Alþýðublaðið - 08.07.1972, Síða 12

Alþýðublaðið - 08.07.1972, Síða 12
KQPAVQGS APOTEK Opið öll kvöld til kl. 7. Laugardaga til kl. 2. Sunnudaga milli kl. 1 og 3. FYRIR ÞAU SEM ÆTLA ÚT ÚR BÆNUM —aí v v -'J . ..2 Vegaþjónusta Félags Is- len/.kra bifreiAaeigenda, helg- ina S-!t júli 1!)72. F.Í.B. 1. út frá Reykjavík (umsjón og upplýsingar) F.l.B. 2. Hvalfjörður. F.t.B. 3. Mosfellsheiði-Þing- vellir. F’.t.B. 4. Hellisheiði-Árnes- sýsla. F.l.B. 5. Út frá Akranesi. F.t.B. 13. Út frá Hvolsvelli. F.I.B. 17. Út frá Akureyri. Eftirtaldar loftskeytastöðv- ar taka á móti aðstoðarbeiðn- um og koma þeim á framfæri við vegaþjónustubifreiðir F.I.B.: Gufunes-radio .........22384 Akureyrar-radio • • .96-11004 Einnig er hægt að koma að- stoðarbeiðnum til skila i gegn- um hinar fjölmörgu talstöðv- arbifreiðar á vegum landsins. Að endingu bendum við um- ráðamönnum bifreiða, sem þurfa á kranabifreiðum að halda, að hringja i simsvara F.t.B.: 91-33614, til að fá upp- lýsingar um síma og kall- merki kranabifreiða, sem starfa i samvinnu við F.l.B. Vegaþjónustubifreiðarnar gefa upplýsingar um viðgerð- arverkstæði, sem eru með vaktaþjónustu um helgina. MILLI Það er svona okkar á milli sagt nokkuð öruggt, að þrátt íyrir allt hafa fáir beint athygli heimsins meir að Islandi en hinn umdeildi Bobby Fischer • • • Það er lögreglu- þjónn að nafni Sæmundur, sem er einkavinur Fischers á tslandi. Hann hefur m.a. boðið skáksnillingnum heim að horfa á kanasjón varpið og éta lax»«»Ekki bætti það úr taugastriði erlendu blaðamanna i þráteflinu mikla, að islenzkir barir eru lokaöir á miðviku- dagskvöldum. Einn blaðamanna nna sagðist hafa heyrt, að hægt ’væri að drekka það kvöld á Þórskaffi, en islenzkur blaða- maður olli honum miklum von- brigðum með þvi að segja, að vildi hann drekka þar yrði hann að hafa flöskuna með sér«»»Fyrir skömmu var gerð fjársöfnun meðal starfs- manna álversins i Straumsvik til að leggja i hjartabilssöfnun Blaðamannafélags tslands. 500 krónur söfnuðust»»« Þá vitum við það, að enginn má skira skip sitt nafninu Hinrik nema eigendur fyrirtækisins Vighóls hf., að minnsta kosti hefur sjálfur Hjálmar R. Bárðarson siglingamálastjóri sagt svo i Lögbirtingi • • • Axel Kristjánssyni hefur verið veitt viðurkenning sem aðal- ræðismanni fyrir Suður-Afriku i Reykjavik Samkvæmt Lögbirtingablaðinu var upphæð seðla i umferð 31. mai 1972 kr. 1.897.557.395.00» • • Heil- brigðisrrrálaráð samþykkti með samhljóða atkvæðum föstu- daginn 30. júni að leggja til, að Guðmundur Arnason, læknir við Borgarspitalann, verði til- nefndur i stjórn hjúkrunarskóla i tengslum við Borgar- spitalann • • • Þegar önnum i kringum heimmeistaraeinvigið i skák lýkur blasa ný og óleyst verkefni við Guðmundi G. Þórarinssyni, forseta Skáksam- bands Islands og borgarfull- trúa. 8. júni var hann skipaður ásamt þremur öðrum borgar- fulltrúum f hafnarstjórn til eins árs • • • I fréttabréfi Félags islenzkra bifreiðaeigenda, sem nýlega er komið út, eru ýmsar leiðbeiningar varðandi við- gerðarþjónustu úti á vegum Þar er m.a. greint frá hvers þeir njóta, sem eru félagar i F.l.B. og hafa greitt