Helgarpósturinn - 03.07.1997, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 03.07.1997, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 3 JÚLÍ1997 Pólitísk púðurkerling í Firðinum Umdeilda fasteignin til sölu í fjölda ára. Fasteignakaup Jóa Begg átylla til aö losna við hann úr bæjarstjórn? Kratar og allaballar vinna að nán- ara samstarfi og sameiningu. Arni Hjörleifsson, bæjar- fulltrúi Alþýðuflokksins í Hafnarfirði, kveðst vera mjög ósáttur við þá gagnrýni, sem beinzt hefur að Jóhanni Berg- þórssyni, bæjarfulltrúa minni- hluta sjálfstæðismanna, vegna kaupa á fasteigninni Strand- götu 28. „Þetta mál er stormur í vatnsglasi," sagði Árni í sam- tali við Helgarpóstinn. Valgerð- ur Guðmundsdóttir, bæjarfull- trúi krata, lýsti yfir því í sjón- varpi á mánudagskvöld, að kaup Jóhanns á umræddri fast- eign kynnu að vera lögleg, en þau væru siðlaus. Áhrifamenn á meðal krata í Hafnarfirði segja, að „nú sé nóg komið“. Árni sagðist ekki skilja hvað Valgerður ætti við, þar sem það væri ekki rétt eftir haft, að Hafnarfjarðarbær hefði haft í hyggju að kaupa eignina. „Ég er mjög ósáttur við þennan málatilbúnað, og ég sé ekki betur en ummæli hennar séu byggð á misskilningi," sagði Árni, og bætti því við, að sam- starfið við Jóhann hefði að mörgu leyti verið mjög gott „enda er Jóhann dugmikill maður.“ „Ég kalla eftir svörum frá Valgerði Guðmundsdótt- ur,“ sagði Árni Hjörleifsson um yfirlýsingu hennar þess efnis, að vinnubrögð Jóhanns hefðu verið óverjandi. Hjá Hafnarfjarðarbæ fékk Helgarpósturinn þær upplýs- ingar, að einkakaup Jóhanns hefðu ekki verið vel séð, því í viðræðum við lífeyrissjóðinn, sem átti Strandgötu 26-28 og öflug veð í Strandgötu 30, hefði komið til greina að leysa málið á einu bretti með byggingar- hagsmuni bæjarins í huga. Sú lausn hefði fallið um sjálfa sig með kaupum Jóhanns. Búið er að ákveða sérstakan neyðarfund bæjarfulltrúa Al- þýðuflokksins. Á meðal alþýðuflokksmanna eru menn ósáttir við aðdrag- anda þessara kaupa og virðist meirihluti áhrifamanna í flokknum vera á sama máli og Valgerður. Þessir einstaklingar leggja áherzlu á það, að Jó- hann hafi gengið til samninga við lífeyrissjóðinn Framsýn um fasteignakaup á sama tíma og hann og Tryggvi Harðarson, fulltrúi krata, hefðu átt í við- ræðum við sama sjóð. Fram- ganga hans hefði verið siðlaus. Hann hefði a.m.k. átt að bera málið undir samstarfsflokkinn. „Jóhann kann ekki að greina á milli einkahagsmuna og al- mannahagsmuna,“ sagði áhrifamaður í hópi Hafnar- fjarðarkrata við HP. Samkvæmt heimildum Helg- arpðstsins eru þrír af fimm bæj- arfulltrúum Álþýðuflokksins þeirrar skoðunar, að þetta mál gefi alls ekki tilefni til þess að slíta samstarfi við Jóhann Bergþórsson og Ellert Borgar Þorvaldsson. Þeir eru, auk Árna Hjörleifssonar, Ómar Smári Haraldsson og Ingvar Viktorsson, bæjarstjóri. Eftir því sem Helgarpósturinn kemst næst hallast Tryggvi Harðarson, formaður bæjar- ráðs, að því að affarasælast sé að ljúka kjörtímabilinu án Jó- hanns og Ellerts. M e i r i h 1 u t i bæjarfulltrúa Alþýðuflokksins virðist þó þeirrar skoðunar, að ekkert sé athugavert við kaup Jóhanns Bergþórssonar á Strandgötu 28. „Byrjaður í braskinu eignalaus maðurinn“ Samkvæmt fréttum hefur virzt, að fasteignakaup Jó- hanns hafi aðallega hleypt illu blóði í Hafnarfjarðarkrata. Um þetta sagði einn