Helgarpósturinn - 05.06.1997, Side 23

Helgarpósturinn - 05.06.1997, Side 23
FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ1997 23 Ekki , missa þessu '&:hisz * •Yét***************}*} 'WmM WSB W Fimm ára gamlir Milljónamæring- ar Ein helgi í Hress- ingar- skálan- um er nú orðin að fimm ár- um og af því tilefni slá Mill- amir upp trylltum dansleik í Óperukjallar- anum næsta laugardag. Þar fara þeir hamfömm fram eftir nóttu ásamt m.a. Bjaraa Arasyni, hin- um eina sanna látúnsbarka og nú- verandi söngvara þeirra; Páli Ósk- ari júróvisíonhetju og fleiri góðum gestum. Hinn vægast sagt vafa- sami karakter Sólóður dansar mambó T stolinni pardussundskýlu frá Portúgall! Arrrribal, andelé-and- elél, mamból, salsal, tortillac- hipsl!!! Föl í júní Svo dálkurinn haldi áfram umflöll- un sinni um hljómsveitina Soma til- kynnist það hér með að útgáfutón- leikar vegna plötunnar Föl verða haldnirí Leikhúskjallaranum í kvöld klukkan tíu. Þá er aðeins eftir að spyrja hinnar krefjandi spurningar hvers vegna hljómsveitin valdi ekki afkvæminu meira viðeigandi nafn í samræmi við ríkjandi árstíð. Blaöamað- ur vill nú ekki vera álitinn besservisser en óneitanlega hefði mátt finna nafn sem ætti betur við tíðina, t.d. „Brún og sælleg"... Tún, en ekki til beitar Útkomu geisla- disksins Tún, Tón- list úr Norðurkjall- ara, verður fagnað föstudaginn 6. júní á Nelly’s Café milli klukkan tíu og hálf- eitt. Þar koma fram hljómsveitirn- ar Stjöraukisi, sem nýlega varð að hálfgerðu tekn- óbandi með trommuheíla 500 bpm eða eitt-. hvað nálægt því; Hugh Jazz, Electrique (fínna en Electric) og Self realisation in the experi- ence of sensual love. Blaöamað- ur gat nú ekki annað en velt fyrir sér hvort sú síðastnefnda væri kannski ákveðin gömul og góð ís- lensk pönkhljómsveit, sem orti m.a. ódauölegt lag um sleikipinna, komin með nýtt og fint nafn á ensku. Þá væri sko sannarlega ástæða til að skella sér... Musteri rokksins og Catalína í kvöld klukkan tíu verða haldnir tónleikar á Rósenberg þar sem fram koma Maus, sem er þesta hljómsveit á íslandi og alveg við þaö að unga út þriðju plötu sinni; og Soðin fiðla, ungu stjömumar úr Músíktilraun- um ‘97. Heild- verslun Alberts Guðmundssonar verður meö kynn- ingu á varningi sem blaöamaður Rauða Tor^ið I einrúmi.. 905-2 eða 305-21 — Nína i-2 OOO eða 305-2121 S**15. St Kr. 00,50 mín omdu þér þasgilega fyrir ðu augunut njó-t-tu \pess með beim.. hefur ekki hugmynd um hver er, því það láðist að segja honum hver hann væri. Gíííííífurleg spenna því samfara og verður blaðamaður ör- ugglega meðal viðstaddra til að missa ekki af neinu. Nánast frítt inn, 300 krónur. í kvöld eru einnigtónleikarí Cata- línu í Kópavogi. Þar spila hljóm- sveitirnar Kuml, harðpönk; Ör- kuml og Alræði öreiganna. Læt- in hefjast klukkan níu og aðgangs- eyrir er þrjú hundruð krónur. Tyrkneskur slag- hörpuleikari Ungur tyrkneskur slaghörpuleikari, Hakan Ali Toker, ekki skyldur Ha- lím, heldur tvenna tónleika hér- lendis á næstunni. Þeirfyrri verða í Gerðubergi mánudaginn 9. júní kl. 20.30 en þeir seinni í Safnaðar- heimili Akureyrarkirkju miðvikudag- inn 11. júní kl. 20.30. Þessi ungi snillingur hefur