Helgarpósturinn - 05.06.1997, Side 17
FIMMTTJDAGUR 5. JÚNÍ1997
17
Tíðinda-
laustá
vinstri-
vígstöðv-
unum?
Er Þjóðvaki í andarslitrunum og ekkert eft-
ir nema náðarhöggið? Smásílin hafa yfír-
gefíð flokkinn, samkvæmt skoðanakönnun-
um, og um leið hvarf lifíbrauð stórlaxanna.
Nú hugsa þeir sér til hreyfings. Yfirlýsingar
í Qölmiðlum hafa gefíð dánarfregninni byr
undir báða vængi, talað er um að hlutverki
Þjóðvaka sé lokið og næsta skref sé samein-
ing jafnaðarmanna í einn fíokk.
Flestir hlutaðeigandi eru sammála um að það muni
ekki gerast í nánustu framtíð, enda mörg mál þar að
lútandi óútkljáð. Spurningin er því sú hvort Þjóðvaki
tórir til að sjá þann dag og muni sem slíkur taka þar
þátt; eða hann liðist í sundur og meðlimir hans tínist í
aðra flokka áður en af þessu verður.
Eða hvernig á annars að túlka yfirlýsingar í fjölmiðl-
um um að „hlutverki Þjóðvaka sé lokið“ öðruvísi en að
viðkomandi sé í rólegheitunum að undirbúa brottför
sína úr flokknum. Þetta hefur bæði verið haft eftir
SvanMði Jónasdóttur, varaformanni og þingmanni
flokksins, og Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, sem er
sömuleiðis þingmaður flokksins.
Jóhanna Sigurðardóttir myndi án efa kjósa að Þjóð-
vaki héldi velli, hún hefur sagt að hlutverki Þjóðvaka
ljúki ekki fyrr en með sameiningu vinstrimanna, enda
nokkuð ljóst að áhrif hennar þar velta mikið til á því
hvort flokkur „hennar“, Þjóðvaki, verður til staðar. En
hver er staða mála innan flokksins? Hvað er Þjóðvaki
núna, hvað átti hann að verða og síðast en ekki síst:
Hver verða örlög hans? Blaðamaður hafði samband við
forystumenn í flokknum. Ágúst Einarsson þingmaður
þverneitaði að láta nokkuð uppi. Aðrir urðu fyrir svör-
um en óskuðu nafnleyndar.
Aðspurður hvort hann teldi að markmiðin með stofn-
un Þjóðvaka hefðu náðst sagði einn heimildamanna
okkar Þjóðvaka hafa gert mikið gagn og átt mikinn þátt
í því að koma samfylkingarmálunum í það kastljós sem
þau væru í núna. Ánnar heimildamaður sagði að aðal-
stefnumál Þjóðvaka um sameiningu jafnaðarmanna
væri nú vel á veg komið og þessa stundina ynnu þau á
fullu í því ásamt skoðanabræðrum sínum í öðrum
flokkum. Ef af sameiningu verður yrði flokkurinn stór
og þ.a.l. auðveldara fyrir jafnaðarmenn að koma fram
stefnumálum sínum. Hann sagði vilja kjósenda eindreg-
inn í því máli, þeir vildu einn stóran, sameinaðan jafn-
aðarmannaflokk.
Hjá heimildamanni okkar kom fram að enginn sem að
stofnun Þjóðvaka kom hafi ætlað honum langa lífdaga.
Það að vilja sameina vinstrimenn fæli vitanlega í sér að
vera reiðubúinn til þess að leggja sinn flokk um leið
niður. Stefnt væri að sameiginlegu framboði - og síðar
meir sameiginlegum flokki vinstrimanna - og því yrði
Þjóðvaka óhjákvæmilega ekki langra lífdaga auðið. Með
slíkri sameiningu væri markmiðinu með stofnun Þjóð-
vaka náð.
Áður var minnst á yfirlýsingar ýmissa áhrifamanna
flokksins opinberlega, sem hæglega mætti túlka sem
formála að inngöngu í annan flokk. Þrátt fyrir það var
engin hætta sögð á að Jóhanna Sigurðardóttir, sem erf-
iðast ætti með slík skipti, yrði ein eftir í flokknum og
ekki var fallist á að fólk væri á leið eitthvað annað.
Samkvæmt einum heimildamanna okkar er óvíst
hvort flokkurinn heldur velli fram að sameiningu, enda
framvinda sameiningarmála á huldu. Margt hefði gerst
á þeim vettvangi og í vor teldist líklegra að af sameigin-
legu framboði yrði. Engin leið væri þó fyrir einstaklinga
og flokka að segja fyrir um afstöðu sína við slíka gjör-
breytingu á þeirra högum sem fylgdi sameiningunni.
Hann taldi ekki víst að Þjóðvaki yrði til þá, það færi
hreinlega eftir aðstæðum. Annar viðmælandi blaðsins
var ekki í vafa, sagði að Þjóðvaki myndi fylgja eftir
þessu aðalstefnumáli sínu allt til enda, þ.e. að flokkur-
inn yrði til þangað til að af sameiningu yrði.
Aðspurður um sögusagnir um inngöngu Þjóðvaka í
annan tiltekinn flokk sagði heimildamaðurinnn að um
enga slíka ákvörðun væri að ræða hjá Þjóðvaka, a.m.k.
ekki á þessu stigi, og ekki yrði neitt slíkt á döfinni í
sumar. Hvað gerðist næsta haust við upphaf þings
væri önnur saga.
Viðmælendur okkar voru sammála um að hlutverki
Þjóðvaka í íslenskri flokkapólitík væri lokið.
S • FAX: 587 9644
r7 9<
r ekki nema a 35
- og ekki i belti
i*jr;i cr fí andhtmu
UIWFERÐAH
RÁÐ
iceTox fjallahjólin eru sérstaklega
hönnuð með íslenskar aðstæður í huga.
Þau eru níðsterk og smiðuð með það að
markmiði að þola hinar
erfíðustu aðstæður.