Alþýðublaðið - 18.08.1972, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 18.08.1972, Blaðsíða 3
Alþýðublaðinu barst i gær yfir- lýsing frá nýstofnuðum kommún- istasamtökum, sem kenna sig við Marx og Lenin. Stofnþingið var haldið dagana 5.-7. ágúst og segir í yfirlýsing- unni, að höfuðverkefni samtak- anna sé byltingarsinnað náms- starf. Málgagn Marxistanna- Leninistanna er Stéttabaráttan, „beittasta vopn öreigastéttarinn- ar i dag”, eins og það er orðað i yfirlýsingunni. UR OG SKARIGRlPIR KCRNEUUS JONSSON SKÖLAVOROUSTIG 8 BANKASIRÆII6 10588-18600 EKTAKOMMAR STOFNA Nð LOKSINS ALVORUFLOKK! m IEE aai TjmLU ÖLL VARÐSKIP KÖLLUÐ ÚT TIL GÆZLUSTARFA Aukin gæzla eftir útfærslu landhelginnar 1. september næstkomandi hefur gert það að verkum, að hætta hefur orðið við landgrunnsrannsóknirnar, sem fram hafa farið út af Vesturlandi i sumar. Þetta táknar að visu ekki algjöra stöðvun, þvi áætlað er að taka upp þráðinn strax næsta sumar og þá jafnframt að ljúka þessum rannsóknum, sem bein- ast að öllu landgrunninu. Astæðan fyrir þvi, að hugsan- legt þorskastrið setur strik i reikninginn er sú, að visinda- mennirnir hafa haft varðskipið Albert til afnota, en skipið verð- ur að vera til reiðu um mánaða- mótin þegar landhelgin verður færð út! Af þessum sökum var i sumar rannsakað nokkru minna svæði en áætlað hafði verið i upphafi. Gerðar voru jarðfræðiiegar og jarðeölisfræðilegar rann- sóknir á landgrunninu f-rá Reykjanesi og að Vestfjarðar- kjálkanum. Meginverkefnið var gerð ná- kvæms dýptarkorts af svæðinu, en auk þess voru gerðar sam- felldar dýptarmælingar, segul- mælingar og setþykktarmæl- ingar með neistatækjum. Þá voru einnig tekin botnsýni, rannsökuð samskipti lofts og sjávar með tilliti til veðurfars- áhrifa og einnig gerðar varma- straumsmælingar. Til þess að sinna öllum þess- um verkefnum þarf mikinn búnað af mælitækjum og var þeim holað niður svo að segja i hvern auðan kima um borð i Albert. Leiðangursstjórinn, Róbert Dan Jensson, sagði að staðsetn- ing setþykktarmælisins, sem er mjög dýrmætur, væri i rauninni fyrir neðan öll skynsamleg tak- mörk. Hann og Vilhjálmur Lúðviks- son, efnaverkfræðingur kynntu rannsóknir fyrir blaðamönnum i gær og kom þar meðal annars fram, að ráðgert er að ljúka þeim næsta sumar. Til þess, að það verði kleift, þurfa rannsóknarmenn á stærra skipi að halda auk þess, sem ekki hefur verið tekin ák-. örðun um áframhaldandi fjá .ramlag rikisins. f sumar hafði leiðangurinn til ráðstöfunar 12.6 milljónir króna og fór helmingurinn af þvi i rekstur skipsins. f leiðangrinum tóku þátt 3-4 islenzkir visindamenn, 3 banda- riskir og niu manna áhöfn Al- berts. Þyngdarmælingatækin lánaði mælingadeild Bandarikjahers og sáu Bandarikjamennirnir um mælingar með þeim. Skipstjóri framan af var Sigurjón Hannesson, en siðar leysti hann af hólmi Guðjón Petersen. GRJOTAGJA LOKAD VEGNA SÚÐASKAPAR FERDAFÚLKS? „Sóðaskapur sumra ferða- I manna i Grjótá er svo yfirgengi- legur, að til hreinna vandræða i horfir.og hefur nú komið mjög til greina að loka gjánni og lauginni I næsta sumar og hafa hana ein- í ungis opna á vetrum fyrir heima- i fólk”, sagði Björn Friðfinnsson, framkvæmdastjóri hjá Kisiliðj- 1 unni við Mývatn i simtali við Alþýðublaðið I gær. Flestir fslendingar kannast við Grjótá. Hún er tviskipt hraun- gjóta og um hana rennur um 40 gráðu heitt vatn og hefur hún um langa tið verið vinsæll baðstaður og ákaflega mikið notuð af ferða- mönnum. I Eins og fyrr segir rennur stöð- ! ugt vatn i gegnum laugina, sem : er að öllu leyti gerð eins og hún | kemur frá náttúrunnar hendi. ! Laugin hefur þannig hreinsað sig i sjálf, þangað til nú, að sóðaskap- ur ferðamanna keyrir um þver- í bak. 1 Að sögn Björns Friðfinnssonar ÞJOÐLAGAHATIÐ I ELLIÐAEY Vestmannaeyingar eru ekki nema rétt