Alþýðublaðið - 17.10.1972, Qupperneq 1
FENGU VATN
Brezka eftirlitsskipiö Cirolina kom til Akureyrar um helgina meö
tvo veika brezka sjómenn. Þeir eru skipverjar á brezkum togur-
um, sem voru aö ólöglegum veiöum út af Langanesi. Eftirlits-
skipiö fékk afgreitt vatn á Akureyri, en hélt siöan úr höfn.
alþýðu
ÞRIDJUDAGUR 17. OKT. 1972 — 53. ARG. — 232. TBL
Týr í slaginn
— fayssulaus
Landhelgisgæzlan fékk
langþráðan liðsauka um helg-
ina. Hvalur 9. öðru nafni Týr,
hélt úr höfn á laugardag i sina
fyrstu ferð i þágu Landhelgis-
gæzlunnar og á sunnudag kom
varðskipið til landsins eftir
ýmsar breytingar og bætur
hafa verið gerðar á skipinu i
Danmörku.
Myndin var tekin við
Reykjavikurhöfn. Týr er að
leggja frá og á bryggjunni
stóðu ættingjar skipverja og
kvöddu þá.
Til þess var sérstaklega tek-
ið, að Týr var byssulaus og i
viðtali við Alþýðublaðið i gær
sagði Hafsteinn Hafsteinsson
blaðafulltrúi Landhelgisgæzl-
unnar, að ekki hefði verið tek-
in ákvörðun enn um það hvort
skipiö verður búið byssu á
næstunni.
Breytingar og bætur á Þór
Framhald á 2. siðu.
BYÐUR
NOKKUR
BETUR?
Fjögur þúsund krónur á
mánuöi er lágmarkið, og ef
einhver býður betur fær hann
herbergið með þvi að borga
háift ár fram i timann, sagöi
húsráöandinn, sem nýlega
auglýsti herbergi til leigu i
einu dagblaöanna. Herbergiö
cr undir súö i gömlu húsi og
ckki einu sinni aðgangur að
baði, — og ljós og hiti á svo að
bætast ofan á leiguna.
Blaðinu er reyndar ekki
kunnugt um, hvað herbergið
var endanlega leigt á, þvi
fjögur þúsund króna tiiboöið
var aöeins viðræðugrundvöll-
ur.
Þetta er þvi miöur ekkert
einsdæmi, þvi blaðinu er
kunnugtum fieiri svipuð fyrir-
bæri. Fyrir stuttu var t.d. ibúð
boðin til leigu með tveggja ára
fyrirframgreiðslu sem skil-
yrði. Leigan var þó ekki óeðli-
lega há i þvi tiiviki.
Þannig virðist húsnæðis-
ekklan hér i Reykjavík nú á-
þrei-fanlega farin að ýta und-
ir hverskonar okur og órétt-
læti, cinkum nú með haustinu,
þegar mikil eftirspurn er eftir
einstakiingsherbergjum.
Um hverja helgi eru greiddar
20—25 þúsund krónur af almanna-
fé til þess að halda uppi Iögum og
reglu við ákveðna skemmtistaði i
Skipholtinu i Reykjavik.
Er þetta gert vegna kvartana
ibúa i nágrenni skemmtistað-
anna, einkum þó Röðuls og Þórs-
cafés. Hafa ibúarnir kvartað sár-
an undan röskun á næturró, og
var þess vegna ákveðið að koma
upp gæzlu við staðina, i stað þess
að afturkalla veitingaleyfi hús-
anna.
Eigendur skemmtistaðanna
vilja ekki greiða kostnað af lög-
gæzlunni, og er kostnaðurinn þvi
greiddur af almannafé, og stöð-
unum þannig gert kleyft að halda
áfram rekstri, en ella hefðu þeir
misst leyfin.
Nú liggur fyrir umsókn frá eig-
endum Þórscafés um að fá vin-
veitingaleyfi á neðstu hæð húss-
ins, og er beiðni þeirra nú til um-
ræðu hjá borgarráði.
Að ábendingu nokkurra aðila,
kannaði Alþýðublaðið hvort eitt-
hvað væri hæft i þvi að löggæzlan
að veitingastaðina væri kostuð af
almannafé en ekki eigendum
staðanna. Asgeir Friðjónsson
staðfesti þetta i samtali við blaðið
i gær, en visaði að öðru leyti á
Bjarka Eliasson yfirlögreglu-
þjón.
Bjarki sagði að á föstudags- og
Framhald á 2. siðu.
