Helgarpósturinn - 03.07.1997, Blaðsíða 13
12
FIMMTUDAGUR 3 JÚLÍ1997
HMMTUDAGUR 3 JÚLÍ1997
13
Beyondr
J°hn iJovd snjffs
,eft and right
-'oWBJairVtford*
*B§S§S:5a;
GEP rannsakar lýðveldið
sama hugsun hefur að öllum
líkindum legið að baki þeirri
tilhneigingu Garðars að sleikja
skeiðina í sameiginlegri ólífu-
skál óperuklansins. Honum
hefur legið gott eitt til, að
sverjast í einskonar fóst-
bræðralag við undirsáta sína.
Tímarnir hafa breyst og nú er
ekki lengur talið nauðsynlegt
að blanda blóði en munnvatn-
ið látið nægja. Svona lagað má
samt sem áður ekki fara úr
böndunum, það verður að
halda sig innan ramma ritúals-
ins og beygja sig undir ríkjandi
reglur. Það ætti til dæmis að
vera auðvelt að átta sig á því
að það er í lagi að sleikja, en að
hrækja er argasta villi-
mennska. Þar fyrir utan verður
að vera ljóst að tilgangurinn
með athöfninni er að styrkja
bönd fólksins við höfðingja
sinn og það er hans að dreifa
sínum konunglegu vessum, en
ekki undirlægjanna að dreifa
vessum sín á milli. Þegar bás-
únuleikarinn uppreisnargjarni
hrækti í ólífuskálina til að mót-
mæla sleikingum Garðars á
skeiðinni sem átti að vera sam-
eiginleg öllu klaninu, gerði
hann sig sekan um að hvetja til
skálmaldar og anarkisma sem
líklega hefði ekki séð fyrir end-
ann á ef Garðar hefði ekki
brugðist við af snarræði og
gert uppreisnarsegginn útlæg-
an. Vísað honum úr fjölskyld-
unni, hengt hann upp í staur til
varnaðar öðrum með svipaðar
hugmyndir. Svo að nú ríkir
friður í Óperulandi og hvað
sem hver segir þá er betra að
vera laus við básúnuleikarann.
Básúnuleikarar eru til ein-
tómra vandræða hvort sem er.
Ekki eru ritúölin alls staðar
eins og ekki bregðast allir við
af jafn mikilli villimennsku og
skilningsleysi og básúnuleikar-
inn. í ágætum sjónvarpsþætti
um daginn, Öldinni okkar, var
rætt við mann sem leikið hafði
með Babe Ruth í hornabolta-
liði einu frægu. Þegar maður-
inn sem rætt var við hafði ver-
ið nýliði í liðinu þar sem Babe
var sjálfskipaður höfðingi,
varð hann fyrir því, þar sem
hann stóð í sakleysi sínu og
reykti, að höfðinginn stóð uppi
á einhverju húsgagni og piss-
aði á bakið á honum. Nýliðinn
brást reiður við í fyrstu en
smám saman lærði hann að
meta atvikið með því að félag-
ar hans gerðu honum grein fyr-
ir því að ekki væri um persónu-
lega óvild að ræða, heldur vildi
hetjan með þessu merkja sér
leikmennina sem tilheyrðu
honum. Það er spurning hvort
hljóðfæraleikararnir í hljóm-
sveit Óperunnar geti ekki dreg-
ið einhvern lærdóm af þessari
sögu og tekið sér til fyrirmynd-
ar æðruleysi amerískra horna-
boltaleikmanna.
mikla áhrifavalda á nýju plötunni „O.K. Computer.
Gene senda frá sér nýjan singul, „Speak To Me
Someone“, hjá Polydor 21. júlí. Bónuslög eru
ábreiða af Nick Cave- laginu „The Ship Song“, nýtt
lag sem heitir „As The Bruises Fade“ og fjögur lög
af tónleikum Gene í Royal Albert Hall 1. mars sl. Eitt
af þeim er titillagið „Speak To Me Someone" en hin
þrjú: „Drawn To The Deep End“, „New Amuse-
ments“ og „01ympiam“. Gene koma fram á „T In
The Park“-hátíðinni 13. júlí og á V97 í Leeds 16. og
17. ágúst.
