Helgarpósturinn - 03.07.1997, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 3 JÚLÍ1997
11
Stóri j afiiaðamiannafLokk-
urinn verður ekki á Islandi
í lýðræðisríkjum er hlutverk
stjórnmálaflokka að verja
hagsmuni ákveðinna hags-
munahópa og setja fram
stefnumál sem kjósendur geta
gert upp á milli í kosningum.
Líkt og annars staðar eru ís-
lenskir stjórnmálaflokkar sam-
suða ólíkra hagsmuna og
ólíkrar hugmyndafræði. Þann-
ig er enginn þeirra boðberi
einnar hugmyndafræði, heldur
blandast þar saman ólíkar
stefnur og veldur það stundum
togstreitu innan flokkanna
sem utan þeirra.
Grunnurinn að vestrænni
hugmyndafræði var lagður á
17. öld, á þeim tíma sem þing-
ræðissinnar tókust á við fylgj;
endur einveldis í Bretlandi. í
vörnum sínum fyrir einveldi
konungs lögðu menn eins og
Edmund Burke grunninn að
íhaldsstefnunni. Þó svo að
álitamálin hafi breyst í tím-
anna rás er kjarni íhaldsstefn-
unnar enn sá að sú þjóðfélags-
gerð og þau valdahlutföll sem
við lýði eru hverju sinni séu af-
sprengi langrar þróunar sem
sannað hafa nytsemi sína. Því
draga íhaldssinnar þá ályktun
að breytingar séu ekki einung-
is ástæðulausar, heldur hreint
og beint skaðlegar þar sem
þær rjúfi jafnvægið sem skap;
ast hefur í þjóðfélaginu. í
íhaldsstefnunni hefur löngum
mátt greina föðurlega forsjár-
hyggju. Þeir sem valdið hafa
eru taldir hafa betri hæfileika
og aðstöðu til þess að taka
bindandi ákvarðanir fyrir
þegnana en þegnarnir sjálfir.
Hinni föðurlegu ábyrgð er hins
vegar talin fylgja sú skylda að
bera hag allra þegnanna fyrir
brjósti.
I íslenskri stjórnmálaum-
ræðu hefur Sjálfstæðisflokkur-
inn oft verið stimplaður mál-
svari „íhaldsins“. En því fer
fjarri að hann einn sé skjól
íhaldsmanna Það má finna
íhaldssinna í öllum íslenskum
stjórnmálaflokkum. Þannig er
íhaldssemi t.d. einnig áberandi
Þjóðmál
Stefanía
Óskarsdóttir
skrifar
innan Framsóknarflokksins og
Alþýðubandalagsins og vissu-
lega bregður íhaldssemi líka
fyrir í málflutningi Alþýðu-
flokksins og Kvennalistans.
Strax á 18. öld var íhalds-
stefnunni hafnað af frjálsiynd-
um hugmyndafræðingum eins
og Adam Smith og John Stu-
art Mill. Andstætt íhaldsstefn-
unni gengur frjálslynd hug-
myndafræði út á það að for-
sjárhyggja gangi þvert á nátt-
úrulegan rétt einstaklinga til
þess að ráða lífi sínu sjálfir.
Frjálslyndir hafa löngum barist
fyrir afnámi alls kyns hafta og
þeir hafa verið því hlynntir að
draga úr afskiptum ríkisins af
lífi fólks. Frjálslyndir hafa samt
sem áður verið klofnir í af-
stöðu sinni til markaðarins.
Sumir hafa verið fylgjandi
óheftum markaðsbúskap að
hætti frjálshyggjunnar, en aðr-
ir hafa viljað setja markaðinum
nokkrar hömlur því annars sé
hætt við að gengið sé á rétt og
afkomu fjölda einstaklinga.
Þetta seinna viðhorf kom t.d.
fram í ræðu Davíðs Oddsson-
ar, forsætisráðherra, sem
hann flutti 17. júní sl.