haldið tónleika víöa um heim og lært hjá mörgum mjög hæfum kennurum. Það er einróma álit kunnugra að slagharpan leiki í höndunum á piltinum, enda slag- hörpuleikari! Ekki hefur blaða- manni borist til eyrna orðrómur þess efnis að Hakan ætli sér að troða upp sem leynigestur á pönk- tónleikunum í Kópavogi T kvöld. Ertu hissa, Júlía? Tveir nýir einþáttungar eftir skáldkonuna Nínu Björk Áraadóttur verða frumfluttir í Lista- klúbbi Leikhúskjallarans næsta mánudagskvöld kl. 21.00. Þetta er sTð- asta Listaklúbbskvöld vetrarins. Einþátt- ungarnir nefnast „Ertu hissa, Júlía?" og „Mann- leg samskipti". Leikarar eru þau Helga Bachmann, Bryn- dís Pétursdóttir og Karl Guð- mundsson en leikstjóri Þór- unn Sigurðardóttir. Aðgangs- eyrir er einn sá lægsti í bæn- um, 400 kr. fyrir klúbbfélaga og 600 kr. fýrir aðra. Þessi bær er of lítill fyrir okkur báða Blaðamaður fékk sannkallað- an kúrekainnblástur þegar hann sá villta-vesturs-ietrið á fréttatilkynningu Hins hússins um fyrstu síðdegistónleika sumarsins. Fyrsta orðiö sem kom upp T hugann var: Salo- on. Hljómsveitimar Botn- leðja og Quarashi koma fram og leika fýrir dansi. Texas two-step kannski? Nei, ætli það. Töðugjöldin hefjast kl. 17.00 stundvís- lega, föstudaginn 6. júní. JÍÍÍÍÍÍÍHAAAAAHHH Pipar liðþjálfi í Háskólabíói Restir vita eflaust af þess- um heimsviðburði sem fer fram á klakanum um næstu helgi. Hver veit nema ein- hver af BTtlunum mæti og hefði þaö þótt næg ástæða til þess aö drífa sig, a.m.k. hérna T gamla daga þegar fólk beiö dögum saman og boraði í nefið fyrir utan Kamabæ í von um að ná I eintak af plötum þeirra þeg- ar þær komu út. Hin sögulega plata Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band verður flutt af einvalaliði hljóðfæraleikara og söngvara. Að auki verða ýmis önnur lög þeirra fé- laga á dagskránni og öruggt að ein- hverjum á eftir að vökna um augun er hann heyrir lagið sem ómaði er framtíð hans réðst, svo talað sé undir rós. Hljómleikamir verða fem- irtalsins: á föstudag kl. 20.00, á laugardag kl. 17.00 og 20.00 og þeir síðustu á sunnudag kl. 17.00. Sk-sk-skugga- barinn Á föstudagskvöld verður heilmikiö um að vera á Skuggabamum og frítt inn. Ámi E. veröur gestaplötu- snúður, sætir strákar með bongó- trommur á dansgólfinu og tilboð á Stellu Artois, — mjöðurinn fæst á hálfvirði. Myrkur, hiti, stuö og sviti á Skuggabamum. Heimsviðburður Þann 27. maí síðastliöinn hættu allir sannir íslendingar að gefa gaum smámálum á borð viö hand- boltann og Vestfjarðadeiluna, sett- ust allir sem einn fýrir framan sjón- varpið og horfðu í andakt á Opna Islandsmótið í handfiökun. Og þvílík tilþrif. Miðbakki Reykjavíkurhafnar var þétt- setinn æstum áhangend- um þessarar ört vaxandi Tþróttagreinar og var eng- inn svikinn. Keppendur hurfu í skýi af slori, stáli og blóði og komu svo aftur I Ijós eftir örskamma stund hampandi vel snyrtu og nettu fiskflaki. Og múgur- inn trylltist, hvað eftir ann- aö. Mest þótti spennan í ýsu- flokknum, en þar bar Þórður Tóm- asson sigur úr býtum og hampar nú titlinum eftirsótta, Ýsumeistari ársins. Til hamingiu, Þórður! ís- landsmeistari varð María Flór- inda Peres Cajes sem vinnur í Bylgjunni