Alþýðublaðið - 15.04.1973, Side 1

Alþýðublaðið - 15.04.1973, Side 1
wm&A . ' AÐ SLETTA KRISTINDOMI OG UM- FERÐARMENNT EINS OG SKYRI Á umferðarmálaráðstefnu, sem haldin var fyrir skemmstu kom sú hugmynd fram, að færa beri umferðar- og aksturs- kennslu inn i gagnfræðaskölana. Ekki er mér kunnugt um hve algengt þetta er i öðrum löndum eða hvort slik umferðarkennsla fyrirfinnst yfirhöfuð i skyldu- námsskólum i nágrannalöndun- um, og i rauninni varðar það okkur sáralitlu hvort svo er. N Þessi hugmynd virðist þess fyllilega virði, að henni sé gaumur gefinn og undirbúning- ur þegar hafinn að þvi að hún geti hafizt i öllum unglinga- og gagnfræðaskólum landsins þeg- ar á næsta námsári. Það leikur ekki nokkur vafi á þvi að allur hinn stóraukni áróð- ur fyrir bættri umferðarmenn- ingu, sem hófst vorið 1968 hefur gætt meginþorra ökumanna skarpari umferðarvitund, þótt svo við búum enn við ýmsa van- kanta, sem verið hafa á fræðslu- aðferðum. Gallinn er sá, að erindið hefur ekki náð til allra, — og þeir, sem vilja nýta sér alla hugsanlega fræðslu, vilja taka þátt i endur- mótun umferðarmenningar, kunna ýmsir hverjir ekki að nýta sér hana. Og enn einn van- kanturinn er sá, að þær aðferð- ir, sem beitt hefur verið, höfða ekki til allra. Og þá ef til vill sizt til þess hóps, sem hvað mest þarfnast slikrar leiðsagnar, yngstu ökumannanna. Auðvitað er þetta atriði, sem lagast með timanum, en þó seint ef forráðamenn umferðar- fræðslu fá ekki nægilegan að- gang að þeim fjölmiðlum, sem mest áróðursgildi hafa, — eða sem verra er, fá aðganginn, en misnota hann af vangá eða mis- skilningi á hugsunarhætti þeirr- ar kynslóðar, sem mest er þörf- in á að ræktuð sé með vitund um umferðarmenningu. Við erum komin á það stig, að umferðin kosti okkur i bein tjón vegna slysa og óhappa 700 milljónir króna á ári — OG TUGI MANNSLIFA. Að ekki sé minnst á þá, sem halda lifi, en búa við ævilanga örorku. Þegar það svo kemur berlega i Ijós, að helztu orsakir þessa eru ölvun við akstur, skeyt- ingarleysi um umferðarreglur, tillitsleysi og frekja, þá er ekki óvarlegt að áætla, að fyrrgreind atriöi eigi sökina á minnsta kosti þrem fjórðu óhappa og slysa. Og það er of dýr ölvun. Of dýrt kæruleysi. Of dýrir skapgerðar- brestir. Við megum ganga út frá þvi sem visu, að aldrei muni takast að útiloka slys og óhöpp i um- ferðinni. En við eigum mikla og góða möguleika. Við eigum góða möguleika á þvi að draga úr aukningu slysa, siðan að fækka slysum — og þannig beina þróuninni á gagnstæða braut. En þá þýðir ekki að reyna að sletta umferðarvitund inn i fólk- ið eins og venjan er að sletta kristindómi. Ég hef lúmskan grun um að viðast meðtaki landinn kristindóminn i tvennu lagi. Fyrst sem fallegri barna- sögu þegar verið er að svæfa viðkomandi. Siðan á örfáum eftirmiðdagssamkomum dag- ana fyrir fermingu, og þá rétt eins og hraðnámskeiði i esperantó. Þvi miður virðist ákaflega svipað farið með umferðar- fræðsluna. Eftir að hafa i barnaskólum fengið örlitla til- sögn i þvi aö ganga rétt og snyrtilega yfir götur fæst harla litil leiðsögn unz tæplega 17 ára unglingar skella sér i 17 tima rúnt um borgina i viðurvist lög- gilts aksturskennara og reyna að læra eins og páfagaukar eitt- hundrað blaðsiðna bækling — og búa sig undir að geta svarað jafn gáfulegri spurningu eins og þessari: Hvaða merki er A 4? Það er bezt að kirkjan sjái um að bæta i það gat sem þarna er á kristnidómum, — en við, sem erum i umferðinni alla daga og eigum á hættu að verða meðal þeirra 30manna, sem láta lifið á ári hverju i umferðarslysum, og tökum þátt i þvi aö greiða tvær milljónir króna á dag i tjóna- kostnað, — við ættum að ýta á eftir þvi að leiðsögn og undir- búningur að akstri i umferðinni og endurhæfing allra ökumanna verði það mikil, að okkur takist að snúa þróuninni við — til hins betra. Sunnudagur 15. apríl 1973.89. tbl. 54. árg.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.