í íslenskum stjórnmálum
hefur Kvennalistinn ætíð verið
boðberi frjálslyndis. Þá hafa
frjálslyndir einnig sett svip
sinn á Sjálfstæðisflokkinn og
þeir hafa verið virkir innan Al-
þýðuflokksins. Innan Alþýðu-
bandalagsins hafa frjálslyndir
hins vegar ekki verið áberandi.
Þess í stað hefur megin boð-
skapur Alþýðubandalagsins
verið jöfnuður. Jafnaðarstefn-
an, sósíalismi, birtist í mörgum
útgáfum. Hin marxíska útgáfa
jafnaðarstefnunnar hafnar því
að einstaklingurinn sé megin-
eining þjóðfélagsins. Þess í
stað er því haldið fram að
þjóðfélagið samanstandi af
tveimur meginfylkingum sem
takist á; atvinnurekendum og
launþegum. Á 19. öld setti Karl
Marx fram þá kenningu að
hreyfiafl sögunnar væri stétta-
baráttan sem tæki fyrst enda
þegar einkaeign hefði verið af-
numin. Þó svo að Alþýðuflokk-
urinn hafi aldrei verið hrein-
ræktaður, marxískur flokkur
né Alþýðubandalagið, sem er
nokkurs konar stökkbreyttur
afleggjari út úr Alþýðuflokkn-
um, höfðu þessir flokkar til
skamms tíma þjóðnýtingu á
stefnuskrá sinni. Boðskapur
þeirra var að áætlanabúskapur
tæki markaðsöflunum langtum
fram þegar kæmi að því að
gja réttlátt þjóðfélag.
Norðurlöndum lutu jafnað-
armenn, sem afnema vildu
einkaeign, snemma í lægra
haldi fyrir þeim jafnaðarmönn-
um sem vildu samvinnu við at-
vinnurekendur og fjármagns-
eigendur. Markaðssinnaðir
jafnaðarmenn komust að sam-
komulagi við hina síðarnefndu,
með samvinnu bænda, um fyr-
irkomulag sem síðar varð hið
norræna velferðarríki. Sam-
kvæmt þessu fyrirkomulagi
var reynt að finna jafnvægi
milli þarfa markaðsaflanna og
áætlunarbúskaps. Sá strengur
sem tryggði þetta jafnvægi var
skattlagning sem miðaði að til-
færslu fjármagns frá hinum
efnameiri til hinna efnaminni.
Það varð hlutverk ríkisins að
skipuleggja og sjá um þessa til-
færslu með tilheyrandi stofn-
anauppbyggingu.
I upphafi níunda áratugarins
rofnaði hins vegar þessi jafn-
vægisstrengur í flestum ríkjum
N-Evrópu. Atvinnurekendur
drógu til baka samþykki sitt og
til liðs við þá gengu hátt laun-
aðir starfsmenn sem sáu sér
lítinn hag í því að greiða stóran
hluta launa sinna til ríkisrekst-
rar er virtist hafa misst sjónar
á helstu markmiðum sínum. í
kjölfarið töpuðu t.d. jafnaðar-
menn í Svíþjóð völdum eftir
áratuga langa stjórn, en
nokkru fyrr hafði Margrét
Thatcher komist til valda í
Bretlandi. Hægri bylgjan skall
á og náði hámarki sínu méð
falli Berlínarmúrsins og inn-
reið markáðsbúskapar í A-Evr-
ópu.
Við slíkar aðstæður hefur
það reynst jafnaðarmönnum
erfitt að halda uppi vörnum
fyrir ríkisrekstur og áætlana-
búskap. Það sem blasir við
þeim nú er að kjósendum
stendur ógn af hárri skatt-
heimtu og atvinnuleysi. Þetta
hefur leitt til þess að evrópskir
jafnaðarmenn hafa í sívaxandi
Innan allra stjórnarandstöðuflokkanna eru uppi sterkar raddir um að jafnaðar-
mönnum hvar í flokki sem þeir standa sé fyrír bestu að sameinast því að nú sé lag
til þess að ná völdum. í þeirrí umræðu hefur samt ekki veríð rætt undir hvaða
hugmyndafræðilegu formerkjum sú sameining eigi að vera.
