Alþýðublaðið - 26.09.1972, Page 12
alþýðu
mum
Alþýóubankínn hf
yklur lugur/okkar metnaOur
(ÓPAVOGS APÓTEK
Ipið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
lunnudaga milli kl. 1 og 3
LOGREGLAN UM REYNILEOSSON
JAFNGOTT AÐ
VKJ HOFUM
HANN EKKI A
MÍTI OKKUR!
„Ég er laus” kvað við úr klefa
númer fjögur i lögreglustöðinni
á Keflavikurflugvelli á laugar-
daginn var, eftir að hringlað
hafði i keðjum, brothvellir
kveðið við, hengilásar tætzt,
handjárn rifnað og slitnað,
sterkar stálkeðjur brostið, og
eftir einn alsherjar iokahvell.
Að þessu loknu upphófst æðis-
gengin barsmið inni i klefanum,
svo gjörvöll lögreglustöðin
nötraði, og þessu lauk meö þvi
að maðurinn i klefanum braut
hnausþykkt skothelt gler, braut
upp úr körmunum i kring, og
skreið út.
"Það er jafn gott að við höfum
þennan mann ekki á mót*
okkur,” sagði einn lögreglu-
mannanna, sem fylgdust með
aðförunum, „þvi ljóst er að
enginn fangaklefi á tslandi
getur haldið honum inni, þar
sem þessi klefi er talinn sá
sterkasti hérlendis.”
MYNDIRNAR
Á litlu myndinni hér að ofan
scst Reynir skriða út um glugg-
ann eftir að hafa brotið skothelt
glerið og mölvað úr karminum.
Efst til hægri er hann fyrir járn-
inguna en á neðstu myndinni er
verið að leggja siðustu hönd á
verkið. Myndin i miðið er tekin
þegar Reynir hafði brugðið sér
á salcrni eftir að hafa rifið
járnin af sér. Sjást þær tæjur úr
handjárnum liggja eins og hrá-
viði á klefaborðinu.
Maðurinn, sem vann þetta
afrek, er Reynir Leósson frá
Keflavik, sem þegar er orðinn
þjóðkunnur fyrir krafta sina.
Hann er nú að vinna að kvik-
mynd um afrek sin i samvinnu
við Vilhjálm Knudsen, og
verður þetta eitt atriði myndar-
innar.
Það var um hádegi á laugar-
daginn að Reynir kom upp á
lögreglustöð á Keflavikurflug-
velli i þeim tilgangi að slita af
sér öll þau bönd, sem lögð yrðu
á hann, og brjótast siðan út úr
mannheldum fangaklefa.
Læknir var i fylgd með Reyni
og rannsakaði hann nákvæm-
lega áður en farið var að járna
Reyni. Rannsóknin leiddi ekkert
óeðlilegt i ljós, og hófust þá þrir
lögregluþjónar handa við að
leggja járn á Reyni.
Fyrst voru hendur hans
járnaðar aftur fyrir bak með
þrem handjárnum af sterkustu
gerð, og rammgerð fótajárn
voru sett á fætur hans. Siðan var
fimm rammgerðum stálkeðjum
vafið utan um hann allan. M.a.
var einni brugðið tvisvar utan
um hálsinn á honum, járnsög
vinnur ekki á þannig keöju, og
var hún siðan læst niður i fóta-
járnin þannig að Reynir var i
keng. Ef hann reyndi að rétta
eitthvað úr sér, hertu keðjurnar
að hálsi hans.
Keðjurnar voru allar læstar
saman með 14 sterkum helgi-
lásum og tók þrjá lögregluþjóna
röskan klukkutima að koma
þessum 90 þúsund króna út-
búnaði á Reyni. Var hann þá
orðinn svo rigbundinn aö hann
virtist ekki geta hreyft sig.
Hópur manna var á lögreglu-
stöðinni til að fylgjast með, og
voru margir efins um að Reyni
tækist að losa sig, þar sem þetta
voru helmingi meiri hlekkir en
hann hefur nokkurntimann
slitið.
Reynir virtist alveg rólegur
og hvatti lögregluþjónana til að
binda sig sem mest og læsa sem
fastast. Lögregluþjónarnir þrir
báru Reyni inn i fangaklefann,
og áttu fullt i fangi með það þar
sem keðjurnar sigu i.
Þegar Reynir var kominn inn
i klefann bað hann um sigarettu
og vatnssopa. Þegar hann hafði
reykt og drukkið nægju sina af
vatni. var klefanum læst.
Upphófst þá þegar glamur i
keðjum og stóð nær látlaust i
tvær klukkustundir, þar til
Reynir sagðist vera laus.
Skömmu siðar bað hann um að
fá smá hvild og fara á salerni.
Gafst þá kostur á að skoða
klefann, en þar lágu sundurtætt
járn og slitnar keðjur út um allt,
en Reynir blés ekki nös.
Framhald á 2. siðu.
ANGELA EKKIRÁÐIN
Angela Davis fær ekki aftur
starf sitt sem aðstoðarprófessor
við Kaliforniuháskóla, sem hún
gegndi áður en hún var hand-
tekin, sökuð um hlutdeild að
morði.
Angela var siðar fundin sýkn —
og hefur að undanförnu ferðast
um Sovétrikin.
Stjórnendur háskólans höfnuðu
tillögu heimspekideildar um
endurráðningu ungfrú Davis, en
hún er meðlimur i kommúnista-
flokki Bandarikjanna.
SEPTEMBERMÖT
Vetrarstarfsemi Taflfélags
Reykjavikur, hefst i dag kl. 20,
með „Septembermóti” félagsins,
tefldar verða 5 umferðir eftir
„Monrad-kerfi”. Umhugsunar-
timi er 1 klst. á skák fyrir hvern
keppenda, og tefla allir i einum
flokki, en fyrsta umferð verður
tefld i kvöld, eins og fyrr segir, i
félagsheimili Múrara við Freyju-
götu. Er þetta mót tilvalið, fyrir
þá sem viija liðka sig, fyrir
Haustmót Taflfélags Reykja-
vikur, en það hefst um miðjan
október.
FANNST LÁTINN
Ungur borgfirskur bóndi fannst
á sunnudaginn látinn i Hauka-
dalsdrögum norðvestur af Trölla-
kirkju.
Hann hét Hreinn Heiðar Arna-
son, 23 ára gamall, bóndi að Staf-
holtsveggjum i Stafholtstungu-
hreppi. Hans var saknað á
laugardagseftirmiðdag er hann
kom ekki ásamt öðrum gangna-
mönnum til byggða, og leituðu 250
manns hans til sunnudags, er
þyrla varnarliðsins fann lik hans.
Ekki er vitað hvað valdið hefur
láti Hreins. Hreinn lætur eftir sig
konu.
SIGGA LITLA-VIGGA