búnir að jafna sig eftir þjóðhátiðina sina, þegar þeir fara aftur af stað með útisamkomu. Á morgun hefst þjóðlagahátif, i Elliðaey, og þangað hefur verið stefnt mörgum ágætum söngv- urum, Vestmannaeyingum sem fslendingum. Meðal þeirra má nefna hinn fræga söngvara Umba Roy, Rió trió, Kristinu Lillendal, Jóhannes Hilmar og Þorstein Inga, Einar og Gvend Guðmunds. og Helgu og Rósönnu. A þessari samkomu er ætlazt til þess að fólk komi saman til þess að skemmta sér skemmtunar- innar vegna, þ.e. algert vinbann verður. Það er stúkan Sunna, ásamt hjálparsveit skáta, sem standa fyrir hátiðinni, og ganga félagar beggja þessara samtaka eflaust vasklega frami þvi að hella öllu brennivini i sjóinn. verði reynt að smygla þvi til eyjarinnar. Dagskráin hefst á morgun, og annað kvöld verður kveiktur varðeldur. Um nóttina sefur fólk i sinum tjöldum, en einnig verður þarna stórt tjald, sem hægt er að flýja inn i með hljóðfærin, ef hann skyldi rigna, og halda hátiðina þar. A sunnudaginn verður dag- skránni haldið áfram, milli klukkan 2 og 5. hefur hvað eftir annað verið grip- ið til þess ráðs i sumar að nota slökkviliðsbil sveitarinnar til að hreinsa Grjótagjá eftir ferða- menn. Hefur jafnvel ekki verið fritt við það, að þeir skildu þar eftir stykki sin. „Það er alls ekki hægt að þola þetta framferði, hvort sem i hlut eiga erlendir eða innlendir ferðamenn” sagði Björn enn- fremur. Þá sagði Björn i samtalinu við blaðið, að ferðamannastraum- urinn væri nánast orðin plága á fólki þar nyrðra, enda skorti þar mjög á tjaldaðstöðu, snyrtiað- stöðu, og aðra þjónustu, sem þyrfti að vera fyrir hendi á jafn- miklum ferðamannastað. — i' jármálaráðhcrra hefur þ. 15. ágúst s.l., skipað Hrcin Sveinsson lögfræðing, Ilraunbæ 40, Reykja- vik, skattstjóra i Vestfjarðaum- dæmi frá I. janúar 1073 að tclja. FLUGVELARÁNIN HAFA ORSAKAÐ BOAC flugfélagið tilkynnti i gær, að taprekstur væri á fé- laginu i fyrsta skipti i átta ár, og ætti baráttan gegn flugvéla- ránum sök á þvi. BOAC hefur verið rekið með gróða siðan árið 1964, og talið eitt traustasta fyrirtæki i Bretlandi. Félagið hefur á allra siðustu árum eytt geysilegum fjár- munum til varnar flugvélar- anum.svo miklum fjármunum að félagið er nú rekiö með tapi. Tap félagsins á reiknisárinu sem lauk 31. marz s.l. nam um 300 milljónum islenzkra króna. Sambandsfryslihúsin ætla að halda áfram vinnslu karfa, að sögn Arna Bencdiktssonar fram- kvxmdastjóra frystihúsanna. Sagði Arni i stuttu samtali við hlaðið i gær, að frystihúsin héldu áfram vinnslu, þrátt fyrir að þau leldu ráðstafanir rikisstjórnar- innar ná of skammt. Arni kvað rekstrargrundvöll karfavinnslunnar hafa skánað nokkuð upp á siðkastið, og væri það cinkum að þakka batnandi gæðum karfans. BREZKU VERK- FÖLLIN ENN EKKILEYST llafnarverkamenn i Liverpool, næslstærslu hafnarborg Bret- lands, ákváðu i gær að halda áfrain verkfalli eftir að ineirihluli verk'amannafélaganna liefur af- lýst þvi. 1 Manchester var i gærkvöldi ekki búið að boða til fundar um málið, og likur voru á þvi, að verkamenn i Hull taki þá ákvörð- un i dag að halda verkfallinu áfram. Það hefur verið reiknað út, að i verkfallinu hafi safnazt saman vörur fyrir rúmlega 200 millj. isl. króna i brezkum höfnum, og enn- fremur hefur brezka stjórnin greitt fjölskyldum verkfalls- manna alls 85 millj. króna bætur i verkfallinu. PRESTSVIGSLA I ~ DÓMKIRKJUNNI Prestsvigsla verður i Dóm- kirkjunni sunnudaginn 20. ágúst klukkan 11 fyrir hádegi. Biskup vigircand. theol. Hauk Agústsson til Holtsprestakalls i Múlapró- fastsdaémi. Vigslubiskup séra Sigurður Pálsson lýsir vigslu. Vigsluvottar verða séra Jakob Einarsson, séra Jón Guðjónsson, séra Oddur Thorarensen og séra Þórir Stephensen. Föstudagur 18. ágúst 1972

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.