Alþýðublaðið - 13.03.1973, Page 9
HAMINGJUDiSIRNAR ERU SEZTAR
AO I HERBUÐUM ARSENALMANNA!
Alan Ball hefur átt mikinn þátt f
velgengni Arsenal aö undanförnu.
Hann hefur mikið skoraö, nú siöast
i leiknum gegn Ipswich. Þá sendi
hann knöttinn i netiö úr vitaspyrnu,
af sama örygginu og hefur einkennt
hann I vetur.
Þetta er lfklega bezti vetur Ball
hjá Arsenal siöan hann kom til
félagsins frá Everton fyrir tveimur
árum siöan. Arsenai er I uppgangi,
en Everton má muna sinn fifill
fegri.
Ekki skýrðist staöan mjög á toppi og botni 1. deildarinnar ensku um helg-
ina. Liverpool, Arsenal og Leeds unnu öll sina leiki, en Ipswich er nú iiklega
úr leik I baráttunni um titilinn. A botninum töpuöu Manchester United, Stoke
og Norwich sinuin leikjum, West Brom og Crystal Palace geröu jafntefii, en
Birmingham sigraöi. Staöan er þvl jafn opin og áöur I báöum endum
deildarinnar. 1 2. deild tapaöi Burnley óvænt heima, en QPR vann sinn leik, og
komst þar meö á topp deildarinnar I fyrsta sinn I vetur.
I leik Ipswich og Arsenal átti heimaliöiö mun meira I leiknum, en rétt einu
sinni var heppnin fylgifiskur Arsenal. Eftir aö Trevor Whymark haföi gefiö
Ipswich forystuna á 43. minútu, leið aðeins mfnúta þar til John Radford haföi
jafnaö leikinn fyrir Arsenal. Ipswich hélt áfram aö sækja i slöari hálfleik en I
þriöju sóknarlotu Arsenal I hálfleiknum varö miöveröinum Hunter á aö hand-
leika knöttinn innan vftateigs, og úr vltaspyrnunni skoraöi Alan Ball sigur-
mark Arsenal. Þrátt fyrir aö Ipswich sækti allt hvaö af tók, vildi knötturinn
ekki I netið. Þaö næsta sem hann kom aö markinu, var I marksúlurnar.
Það leit um tima út fyrir aö Liverpool
ætlaði að sjá af efsta sætinu til Arsenal,
þvi þegar aðeins voru þrjár mínútur
til leiksloka í leik Liverpool og South-
amton, var staðan 2:2. En þá greip
dýrlingurinn Kevin Keegan til sinna ráða,
og gerði út um leikinn með fallegu skalla-
marki.
Larry Lloyd hafði gefiö Liverpool
forystuna á 36. minútu, og Keegan hafði
aukið hana i 2:0 tveimur minútum siðar.
Liverpool átti alveg fyrri hálfleikinn og
það var aðeins snilldarmarkvarzla Eric
Martin hjá Southamton sem hélt skorun-
inni niðri. Clemence i marki Liverpool
hafði ekkert að gera, eða allt þar til hann
varð að hirða knöttinn úr eigin neti á 44.
minútu, er Mike Channon stakk vörn
Liverpool af og skoraði. Fljótlega i seinni
hálfleik jafnaði Gilchrist 2:2, en Keegan
átti sem fyrr segir siöasta orðið, og við
mark hans brutust út fagnaðarlæti sem
heyrðust i milufjarlægð.
Með þessum sigri er Liverpool enn I
efsta sæti með 46 stig, jafnmörg og
Arsenal, en betra markahlutfall og einum
leik færra. Leeds kemur i þriðja sæti meö
42 stig, tveimur leikjum færra en Liver-
pool og þremur færra en Arsenal. Leeds
átti ekki i vandræðum með ört hnignandi
lið Everton á laugardaginn, þó svo
munurinn yrði ekki meiri en 2 : 1. Erfiður
leikur i Evrópukeppninni i miðri viku
setti sitt mark á leikmenn Leeds. Alan
Clarke skoraði með skalla strax á 6.
minútu, en Layons jafnaði fyrir hlé. A 50.
minútu kom markið, sem gerði út um
leikinn, þrumuskot frá Peter Lorimer
eins og þau gerast bezt, en það þýðir ein-
faldlega að knötturinn hefur þotið með 100
kílómetra hraða i netið. Eitthvað meira
en litið er að hjá Everton, þessu liði, sem i
byrjun mótsins var í efsta sæti.
Flestir aðrir leikir i 1. deild voru
eitthvað i sambandi við fallbaráttuna.
Botnliðið West Brom fékk Chelsea i heim-
sókn, og tókst að ná stigi i jafntelfisleik,
1:1. Mark WBA gerði Tony Brown eftir aö
hafa fengið sendingu frá Cantello, en þaö
lenti I hlut Bill Garner að jafna metin.
Næst neðsta liðið Norwich sat áfram á
sinum stað eftir slæmt tap gegn Toten-
ham, 3:0, sannkölluð endurtekning á
ósigrinum á Wembley i fyrri viku. Jimmy
Pearce skoraöi strax á 2. minútu, og
Martin Chivers skoraöi tvö seinni mörkin,
það fyrra úr vítaspyrnu á 76. min._*u og
þaðsiðara með skalla á 86. mlnútu. Þetta
þótti lélegur leikur, og yfirburðir Totten-
ham ekki eins miklir og markatalan gæti
bent til.