í Reykjavík stefna sjálfstæðismenn að því að endurheimta borgarstjórnarmeirihlutann í kosningum næsta vor.
Helgarpósturinn innir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson eftir því hvað undirbúningi líði og hver verði næsti borgarstjóri.
Kemur í okkar hlul að
effha krforð R-listans?
Eru sjálfstœðismenn í Reykja-
vík famir að undirbúa kosn-
ingaslaginn?
- Undirbúningurinn er lítið
farinn af stað en það er í gangi
mikil umræða og starfið er haf-
ið að því er varðar ýmsan hefð-
bundinn undirbúning. Þetta
starf fer fram bæði í hverfafé-
lögunum og almennu flokksfé-
lögunum.
Hversu mörg eru eiginlega
Sjálfstœðisfélögin íReykjavík?
- Hverfafélögin eru 13 en al-
mennu félögin eru Hvöt, Heim-
dallur og Óðinn. Þegar fulltrúa-
ráðið er talið með eru félögin í
Reykjavík alls 17. Þetta skipulag
stendur á gömlum merg og hef-
ur gefist mjög vel.
Verður prófkjör?
- Um það eru skiptar skoðan-
ir í flokknum en engin ákvörðun
hefur verið tekin.
Viltþú prófkjör?
- Ég er heldur fylgjandi próf-
kjöri og hef alltaf verið. Ég kom
sjálfur inn í stjórnmálin gegn-
um prófkjör. Þetta er þó ekki
trúaratriði í mínum huga. Próf-
kjör er ekki endilega undanfari
hagstæðra kosningaúrslita. Við
höfðum ekki prófkjör fyrir
borgarstjórnarkosningarnar
1990 en unnum engu að síður
glæsilegan sigur.
Hver verða, í sem allra stystu
máli, helstu stefnumál ykkar fyr-
ir kosningamar á nœsta ári?
- Við ætlum að leggja niður
holræsagjaldið. Þegar R-listinn
lagði þennan skatt á, þá hækk-
uðu fasteignagjöld Reykvíkinga
um 26% á einni nóttu. Ef ég
nefni nokkur áhersluatriði af
handahófi þá leggjum við líka
áherslu á að breyta aðalskipu-
lagi þannig að íbúðabyggð
verði í Geldinganesi að hafnar-
svæðinu einu undanteknu. Við
viljum breyta nokkuð um
áherslur í leikskólamálum og
taka aftur upp heimgreiðslur.
Auk þess munum við leggja
mikla áherslu á bætt innra starf
í grunnskólunum og átak í mál-
efnum aldraðra, m.a. byggingu
hjúkrunarheimila. Við ætlum
að draga úr því embættis-
mannabákni sem R-listinn er
búinn að koma upp í borgar-
kerfinu og kostar rúmlega 50
milljónir á ári umfram það sem
var þegar R-listinn tók við.
Hversu margir embœttismenn
missa vinnuna?
- Það er ekki endilega víst að
embættismenn missi vinnuna.
Embættismenn hafa sín réttindi
og njóta þess. En sem dæmi get
ég nefnt að við ætlum að leggja
niður Atvinnu- og ferðamála-
stofu og við verðum ekki með
sérstakan aðstoðarmann borg-
arstjóra. R-listinn lofaði að gera
stjórnkerfi borgarinnar opnara
og skilvirkara en hefur í staðinn
þanið það út. Það er orðið altal-
að meðal þeirra sem þurfa að
sækja til borgarinnar að kerfið
sé orðið mjög svifaseint og
þungt í vöfum. Mér virðast allar
horfur á því að það muni koma
í hlut okkar sjálfstæðismanna
að efna það kosningaloforð R-
listans að gera stjórnkerfi borg-
arinnar opnara og skilvirkara.
