Alþýðublaðið - 18.01.1971, Side 12
□ í danska kvennablaðinu
Femina er m. a. viðtal vio
Evu nokkra Danné, sem talar
mörg- tungumál reiprennandi,
en þegar íslenzka var þar
nefnd, m. a., vaknaði forvitni
til að vita hvernig hún hefði
lært málið. Og spurningunni
varð fljótlega svarað, því í
viðtalí þessu er heilmikið
getið um veru Evu liér á landi
og fer sú frásögn hér á
eflir.
Hún kom til íslands sex
ára gömul með' móður sinni,
sem ppnaði hárgreiðslustofu í
Reykjavík (Eva er nú þrjá-
tíu og eins árs). Síðar giftist
móðirinn ameríkána, verk-
fræðing sem vann á Kefla-
víkurflugvelli og fluttust þau
til Améríku.
Mörgum árum síðar er Eva
var búin að dvéljast í klaust-
urskóla í Sviss, setja þar allt
á annan endann með því að
fela klukkuna sem kallaði
nemendur saman til bæna-
stunda, setja salt í sykur-
skálarnar og læsa kennarana í
kjallaranum, ferðaðist hún
víða um lönd, svona rétt að
gamni sínu. Síðar giftist hún
spænskum vini sínum, sett-
ist að í iSuður-FrakkV(ané?'i,
eignaðist tvo sonu, skildi við
eiginmanninn, skildi synina
eftir í Frakklandi og lagði
land undir fót (flugvél) til ís-
lands með aleigu sína — 50
dollara — í veskinu. Og nú
byrjar eiginlega sagan:
— Er ég kom til Reykja-
víkur byrjaði ég á því að
hringja í dagblöðin og alla
mina „vini.“ — Ilalló, þetta
er Eva, ég er komin aftur.
— Hvaða Eva? var spurt.
Það mundi nefnilega enginn
eftir mér. Nú varð ég að
fara e.ftir máltækinu: Vog-
un vinnur o.s;frv. Ég kom
því inn hjá íbúum Reykja-
víkur að. ég værj stjania og
hún ekki af verri endanum.
Tilboðin streymdu að mér og
síðast tók ég boði úm að
koma fram í LÍDÓ, sem
söngkona; — ég ætlaði sko
sjálf að spila undir á gítar.
Hvernig ég ætlaði að fara að
því, veit ég ekki, en endir-
inn varð sá, að ég keypti
mér gamlan gítar nokkrum
dögum áður en ég átti að
koma fram, lærði þrjú grip
i G-dúr og rembdist við að
læra nokkur ógurlega ámát-
leg lög sem höfðu verið í
móð tíu árum áður.
Kvöldið fyrir frumraunina
átti ég svo að æfa með
hljómsveit, sem í voru nokkr-
ir tyggigúmmíjórtrandi dreng
ir milli 16 og 18 ára. — Nú
átti „stjarnan“ að sýna hvað
hún gæti. Auðvitað komust
strákarnir strax að því að ég
gat e k k e r t. >
— En þeir g á t u í stað-
inn hrist bara höfuðin, tóku
sér hvíld, pöntuðu öl og
smurt brauð og sögðu: Þetta
gengur aldrei, systir góð, við
verðum að gera eitthvað í
málinu.
— Alla nóttina umium við
af kapþi og ég lærði 12
söngva. Var búin tveimur
timum fyrir athöfnina, alveg
steinuppgefin. Þá lagði ég
mig í klukkutíma.
Þegar ég kom inn á upplýst
sviðið hugsaði ég: Nú gleymi
ég hverju orði og verð mér
til háborinnar skammar. Eti
þegar strákamir byrjuðu að
spila, kom þetta allt af sjálfu
sér, og svei mér þá ef ég sló
ekki í gegn.
— Ég mun aldréi gleyma
„strákunum minum.“ Hjálp-
semi þeirra og vinátta var
svo takmarkalaus að það lík-
ist ekki neinu sem ég hef
kynnzt um ævina. Það sem
eftir var af dvöl minni á fs-
landi notaði ég til að læra
22 söngva og 14 gítargrip i
viðbót. Og þegar ég kvaddi
LÍDÓ og ísland kuijni ég
meira en ég hef lært á allri
ævi minni hingað til.
