Helgarpósturinn - 12.12.1996, Page 16
16
RMMTUDAGUR12. DESEMBER1996
T
getur aJlt!
helícíð ég sé
bara ágætiskokk-
ur, að minnsta
kosti hrósa maður-
inn minn og börnin
mér mikið fyrir mat
inn sem ég bý til,
segir Brynja Gunn-
arsdóttir þjónn,
tveggja barna móð-
ir og eiginkona
metsölusöngvar-
ans í ár og mörg
önnur ár; Bubba
Morthens.
Eftir nokkrar
vangaveltur og
smáþrýsting frá
blaðamanni ákvað
Brynja að upplýsa
leyndarmál; innihald
gómsætrar uppskriftar
sem haldið hefur verið
vandlega leyndri innan
ákveðins vinahóps í
mörg ár. En þar sem
svo margir hafi þeg-
ar bragðað á réttin-
um sé nú tími til
kominn að leyfa
fleirum að njóta:
„Ég smakkaði þenn-
an rétt fyrst hjá
vinafólki _ mínu,
Þóru og Ámunda,
fyrir mörgum árum.
Okkur hjónunum
fannst hann svo
góður að við borð-
uðum okkur til
skammar," segir
Brynja og upplýsir
að það sama hafi
hent alla þá sem
hún svo hafi boð-
ið til þessa ein-
staka málsverð-
ar. „Þó að mér
finnist ég hafa
orðið mér til
s k a m m a r
finnst mér aft-
ur á móti mjög
gaman að sjá
mat hjá
Brynju
Gunnarsdóttur
fólk háma í sig mat sem ég bý
til. Þá veit maður að því þykir
maturinn góður.“
Brynja segir það tvímæla-
lausan kost við þennan kjúk-
lingarétt að hann sé að mestu
hægt að búa til daginn áður.
Þannig verði matarveislan sjálf
ekkert mál.
Brynja lætur ekki þar við
sitja heldur lumar líka á upp-
skrift að ekta gamaldags amer-
ískri gulrótarköku sem hún
bakaði í tilefni afmælisins síns
síðasta sunnudag.
Maður etur peningana
sína
Annars segist Brynja ekki
fyrir það að elda flókinn mat.
„Áður fyrr henti ég bara ein-
hverju í pott og án þess að ég
smakkaði nokkuð heppnaðist
maturinn yfirleitt vel. Nú er ég
hins vegar farin að notast við
matreiðslubækur, ekki þó til
þess að fást við flóknari mat-
reiðslu heldur þvert á móti
heilla mig mest uppskriftir að
einhverju hollu og einföldu þar
sem undirbúningur tekur helst
ekki meira en fimm tii tíu mín-
útur. En þar sem ég er svo
snögg tekur það mig ekki nema
fimm mínútur sem aðra tekur
tíu mínútur. Ég lít til dæmis
alltaf fyrst á undirbúningstíma
áður en ég tek ákvörðun."
Eftir að Brynja fór að glugga í
matreiðslubækur notar hún æ
oftar ferskar kryddjurtir á
kostnað þurrkaðra. Kryddjurt-
irnar ræktar hún þó ekki sjálf,
Amerísk
gulrótar-
kaka
2 bollar sykur
1 bolli olía
2 egg
2 tsk. vanillusykur
>
Þetta er hrært vel saman og
út í þetta er svo hrært:
2 1/2 bolli hveiti
2 tsk. matarsódi
1 tsk. salt
1 tsk. kanill
Þá er eftirfarandi bætt við:
2 bollar rifnar gulrætur
1/2 bolli rúsínur
1/2 bolli saxaðar valhnetur
1 lítil dós maukaður ananas
(án safa)
Bakað í 40-50 mínútur viö
175". Passar í hálfa ofn-
skúffu.