Billy Corgan úr Smashing Pumkins er ekki leng-
ur viðriðinn takkana á nýju plötunni með Hole,
hljómsveitar ekkju Kurt Cobain. Honum hefur verið
skipt út fyrir Michael Beinhorn sem hefur takkast
fyrir Red Hot Chili Peppers og Soundgarden. Co-
urtney Love hefur einnig hætt við alla þá aðstoðar-
menn sem Corgan hafði dregið inn í verkið, þeirri
spurningu var einmitt varpað hér fram í dálkinum
fyrir nokkrum vikum hvor myndi að lokum eiga
meira í plötunni, Courtney eða Corgan. Á meðan
hefur Anita Pallenberg sagt að hún vilji að Courtn-
ey leiki sig í væntanlegri kvikmynd um Brian Jones
úr Rolling Stones. Tökur eiga að hefjast á henni í
september.
Sonic Youth hafa stofnað plötufyrirtæki og verð-
ur fyrsta útgáfan EP-plata með hljómsveitinni
sjálfri, innihaldið einvörðungu instrumental efni.
Nýja útgáfan heitir Sonic Youth Records (SYR) og
er aðskilinn samningi sveitarinnar við Geffen Re-
cords. Hugmyndin varð til eftir opnun eigin hljóð-
vers bandsins í Manhattan, eftir lá nokkur fjöldi
laga sem þau vildu gefa út. Nýja EP-skífan er sú
fyrsta í röð hljómplatna sem Sonic Youth hyggst
gefa út, þær verða miklu sérsniðnari fyrir aðdáend-
ur en það sem sveitin sendir frá sér í gegnum Geff-
en. Fyrsta afurðin sem hefur verið nefnd „SYR 1“
inniheldur fjögur instrumental lög með frönskum
titlum: „Anagrama“, „Improvisation Ajoutee", „Tre-
mens“ og „Mieux: De Corrosion". Á nýafstöðnum
Tíbet-tónleikum í New York afhjúpaði sveitin lögin
og flutti þá einnig lag tileinkað Állen Ginsberg, „Hits
Of Gay Sunshine". Talið er að það verði með á
næstu Geffen-plötu bandsins sem upptökur hófust
nýlega á og er væntanleg í haustútgáfu. Sagt er að
nú þegar hafi þau tekið upp efni fyrir næstu EP-
plötu SYR.
Eg varð vitni að því um dag-
inn í ónefndri verslun sem
selur ólífur í lausu, að regnbar-
inn ferðalangur (útlendingur)
fjárfesti í nokkrum slíkum og
spurði um leið afgreiðslustúlk-
una hvort umræddar ólífur
væru „local“. Jájá... sagði hún
og var hikandi, vissi greinilega
ekki alveg hvað hann var að
fara en taldi söluvænna að
svara spurningunni iátandi.
Ræktið þið ólífur á Islandi?
spurði þá ferðalangurinn skraf-
hreyfni. Neei... brosti stúlkan.
Hvernig geta þá þessar ólífur
verið lókal? spurði hann. Þá
viðurkenndi stúlkan að henni
hefði fundist hugmyndin um
ólífurækt á íslandi svo gersam-
lega út í hött að hana hefði
ekki rennt í grun að hann hefði
verið að spyrja út í þessháttar
landbúnað.
Það er greinilegt að fleiri eru
jafn meðvitaðir og stúlkan í
sögunni, um verðmæti vörunn-
ar umræddu sem þarf að flytja
langar og hættulegar leiðir til
að hún geti prýtt matarborð
landans. Til dæmis Garðar
Cortes og vandræðagepillinn
með básúnuna, þessi sem get-
ur með engu móti skilið ritúöl-
in sem eru svo mikilvæg
hverju litlu samfélagi til að
hetjurnar geti haldið uppi aga
meðal óbreyttra. íslensku
óperunni er hægast að líkja við
frumstæðan ættbálk í svört-
ustu Afríku, þar sem eitt af
skyldustörfum höfðingjans er
að blanda líkamsvessum sín-
um við vessa sem flestra í ætt-
bálknum. Það er ætlað til að
styrkja samfélagsböndin og
yrðu þar ásamt leikaranum Richard E. Grant sem
leikur umboðsmann sveitarinnar. Önnur stór nöfn
sem talin eru viðriðin myndina eru Roger Moore,
Richard Briers, Barry Humphries, Hugh Laurie,
Jools Holland, Claire Rushbrook, Stephen Fry, AI-
an Cumming, Michael Barrymore og Frank Bruno.