af forystu- mönnum krata þar í bæ: „Þessar fréttir eru fyrst og fremst til marks um uppsafn- aða þreytu í þessu samstarfi við þessa tvo sjálfstæðismenn. Það er því miður einkenni Jó- hanns, að hann gengur alltaf skrefinu lengra en hann má, og þannig reynir hann á langlund- argeð þeirra, sem þurfa að starfa með honum." Þessi krati nefndi m.a. til sögunnar meið- yrðamál Jóhanns gegn tveimur flokksmönnum krata í Firðin- um, Magnúsi Hafsteinssyni og Sverri Olafssyni, og fasteigna- kaupin við Strandgötu. „Og nú er hann byrjaður í braskinu aftur, þessi eignalausi maður.“ Þeir kratar sem HP ræddi við lögðu allir áherzlu á, að Al- þýðuflokksmenn gengju ekki út úr þessu samstarfi fyrr en ljóst væri að búið væri að tryggja starfhæfan minnihluta með meirihlutastuðningi áður en látið verður til skarar skríða gegn Jóhanni Bergþórssyni og Ellert Borgar Þorvaldssyni. „í fréttum fjölmiðla af þessu máli hefur ekki verið greint rétt frá þessum fasteignakaup- um,“ segir Karl Benediktsson hjá Lífeyrissjóðnum Framsýn. Karl greindi Helgarpóstinum frá því, að það hefði ekki verið að frumkvæði Jóhanns Berg- þórssonar, að hann var skráð- ur kaupandi að fasteigninni. Hugmyndin að kaupum 4-5 leigjenda í húsinu væri komin frá Jóhanni Jóhannssyni, kaupmanni í Hafnarbræðrum, sem er með verzlunarrekstur á annarri hæð hússins. í húsinu er Jóhann Bergþórsson leigj- sœtir sofar andi með starfsstöð fyrir verk- fræðiskrifstofu, sem hann rek- ur í eigin nafni. „Þetta mál er orðið að hringavitleysu,“ segír Karl Benediktsson „Það var Jóhann Jóhanns- son, sem var aðalhvatamaður- inn að því, að leigjendurnir í húsinu keyptu það. í samráði við Jóhann í Hafnarbræðrum var boðað til fundar lífeyris- sjóðsins og leigj- endanna í húsinu og í framhaldi af því fóru leigjend- urnir sjálfir fram á það við Jóhann Bergþórsson, að hann sæi um samningsgerðina fyrir þeirra hönd,“ sagði Karl Bene- diktsson í samtali við HP. Hann staðfesti samtali við Helg- arpóstinn, að Tryggvi Harðarson vill Ijúka samstarfinu við Jóhann og Ellert. Omar Smari Armannsson er talinn dyggur stuðningsmaður Ingvars. Afstaða Ingvars Viktorssonar til meirihlutans mótast af þeirri staðreynd að sonur hans og dóttir Eilert Borgars bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins eru sambýlisfólk. hann hefði sjálfur farið þess á leit við leigjendurna, að ein- hver einn þeirra tæki að sér samningsgerðina vegna kaupa af sjóðnum og þeir gerðu síðan Jóhann Bergþórsson saklaus - aldrei þessu vant. upp sín mál í eigin hópi. „Ég var að gæta hagsmuna lífeyrissjóðsins og mat mitt var og er, að bezt væri að skipta við einn fremur en marga,“ sagði Karl og kvaðst sjálfur hafa kosið að Jóhann sæi um kaupin fyrir hönd hópsins. Fasteignin fór á 34,5 milljónir króna og sagði Karl, að hann væri sáttur við það verð. Fast- eignasalar hefðu sett 40 millj- ónir á húsið, en sannast sagna væri húsið ekki mjög vel farið og þarfnaðist viðgerða. Skráður. kaupandi er Verk- fræðiskrifstofa Jóhanns Berg- þórssonar, en skráðir eigend- ur hennar eru eiginkona Jó- hanns, börn hans og móðir. Um skilmálana sagði Karl, að Framsýn hefði lánað kaupend- um 19 milljónir króna, sem væri í samræmi við hefð- bundna hlutfallstölu af kaup- verði í svona tilviki, en aðal- greiðslan hefði verið húseign við Stekkjarhvamm, sem er þegar búið að selja. Karl