Helgarpósturinn - 12.12.1996, Qupperneq 23
FIMMTUDAGUR12. DESEMBER1996
23
Ekki
missa
Ekki bara móðganir
heldur barsmíðar
■ Radíuskvöld veröur í Loftkast-
alanum á föstudagskvöld og aö
sögn Steins Ármanns Magnús-
sonar, Radíusbróður og Akra-
nesmóðgara, veröa þeir vinirnir
meö algerlega nýtt efni sem
þeir ætla aö hella yfir sýningar-
gesti. „Viö höfum ekki haldiö
Radíuskvöld mjög lengi og höf-
um undanfarið veriö aö vinna
nýtt efni,“ segir hann. „Þaö
hafa verið ákveðnar sviptingar
eftir aö viö skemmtum hjá KSÍ
og við höfum ekki skemmt neitt
mikið eftir það. En okkur lang-
aði að þrófa aö koma fram í
Loftkastalanum og á
okkar eigin forsend-
um. Það er ekkert
mjög gaman aö
skemmta á einhverj-
um árshátíðum eða
lokahófum þar sem
fólk kemur ekkert
sérstaklega til aö
hlusta á mann. Þar
þýðir ekkert
annaö en að
fara með
gamanvísur
og eftirherm-
ur."
Ætliö þiö aö
móðga
einhvern sér-
staklega á
þessari
skemmtun?
„Við leggjum
auðvitað
aldrei af
stað með
það fyrir aug-
um að
móöga ein-
hvern, en
þarna erum
við á okkar
eigin forsendum og ætlum að
brydda á þeirri nýlundu að láta
okkur ekki nægja að taka ein-
hvern þekktan og svívirða hann
munnlega heldur fá hann upp á
svið til okkar og lúberja hann.
— Neinei, þetta var þara smá-
grín.“
Angeli Daemoniaque
Omnigena Imbecilli
Sunt
Áhugafrímúrarareglan Inferno 5
hefur nú sent frá sér hljómdisk
með leiðbeiningum í andlegri
tækni I sjö þreþum. Þessi
tækni er stundum kölluð svart
jóga á Austurlönd-
um og sumir hafa
kallað þetta vél-
ræna ímyndun,
sem þó er umdeilt.
Hljómdiskurinn
nefnist því langa,
torskilda nafni
Angeli Daemon-
iaque Omnigena
Imþecilli Sunt og
að sögn liðs-
manna reglunnar mun alheim-
urinn opnast undir lokuðum
augnlokum ef hlustað er á
diskinn.
kvöld verður haldinn kynn-
ingarfundur og útgáfutónleik-
ar á skemmtistaðnum Tetriz í
Fischersundi og hefjast her-
legheitin klukkan ellefu.
Myndlist í jólaönnum
jólaerlinum framundan er
gott að slaka svolítið á og því
ekki að fara á myndlistarsýn-
ingu? Föstudaginn þrettánda,
á morgun, hefst sýning í
Listasafni íslands á úrvali ol-
íumálverka og vatnslitamynda
eftir einn virtasta listmálara
Húsbréf
Innlausn
húsbréfa
Frá og með 15. desember 1996 hefst innlausn á
útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
4. flokki 1992 - 12. útdráttur
4. flokki 1994 - 5. útdráttur
2. flokki 1995 - 3. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu
föstudaginn 13. desember.
Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja
frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins, á
Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
ZZh HÚSNÆÐISSTOFNUN RIKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SlMI 569 6900
Islands, Hafnfirðinginn Eirík
Smith. Myndirnar eru frá afst-
rakt- expressjóníska tímabilinu
hans (hvað sem það nú þýðir)
og verða sýndar alla virka daga
frá ellefu til fimm. Sýningunni
lýkur 2. febrúar á næsta ári
jrannig aö þið þurfið sosum
ekki að flýta ykkur.
Valdimar með blús
Leikarinn og trúbadorinn Valdi-
mar Örn Flygenring skemmtir
gestum Blúsbarsins á föstu-
dagskvöldið og á laugardags-
kvöldið verður hann á Gullöld-
inni viö Hverafold. Valdimar er
nýkominn og alkominn til lands-
ins frá LAI Ameríku þar sem
hann dvaldi ásamt fjölskyldu
sinni t hálft ár. Honum leist illa
á lífið í Kaliforníusólinni, en
vinnan var ekki upp á marga
fiska. Hann lék í nokkrum sjón-
varpsþáttum í erótísku mynda-
syrpunni Red shoes diaries.
„Ég fór ekki neitt úr fötunum í
þessum þáttum enda lék ég
vonda karlinn," segir Valdimar.
„Mér stóð nú til boða að
leika í kvikmynd eftir Sal-
man nokkurn King sem
gerði m.a. handritið að er-
ótísku kvikmyndinni Níu og
hálf vika. Ég las handritið
og leist ekkert á það. Það
var öllu grófara en í Níu og
hálfri viku.
