Alþýðublaðið - 08.07.1972, Side 7
Iþróttir i
Marteinn skorar i leiknum gegn BreiBabliki.
ISLANDSMOTIÐ
Enn eitt IBK
iafntefliö!
I.eikur iBK og Vals i Keflavik
var spennandi þrátt fyrir úr-
hellisrigningu og slagviðri.
Keflvikingar gerðu jafntefii við
Val i leiknum, og munu þar með
vera orðnir jafntefliskóngar i
deildinni með fjögur jafntefli i
sex Ieikjum. En snúum okkur að
leiknum.
A 2. minútu á Grétar
Magnússon framvörður Kefl-
vikinga skot framhjá fyrir opnu
marki. Tveim minútum siðar
eru Valsmenn i sókn, og Ingi
Björn Albertsson fær boltann
rétt utan vitateigs, og skorar
með góöu jarðarskoti óverjandi
1:0.
Minútu siðar á Olafur Július-
son skot innan á stöng Vals-
marksins, en knötturinn snérist
til baka, og lenti i höndum
Sigurðar Dagssonar mark-
varðar. Heppnir þar Valsmenn.
A 12. minútu fékk Jóhannes
Edvaidsson knöttinn inn fyrir
vörn IBK, og töldu margir hann
rangstæðan. En hann lék með
knöttinn að markinu, og skaut
siðan föstu skoti sem Reynir
varði vel, en hélt ekki
knettinum, og þar var Ingi
Björn kominn og skorar 2:0.
Eftir þetta mark myndaðist
hálfgert þóf hjá báðum liðum,
og ekkert gekk. En á 36. minútu
fékk tBK hornspyrnu sem
Ólafur Júliusson tók, Guðni
skallaði að marki, og úr mikilli
þvögu við mark Vals skoraði
Friðrik Ragnarsson 2:1. Rétt
fyrir hálfleik var svo Jón Ólafur
á ferðinni og átti hörkuskot af
stuttu færi sem Sigurður Dags-
son varði glæsilega.
Siðari hálfleikur var ekki
nema niu minútna gamall þegar
Ingi Björn skorar 3:1, og þar
með sitt þriðja mark i Ieiknum,
og það sem athyglisveröara er,
hann átti ekki nema þessi þrjú
tækifæri! Litlu siðar voru Vals-
menn nærri þvi búnir að skora
sitt fjórða mark, þegar Berg-
sveinn skaut framhjá opnu
marki.
Þar með hófst eiginlega
þáttur Keflvikinga, og áttu þeir
leikinn eftir það, aragrúa af
tækifærum sem þeim gekk illa
að nýta, þar til loks að Friðrik
Ragnarsson brauzt 'i gegn og
tókst að skora á 33. minútu 3:2.
Eftir markið þéttu Valsmenn
vörnina sem mest þeir máttu,
og var aðeins einn maður i
framlinunni. Keflvikingar voru
hins vegar allir komnir fram á
vitateig Valsmanna, og loks á
44. minútu jafnaði Grétar
Magnússon 3:3, eftir að
margsinnis hafði verið skotið á
mark Valsmanna, en alltaf var
fótur fyrir. Úrslitin verða að
teljast sanngjörn eftir gangi
leiksins.
Beztu menn: Af Vals-
mönnunum Sigurður Dagsson,
Páll Ragnarsson og Ingi Björn
Albertsson, en beztur Kefl-
vikinga og bezti maður
vallarins var Astráður
Gunnarsson vinstri bakvörður,
sem beinlinis reif liðið upp
þegar leikurinn virtist tapaður.
Þá stóðu þeir Reynir, Einar og
Guðni sig nokkuð vel. — hilmar.
Staðan i 1. deild er nú þessi:
Fram 5 4 10 10:2 9
IBK 6 2 4 0 12:8 8
1A 5 3 0 2 9:6 6
Valur 5 2 12 11:8 5
KR 4 2 0 2 6:6 4
Br.blik 6 1 2 3 6:13 4
ÍBV 4 112 7:8 3
Vikingur 5 0 1 4 0:10 1
Markhæstu menn:
Ingi Björn Albertsson Val 6
Eyleifur Hafsteinsson IA 4
Steinar Jóhannsson IBK 4
Alexander Jóhannesson Val 3
Atli Þór Héðinsson KR 3
Hinrik Þórhallsson Br.bl. 3
Hörður Ragnarsson IBK 3
Bayern Munchen varð vestur-
þýzkur meistari i knattspyrnu i
ár. i siöasta leik sinum, gegn
erkifjandanum Shalke 04,
sigraði Bayern 5:1, i leik sem
fram fór á Ólvmpiuleik-
vanginum i Munchen, að við-
stöddum 80 þúsund áhorfcnd-
um. Myndin var tekin eftir
leikinn.