á ÓlafsvTk og í kjölfarið streymdu til hennar rausnarleg at- vinnutilboð frá frystihúsum um allt land. Þykir ITklegt aö hún starfi ann- aðhvort á Patreksfirði eða í Mekka fiskvinnslunnar, Vestmannaeyjum, næstu vertíð. Heyrst hefur að sjón- varpsrétturinn að keppninni hafi selst á geysiháu veröi og óttast innlendar sjónvarpsstöðvar að á næsta ári missi þær réttinn í hend- ur fjársterkra erlendra sjónvarps- stöðva. Ekki, EKKI missa af þessari æsi- spennandi keppni á næsta ári. 1 '.M SKYLDAN KALLAR „Ég ætla nú aðallega að vinna, enda heilmikið sem þarf að vinna upp eftir langa fjarveru. Ef stund gefst ætla ég að fara í sund og reyna að njóta ís- lenska sumarsins og þá sérstaklega golunnar. Það verður hressandi eftir rakann í Japan, sem var ofboðslegur,“ sagði sr. Pálmi Matthíasson. Hvernig var í Kumamoto? „Það var mjög gaman og spennandi en um leið krefjandi. Það er heilmikið starf að sjá um svo stóran hóp í heil- an mánuð og í mörg horn að líta.“ VINN í GARÐINUM „Ég er bara ekki búinn að ákveða það. Ætli ég verði ekki að vinna í garðinum hjá mér, þ.e.a.s. ef veður er skaplegt,“ sagði Karl Ágúst Úlfsson, grínisti og „guðlastari“. Hvað er að frétta af þœttinum ykkar sem var ekki Guði þóknan- legur að sumra áliti? „Það hefur ekkert heyrst lengi af þessu máli. Við mættum í yfirheyrslu hjá rannsóknarlögreglunni og ég veit ekki betur en hún hafi lokið sinni rannsókn og sent niðustöðurnar til ríkissaksóknara.“ DÚLLAR SÉR HEIMA „Ég ætla nú bara að dúlla mér heima hjá mér, sauma gardínur og þess háttar og koma öllu í stand. Ég er svo mikið fyrir heimilið,“ sagði Rósa Ingólfsdóttir, húsmóðir með meiru! Hvernig leggst sumarið í þig? „Það leggst rosalega vel í mig. Ég er að fara til Mallorca í júlí og þangað til ætla ég að vera að æfa í World Class, taka til í skápunum og stofunni og gera húsið mitt fallegt. Eg ætla líka að taka til í bílskúrnum og dytta að bíln- um mínum, taka gamla ryðbletti og svoleiðis.“ spurt... Ef þú fengir að ferðast í tíma og rúmi, hvert myndirðu þá fara? Einar Örn Benediktsson, fyrrv. póstbifreiðarstjóri (Hér verður að fylgja með samtal sem blm. átti við Einar Örn í far- síma hins síðarnefnda, með tilheyr- andi suði ogtruflunum, skömmu áöur en spurningunni var varpað fram:) „Halló.“ Já, halló, er þetta Einar Örn? „Já.“ Góðan daginn, þetta er á Helgar- póstinum. Ég var að velta fyrir mér hvort ég mœtti spyrja þig einnar spurningar fyrir blaðið. „Ha, jújú, ef hún er ekki of löng.“ Neinei, þetta er bara svona stöðluð spurning... „Ha, stöðnuð spurning!" Nei, stöðluð eins og í staðall. Þá veist, spurning sem kemur í hverju blaði... „Jájá. Allt í lagi.“ Ef þú œttir þess kost að ferðast í tíma og rúmi, hvert mynd- irðu þá fara? (þögn)... „Þetta finnst mér nú frekar stöðnuð spurning!“ Nújá... (bíður eftir svari) (þögn) Er það svarið? „Já, finnst þér það ekki fyndið?“ Ha, jújú. Én viltu ekki segja neitt meira? „Nei, ég held bara ekki. Er þetta kannski ekki nógu gott svar?“ Jújú. Mjögfínt... „Æ, mig langar bara eiginlega ekki að ferðast neitt í tímanum. Mér líður svo vel þar sem ég er.“ Ogþannig lauk þeim orðaskiptum.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.