Ostakrem
227 g rjómaostur
6 msk. smjör
2 tsk. vanillusykur
2 1/2 boili flórsykur
Alþjódlegt lamb - á diskinn minn
Iikið er ég ósammála Jó-
hönnu Kristjónsdóttur
sem í síðasta tölublaði HP
hafði á orði að hún fylltist
fremur ógleði en gleði yfir
hermikrákuhætti íslendinga í
matargerð og nefndi þar sem
dæmi dönsku hlaðborðin. Jafn
litlaus og bragðdauf og íslensk
matargerð er fagna ég öllum
góðum matarsiðum sem ber-
ast upp að íslandsströndum,
en þetta er auðvitað bara
spurning um smekk. Þar sem
ég vii hafa minn mat bragðmik-
inn og hef gaman af að láta
kitla bragðlaukana með ein-
hverju óvæntu er ekki von að
mér líki vel sá íslenski; moð-
soðin ýsa, þorramatur og svo
framvegis. Ég er þó alls ekki að
segja að allt skuli fengið að ut-
an. Góðar uppskriftir og það
sem upp á þær vantar er auð-
vitað vel þegið en hráefnið má
gjarnan vera íslenskt. Okkar
lofaða lambakjöt, sem við stát-
um af að sé nánast hrein villi-
bráð, má færa í margan bún-
ing. Það er til dæmis allt mor-
andi í góðum indverskum
lambakjötsuppskriftum. Silfur
hafsins, síldin; ekki veit ég bet-
ur en hún fari jafn vel á ís-
lensku sem dönsku hlaðborði,
enda þótt af henni kunni
að vera austurrískt
bragð.
Það sem ég á við er að
ég fagna því að íslenskt
hráefni fái að klæðast
sem alþjóðlegustum bún-
ingi, svosem eins og
lambakjöt, ber (t.d. til
víngerðar) og fiskur. Alís-
lenskt matarhugvit var
að minnsta kosti vel og
lengi ekki upp á marga
fiska. Það var ekki fyrr en
samskipti okkar við umheim-
inn fóru að aukast að ráði að
hér fór að færast líf í innlenda
matargerð og meira að segja
þá íslensku um leið. Ég er
nefnilega sammála þeim sem
halda því fram að íslensk
menning sé aldrei blómlegri en
þegar fólkið er í sem nánustum
tengslum við umheiminn, en
dafni hins vegar ekki í einangr-
un.
Það er því við hæfi hér að
birta uppskrift að íslensku
lambi með alþjóðlegu ívafi sem
hægt er að sneiða niður eins
og roastbeef, í örþunnar sneið-
ar, og bera fram til dæmis með
kaldri piparrótarsósu eða pip-
arrótarrjómasósu sem saman-
sett er úr ferskri niðurrifinni
Roast-lamb
80 ml sítrónusafi, nýkreistur
2 tsk. salt
5 hvítlauksgeirar, kramdir
2 tsk. engifer, saxaö
1 tsk. timían
1 tsk. rósmarín
2 msk. svört piparkorn, nýmulin
3 rauö chilipiparaldin
5 msk. ólífuolía
piparrót, þeyttum rjóma, smá-
sykri og sítrónusafa.
Biðjið um úrbeinað lamba-
læri og fáið það þannig að það
sé í einni stórri sneið; útlítandi
eins og fiðrildi.
Leggið kjötið í allri sinni dýrð
niður og þerrið eftir megni.
Stingið göt í kjötið með hníf á
nokkrum stöðum.
Blandið saman í skál sítrónu-
safa, salti, hvítlauk, engifer,
timían og rósmaríni og dreifið
helmingnum af blöndunni vel
yfir aðra hlið kjötsins og troðið
vel í götin. Snúið kjötstykkinu
við og makið yfir restinni af
blöndunni. Leggið kjötið sam-
an og setjið í skál ásamt safa
þess og passið að öll krydd-
blandan fylgi með. Hyljið og
látið marinerast í ísskáp
yfir nótt. Takið út þrem-
ur til fjórum klukku-
stundum áður en þið eld-
ið kjötið og breiðið úr því
á ný.
Saxið chilipiparinn ör-
smátt og myljið pipar-
kornin í kvörn eða
mortéli. Mjög sniðugt er
að nota gamla kaffikvörn
til að mala krydd ef þið
eigið hana til. Stráið
helmingnum af pipar-
kryddinu yfir aðra hliðina og
nuddið vel inn í kjötið. Gerið
sama við hina hliðina og notist
einnig við helming ólífuolíunn-
ar. Látið kjötið ná stofuhita.
Forhitið ofninn í 250", en til
að elda kjötið þannig að það
verði miðíungssteikt þarf það
að vera í ofni í þrjú korter eða
klukkutíma.