Síðar var filmað í Dockland-hverfinu og voru stjörn-
urnar þar stökkvandi inn og út úr strætisvagni og
ofan í bát, áttu öryggisverðir og lögreglan fullt í
fangi með að halda í skefjum múgi af fólki. Spice
Girls hljóðrita fyrir myndina lag Gary Glitter „I’m
The Leader Of The Gang“, að því er best er vitað þá
verða í myndinni þrjú önnur gömul lög og fjögur ný
Spice- lög. Til hliðar við kvikmyndagerðina hafa
stúlkurnar verið að vinna að næstu breiðskífu,
nokkur lög hafa nú þegar verið fullkláruð. Auglýs-
ingasamningur sá sem þær gerðu við Pepsi fyrr á
árinu er í formi sérsmáskífu, „Step to me“, og geta
aðdáendur einungis eignast hana með afrifum af
Pepsiflöskum. Geislaplatan sem inniheldur þrjú mix
verður send út síðar í mánuðinum.
Strangelove gefa út sitt fyrsta efni í meira en ár
14. júlí nk„ þá kemur út singullinn „Greatest
Show Ón Earth“ hjá Food/Parlophone. í framhald-
inu kemur svo út stór plata og túr í september.
Smáskífan kemur í tveimur mismunandi geisla-
plötuútgáfum, aukalega fylgir „Living With The
Human Machines (Loop mix)“, „Couples", „Croft-
ers“, „Ascension Day“ og þrjú lög af órafmögnuðum
tónleikum Strangelove frá í ágúst á síðasta ári, eitt
af þeim er
ábreiða af
Elvis Presl-
ey-laginu „If
I Can Dre-
am“. Hljóm-
sveitin kom
reyndar
fram á öðr-
um „raf-
magnslaus-
um“ tónleik-
um með
Tinder-
sticks fyrir
hálfum
mánuði og
Radiohead
segja
Strangelove
Ideilan
l í ísJerisku
•óperunni
Bob Dylan þjáist af hættulegum hjartasjúkdómi,
hann var drifinn í skyndi á spítala í síðasta mán-
uði, þá hafði hann kvartað undan stöðugum verkj-
um. Dylan hafði haldið upp á 56 ára afmælið sitt
tveimur dögum fyrr. Goðsögnin hefur verið á stans-
lausu tónleikaferðalagi frá árinu 1988 (ísland /90),
gárungarnir hafa nefnt ferðina „The Never Ending
Tour“. Hann hefur nú neyðst til að fresta öllum bók-
unum, þar á meðal sem aðalnafnið á Fleadh-tónlist-
arhátíðinni sem haldin var 7. júní sl. Þar voru Bob
Dylan og Van
Morrison feit- _____________________________________
letruðu nöfnin,
aðrir flytjendur:
Lightning Se-
eds, Divine Co- j
medy, Midn-
ight Oil, Suz-
ane Vega, Go
Betweens,
Specials, Nick
Lowe o.fl. Sá
gamli var ekki
nema eina viku
innan spítala-
veggjanna en á
þó að taka það
rólega næstu
vikurnar, en
Bob á son sem
heitir Jakob
Dylan, hann er |____________________________________
26 ára gamall
og hefur kosið
sér sama starf og faðirinn. Jakob er leiðtogi hljóm-
sveitarinnar Wallflowers sem hefur nú selt tvær og
hálfa milljón eintaka af sinni annarri breiðskífu
„Bringing down the house“. Frumburður Wall-
flowers kom út árið 1992, hann þótti gott byrjenda-
verk en seldist síður. Jakob Dylan hefur alltaf haft
það á tilfinningunni að fólk vilji ekki annan náunga
eins og sig fram á sjónarsviðið, á hann þá við að nú
þegar höfum við fengið Ziggi Mariey, Julian Lenn-
on og Jeff Buckley, sem allir eru synir þekktra
listamanna.
Hljómsveitin Echo & The Bunnymen hefur verið
endurreist eins og minnst var á hér í dálkinum
fyrir skömmu, þá vegna hljóðversvinnu þeirra og
að Liam Gallagher Ijái þeim rödd sína í nýju lagi.