Bayern Munchen er tvimæla-
laust bezta lið Þýzkalands nú,
fékk 55 af 68 möguleguin stig-
um, skoraði 101 mark gegn 38.
Af þeim gerði Gerd Mullcr 40
in örk.
Bayern átti sex leikmenn i
þýzka landsliðinu sem nýlega
sigraði i Evróðukeppni lands-
liða.
LANDSLEIKNUM VID
FÆREYINGA FRESTAÐ
Ákveðið hefur verið að fresta
landsleik Færeyinga og
Islendinga i knattspyrnu sem
fram átti að fara á Laugardals-
vellinum annað kvöld klukkan 20.
Verður leiknum frestað fram til
miðvikudagskvölds, og hefst
hann þá klukkan 20.
Frestunin er gerð af ýmsum
ástæðum, þyngst vega þó þau rök,
að landsliðsmennirnir færeysku
koma ekki hingað til lands fyrr en
um miðjan dag á sunnudaginn, og
þvi ófært að láta þá leika lands-
leik sama dag. Þá eru einnig tveir
leikir i 1. deild i dag, laugardag,
og margir landsliðsmenn eru þar
að keppa. Vegna þessarar
breytingar fellur niður leikur
Færeyinga og landsliðs 21 árs og
MISSIR VALUR RETTINDIN?
Nú um helgina verður gcngið
rá lista yfir þá islenzka dómara
LUSISI
STUDI
Sovétmaðurinn Jan Lusis setti i
fyrrakvöld nýtt heimsmet i spjót-
kasti, 93,80 metra. Er Lusis nú
talinn lang liklegastur til að sigra
i greininni á Ólympiuleikunum.
Metið setti Lusis á móti i
Stokkhólmi, en á sama móti
jafnaði Ricky Bruch heimsmetið i
kringlukasti. Það hefur nú komið
i ljós, að ýmislegt dularfullt er við
þetta kast Bruch. Fyrst á eftir
var tilkynnt að kastið hefði mælzt
68,38 metra, en i mótslok var svo
tilkynnt að um heimsmetsjöfnun
væri að ræða, 68,40.
scm tilnefndir verða sem milli-
rikjadómarar i knattspyrnu
næsta árið. Þessi listi verður
sendur Alþjóða knattspyrnusam-
bandinu, FIFA. Er það KSI sem
sér um að koma listanum til
FIFA.
Nú eru samkvæmt mótabók
KSl starfandi fimm miilirikja-
dómarar hérlendis, þeir Einar
Hjartarson Ármanni, Hannes Þ.
Sigurðsson Fram, Guðmundur
Haraldsson KR, Magnús V.
Pétursson Þrótti og Valur Bene-
diktsson Val.
Ekki hefur frézt hvernig nýi
listinn veröur samansettur, nema
hvað flogið hefur fyrir að nafn
Vals Benediktssonar sé ekki
lengur þar að finna. Mun þáttur
Vals i klukkumálinu meðal
annars eiga þátt i þvi.
Af klukkumálinu er það að
frétta, að KR-ingar undirbúa
málsókn á ný, en sem kunnugt er
áfrýjuðu þeir úrskurði hérðs
dómstóls KRR til dómstóls KSl.
Verið getur að KR-ingar leiöi
frani ný vitni, vitni sem gætu
gjörbreytt málinu.
yngri.
Frjálsar iþróttir verða mest á
dagskrá eftir helgina, þvi af-
mælismót FRI hefst á mánu-
daginn. Þann dag byrjar ung-
lingalandskeppnin, og einnig
verður þá keppt i fimm auka-
greinum.
Alltaf berast fregnir um fleiri
erlenda frjálsiþróttamenn sem
hingað koma til keppni. Nú sfðast
komu fregnir af tveim Þjóð-
verjum, kringlukastara upp á 58
metra rúma og kúluvarpara sem
varpað hefur yfir 19 metra.
Laugardagur:
Knattspyrna:
Vestmannaeyjavöllur kl. 16.
1. deild, IBV-IA.
Laugardalsvöllur kl. 16.
1. deild, Vikingur-KR.
Keflavikurvöllur kl. 20.
Afmælismót KSI, Celtic-Reykja-
vik ’56
Cowal-Landið.
Akureyrarvöliur kl. 16.
2. deild IBA-Armann.
Selfossvöllur kl. 16.
2. deild, Selfoss-IBI.
Framhald á bls. 4
BAYERN MUNCHEN
Laugardagur 8. júli 1972