Alþýðublaðið - 26.09.1972, Page 5
Alþýðublaðsútgáfan h.f. Ritstjóri Sig-
hvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri
Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjóm-
ar Hverfisgötu 8-10. — Sími 86666.
Blaðaprent h.f.
AFDRIFARÍKT ASÍ-ÞING
Senn fer nú að liða að þvi, að þing Alþýðusam-
bands Islands verði háð hér i Reykjavik. Það
þing verður örugglega mjög afdrifarikt fyrir
málstað launafólksins. Ákvarðanir þess og af-
staða munu ráða úrslitum um, hvort varnar-
staða launamannsins verður sterk eða veik i
þeim efnahagssviptingum, sem verða i landinu
fljótlega að þinginu loknu.
Það leynir sér ekki lengur hversu stórkostlega
alvarlegt ástandið er orðið i efnahagsmálum
þjóðarinnar. Undirstöðuatvinnuvegirnir,
sjávarútvegur og fiskiðnaður, eru að þrotum
komnir. Ráðleysi rikisstjórnarinnar hefur lagt
efnahagslif þjóðarinnar i rúst.
Allir þeir, sem sæmilega vel þekkja til i efna-
hagsmálum vita, að mjög þungbærar ráðstafan-
ir, — gengisfelling eða hliðstæð aðgerð —, eru á
næsta leiti og allur almenningur hefur það sama
á tilfinningunni. Spurningin snýst aðeins um
hvenær að þessum aðgerðum komi, — hvenær
rikisstjórnin gefi skipunina um að hleypa skriðu
þeirri fram, sem hefur verið að safna i sig
björgunum á undanförnum vikum og mánuðum.
Allar likur benda til þess,. að rikisstjórnin hafi
afráðið að fresta kjaraskerðingarráðstöfun-
um þar til eftir Alþýðusambandsþingið.
Þetta gerir hún þvi aðeins, að hún vill fá að
vita hversu langt henni sé þorandi að ganga
gegn launafólkinu i landinu. Þeirrar vitneskju
ætla ráðherrarnir að afla sér með þvi að hlusta
vel á raddir manna á Alþýðusambandsþinginu
og leita vandlega i samþykktum þingsins og af-
greiðslum. Og reynist þar unnt að finna ein-
hvern veikan blett eða hik á málsvörum verka-
fólks, — guð hjálpi þá islenzkum launþegum.
Þá daga, sem eftir eru til Alþýðusambands-
þingsins, mun rikisstjórnin nota allt hvað hún
orkar til þess að reyna að hafa áhrif á ,,sina
menn” i verkalýðshreyfingunni. Hún mun ekki
reyna að fá þá til þess að snúast formlega gegn
hagsmunum launafólksins i landinu, — það
getur hún ekki fengið þá til að gera, en gæti hún
það, þá myndi hún reyna. Það, sem rikisstjórnin
mun hins vegar reyna að fá ,,sina menn” i
verkalýðshreyfingunni til er að beita áhrifum
sinum og itökum á Alþýðusambandsþingi
þannig, að þar verði sem allra minnst gert og
sem allra minnst sagt. Og launþegar sem
minnast þess hversu létt reyndist að fá suma
hverja af þessum sömu verkalýðsforystumönn-
um til þess að segja ekki neitt og gera ekki neitt i
kjaramálum á 1. mai s.l., — þeir ugga um sinn
hag.
Astandið i efnahagsmálum þjóðarinnar er nú
þvi marki brennt, að launþegastéttirnar munu
eiga undir högg að sækja innan fárra vikna. Þá
mun þær verða að eiga i erfiðri varnarbaráttu
og vigstaða þeirra i baráttunni verður ráðin á
Alþýðusambandsþinginu i haust.
Nú um þessar mundir eru launþegar að velja
fulltrúa sina á þetta mikilvæga þing Alþýðu-
sambandsins. f sumum félögum verða
kosningar. Það er eina tækifærið, sem hundruð
launþega hafa til þess að hafa áhrif á gerðir
ASf-þingsins.
Við slikar aðstæður á launþeginn að spyrja
sjálfan sig: Er liklegt, að þessi maður meti
minn hag meir, þegar á þing er komið, en hag
flokks eða rikisstjórnar? Siðan á hann að velja
þá eina, sem sina fulltrúa, sem hann getur
treyst, — menn, sem ekki munu hlýða neinum
fyrirskipunum eða tilmælum um að þegja og
hafast ekki að til að verja launafólkið fyrir
fjandsamlegri rikisstjórn.
lalþýdul
Imm
IIM UÖBMUNGAR STYRULDARINNtR í ViET-NAM
Siöast liðiö þriðjudagskvöld
sýndi sjónvarpið mynd um striðs-
rekstur Bandarikjanna i Viet-
Nam. Mynd þessi hefur vakið
óhug, en umfram allt athygli.