LAGMARKSVERÐ
Á HÖRPUDISKI
JTj - Yfimefnd Verðlag-sráðs sjáv-
arútvegsins -ákvað á fundi í dag
eftirfar-an-di -fágm'arfcsverð á -hörpu
di-ski Ifrá 1. janúar til 3-1. maí
1971.
CHörþúdfclkur í vinns-lu-hæfu á-
sta-ndi, 7 om. á hæð og yfir, hvert
kg. kr. 7.40.
Verðið miðast við að seljandi
skili -licrpudi-ski á flutningstæki
við hlffið veiðiskips og við gæða.
og ítæiðarmiat Fiskim-afcs ríkísins
á iö.iík. larstað.
L-ágmarksverðið var ákveðið
með atkvæðum oddamanns og
fu-lltrúa -seyjenda geign -atkvæðu-m
fulitt-rúa kaupenda. Samkomiulag
Var hinsveigar í nelfndinni um
lækkun verðsins (þ-e-gar hö^p-u.
diskurm-.i er fluttidr milli staða.
(Fréttatil-kynning)
AI þýðufl okksfundur
Alþýðuflokksfólk í Hafnarfirði. I efni; Fjárha-gsáætlun bæj-a-rins.
Sameiginlegur fundur allr-a : Framsögumaður: .Hörður Zophan"
Alþýðuflok-fcsfélaganna þriðju- j
d'aginn 19. þessa mánaðar kl. .íasson' ~ °nnur maL ~ AL
8,30 í Alþýðuhúsin-u. Fundar- þýðuflokksfélög Hafnarfjairðar.
Upplýsingar
mjög villandi
□ Blaðinu hefur - borizt -eftir-
faraadi fundarsamlþykkt:
„Fundu-r.í Félagi röntgenihjúkr-
'siaa-rkvenna haadinn í L-andspítal
-anuim þriðjuda-ginn 12. ja-núar ‘71
0-ýsir lu-adru-n sinni yfir þeim yf-
irlýsingu-m sem -s-tjórn B.S.R.B.
ðét birta í Morgunblaðin-u í dag.
Fundurinn telu-r. að í tilkynn.
•ingu þes-sari feli-st ófulifnægjandi
og vilia-n-di u'pplýsi-.iga-r -eins og
ib-ezt is-ézt á því, að hækkun á Haum
'Uim sérlærðra hjúkrunarkvenna
eí- reiknuð í hundraðslilutum mið
að við fyri-rhu-guð laiun 1. júlí
1972, en hvergi e-r m-innst á -þær
.kjarab.ætur“ sem í orði kv-eðn-u
ei-ga að koma tið fra-mkvæ-mda -n-ú.
Fkki er iþie-ss heldur getið í
þes-sari tilkynningu stj-órnar B.S.
R.B. að vinniuítími röntgenhj-úkr-
• dhárifcvénna er me-ð samningi f jjár
mállar-áðheiTa við stj-órn B.S.R.B.
lengd-ur <um 4 Iklst. á vifcu, eða
208 klst. á ári; 'þ. -e. a. s. ná-
Iie-ga -6 vinn-uvi-krur miðað við -el'dri
sa-mninga. -
Þessi samninigtur fjiármá-laráð-
herra við stjórn B.S.R.B. -um liauna
ikjör og vinnutíma röntgenhjúkr-
-unarfcvenna -er í allgenu ósiamræmi
-við þá -stefnlui s-eim nú e-r ríkjandi
í öðiiu-m l'öndu-m. Þróu-nin er al-
staðar sú að stytta vi-nmi-tíma
þei-rra sem vi-n-na við -geisl-avirk
efni. Stjóm B.S.R.B. og fjár-mála-
ráð'herra vi-rða&t viera á ann-anri
ekoðun.