Bunny-mennirnir hafa nú tilkynnt sinn fyrsta túr
þar sem Neil Tennant
úr Pet Shop Boys var
gestur. Tennant syngur
lag P.S.B. frá 1987,
„Rent“, við undirleik
Suede og síðan dúett
með Brett Anderson í
laginu „Saturday
Night“, síðustu smá-
skífu Suede. Engar tón-
leikauppákomur eru á
döfinni hjá hljómsveit-
inni í Bretlandi á þessu
ári fyrir utan hlutdeild
þeirra á Reading-hátíð-
inni 22. ágúst.
litlum 7.500 eintökum. Bakhliðin tjeymir
svo instrumental útgáfu A-hliðar lagsins.
Lagið var hljóðritað í stúdíói Port ishead í
Bristol, það verður síðan að finna á ann-
arri breiðskífu bandsins
sem á að fylgja eftir „-
Dummý' /94. Nýja platan
er nafnlaus eins og stend-
ur en er sett á útgáfu í ág-
úst.
Super Furry Animals
senda frá sér nýja
smáskífu, „The Interna-
tional Language Of Scre-
arning", hjá Creation 14.
júlí. Lagið verður fáanlegt
á kassettu, vínil og á
geisla, aukreitis fylgja
þrjú önnur ný lög: „Wrap
It Up“, „Foxy Music" og
„O.K.“. Þeir sem leið eiga
um Cardiff í kringum
næstu mánaðamót geta
barið hljómsveitina augum þar á
Coopers Field 27. júlí og á Bangor Rugby Club 2. ág-
úst. Frumburður Super Furry Animals, „Fuz:zy Log-
ic“, var á topp 10-lista margra gagnrýnenda. á síð-
asta ári.
Paul Weller er farinn í upphitunartúr svonasem
undanfara vegna þátttöku sinnar á „T In'The
Park“-tónlistarhátíðinni 13. júlí og á sínum <eigin
festivölum í Sheffield 26. júlí og London 2. éigúst.
Túrinn hófst í Portsmouth á mánudaginn og kemur
Weller fram á einum 15 tónleikum fyrir utan áður-
nefndar hátíðir. Tilefnið er sömuleiðis útkomamýrr-
ar breiðskífu hans „Heavy Soul“ hjá Island. :Á raeð-
an er fyrrum samstarfsmaður hans hjá Jamj bassa-
leikarinn Bruce Foxton í fullri vinnu með hiijóm-
sveitinni Stiff Little Fingers. Nýtt albúm kojn jjar út
30. júní, „Tinderbox" hjá Spitfire Records oig þkjöl-
farið röð af tónleikum.
Foo Fighters, Kenickie, Robbie WilliamssiTerror-
vision, Dubstar og My Life Story eru á riaeðal
þess tónlistarfólks sem hefur hljóðritað lögrfydr
„Come Again“. Það er nafn á albúmi sem keamur út
8. september og inniheldur ábreiðuútgáfur 'af lög-
um sem út hafa komið hjá EMI- útgáfunni sí ðastlið-
in 100 ár. Tilefnið er einmitt aldarafmæli fyirirtækis-
4-
ins, allur ágóði af plötunni rennur til The Music So-
und Foundation sem er félag sem EMI stofnaði og
styður við bakið á ungu tónlistarfólki. Á plötunni
má heyra Foo Fighters taka Gerry Rafferty-lagið
um Bretland í meira en
10 ár, m.a. í Newcastle 1. október, Manchester (4),
Leeds (7), Norwich (11), Nottingham (14) og Lond-
on (16). Nýr singull frá sveitinni kom út nú á dögun-
um, „Nothing Lasts Forever“, og hinn 14. júlí sendir
Echo & The Bunnymen frá sér breiðskífuna „Ever-
green“.
Echobelly eru í þann veginn að rjúfa 18 mánaða
þögn sína með útgáfu á nýju lagi, „The World Is
Flat,“ sem kemur út hjá Epic 28. júlí.
Ástæða þess að svo langur tími er liðinn
frá síðustu útgáfu er sú að sveitin lenti í
vanda vegna útgáfufyrirtækja. Þau voru
upphaflega hjá Rhytm King, óháðri út-
gáfu sem var fjármögnuð af Sony, því
lauk og Rhytm King héldu til Arista,
buðu sig til kaups
og þá með Echi
belly. Sony var
á öðru máli,
þeir þóttust
eiga sveitina
og upp úr
þessu varð
mikið lagamál.