Það var gaman að prófa að
vera úti en það var ekkert
spennandi fyrir mig sem
leikara. Það tekur ef til vill
fimm ár að komast meö
litlu tána þarna inn og I
fyrsta lagi nennti ég ekki að
standa í því. í ööru lagi var
það að sjá börnin mín
verða bandarisk ekki beint
draumurinn."
Valdimar er þegar kom-
inn á fullt í leiklistinni, en
eftir áramót leikur hann í
leikriti Tennessees Willi-
ams Köttur á heitu tinþaki.
„Hér fær maður tækifæri til
að taka þátt í svona yndis-
legum sviðsverkum og svo
er maöur að fara til Amer-
íku og berjast við villidýr í
mörg ár til að leika sendi-
bílstjóra I tvær sekúndur I
einhverjum þriðja flokks
sjónvarpsmyndaflokki!
Ég er mjög ánægður með
að vera kominn heim og
get ekki með orðum lýst
þeirri ánægju aö fá að spila
lög mín og annarra fyrir Is-
lendinga og fá aö taka þátt
í Tennessee Williams í
Þjóðleikhúsinu."
Löglegt en smekklaust
í kvöld verður hið árlega
Smekkleysukvöld haldið í Þjóð-
leikhúskjallaranum og verður
margt um dýrðir, enda Smekk-
leysa tíu ára á þessu ári. „Við
höfum verið að dæla út rusli í
tíu ár og munum gera það í að
minnsta kosti tíu ár í viöbót,"
segir Einar Örn Benediktsson,
fyrrverandi póstbifreiðastjóri,
uppgjafa Sykurmoli og smekk-
laus maður. Meðal þeirra sem
skemmta eru hljómsveitirnar
Kolrassa krókríðandi, Stuna,
Fræbbblarnir- Glott og Brim.
Eins munu þau Bragi
skáld Ólafsson, Gunnar
fyrrv. ritstjóri Smári Eg-
ilsson og Ijóðskáldið
Dúsa lesa upp úr nýjum
verkum sínum. Annar
Tvíhöfðans, Jón Gnarr,
verður sérlegur kynnir og
staðarhaldari.
Fyrsta íslenska al-
vörurappið
Tímamótaviðburður varð
í íslenskri tónlistarsögu
nú fyrir stuttu en þá kom
fyrsta ísienska rapþþiat-
an út. Rapphljómsveitin
með arabíska nafninu,
Quarashi, á heiðurinn af
þessari þlötu sem nefn-
ist Switchstance. „Viðbrögðin
hafa verið mjög góð, salan
gengur vel og lögin á plötunni
er spiluð á útvarpsstöðvum
þannig að við erum mjög sátt-
ir,“ segir Sölvi H. Blöndal, aðal-
sprauta hljómsveitarinnar og
trommuleikari hljómsveitarinnar
Stjörnukisa. „Þetta er nú bara
forsmekkurinn að því sem
koma skal, en við erum að
vinna að stórri plötu þessa dag-
ana. Hún kemur líklega út í
vor."
Útgáfutónleikar verða haldnir á
skemmtistaðnum Tetriz viö Fi-
schersund á laugardagskvöldið
og verður gleðin við völd. Tón-
leikarnir hefjast klukkan tíu og
kostar aðeins krónur fimm
hundruð inn.
Sálin um víðan völl
Hljómsveitin Sálin hans Jóns
míns, sem ekkert hefur heyrst
frá síöan í ágúst, kemur saman
um miðjan desember og leikur
á nokkrum jóladansæfingum
fyrir landsmenn yfir hátíðirnar.
Meðlimir sveitarinnar eru dreifð-
ir um heiminn og því ekki á
hverjum degi sem landsmönn-
um gefst kostur á aö sjá og
heyra Sálina á sviöi. Þeir tón-
leikar sem fyrirhugaðir eru í
jólaorlofinu eru eftirfarandi:
Föstudagur 13. des. Miðgaröur,
Skagafiröi; laugardagur 14.
des. Borg í Grímsnesi; föstu-
dagur 20. des. Sjallinn, Akur-
eyri; laugardagur 21. des. Staþ-
inn, Njarðvík; 25. des. Góladag-
ur) Vestmannaeyjar (eftir mið-
nætti); 26. des. (annarí jólum)
Hótel Selfossj laugardagur 28.
des. Sjallinn, ísafiröi.
Einnig er hægt að nálgast upp-
lýsingar á heimasíðum Sálarinn-
ar og Stefáns Hilmarssonar á
Internetinu. Heimasíða Sálar-
innar fær brátt nýja slóö: www.
mmedia.is/salin. Slóð Stefáns
er: www.mmedia.is/stefanhilm-
ars.