Benediktsson sagði, að ekki hefði verið farið leynt með að sjóðurinn vildi selja og því fari fjarri, að Jóhann hafi verið að notfæra sér aðstöðu sína vegna málsins, eins og fram hefði komið í fréttum. „Við vor- um búnir að hafa þessa eign í sölu í fimm ár og því áttu kaup- in ekki að koma nokkrum manni á óvart," sagði Karl, og bætti við: „Þetta er orðið að hringavitleysu." Hann kvaðst hafa greint fréttamanni Stöðvar 2 frá stað- reyndum málsins og bent við- komandi á að leita staðfesting- ar hjá Jóhanni Jóhannssyni í Hafnarbræðrum. „Það er bein- línis rangt að bera það á Jó- hann Bergþórsson, að hann hafi beitt bellibrögðum í þessu máli,“ sagði Karl Benedikts- son. „Þetta var dropinn sem rýllti mælinn“ Þá segja kratar, að fram- koma Jóhanns í málinu sé ekki boðleg, þar sem erfitt sé annað en að halda því fram að hann hafi setið beggja vegna borðs. Því hefði það verið lágmarks- krafa á Jóhann, að hann bæri fyrirhuguð kaup sín á fasteign- inni undir samstarfsflokkinn. „Framkoma bæjarfulltrúans Jóhanns er einfaldlega drop- inn, sem fyllti mælinn,“ sagði toppkrati í Hafnarfirði. Alþýðuflokksmenn, sem vilja slíta samstarfinu við Jóhann, benda á að ýmis atvik hafi átt sér stað í samstarfinu við Jó- hann Bergþórsson, sem rétt- læti fyllilega samstarfsslitin. Hann sé erfiður í taumi og hafi of oft efnt til ófriða- fagnaðar gagnvart áberandi krötum í Hafnarfirði og gert mönnum lífið leitt. Þá sitji það enn í mörgum kratanum, að fjármálaæfingar Jóhanns vegna Hagvirkis og málaferli hafi sett blett á bæjarstjórnina. Samkvæmt eftirgrennslan Helgarpóstsins virðist vera vilji til þess meðal forystu krata í Hafnarfirði, að undanskildum þremur bæjarfulltrúum, að slíta samstarfinu við Jóhann Bergþórsson og Ellert Borgar Þorvaldsson. Fyrir því er póli- tískur vilji á meðal krata þrátt fyrir afstöðu bæjarfulltrúanna þriggja. Varðandi afstöðu Ing- vars Viktorssonar, bæjar- stjóra, er sérstaklega til þess tekið, að hann og Ellert Borgar séu nú bundnir böndum, þar sem sonur Ingvars og dóttir Ellerts búi saman. Ekki verður annað séð en að nota eigi umrædd fasteigna- kaup sem átyllu til að hefja hljóðlátt samstarf við Alþýðu- bandalagsmenn. Forystumenn allaballa og krata í Hafnarfirði hafa um langt skeið rætt sam- einingarmál flokkanna og telja sumir samstarfsslit krata og minnihluta sjálfstæðismanna vera fyrsta skrefið í átt að sam- starfi vinstri flokkanna og hugsanlegu sameiginlegu framboði í sveitarstjórnar- kosningum á næsta ári. Sér- fræðingar í bæjarmálum í Hafnarfirði telur yfirgnæfandi líkur á einhvers konar sam- kruíli þessara tveggja flokka í næstu sveitarstjórnarkosning- um. „Þetta upphlaup á ekki að þurfa að koma neinum á óvart,“ sagði annar stórkrati í Hafnarfirði. „Jóhanni virðist fyrirmunað annað en að fara sýknt og heilagt yfir strikið, þótt hann hafi setið talsvert lengi á strák sínum í þessari lotu.“ Allmargir viðmælenda Helg- arpóstsins lýstu þeirri skoðun sinni, að nýjustu tíðindi hafi átt sér langan aðdraganda. Fyrst hefði Jóhann Bergþórs- son gengið fram af félögum sín- um í Sjálfstæðisflokknum, þá hefðu Álþýðubandalagsmenn fengið sig fullsadda af honum og nú, átta mánuðum fyrir sveitarstjórnarkosningar, væri mælirinn orðinn fullur hjá krötum. Fiiilii hann í áskrift 552 '»:l II

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.