Hljómsveitin
var tilbúin
með nýja
og kom þetta
sér því afar
illa. Söngkon-
an Sonya Aur-
ora Maden
segir nýja lagið vera eins-
konar „comeback", glögg-
lega megi heyra að hér
séu Echobelly á ferðinni
en þau hafi þó þróast. Bónuslög með nýja laginu
verða Greg Brinson remix af „The World Is Flat“,
auk þriggja nýrra laga: „Falling Flame“, „Hold The
Wire“ og „Drive Myself Distracted".
Suede gefa út nýtt lag, „Filmstar", hjá Nude 4. ág-
úst, í boði verða tveir mismunandi CD-pakkar
með laginu sem tekið er af breiðskífu sveitarinnar
„Coming Up“ frá síðasta ári. Með fylgja tvö áður út-
gefin lög, „Graffiti Women“ eftir Brett Anderson og
„Duchess", ballaða samin af Brett og hljómborðs-
leikaranum Neil Codling. Einnig tvö lög af tónleik-
um Suede á Roundhouse í London 16. desember sl.,
Dubstar
snúa aft-
ur með út-
gáfu nýrrar
breiðskífu,
„Goodbye",
hjá Food Re-
cords 15.
september.
Hún inniheld-
ur fyrstu
smáskífu
þeirra í heilt
ár, „No More
Talk“, sem kemur út mánudaginn 7. júlí. Um er að
ræða tvær geislaplötur með singlinum og með fylg-
ir nýtt lag, „Unchained Monologue”, ábreiða af
franska laginu „La Boheme“ eftir Charles Aznavour
og að lokum órafmagnaðar útsetningar af tveimur
fyrri lögum Dubstar, „Elevator Song“ og „Not Once
Not Ever“.
Portishead sem hafa vakið athygli fyrir iög eins
og „Sour Times“ og t.d. „Glorybox“ eru framund-
an með látlausa endurkomu eftir þriggja ára fjar-
veru. 7. júlí kemur út nýtt lag, „Cowboys", sem ein-
ungis verður fáanlegt á 12“ vínil og verður gefið út í
„Baker Street“, Kenickie-stúlkurnar spreyta sig á
Hot Chocolate, smellinum „It Started With A Kiss“,
Robbie Wiliiams fetar í spor hinnar goðsagnar-
kenndu Ellu Fitzgerald með sína gerð af „Every
Time We Say Goodbye", Terrorvision taka upp á
sína arma vinsældarlistahittið „Forever And For-
ever“ frá 1976 og framlag
Dubstar er útsetning af Pet
Shop Boys-laginu „Jeal-
ousy“. Fyrsta smáskífulag
albúmsins kemur út 4. ág-
úst, þar eru My Life Story
með smell Stranglers frá
1979, „Duchess“.
Spice Girls komu af stað
kaosi í London þegar
þær voru að vinna að úti-
tökum vegna kvikmyndar-
innar „Spice: The Movie“,
sumar tökurnar fóru fram
á þaki hinnar 29 hæða
bygggingar King Reach
Tower. Stúlkurnar voru
ekki sjálfar á staðnum en
orðrómur var um að þær
lciðin í Bretlandí^^SS
Handan vinstri og hægri (Beyond Left
and Wright) er heiti á bók breska stjórn-
málahugsuðarins Anthony Giddens. Að-
stoðarritstjóri breska vikuritsins New
Statesman, John Lloyd, er fjarska hrifinn
af Giddens, birti t.a.m. viðtal við hann í
Prospect í vetur og umfjöllun í New States-
man. Lloyd fær bókarheiti Giddens lánað
á forsíðuuppslátt um nýja ríkisstjórn
Tony Blair og Verkamannaflokksins.
Vinstrimenn í Bretlandi búa að stoltri
hefð. Verkamannaflokkurinn þróaðist á
líkan hátt og aðrir flokkar jafnaðarmanna
í Norður-Evrópu. Framan af var hann bylt-
ingarsinnaður en sannfærðist um þing-
ræðislega yfirtöku á ríkisvaldinu sem síð-
an skyldi beitt til að afnema stéttskipt-
ingu og efnahagslegan og félagslegan
ójöfnuð. Eftir seinna stríð byggði flokkur-
inn upp velferðarkerfið og stefnuskráin
kvað á um þjóðnýtingu framleiðslutækj-
anna og miðstýrðan efnahagsbúskap.