□□
fara hvert um
hdgha?
Bakstur, bækur, heimsóknir og enski boltinn
„Þarf maður ekki að lifa villtu félagslífi til að svara þessu?“ segir
Hrafn Jökulsson ritstjóri. „Ég ætla að baka svo
sem eins og fimm tegundir af smákökum um
helgina. Við vorum nú langt komin með þetta
hjónin, en ég er því miður búinn að ganga mjög
mikið á smákökubirgðirnar og þarf því að end-
urnýja þær. Vonandi endist nýi skammturinn
fram að jólum. Á meðan kökurnar bakast í ofn-
inum ætla ég að glugga í nokkrar bækur. Ég er
að lesa bók Hannesar Hólmsteins Gissurarson-
ar um Benjamín H.J. Eiríksson. Ákaflega
skemmtileg bók. Síðan ætla ég að lesa svolítið í
ljóðasafninu hans Sigurðar Pálssonar og síðast en ekki síst ætla
ég að lesa bókina Astfangnar flugvélar eftir Kormák Bragason,
sem virðist vera nýjasta súrrealistaskáldið okkar. Að þessu frá-
töldu ætla ég mér að rækta fjölskylduböndin með heimsóknum.
Svo væri ég vís með að líta upp úr Kormáki á ensku knattspyrn-
una ef leikurinn er góður.“
Bajlettsýning sonardætra
„Ég ætla að fara að horfa á sonardætur mínar
tvær taka þátt í ballettsýningu suður í Hafnarfirði,"
segir Heimir Steinsson, fráfarandi útvarpsstjóri og
tilvonandi þjóðgarðsvörður. „Stelpurnar eru fimm
ára og níu ára gamlar og ég hlakka mikið til að sjá
þær dansa. Svo getur verið að ég skjótist austur
fyrir fjall, á Þingvelli."
Maltviskí sem jólaglögg
„Ég verð að vinna alla helgina," segir Sig-
mundur Emir Rúnarsson, varafréttastjóri
Stöðvar tvö. „Á laugardagskvöld ætla ég að
bjóða góðu fólki heim til mín í sérlagað jóla-
glögg, sem á ekkert skylt við skandinavískar
uppgötvanir. Ég býð upp á sérstakt maltviskí
sem ég læt útbúa handa mér austur í sveit-
um. Á sunnudagskvöld verð ég sennilega að
pakka inn einhverjum af þeim ótal jólagjöfum
sem ég þykist ætla að gefa landsmönnum."
Er ekki hættulegt að vera að dreypa á sérlöguðu jólaglöggi á
laugardagskvöld og mæta síðan snemma í vinnuna?
„Þetta er náttúrlega svo snobbaður klúbbur að hann skyrpir
meirihlutanum út úr sér. Höfum þetta innan stórra gæsalappa."
Þið kíkið ekki í bæinn eftir jólaglöggið?
„Ég bý úti á landi, í Grafarvoginum, þannig að ég held mig
heima."
Vinnan ogfjölskyldan
„Ég ætla mér að vinna um helgina og svo vera í faðmi fjölskyld-
unnar þess á milli,“ segir Tómas Á. Tómasson veitingamaður. „Ég
sé ekki fram á að það verði nein sérstök tilbreyting hjá mér þessa
helgi en ég er nokkuð sáttur við þessi áform.“
í London
„Ég er að fara til London um helgina og ætla
að viðra mig aðeins þar,“ segir leikarinn og
söngvarinn Egill Ólafsson. „Ég ætla að ræða
þarna við gott fólk, en kalla má þetta við-
skiptaferð. Eg var nú samt að hugsa um að sjá
leikrit sem heitir að mig minnir Art, en Albert
Finney leikur í því. Þetta er verk sem á að fara
að setja upp í Þjóðleikhúsinu og mig langar að
kíkja á það. Svo var ég eijjinlega búinn að lofa
sjálfum mér því að sjá Irana dansandi, berj-
andi, syngjandi og flautandi í Riverdance. Hluti
af þeirri sýningu var á Júróvisjón-opnuninni í hittifyrra og var hel-
víti magnað.“
spurt...
Ef þú fengir að ferðast í tíma og
rúmi, hvert myndirðu þá fara?
Þórhallur Sigurðs-
son (Laddi)
„Já... í tíma og rúmi," segir
Laddi og hugsar sig um.
„Ég myndi vilja kíkja til
himnaríkis og skoða mig
um. Einn daginn fer maður
þangaö og það væri gaman
aö kíkja á þaö áður. Skjót-
ast þangað og sjá hvað
framundan er. Ef það væri
ekki í lagi þá myndi ég
reyna að komast eitthvað
annað."
En helduröu aö þú komist
til himna þegar þú deyrö?
„Ég er alveg klár á því."