Alþýðublaðið - 29.03.1972, Side 9

Alþýðublaðið - 29.03.1972, Side 9
Þessir hressu sveinar voru mik ið I sviðsljósinu á ung ling a m eis tar a m ótinu I badminton sem fram fór um sfð- ustu helgi. Sá til vinstri heitir Jónas Þ. Þórisson og leikur fyrir KR, og vann hann til allra verð- launa sem hægt er að vinna i drcngjaflokki. Hans harðasti keppinautur var Þórður Björns son frá Siglufirði, til vinstri á myndinni, en hann varð að láta i minni pokann, og hlaut silfrið. Baráttan var sérlega skemmtileg hjá þeim i einliðaleik, og vann Jónas þar mjög naumlega. Á undanförnum unglingamót- um hafa Siglfirðingar verið i sér- flokki, en svo varð ekki nú, enda miklar til færslur milli flokka hjá þeim, og svo hafa þeir misst fólk yfir til annarra félaga. Þátttaka á unglingamótinu var mjög góð, þvi alls voru þátt- takendur (!!), fleiri en nokkru sínni áður. Spámenn blaðanna stóðu sig all þokkalega i siðustu spá, þvi spámaður Timans var með 10 rétta. Þá kom Morgunblaðið, Sunday Pepole og Sunday Mirror með 9 rétta. Alþýðu- blaðið, Þjóðviljinn, Telegraph, Express, Newd of the World voru með 8 rétta, en Visir, Sun- day Times og Observer voru með 7 rétta. Fátt var um óvænt úrslit nema ef vera skyldi stór sigur botnliðsins Nott.For. yfir Coventry og jafntefli WBA og Huddersfield, sem aðeins spá- maður Timans gat sér rétt til um. Staða efstu liðanna breyttist ekki, en Man.City hefur enn forystu, Leeds i öðru sæti og Derby i 3ja, en tvö siðast nefndu liðin hafa leikið færri leiki en Man.cjty. Nott.For er enn i neðsta sæti með 19 stig, en siðan koma Huddersfield með 22 stig, Southamton með 23 stig, Crystal Pal. með 24 og Coventry með 26 stig. Næsti seðill sem er nr. 13 er hvorki verri né betri en undan- farnir seðlar við fyrstu sýn, en á honum eru 11 leikir i 1. deild og 1 i 2. deild. Við skulum þvi snúa okkur að spánni: ARSENAL-NOTT.FOR. 1 Arsenal tapaði rétt einum leiknum i deildinni um s.l. helgi og þá fyrir Leeds. Nott.For., sem flestir hafa dæmt til falls að þessu sinni kom á óvart með 4-0 sigri fyrir Coventry og er nú aðeins 3. stigum á eftir Hud- dersfield. Arsenal hefur unnið Nott.For. á Highbury s.l. tvö ár og ég á von á heimasigri að þessu sinni. COVENTRY-MAN.UTD. 2. Það hefur verið hálfgert óstand á Coventry að undan- förnu og kórónan á það, var stórtap fyrir botnliðinu Nott.- For. um s.l. helgi. Man.Utd. vann góðan sigur yfir Crystal Pal. á Old Trafford og ætti þvi að eiga góða sigurmöguleika á Highfield Road i Coventry á laugardaginn. Ég spái þess- vegna útisigri að þessu sinni. CHRYSTAL. PAL. — SOUTHAMTON 1. Bæði þessi lið eru nálagt botn- inum og bæði töpuðu þau um s.l. helgi, Crystal Pal. á útivelli fyrir Man. Utd., en Southam- ton á heimavelli fyrir Liverpool. S.l. tvö ár hefur Crystal Pal. haft betur i viðureigninni við Southamton á Selhurst Park og reikna ég fastlega með sigri þess 3ja árið i röð. Spá mín er þvi heimasigur. AUOVELDUR PÁSKASEDILL EKKI BEIHT DERBY - LEEDS 2. Þarna fáum viö erfiöan og skemmtilegan leik til að fást við. Þau tvö ár, sem Derby hefur verið i 1. deild, að þessu sinni hafa úrslit i leikjum lið- anna á Baseball Ground farið þannig, að i fyrra vann Leeds 2- 0, en árið þar áður Derby 4-1. Hér eigast við tvö af efstu lið- um deildarinnar og þvi allir möguleikar fyrir hendi. Ein- hvernveginnfinnst mér að Leeds vinni þennan leik og að Derby tapi sinum fyrsta heima leik á þessu keppnistimabili. HUDDERSFIELD—EVERTON X Hér er aftur á ferðinni nokkuð strembinn -leikur. Huddersfield er i næst neðsta sæti og senni- lega annað af tveim liðum er fellur i 2. deild að þessu sinni, en Everton er nokkru ofar á list- anum og hefur ekki unnið á úti- velli i vetur. Liðin gerðu jafn- tefli á Leeds Road i fyrra og ég spái sömu úrslitum að þessu sinni. IPSWICH—CHELSEA X Chelsea vann góðan sigur um s.l. helgi yfir nágrönnum sinum West Ham, en Ipswich tapaði naumlega á útivelli fyrir Leicester. Liðin skildu jöfn 0-0 á Potman Road i fyrra og þvi ekki að reikna með sömu úrslitum að þessu