Kosningasigur Harolds Wilsons 1964
var hápunktur. Sósíalisminn sem hann
boðaði átti að sjá fyrir þörfum almenn-
ings samkvæmt staðli velferðarsamfé-
lagsins. Framkvæmdin gekk þokkalega
framan af en það syrti í álinn snemma á
áttunda áratugnum þegar viðvarandi
efnahagssamdráttur í kjölfar olíukrepp-
unnar kom í stað hagvaxtarskeiðs er stað-
ið hafði nær öll eftirstríðsárin.
Verkamannaflokkurinn gat ekki gefið
svör við efnahagskreppunni sem óðara
varð að kreppu velferðarþjóðfélagsins.
Nýfrjálshyggjan var með svör á reiðum
höndum og Margrét Thatcher gerði þau
að sínum eftir að hún varð leiðtogi íhalds-
flokksins 1978.
Níundi áratugurinn var samfelld niður-
læging vinstrimanna á Vesturlöndum. Ný-
frjálshyggjan klifaði á þeirri fullyrðingu
að velferðarríkið væri að þrotum komið
og markaðslausnir myndu ræsa hagvaxt-
arvélina að nýju. Vinstri-
menn áttu ekkert svar og
hugmyndaforræði hægri-
manna var algert þótt jafn-
aðarmenn hugguðu sig við
stöku kosningasigra, t.a.m.
á Spáni, Frakklandi og
Grikklandi. Á Norðurlönd-
um var heldur dapurlegt
um að litast. Minnihluta-
stjórn Verkamannaflokks-
ins í Noregi hélt velli vegna
sundrungar hægrimanna
og sænskir jafnaðarmenn
lifa á fornri frægð.
Tony Blair og Nýi Verka-
mannaflokkurinn, eins og
blairistar skírðu hann, er
nýtt pólitískt upphaf, ekki
aðeins í Bretlandi heldur
líka á Vesturlöndum.
Spurningin er hvort hægt
sé að skilgreina það sem
upphaf nýrrar vinstri-
stefnu, mannúðlegri út-
færslu á hægristefnu eða
stjórnmál handan vinstri
og hægri.
John Lloyd á New States-
man er ekki viss í sinni sök.
Eftir einn og hálfan mánuð í stjórn er
Verkamannaflokkurinn búinn að afsanna
þá kenningu að ríkisstjórn Blairs yrði
varkár og hægfara, eins og
Páll Vilhjálmsson
ríkisstjórn Clintons í Bandaríkjunum. Bla-
ir og ráðherrar hans eru iðnir við að gefa
út stefnuyfirlýsingar og djarfar ákvarðan-
ir, t.d. um sjálfstæði Englandsbanka, hafa
ekki látið á sér standa. Tilnefningar í lykil-
embætti eru líka ótvíræð
vísbending um atþafna-
sama ríkisstjórn.
Llyod finnur sumum
athöfnum stjórnarinnar
stað á hægrivæng, öðr-
um á vinstrivæng og enn
öðrum er holað niður í
flokk með merkimiðan-
um „þriðja leiðin.” í leið-
ara New Statesman er
þeirri skoðun ýtt á flot
að ríkisstjórn Blairs hafi
lagt drög að þriðju leið-
inni.
Róttæka miðjan er
annað hugtak yfir þriðju
leiðina. í leiðaranum er
það nánar skilgreint
með orðum Anthony
Giddens (nema hvað).
„Sum pólitísk vandamál
krefjast róttækra lausna
en geta engu að síður
byggt á breiðum stuðn-
ingi í þjóðfélaginu,"
stendur þar. í gamla
daga, á dögum stórra
byltinga og altækra hug-
myndakerfa, svo sem
kommúnisma og nasisma, fól róttækni
iðulega í sér þann skilning að úrvalshóp-
ur tæki að sér að hrinda róttækninni í
framkvæmd. Róttækni fylgdi and-
lýðræðislegur blær þó að næstum alltaf
væri hægt að réttlæta hana á forsendum
stéttaObaráttu, sögulegrar nauðsynjar
eða yfirburðum kynstofnsins.