FEÐGININ KOM-
IN í LEITIRHAR
BARNIÐ VERÐUR
HÉR Á LANDI
FYRST UM SINN
Maðurinn, sem undanfarna
daga hefur farið huldu höfði til
þess að leyna fimm ára dóttur
sinni og komið þannig i veg fyrir,
að barnið yrði afhent móður sinni,
fyrrverandi eiginkonu mannsins\
gaf sig fram i gær.
Eins og Alþýðublaðið hefur áð-
ur.skýrt frávargerð viötæk leit áð
manninum og barninu siðustu
dagana, en hún bar ekki árang
ur, fyrr en maðurinn gaf sig sjálf-
viljugur fram i gær og afhenti
barnið.
Eftir yfirheyrslur hjá rann-
sóknarlögreglunni var á skrif-
stofu borgarfógetans i Reykjavik
lagt lögbann við þvi, að móðirin
fari úr landi með barnið fyrst um
sinn.
Er viö það miðað, að barnið
verði hér á landi, unz hæstiréttur
hefur fjallað um áfrýjun úrskurð-
ar dómsmálaráöuneytisins um að
móðurinni beri að hafa forræði
yfir barninu.
Þá hefur Alþýðublaðið af þvi
spurnir, að i bigerð kunni að vera
málsókn á hendur dómsmála-
ráðuneytinu, þar sem þess verði
krafizt, að ráðuneytið endurskoði
úrskurð sinn um forræðið yfir
barninu.
Þess skal getið, að samkvæmt
upplýsingum, sem blaðið hefur
fengið, er barnið mjög hænt að
fööur sinum, og eftir dvölina hér á
landi undanfarna mánuði, mun
barnið eingöngu tala islenzku.
Framhald á 2. siðu.
SIINDLAUGASKEMMDARVARGURINN
Rannsóknarlögreglan i Reykja-
vik handtók i fyrradag 16 ára pilt,
sem hefur nú játað á sig 15 inn-
brot á skömmum tima, og þar á
meðal að hafa unnið skemmdar-
verkin i sundlaugunum i Laugar-
dal og i Vesturbænum, og reyndar
viðurkenndi hann að hafa einnig
brotist inn i Sundhöllina.
Tjónið við eitt innbrotið, i sund-
laugarnar i Laugardal, er metið á
hátt á annað hundrað þúsund
krónur, svo liklegt má telja að
samanlagt tjón við öll innbrotin,
nemi hundruðum þúsunda, en
rannsókn málsins stendur enn yf-
ir.
Ekki er fullljóst hversu miklum
verðmætum pilturinn hefur stol-
ið, en hann gat engu skilað þegar
hann var tekinn. Yfirleitt mun
hann hafa haft heldur litið upp úr
krafsinu.
Það var fyrir þrem dögum, að
pilturinn sást við innbrotstilraun,
og var hann handtekinn daginn
eftir. Við yfirheyrslur fór hann
svo smátt og smátt að játa á sig
fleiri afbrot, þar til þau voru orðin
15 i gær, en þá hætti hann að bæta
við listann. Rannsóknarlögreglan
telur að afbrotaferill hans sé ekki
meiri, og þvi var piltinum sleppt i
gær. Innbrotin mun hann hafa
EFTIR 15 INNBROT
framið á innan við tveggja mán-
aða timabili, en gat enga skýr-
ingu gefið á æðinu, sem á
hann rann, eftir að hann braust
inn i Laugardalslaugina.
Þess má að lokum geta, að pilt-
ur þessi hefur aldrei komist i kast
við lögregluna áður, og hefur ekki
verið þekktur af neinu þessu liku.
VÉLBÁTUR FANNST ALELDA í NJARÐVÍKURHÖFN
Vélbáturinn Hólmsberg KE-10
stórskemmdist af eldi i Njarð-
vikurhöfn i gærdag, en engan
mann sakaði. Það var um klukk-
an 12 á hádegi i gær, að menn fóru
frá borði og var þá ekkert athuga-
vert, en aðeins 15 minútum siðar
sáu menn hvar afturhluti bátsins
var orðinn alelda.
Slökkviliðið i Keflavik kom
brátt á staðinn og gekk slökkvi-
starfið allvel. Hinsvegar urðu
mjög miklar skemmdir á bátnum
vegna þess hversu eldurinn
breiddist skjótt út.
Matsalur, eldhús, gangur og
vistarverur skemmdust mikið og
sömuleiðis brúin, en óverulegar
skemmdir urðu i vélarrúmi nema
af vatniog reyk. Samkvæmt upp-
lýsingum rannsóknarlögreglunn-
ar i Hafnarfirði, eru eldsupptök ó-
kunn.
Hómsberg er 100 lesta eikar-
bátur i eigu útgerðarfélagsins Ct-
vör. —