
ijósgeisla á míkróflögur sem
komið hefur verið fyrir á net-
himnu augans. Þessar fyrstu
tilraunir vekja vissar vonir.
Enn er löng þróun eftir en
framtíðarsýnin gæti verið
eitthvað á þessa leið. í stað
blinda augans kemur gervi-
auga. Nethimna gerviaugans
verður samsett úr míkróflög-
um sem taka við rafrænum
boðum frá örsmárri „mynda-
vél“ sem e.t.v. verður komið
fyrir í eins konar gleraugum.
Míkróflögurnar í „nethimnunni“ senda raf-
boðin áfram til þeirra taugafruma sem að öllu
eðlilegu hafa það hlutverk að bera boð frá
auganu til heilans.
Til marks um það hversu flókið þetta við-
fangsefni er má nefna að heilbrigð sjóntaug
ber boð frá um 1,2 milljónum taugafruma í
heilbrigðri nethimnu. Eitt stærsta vandamál-
ið sem vísindamennirnir þurfa að glíma við er
að koma hverri míkróflögu í gervinethimn-
unni fyrir á svo nákvæmlega réttum stað að
rafboðin frá henni hitti á nákvæmlega réttar
taugafrumur og fari þannig rétta boðleið inn í
heilann.
Heyrnin lengra komin
Vísindin eru komin töluvert lengra áleiðis
þegar heyrnin er annars vegar. Nú þegar hef-
ur tekist að veita nokkra heyrn með rafeinda-
tæki sem komið er fyrir undir húðinni bak við
eyrað og sendir rafboð beint til heyrnartaug-
arinnar. Til viðbótar þessu rafeindatæki er
einskonar heyrnartæki sem þýðir hljóðbylgj-
urnar yfir í rafboð og sendir inngrædda raf-
eindatækinu. Með þessum búnaði hefur ekki
tekist að skapa fulla heyrn en hann veitir þó
umtalsverða hjálp. Búnaðurinn hefur verið í
notkun frá því undir lok síðasta áratugar og
börn sem fædd voru heyrnarlaus hafa með
hjálp hans getað lært að tala nokkuð skýrt.
Lamaðir munu ganga
Algengasta ástæða lömunar er sú að mæn-
an hafi skaddast. Þetta þýðir á sem einföld-
ustu máli að mænan er ekki lengur fær um að
flytja boð frá heilanum til vöðvanna. Taug-
arnar sem liggja út frá mænunni og til vöðv-
anna eru hins vegar oftast í ágætu lagi og full-
færar um að sinna sínu hlutverki, en þeim
berast engin boð frá höfðustöðvunum og þar
af leiðandi gerist ekki neitt þótt heilinn skipi
svo fyrir að hægri fóturinn skuli t.d. færður
fram.
Sú hugmynd sem vísindamenn vinna nú
með er fólgin í því að láta
flókinn tölvubúnað bera
boð til þeirra vöðva sem
ekki eru lengur í „símasam-
bandi“ við heilann. Nú er
verið að gera tilraunir með
tölvubúnað sem komið er
fyrir utan á líkamanum, en
hugsanlegt er að einhvern
tíma komi að því að unnt
verði að koma honum fyrir
undir húðinni. Grunnhug-
myndin byggist á því að
með j}ví að ýta á hnapp
verði sett af stað þau tauga-
boð sem þarf til að fram-
kvæma einhverja ákveðna
hreyfingu. Þetta ferli tauga-
boða er þó óhemju marg-
slungið. Tökum sáraeinfalt
dæmi úr daglegu lífi:
Við tökum vatnsglas og
höldum því undir bunu af
rennandi vatni þar til það er
fullt. Einfaldara getur það
varla verið. En...! Skoðum
þetta ferli nánar. Hvað er
það sem við gerum þegar
við látum vatn renna í glas?
Við hreyfum höndina að
glasinu, höldum öllum fingr-
um í réttum stellingum, tökum utan um glas-
ið, lyftum því og flytjum það undir vatnsbun-
una. Eiginlega mjög einfalt. En svo vandast
málið. Þegar vatnið rennur í glasið þyngist
það smám saman. Ef við herðum ekki takið
fellur glasið úr hendinni áður en það er orðið
svo mikið sem hálft af vatni. Við þurfum að
herða takið smám saman eftir því sem glasið
þyngist.
Hver sem af athygli hefur fylgst með barni
læra að ganga getur borið vitni um að það er í
rauninni óhemju flókin athöfn. Það er ekki
nóg að standa uppréttur og færa svo annan
fótinn fram fyrir hinn. Það er algeng sjón að
sjá börn sem eru að iæra að ganga detta á
rassinn. Ástæðan er sú að þau eru ekki búin
að átta sig á því að þyngdarpunktur líkamans
þarf að færast áfram — ekki bara fæturnir.
Þegar svo til viðbótar er hugsað út í allar þær
flóknu vöðvahreyfingar sem þarf til þess eins
að lyfta fæti og færa hann fram um eitt skref
verður auðskilið að það er flókið og erfitt við-
fangsefni sem bíður vísindamannanna áður
en lamaðir verða færir um að ganga, jafnvel
þótt þeir njóti stuðnings af öðru fólki eða
hækjum.
Afi og Dolli halda í jólaferb d geisladisknum
JOLASkRAUT og lenda í ýmsum œvin-
týrum. Jólasögur og jólaglens dsamt
spJunkuný;um jólalögum Sigurftar Bjólu vió
Itexta FriÓriJcs Erlingssonar í fjutningi
vaJinJcunnra leikara og söngvara. Örn
Arnason, SigurÓur Sigurg'ónsson, Ólafía
Hrönn /ónsdóttir og /óhann Siguróarson
og margir fJeiri Jcoma fram d disJcnum.
Orai U rlxiKJNA il/A M£K
og ?8 önnur ljóÓ DavíSs Stefónssonar frd
Fagraskógi í mögnuóum fJutningi leikaranna
Arnars /ónssonar og Helgu /ónsdóttur.
eisladiskurinn Smásögur inniheJdur f-
'imm
ólíkar sögur eftir August Strindberg, Ingvar Orre,
Vladimir Nabokov, /ohn O Hara og Heinrich Böll
í flutningi Jands- ____
Jcunnra leikara. Bj/Sgl|g fj {sJWiHif 'irldin&TríÍH®
Tvær skemmi iiegar
teiknimyndir á
^ myndbandi sem aÓ
sfdlfsögóu eru taJsettar d ísJensJcru.
HEIMSkUR OG HEÍMSkARI
(Dumb and Dumberj er byggó d persónum úr sam-
Mnefndri kvikmynd
sem naut mikilla
vinsœlda um allan
leim og Ghiman j
CMask) en þar fer f
Laddi á bostum í
taJsetningunni |1
og slœr jafnvel
þeim frcegustu í |
Hollywood út. *
VasJ<a
bagan um
GRÍSÍtíN BADDA
(Babe) túiJcuÓ af Margréti
Vilhjálmsdóttur eins og í
myndinni. Þetta er góó
Jcassetta fyrir yngstu
börnin, meó sJcemmtiJegri
tónJist/óns Ólafssonar.
Utgefandi og dreifing: Hl/óÓsetning ehf.
Sími 552 9944 Fax 552 9955
Afí OG DokJLÍ,
VASÍCÍ GR.ISÍNN BaDDÍ