sinni? Eg spái allavega jafntefli og bendi á útisigur til vara. LIVERPOOL—W.B.A. 1 Liverpool er i hópi efstu liða i 1. deild og hefur gengið vel i undanförnum leikjum. WBA hefur að visu gengið allvel að undanförnu og tekist að styrkja stöðu sina verulega og að öllu likindum bjargað sér frá falli. Tvö sl. ár hafa liöin skiliö jöfn, 1-1, á Anfield Road, en nú reikna ég með að Liverpool hirði bæði stigin og spái heimasigri. M AN.CITY—STOKE 1. Man. City heldur enn foryst- unni i 1. deild og tókst að halda öðru stiginu i leiknum við New- castle á St. James Park um s.l. helgi. Stoke, sem gengið hefur vel i vetur, gerði einnig jafntefli um sl. helgi, en á heimavelli við Derby. Man.City hefur oftast haft betur gegn Stoke á Maine Road og ég reikna með að svo verði að þessu sinni. Hdan SHEFF.UTD.—NEWCASTLE 1. SHEFF.UTD tapaði á White Hart Lane fyrir Tottenham um s.l. helgi, en Newcastle gerði jafntefli við Man.City, eins og áður er sagt. Það er nokkuð óráðið með úrslit þessa leiks, en ég tel meiri likur á að Sheff. Utd. vinni, enda er Newcastle að öllu jöfnu ekki gott lið á úti- velli, Spá min er þvi heima- sigur. WEST HAM—TOTTENHAM X. Það hefur jafnan verið mjótt á munum i leikjum þessara Lund- únaliða á Upton Park og marka- tala jöfn, ef miðað er við s.l. 6 ár. Það er þvi ekki úr vegi að ætla, að baráttan verði einnig jöfn að þessu sinni og tvisýnt um úrslit. Ég hef ekki trú á að West Ham vinni þennan leik og hall- ast þvi helzt að jafntefli, en bendi á sigur fyrir Tottenham, sem allt eins liklegan mögu- leika. WOLVES—LEICESTER 1. ÚLfarnir gerðu jafntefli við Everton á útivelli en Leicester vann Ipswich á heimavelli um s.l. helgi. En þar sem Úlfarnir eru harðir i horn að taka á heimavelli sinum Molineux og hafa ekki tapað þar leik i vetur, þá reikna ég fastlega með heimasigri og tel óliklegt að Leicester takist svo mikið sem að næla sér i annað stigið. BLACKPOOL—BURNLEY X. Þá er komið að 2. deildar leiknum á seðlinum að þessu sinni, en hann er á milli Black- pool og Burnley, sem urðu sam- ferða úr 1. deild niður i 2. deild að loknu siðasta keppnistima- bili. Staða liðanna er mjög svipuð i 2. deild um þessar mundir og þvi erfitt aö geta sér til um lik- leg úrslit. Þessvegna renni ég blint i sjóinn og spái jafntefli sem liklegum úrslitum. 5EFTIRI I NRADMÓTINUI Hraðmót HKRR hélt áfram á sunnudagskvöldið. Leiknir voru 5 leikir, og fara nú liðin heldur að týna tölunni.aðeins 5 orðin eftir af 121iðum upphaflega. A sunnudag- inn kvöddu 4 lið, IR, Vikingur, FH og Armann. Eftir eru Fram, Valur, Grótta, Haukar og Þrót- tur, og eru tvö fyrstnefndu liðin án taps. Heldur var handknatt- leikurinn rislágur á sunnudags- kvöld, og áhuginn hjá leikmönn- um mjög af skornum skammti. Fyrsti leikur kvöldsins "var milli Vals og Þróttar, og var það jafnframt bezti leikur kvöldsins. Valsmenn höfðu yfir allan tim- ann, en i lokin munaði litlu að Þróttarar næðu að jafna. Næst léku Haukar og IR, og áttu Haukarnir ekki i erfiðleikum með áhugalaust IR liðið. Loka- tölur urðu 6:4. Þar næst léku Grótta og Vikingur, og þrátt fyrir að Vikingur tefldi fram öllum sin- um stjörnum, sigraði Grótta 8:7. Þá var komið að sögulegasta leik kvöldsins. Fram keppti við FH, en i FH liðið vantaði marga menn, svo marga að Kristófer Magnússon varð að leika á lin unni, og Bogi Björnsson aðstoðar- þjálfari var drifinn i búning og settur inná. Þrátt fyrir þetta var leikurinn jafn, og Fram sigraði 6:5, eftir að staðan i hálfleik var 3:2 FH i vil. FERMINGARGJAFIR Járnrúm í gömlum stíl, nýjasta tízka. Litaðar kommóður 50 gerðir og litir. Skatthol Saumakörfur RYA-teppi Hillur Hillukassar Ruggustólar frá Rúmeníu. Danskar terylene sængur, sem þola þvott. Hornhillur Renndir stólar Uppblásnir stólar Málaðar luktir Antik flöskur & Vörumarkaðurinnhf. ÁRMÚLA 1 A - REYKJAVÍK - SÍMI 86114 Húsgagnadeild, simi 86-112, Matvörudeild, s.: 86111, Vefnaðarvörud. s.: 86-113. Miðvikudagur 29. marz 1972 0

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.