Hvemig hefur R-listinn staðið
sig?
- R-listinn hefur að minni
hyggju staðið sig bæði vel og
illa. R-listinn hefur gert margt
gott og um það sem vel hefur
verið gert hefur yfirleitt verið
full sátt. Ég get nefnt breytingar
á innkaupamálum borgarinnar
og breytingar í stjórnkerfismál-
um. Um þetta hefur verið full
sátt. Aftur á móti tel ég að R-
listinn hafi staðið sig mjög illa
hvað viðkemur því að efna
kosningaloforðin. Stærsta
kosningamál R-listans var að
efla atvinnu í borginni. Atvinnu-
leysið er núna nákvæmlega hið
sama og var í maí 1994, þrátt
fyrir uppsveiflu í þjóðfélaginu
og stórbætt efnahagsleg skil-
yrði. Þetta eru harðar tölur sem
tala sínu máli. Opnara stjórn-
kerfi minntist ég á áðan. Það er
orðið seinvirkara. í fjármálum
hefur R-listinn líka staðið sig
mjög illa. Á sama tíma og út-
svarstekjur hafa hækkað langt
mæli hafnað þeim boðskap
Marx að markaðurinn sé upp-
spretta ójöfnuðar. Þess í stað
hafa þeir fært sig nær frjáls-
lyndri hugmyndafræði. Eftir
langa og stranga aðlögun að
hinum nýju aðstæðum bauð
breski Verkamannaflokkurinn
fram stefnuskrá í síðustu kosn-
ingum, sem er í flestum megin-
atriðum samhljóma stefnu
breska íhaldsflokksins í efna-
hagsmálum, með þeim árangri
að flokkurinn vann stórsigur
og komst til valda eftir 18 ár í
stjórnarandstöðu. Þessi sigur
er jafnaðarmönnum víða um
heim mikið gleðiefni, en gleðin
er samt tregablandin því svo
virðist sem klassískur sósíal-
ismi eigi sér ekki viðreisnar
von í náinni framtíð.
íslenskir jafnaðarmenn hafa
reynt að færa sér sigur jafnað-
armanna í Bretlandi og í Frakk-
landi í nýafstöðnum kosning-
um í nyt. Innan allra stjórnar-
andstöðuflokkanna eru uppi
sterkar raddir um að jafnaðar-
mönnum, hvar í flokki sem
þeir standa, sé fyrir bestu að
sameinast því að nú sé lag til
þess að ná völdum. í þeirri um-
ræðu hefur samt ekki verið
rætt undir hvaða hugmynda-
fræðilegu formerkjum sú sam-
eining eigi að vera. Eins og nú
er ástatt gengur hinum íhalds-
sömu, frjálslyndu og sósíalísku
sem finnast í öllum þessum
flokkum illa að lynda saman.
Það getur reynst hægara sagt
en gert að fá þá alla til að fall-
ast á að sameinast, hvað þá að
starfa saman í einum, stórum
flokki. Það má allt eins búast
við því að hinar stöðugu til-
raunir til að sameina jafnaðar-
menn verði til þess að hópar
innan flokkanna kljúfi sig frá
heildinni og myndi nýja flokka
þvert á þá sem til staðar eru, í
stað þess að sameinast hinum
fyrirhugaða stóra jafnaðar-
mannaflokki. Við það myndu
andstæður milli flokka skerp-
ast sem e.t.v. er ekki vanþörf á.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson.
umfram verðlag, hefur R- listinn
aukið skuldir borgarinnar og
peningaleg staða hefur versnað
verulega. Þó hefur R-listinn
seilst eftir viðbótartekjum sem
við höfðum ekki, holræsagjald-
ið og viðbótararðgreiðslur af
fyrirtækjum borgarinnar upp á
samtals 1,2 milljarða á ári.
Hver verður nœsti borgar-
stjóri?
- Það verður aðili sem borg-
arbúar munu sætta sig mjög vel
við.