Setjið kjötið í ofnskúffu og
snúið því þannig að olíuhliðin
snúi upp. Steikið í 20 til 30 mín-
útur. (20 mín. er fremur hrátt,
30 mín. er meðalsteikt). Snúið
þá kjötstykkinu við og makið á
það afganginum af ólífuoliunni.
Bakið jafnlengi. Kjöt þetta er
best skorið í örþunnar sneiðar.
Guðrún Kristjánsdóttir
þar sem einungis loftgluggi sé í
eldhúsinu hennar. „En þar sem
ég bý nánast í Hagkaup er lítið
mál fyrir mig að nota krydd-
jurtaborðið niðri.“
Eyðið þið miklu í mat?
„Já,“ segir Brynja óhikað.
„Fullur ísskápur er bara eitt-
hvað sem maður ólst upp við.
Eiginlega má segja að maður
eti peningana sína. Samt reyni
ég að spara. Þegar ég reyni að
vera skynsöm bý ég til matseð-
il fram í tímann og fer í Bónus.
Alltaf eyði ég samt rosalegu í
mat. Ég er líka dugleg að bjóða
fólki í mat og hef gaman af.“
Bubbi gamaldags
Brynja segist elda á hverjum
degi — og Bubbi stundum —
nema eitthvað sérstakt komi
upp á, þá sé iðulega grjóna-
grautur eða eitthvað þvíumlíkt
á boðstólum enda verði ekki
hjá því komist að elda ofan í
tvö börn. „Bubbi vill sitt líka,“
segir Brynja. „Hann er mjög
gamaldags og vill helst fá sitt
lambalæri eða lambahrygg
einu sinni í viku. Vinkonur mín-
ar eru því farnar að segja að
mömmumaturinn minn slái öll-
um mömmumat við.“
Hryggurinn og lærið er þó
ekki svo gamaldags að það sé
borið fram með brúnuðum og
sultu. Aðalsérkenni Brynju er
svokölluð galdrasósa. „Galdur-
inn við mína sósu er sá að ég
nota mikið af rjóma og rósa-
pipar. Rósapiparinn er það
eina sem er frábrugðið en virk-
ar alltaf þannig að fólk verður
voða hrifið, nú og svo geri ég
mikið pasta, baka oft brauð...
Þú bara getur allt!
„Já, að minnsta kosti sagði
sonur minn það í barnaafmæli
á dögunum. Það þurfti að
skrúfa einhvern bíl í sundur,
margir voru búnir að reyna og
ekkert gekk. Þá segir Hörður
sonur minn, sex ára: Láttu
mömmu gera þetta, mamma
getur allt! Ég var mjög ánægð
þegar hann sagði þetta og vel
að merkja: Ég gat skrúfað bíl-
inn í sundur.“
-GK
Drauma
kjúklingur
2 kjúklingar, hlutaöir niöur
1 hvítlauksrif, saxaö fínt
1/4 bolli óreganó
salt og pipar
1/2 bolli rauövínsedik
1/2 bolli ólífuolía
1 bolli ferskjur án steina
1/2 bolli grænar ólífur
1/2 bolli kapers, svolítill safi
6 lárviöarlauf
1 bolli púöursykur
1 bolli þurrt hvítvín
1/4 bolli steinselja
Setjið í stóra skál allt nema
púðursykur, hvítvín og stein-
selju og marinerið yfir nótt í
ísskáp.
Raðið í ofnskúffu í einfalda
röð, setjið púðursykur yfir
alla bitana og slettið smáhvít-
víni yfir. Bakað í 50-60 mínút-
ur. Opnið ofninn og vætið
kjúklinginn öðru hverju.
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989
1. flokki 1990
2. flokki 1990
2. flokki 1991
3. flokki 1992
2. flokki 1993
2. flokki 1994
3. flokki 1994
- 25. útdráttur
22. útdráttur
21. útdráttur
■ 19. útdráttur
' 14. útdráttur
10. útdráttur
7. útdráttur
6. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. febrúar 1997.
Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði.
Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum
hér aö ofan birt í Degi-Tímanum þriðjudaginn
10. desember. Upplýsingar um útdregin húsbréf
liggja frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins, á
Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
Zxh HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVfK • SÍMI 569 6900