Birmingham fetaði sig fjær botninum
meö 3:1 sigri yfir Manchester United, og
skildi United eftir I slæmri klipu.Bob Lac-
ford skoraði fyrsta mark leiksins á 30.
minútu og Bob Hatton bætti öðru við á 66.
minútu. Lou Macari skoraði fyrir United
á 83. minútu, en það dugði litið, þvi
Campbell skoraði úr vitaspyrnu stuttu
siðar og sigur Birmingham var i höfn.
Það sama má segja um Crystal Palace og
Birmingham, þar var stigið eitt skref frá
botninum með jafntelfi gegn Úlfunum
1:1. Don Rogers skoraði á 39. minútu, en
Frank Munro miðvörður Wolves jafnaði
metin á 55. minútu.
Leicester og Derby gerðu jafntefli 0:0
og sama markatala var uppi á teningnum
i leik Sheffield United og West Ham. Þar
munaði þó litlu að Sheffield færi með
sigur af hólmi, en Fergson I markinu hjá
West Ham gerði sér litið fyrir og varði
tvisvar viti frá Alan Woodward, fyrst
laust skot, en siðan fast skot, eftir að
dómari hafði látið endurtaka vitið. Stoke
tapaði fyrir Newcastle á útivelli 0:1 og er
enn I fallhættu. Sigurmark Newcastle
gerði hinn markheppni Malcholm
McDonald.
Joe Mercer var mjög fagnað af
áhangendum Manchester City, er hann
kom meö sitt nýja lið Coventry á gamlar
slóðir, Maine Road. Mercer var sannar-
lega kátur er lið hans tók óvænt bæði
sitgin af mörkum Carr og Stein gegn
aðeins einu marki Manchester City sem
Booth skoraöi. Þetta hefur veriö áfall
fyrir orðhákinn Malcholm Allison fram-
kvæmdastjóra City, en hans vegna var
Joe Mercer látinn fara frá félaginu.
-SS.
FRAMARAR STODUGT Á UPPLEID
Um næstu helgi fæst úr þvi
skoriö hvort Framarar muni I al-
vöru blanda sér I baráttuna um
sigur I 1. deild. Liö Fram er
greinilega á uppleiö þessa dag-
ana, en lítið var þó hægt aö dæma
um það á leik liðsins gegn
Víkingi, þvi mótstaöa Víkings var
alveg hlægilega lítil. Ahugaieysi
Vlkings smitaöi út frá sér, og
varö þess valdandi aö leikur liö-
anna var ein versta leikieysan af
mörgum iþessu hálfmishcppnaöa
tslandsmóti I handknattleik.
Kæruleysi sat I fyrirrúmi hjá
Vikingunum, enda voru þeir
þarna að leika sinn siðasta leik,
og möguleikar á titlinum voru
löngu i greipum, og auk þess
enginn hætta á falli. Sú litla
viðleitni Vikinga að standa sig
sem örlaði á i byrjun, var ekki
lengi að hverfa þegar Þorsteinn
Björnsson tók að hirða frá þeim
hvert skotið af öðru. Steini var
þarna i sinu gamla góða formi,
sannarlega maður þessa lélega
leiks.
Varnarleikur beggja liða var
frekar slakur, enda var staðan
eftir fimm minútna leik orðin
4:4 og hafði Einar Magnússon
skorað öll mörk Vlkings. Einar
myndir: Friöþjófur.
Siguröur Einarsson kom á óvart i
leik Fram og Vikings. Hér hefur
hann komist I gegnum galopna
Víkingsvörnina, og skorar eitt af
sinum fimm mörkum. AB-
kom ekki mikið við sögu i þessum |
leik, þó svo hann skoraði alls 10
mörk. Hann var áberandi ragur
við að skjóta, og þegar hann skaut
var það oft á röngum augna-
blikum. I liði Fram var þessu
öðru visi farið, allavega voru þar |
menn óragir við að skjóta, enda
uppskáru þeir árangur eftir þvi.
Ingólfur og Axel voru þar
drýgstir, og þeir höfðu náð
forystu I hálfleik 13:8.
Sömu yfirburðir héldust i
hendur i byrjun siðari hálfleiks,
og þá gerðist það helzt markvert,
að Ingólfi brást bogalistin i vita-
kasti i fyrsta sinn i mótinu. Skot
hans fór i stöng og útaf. Þetta var
i fyrsta sinn i 35 vítaköstum sem
Ingólfur bregzt. Frábær árangur.
Um tima i seinni hálfleik hafði
Vikingur náð að minnka muninn i
19:16, en upp frá þvi breyttist
leikurinn i hreina vitleysu, nánast
farsa, og Fram vann örugglega
27:20.
Mörk Fram: Ingólfur 8 (4 v.),
Axel 6, Sig. E. 5, Björgvin 4,
Sigurbergur 2, Andrés og Pétur
eitt mark.
Mörk Vikings: Einar 10 (7 v),
Guðjón 5, Jón Sig. 3, Páll 2 mörk.
Sem fyrr segir er ekki gott aö
dæma lið Fram eftir þessum leik,
en greinilegt er þó að það verður
skeinuhætt, FH og Val, allavega
ef Þorsteinn verður i viðlika stuöi
i markinu. Auk hans voru þeir
Ingólfur, Axel, Björgvin og
Sigurður Einarss. góðir.
Vikingsliðið var kærulaust, og
enginn i liðinu á hrós skilið. Einar
og Guðjón voru skástir. -SS
Þriðjudagur 13. marz 1973