Miðjan í stjórnmálum er málamiðlun
milli hægri og vinstri. Róttæk miðja er
mótsögn samkvæmt hversdagslegum
skilningi. En talsmenn þriðju leiðarinnar
hafna hversdagslegum skilningi á stjórn-
málum rheð sinni skiptingu í hægri og
vinstri. Eitt er að hafna viðteknum sjónar-
miðum og annað að sannfæra okkur um
öonur og betri. New Statesman vill freista
þess og við sjáum hvað setur.
ps
í dálknum sínum í dag á bls. 10 beinir
Þorgeir Þorgeirsson nokkrum athuga-
semdum til undirritaðs og tilvalið að
svara honum á þessum vettvangi.
Þorgeir hóf regluleg skrif í HP þegar nú-
verandi ritstjóri tók við útgáfunni í októ-
ber sl. Þorgeiri var eins og öðrum sagt að
starfsmenn HP ættu meirihlutann í út-
gáfufélaginu. Stofnendur útgáfufélagsins,
Páll Vilhjálmsson og Ámi Bjöm Ómars-
son, gerðu samning við Tilsjá ehf., útgáfu-
félag Alþýðubandalagsins, um að Tilsjá
ætti minnihluta í Lesmáli ehf., útgáfu HP,
enda stóð til að samstarf um framleiðslu-
þætti yrði á milli Lesmáls og Tilsjár vegna
útgáfu Vikublaðsins. Hvorki Þorgeiri né
öðrum lausamönnum HP var tilkynnt um
þetta.
Það er rangt hjá Þorgeiri að HP hafi lagt
Pétur Kr. Hafstein í einelti vegna vanhæf-
ismála og látið ósagt um hlut annarra
hæstaréttardómara. I yfirlitsgrein frá 5.
desember 1996, sem er ítarlegasta um-
fjöllun HP um vanhæfi Péturn, er ekkert
dregið undan með ábyrgð Hæstaréttar.
Reglan er sú að dómari er fyrsti úr-
skurðaraðili í eigin vanhæfi, síðan dóm-
urinn og loks dómsmálaráðherra en
þar á eftir Mannréttindadónistóllinn í
Strassborg, eins og Þorgeir veit
manna best. Allt kom þetta fram í HP
5. desember sl. Ábyrgð Piéturs er
mest þar eð hann er fyrsti úrskurðar-
aðili og hefur komið sér í þá aðstöðu
að vera með rökum sakaður um van-
hæfi.
Þegar Þorgeir talar um „taikmark-
að veiðileyfi“ Páls Vilhjálmss.onar á
hann væntanlega við sjálfsrltskoð-
un. Sjálfsritskoðun sýnir maður
helst fram á með dæmum eiins og
HP hefur gert þegar blaðið hefur
fjallað um sjálfsritskoðun í öðrum
fjölmiðlum. Ef Þorgeir man dæmi
um „takmörkuð veiðileyfi" er
sjálfsagt að ræða þau. Sjálfsrit-
skoðun getur einnig veriði al-
menn, samanber almennt og .sér-
tækt vænhæfi. Vel má vera að
undirritaður sé sekur um al-
menna sjálfsritskoðun hvað nriál-
efni Alþýðubandalagsins varðar. Áður en
hann skoðar þann möguleika er eðlilegt
að þeir sem gruna ritstjóra HP um sjálfs-
ritskoðun renni stoðum undiir þann grun
með rökum.
Þorgeir talar um „flokksuppeldi Páls,“
„fjárhagsleg tengsl við floklkakerfið" og
„blaðamannsuppeldi á Þjóðviljanum.“
Páll Vilhjálmsson getur ekld hafa fengið
flokksuppeldi, hvorki hjá Alþýðubanda-
laginu né öðrum
flokki, því hann hefur aldrei verið
skráður í stjórnmálaflokk eða þegið póli-
tískar trúnaðarstöður. Hann var ráðinn
sem blaðamaður á Vikublaðið og síðar rit-
stjóri. Ekki heldur hefur hann fengið
blaðamannsuppeldi á Þjóðviljanum því
þar starfaði Páll aldrei. Fjárhagsleg tengsl
hans við flokkakerfið eru aðeins áður-
greindur
samningur um hlut Tilsjár í
Lesmáli.
Páll getur hins vegar játað að hafa ekki
greitt Þorgeiri Þorgeirssyni á réttum tíma
og þykir það fjarska leitt.
pv