Að ilokuim vill fund-uri-nn veik.ja
athygli -á því, að þe-®i tiHky-.ming
stjórnar B.S.R.B. vei-tti að sjáff-
stigðu enga fræðaliu um huigsa-n-'
le-gan kau-pmátt la-una mið-að við
1. júöí 1972 eða 31. desemher
1973, og -þar af leið-andi veit eng
inn h-vort iu(m nokkrar kjarabæt-
ur ve-rður að ræða.“
Úrslit í getraunum:
Lci'kir 16. jamtar 1971 1 j x 2
Blnckpool — Mnn. Citv j |xj 3 ; - | 3
Crvslal P. — Livcrpool i 1 í / - O
Everton — Chelsca 1 .( 3 - | o
Jlmldcrsfickl —<■ Arscnal i . i Z - 1
7 |>A\vicIi — Pcrby Z 0-1
IMan'ch. Utd. — Burnlcy X »1-1 i
Xolt’ra For. — Xctvca.stlc i f 21-1»
Stoke — W.B.A. i 21
.Tottenhnin — Souh’pton z i , - j 3
Wcst IlanV — Lceds z 2. * 13
Wolvcs —■ Covcntry X O \ - O
l’orlsinouth — Cnrdiff z i - - 3
,□ Af 281 skóvinnustofu, sem
skráðar voru í Noregi í byrjun
ársins 1970 Iögðu 94 niður starf-
semi sínl.a fyrstu 11 mánuði árs-
ins. Ástæðan fyrir þessu má að
vérulegu leyti rekja til erfiðleika
yinnustofanna eftir að viðgerðir á
skófatnaði voru skattlagðar með
virðisaukaskatti. ★ ★ ★ I ráðgjafþ
nefnd Evrópuráðsins eiga sæti alls
140 fulltrúar frá 17 Evrópulönd-
um. ísland á þar þrjá fulltrúa.
★ ★ ★ í skýrslum norskra kirkju-
yfirvalda kemur m. a. fram, að 1
íslenzkur prestur er þar starfandi.
★ ★ ★ Stjórn borgaraflokkanna
í Noregi á nú við enn eina -krís-
una að etja og enn er farið að
skrifa um, að stjórnin sé að falla.
Ástæðan að þessu sinni er tvi-
þætt. Annars vegar nýlegar skoð-
anakannanir, sem sýna rýrnandi
fylgi sumra borgarai'lokkanna,
Hins vegar skiptar skoðanir til
hugsanlegrar affildar aff EBE. Seg
ir eitt al stuðningsblöðum vinstri
flokksins, sem er í stjórninni að
nú. sé aðeins beðið eftir því, að ein
hver stjórnmálaflokkanna hafi
b.ugrekki til að rjúfa samvinnuna
og fá völdin í hendur jafnaðar-
mönnum. ★ ★ ★ Enn einn olíu-
fundurinn hefur átt sér stað í
Norðursjó. Að þessu sinni nær
Skotlandi en Skandinavíu. ★ ★ ★
Ýmsir óttast, að brezka samveldið
kunni að leysast algerlega upp í
kjölfar samveldisráðstefnunnar,
sem nú stendur yfir. Ástæðan fyr-
ir sundrungunni eru mjög skiptar
skoðanir um vopnasölu Breta
til S.-Afríku. Flest Afríkuríkin i
samveldinu hafa hótað að ganga
úr því, verði vopnasölunni
eklci hætt og ýmsir telja að Ind-
land muni þá fylgja þeim eftir.
★ ★ ★ Stjórnin á Formósu hef-
ur rofið allt stjórnmálasamband
við Chile. Var það gert strax eft-
ir að Chile baíði tekið upp stjórn-
málasamband við Pekingstjórn-
ina. ★ ★ ★ Á íjama tíma og Sví-
þjóð veitir skæruliðum Þjóðfrels-
isfylkingarinnar bæði móralskan
og i'járbagslegan stuðning í styrj-
öldinni í Víetnam framleiða og
selja ýmis sær;sk iðnfyrirtæki
Band.aríkjunum vörur til hernað-
arframleiðslu, sem m. a. eru not-
aðar af Bandaríkjamönnum í
þeirri sömu styrjöld. ★ ★ ★
Mörg eldri gervitunglanna, sem
eru á braut umhverfis jörðu, eru
nú úrelt og ekki lengur notuð. Er
mjög kostnaðarsamt að fjarlægja
þau, en slíkt verður að gera, því
margvísleg hætta getur af þeim
stafað h-aldi slíkt „geimrusl“ á-
fram að hlaffast upp. ★ ★ ★
Fyrsla síldaruppboð í Kristian-
sand í Noregi á árinu var haldið
miðvikudaginn í næst síðustu
viku. 8.500 liektólítrar af síld
voru boðnir upp og iþm verðið
frá 152 n. kr. til 174 n. kr. fyrir
hektólitrann. —