Alþýðublaðið - 26.09.1972, Blaðsíða 1
Afdrifaríkur fundur
— Loka frystihúsin?
„ÚTIITHI ER
MIÖG SVART’
Aukafundur Sölumiðstöðvar ve8na Þess’ að frystihúsaeig-
hraðfrystihúsanna hefst á föstu- endur telfa afkomugrundvöll
daginn. Til fundarins er boðað frystihúsann brostinn, og ef ekki
komi til ráðstafana af halfu
stjórnvalda, sé ekki annað að
gera en loka húsunum.
Þess má geta, að til slikrar
stöðvunar hefur komið áður.
Alþýðublaðið hafði i gær sam-
band við Einar Sigurðsson út-
gerðarmann, og innti hann eftir
þvi hve mikið hann teldi að
vantaði upp á, að grundvöllur
væri fyrir rekstri frystihúsanna.
Einar sagði, að ekki væri hægt
að segja um það með neinni vissu,
fyrr en könnun hefði verið gerð á
afkomu húsanna. Hann sagðist
hafa slegið þvi fram, að það
vantaði 15% af heildarfram-
leiðsluverðmætinu svo að grund-
völlur næðist. Sér teldist til að það
væri um 900 milljónir króna.
Einar sagði að undan farið
hefði verið gerð könnun á afkomu
19 frystihúsa viðs vegar um
landið, sem valin hefðu verið af
handahófi. Þessi könnun ætti að
gefa góða mynd af ástandi frysti-
húsanna. Einar sagði að niður-
staða hennar ætti að liggja fyrir
fundinum á föstudaginn, og hann
kvaðsthafa heyrt á einum þeirra,
sem að könnuninni stóð, að útlitið
væri mjög svart.
Framhald á 2. siðu.
Kamrarnir fuku
Það var vindasamt á Eyrar-
bakka um helgina og i verstu
hriðjunum fuku kamrar, sem
smiðaðir höfðu verið vegna
myndatöku Brekkukotsannáls.
Stórstreymt var um helgina og
geysi brimasamt, og var meðal
annars ófært milli lands og Eyja.
Það sem lögregluþjónn númer
9 á Keflavikurflugvelli hlustar
af svo mikilli gaumgæfni á, er
tilraun Reynis Leóssonar til
að rifa af sér 90 þúsund króna
hlckki og járn og brjótast
siðan út úr rammgerðasta
fangaklefa landsins. Ekki
þótti ástæða til að handtaka
Rcyni er liann slapp úr pris-
undinni, þvi hann hafði vottorð
frá Ólafi Jóhannessyni um aö
hann mætti eyðiieggja heila
lögrcglustöð.
MYNDIR OG FRÁ-
SOGN Á BAKStÐU
HVER SEM VAR
AÐORAGANDINN...
ÞETTA
VAR
HARM-
LEIKUR
Samkvæmt úrskurði saka-
dóms Reykjavikur braust lög-
reglan og fulltrúi frá Barna-
verndarnefnd Reykjavikur inn i
ibúð konu i Vesturbænum i gær
og tóku frá henni með valdi
þriggja ára gamlan son hennar.
Drengurinn var í vor úrskurð-
aður á vöggustofu til tveggja
eða þriggja mánaðar dvalar.
Þegar sá timi var liðinn óskaði
konan eftir þvi, að fá son sinn til
sin.
Þvi var synjað og þvi greip
hún til þess örþrifaráðs að
„ræna” honum af vöggustof-
unni i fyrradag.
Lokaði hún sig siðan inni i
ibúð sinni og meinaði bæði lög-
reglunni og fulltrúum barna-
verndarnefndar um aðgang.
Um hálf sex leytið i gær lá svo
úrskurður frá sakadómi um
brottnám barnsins og skömmu
siðar kom rannsóknarlögreglu-
maður ásamt lögfræðingi
Barnaverndarnefndar, Jóni
Magnússyni, að húsinu.
Þeir höfðu meöferðis kúbein
og brutu sér strax leið inn um
útidyrnar.
Framhald á 2. siðu.
NORÐMENN HÖFNUDU ADILD
EBA - STJÖRNIN SEGIR AF
Norska þjóðin hafnaði aðild
lands sins að Efnahagsbandalagi
Evrópu. Klukkan hálf tvö i nótt að
islenzkum tima var búið að telja
97.9% atkvæða i þjóðaratkvæða-
greiðslunni og höfðu þá 46,4%
greitt atkvæði með aðildinni, en
53,6% á móti. Kjörsókn i at-
kvæðagreiðslunni var 75,5%.
Norska rikiss tjórnin hefur
beðið ósigur i Efnahagsbanda-
lags-málinu og er stjórnarkreppa
yfirvofandi. Trygve Bratteli lýsti
þvi yfir fyrir fáeinum dögum, að
haniirmyndi biðjast lausnar fyrir
sig og ráuneyti sitt, ef aðiidin að
Efnahagsbandalaginu yrði fclld.
Þegar þessi frétt var skrifuð
laust fyrir klukkan tvö í nótt,
hafði enn ekkert frétzt af við-
brögðum norska forsætisráðhcrr-
ans eftir að úrslit þjóðaratkvæða-
greiðslunnar voru kunn. Fyrr I
gærkvöldi lét Bratteii i ljós vonir
um að fara með sigur i kosning-
unni, en uni það leyti, sem for-
sætisráðherrann lét þessa von
sina i ljós virtust fylkingar
já- og nei- manna þvi scm næst
hnifjafnar.
Einar Förde þingmaður Vcrka-
mannaflokksins, scm var einn
helzti forystumaður EBE-and-
stæðinga innan Verkainanna-
flokksins, sagði skömmu áður en
siðustu tölur höfðu verið birtar i
nótt, að niðurstaða þjóöarat-
kvæðagreiðslunnar hlyti að hafa
mikil áhrif á norsk stjórnmál, þó
að það gerðist ekki á einni nóttu.
Förde hélt þvi fram, aö þessi
úrslit myndu ekki leiða til klofn-
ings i norska Verkamanna-
flokknum, en framvinda mála
myndi að sjálfsögðu ráðast af við-
brögöuin ftokksins i næstu fram-
tið.
Formaður þjóðarhrcyfingar-
innar (folkcbevegelsen ) Hans
Borgcr sagði i nótt I viðtali við
fréttastofu ntb, að „nei-sigurinn”
hefði þýöingu fyrir norskt lýð-
ræði, fyrir þjóöaratkvæðagreiðsl-
una i Danmörku 2. október n.k. og
fyrir norrænt samstarf, þar sem
nú sé grundvöllur lagður að þvi að
taka það upp að nýju, eins og
Borgcr orðaði það.
Ivar Nörgaard markaðsmáia-
ráðhcrra Danmerkur sagði i við-
tali i nótt, aö ósigur norsku
stjórnarinnar i EBE-málinu
myndi vafalaust leiða til þess, að
Framhald á 2. siðu.