árgjaldið, krónur 500 • • • EG ER AÐ REYNA AÐ KOMAST TIL BOTNS í ÞVÍ Hvort grafarar séu í banastuði... Sigurvegarinn i einvíginu Loksins er einvigi aldarinnar hafið og ýmissa tiðinda að vænta úr herbúðum þeim, hvert miskliðarefni að eilifu gleymt og grafið og Grettisfang komið úr ferðalaginu heim. i Laugardalshöliinni logar á þúsund perum og loftið i salnum er spennuþrungnara en fyr, og menn koma fljúgandi úr f jarlægum kvikmyndaverum, þvi Fischer og Spassky ganga þar um dyr. En hvarvetna er spáð og spurt um hver einvigið vinni og spaklega rætt um hverja sigurvon, þvi það eru óviss úrslit i skákkeppninni, en island veðjar á GuðmundÞórarinsson. AT SINN MAT ( MAKINDUM Þeim brá nokkuð i brún matargestum, sem sátu að snæðingi í Fjarkanum að Austurstræti 4 um hádegisbilið í gær, er matstofan fylltist skyndilega af reyk. Allir forðuðu sér hið skjótasta. nema einn, hann lét sér hvergi bregða heldur sat sem fastast og lauk við mat sinn. Þetta mun hafa verið„r.ótarinn” hjá hljómsveitinni tskross. Þegar hann kom út, vel mettur voru komnir á staðinn einir þrir slökkvibilar sem lokuðu að sjálfsögðu allri umferð um Austurstrætið, og albrynjaðir slökkviliðsmenn ruddust inn i matstofuna með tæki sin. Eldurinn var slökktur á skömmum tima, en álitið er að hann hafi kviknað út frá rafmagni. Skemmdir eru ekki taldar miklar. WAILACE ER LAfiÐUR AF STAÐ I BARATTUNA George Wallace rikisstjóri Ala- bamarikis yfirgaf sjúkrahúsið i borginni Silver Springs i Mary- land i gær. Á sjúkrahúsinu hefur rikisstjórninn dvalið i samtals 53 daga, eða siðan skotið var á hann úr launsátri og hann særður al- varlega. Wallace er enn lamaður fyrir neðan mitti. Áður en Wallace var fluttur um borð i flugvél, sem flaug með hann til Alabama, sagði hann við fréttamenn, að hann myndi halda baráttunni áfram fyrir þvi að verða veraforsetaefni Demo- krataflokksins i kosningunum i nóvember. Siöustu orð hans, áður en hann hvarf inn i flugvélina voru: „Sjáumst i Miami”. SíCÆrA VlQrGA OQr iQj^TIL-VLRAW i ii ——n—777 rx v—ict m wi m i : i Rikisstjórinn var hinn hressasti, þegar hann yfirgaf sjúkrahúsiö i ga;r. Miklar varúðarráðstafanir voru við hafðar við brottförina frá sjúkra- húsinu. Wallace er ákveðinn i að taka þátt i flokksþingi demokrata, sem hefst á mánudag,— HOPPADI AF i ÍSRAEL Tvö stórblöð i ísrael skýrðu frá þvi i gær, að háttsettur rúmenskur sendiráðsmaður sem sambönd hefur innan leyni- þjónustu rúmenska hersins, hafi fyrir tiu dögum „hoppað af' i tsrael. Samkvæmt fréttum blaðanna Aharanoth og Ha aretz eru um- ræddur sendiráðsmaður fyrsti fulltrúi við rúmenska sendiráðið i tsrael. Hann heitir Constantin Dumitrchesc og hefur hann starfað og dvalið i Israel um tveggja ár skeið. tsraelska utanrikisráðuneytið hefur þrátt fyrir þessar fréttir neitað, að rúmenski sendiráðs- maðurinn hafi sótt um pólitiskt hæli i ísrael, en aðrar heimildir herma, að mögulegt sé, að Constantin Dumitrchesc sé kominn til Bandarikjanna. tsraelska útvarpiö segir, að eiginkona og dætur flótta- mannsins hafi fyrir nokkru horfið heim til Rúmeniu. —

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.