Hefur mikið verið um myndina
rætt i blöðum, en þó enn meir
manna á milli.
A ýmsan hátt undrast ég þá
athygli, sem þessi mynd hefur
vakið og það mikla umtal sem
hún hefur orsakað. Er það virki-
lega satt, að i septembermánuði á
þvi herrans ári 1972 skuli annars
svo vel upplýstur islenzkur al-
menningur vera furðu sleginn
yfir hernaði Bandarikjamanna i
Viet-Nam eins og honum er lýst i
frekar illa gerðri kvikmynd? A
virkilega að trúa þvi, að megin-
þorri islenzkra sjónvarpsáhorf-
enda hafi nú i fyrsta sinn gert sér
það ljóst, að notaðar séu stálflisa-
sprengjur og benzinhlaups-
bombur til þess að kvelja fólk i
Viet-Nam eða hverjar séu af-
leiðingar af notkuninni? Islend-
ingar eru i tiltölulega góðu sam-
bandi við umheiminn. beir kaupa
— og væntanlega lesa lika —
mikið af erlendum blöðum og
timaritum auk innlendra. I öllum
þessum ritum hafa mánuðum og
árum saman verið sagðar fregnir
af styrjöldinni i Viet-Nam og
hryðjuverkunum þar, — margfalt
Ijótari frásagnir, en mynd sú
hermdi, sem sýnd var i sjónvarp-
inu um daginn. Svo kemur fólk
núna og spyr: Hvaða óhugnaöar-
atburðir eru að gerast þarna
suður frá? Hvers konar
hernaðarrekstur er þetta eigin-
lega af hálfu Bandarikjamanna?
Islendingar hafa hrósað sér af
þvi að vera vel upplýstir og um-
fram allt mannúðlegir og frið-
elskandi. En nær greindin ekki
lengra og stendur mannúðin ekki
dýpri rótum en svo, að þeir þurfi
að heyra börn gráta, sjá blóð
renna og lita limlesta augum til
þess að skilja þær hörmungar,
sem þeir hafa verið að lesa um
mánuðum og árum saman?
Deyföar tilfinningar
1 kvikmyndinni um striðs-
rekstur Bandarikjamanna i Viet—
Nam, sem sjónvarpið sýndi á
dögunum, kom ekkert það fram,
sem venjulegir dagblaðalesendur
hafa ekki vitað langa lengi. Hafi
myndin vakið jafn almennan
óhug og undrun og virðist vera,
þá sýnir það aðeins, hversu slæ-
lega nútimamaðurinn skynjar
hörmungar, sem hann litur ekki
eigin augum, — hversu hátt þarf
að hrópa svo hann heyri. betta er
e.t.v. einnig skýringin á þvi,
hvernig tækni- og visindamenn i
svokölluðum menningarlöndum
geta fengið af sér að búa til vopn
af þeirri tegund, sem lýst var i
kvikmyndinni. bað er engin blóð-
lykt af nýjasta uppdrættinum af
stálflisasprengju á teikniboröi
hönnuðarins né heldur fnykur af
brenndu holdi af hinum gljáandi
hylki benzinhlaupssprengjunnar
á færibandi framleiðandans. Sá
vel fæddi og klæddi ibúi menn-
ingarrikis, sem framleiðir þessi
vopn og sá vel fæddi og klæddi
striðsmaður sama rikis, sem
kastar þeim og flýtir sér svo á
brott með margföldum hljóð-
hraða þeir búa ekki yfir nægilega
vakandi skynjun til þess að gera
sér afleiðingarnar i hugarlund
þótt þeir viti allt sem vita þarf.
Altént verðum við að trúa þvi að
svo sé ef við viljum geta haldið
sönsum og trúnni á það fyrirbæri,
sem nefnt hefur verið vestræn
siðmenning og okkur er sagt, að
hafi tekið margar aldir að þróa
fram.
Villidýrsæði
Auðvitað fer það ekki á milli
mála, að striðsrekstur Banda-
rikjahers i Viet-Nam hefur verið
og er að ýmsu leyti villidýrsæði
likastur. bað breytir engu um þá
niðurstöðu þótt auðvelt sé að
sanna villidýrsæði upp á hinn
styrjaldaraðilann lika. Venjulegt
fólk á öllum aldri, sem er eins
saklaust frá sjónarhóli
styrjaldaraðila og venjulegt fólk
getur verið og hefur veriö sprengt
sundur og saman af bandariskum
hvellsprengjum eða soðið og
steikt af bandariskum eld-
sprengjum, — þetta fólk ris ekki
upp alheilt þótt maður segi við
mann: er þetta ekki of einhliða
áróður? Og sá bókhaldari allra
bókhaldara, sem færir Banda-
rikjaher til gjalda brennt barns-
lik, hann máir þá færslu ekki út úr
sinni bók þótt i kjöltu hans sé lagt
annað, — brennt, stungið eða
sprengt af hinum styrjaldaraðil-
anum. bannig EIGA menn ekki
að gera upp reikninga þótt þannig
VILJI margir gera upp reikn-
inga, — sizt af öllu litil her-
mennskuþjóð i andanum, eins og
við Islendingar viljum vera.
Hinir niutiu réttlátu
begar tveir herir berjast þá
taka áhorfendur yfirleitt afstöðu
með öðrum hvorum hernum. bá
tala menn um hugdirfsku, her-
kænsku og vopnfimi „sinna”
manna, — jafnvel drenglyndi á
stundum.
I styrjöld eins og þeirri i Viet-
Nam falla sennilega u.þ.b. 90 al-
mennir borgarar — karlmenn
konur og börn — fyrir hvern einn
hermann. Engir þurfa að liða
jafnmiklar hörmungar i striðinu
og það fólk, sem ekki striðir, eng-
inn sýnir jafn mikinn hetjuskap
og það og örugglega enginn meira
drenglyndi. Samt á það sér fáa
formælendur og nær enga stuðn-
ingsmenn. bað styðja allir annan
hvorn herinn, sem fellir 90 vopn-
leysingja fyrir hvern óvinaher-
mann. Ympri einhver á þessum
niutiu þá segir fólk: Jú þetta er
ósköp leiðinlegt, en svona er nú
strið. Auk þess myrða óvinaher-
mennirnir fleiri! bað sýnir hve
„okkar” menn eru miklu betri en
hinir.
Hvaö segir vopnavalið?
Menn deila um það, hvorir njóti
stuðnings almennings i Viet-
Nam, — Bandaríkjamenn eða
þjóðfrelsisfylkingarmenn. Ekki
ætla ég að dæma um það. Ég vil
aðeins minna á hverjir það voru,
sem komu i veg fyrir það, að viet-
namska þjóðin fengi að svara
þeirri spurningu sjálf i kosning-
um, eins og um hafði verið samið.
I þessu sambandi vil ég aðeins
koma á framfæri ábendingum og
i framhaldi af þeim spurningu til
lesenda.
Vopn, eins og t.d. stálkúlu-
sprengjur og benzinhlaups-
sprengjur eru til þess gerð að
valda sem mestum og lang-
æustum kvölum án dauða. Stál-
flisar og —■ kúlur úr stálflisa- eða
kúlusprengjum hafa t.d. ekki afl
til þess að komast i gegn um
veikustu varnargarða eða skýli.
bær hafa rétt aðeins nægan kraft
til þess að komast að mikilvægum
liffærum i likama manns, sem
stendur ekki of langt frá
sprengjustaðnum. bað er þvi
hrein „óheppni” ef slikt vopn
veldur dauða i stað örkumla.
betta verður til þess, að fólk
skelfist vopn af þessu tagi miklu
meir, en önnur og stórvirkari, en
til þess er leikurinn lika gerður.
Vopn af þessu tagi eru einnig
fyrstog fremst ætluð til nota gegn
almennum borgurum, en ekki
hermönnum.
Nú eru það fyrst og fremst
Bandarikjamenn, sem beita
vopnum af þessu tagi m.a. vegna
þess, að þeir einir hafa aðstöðuna
til þess að koma þeim við. Og þá
eru það spurningarnar:
Hvernig stendur á þvi, að her
þessa volduga stórveldis, sem
ræður yfir fullkomnustu tækni
nútimans til þess að eyða lifi i
sem mestum mæli á sem
skemmstri stund, skuli leggja
svona mikla áherzlu á full-
komnun vopna af þessu tagi, sem
i augum herforingja geta varla
verið annað en hálfgerð barna-
leikföng svo gagnslaus sem þau
eru i alvörustriði?
Hvernig stendur á þvi, að
Bandarikjaher skuli beita
þessum vopnum i svo miklum
mæli, sem raun ber vitni um,
þegar þess er gætt, að þau miðast
fyrst og fremst við að valda
þjáningu og vekja skelfingu
meðal óbreyttra borgara, — EF
HINN ÖBREYTTI BORGARI
STYÐUR bANN MÁLSTAÐ,
SEM BANDARIKJAHER I
VIET-NAM ER AÐ VERJA?
bykir fólki hað ekkert öfugsnúið
Framhald á bls. 10
Flokksstarfið
ALÞÝÐUFLOKKSKONUR I REYKJAVlK
Kvenfélag Alþýðuflokksins i Reykjavik heidur fyrsta félagsfund vetr-
arins miðvikudaginn27. september n.k. kl. 8.30 e.h. i Ingólfscafé.
Fundarefni:
1. Vetrarstarfið.
2. Kosning fulltrua á 34. þing Alþýðuflokksins.
3. önnur mál.
Stjórnin.
Þriðjudagur 26. september 1972
©