Alþýðublaðið - 29.04.1973, Síða 5

Alþýðublaðið - 29.04.1973, Síða 5
sjúkdóma stór. En þarna eru lika tilfelli sem slik, að barnið kemur inn i svefn- herbergi móður sinnar og segir: — Góðan daginn, mamma ...halló, Kalli. — Og siðan er farið inn til föðursins: — Halló pabbi ...góðan daginn Nanna, hafið þið sofið velt — Það kemur fram i skýrslu Bartells, að það hafi verið i kringum 1964 sem hópkynlif ,,sló i gegn”. Má það aðallega þakkast pillunni. I fyrstu var hér eingöngu um konuskipti að ræða, en þróaðist smám saman upp i það að verða hópkynlif. Eg álit að rannsóknir okkar séu mjög gaum- gæfilegar, — segir pró- fessor Bartell, — þvi fátt nýtt kom fram eftir fyrstu 100 viðtölin, 95% af fólkinu sem iðjuna stunda er hvitt, litað fólk er óæskilegt i samkvæmum þeirra. 5% er hjón af blönduðu kyni sem eiga mjög erfitt með að komast i veizlur hjá hinum. — Rannsóknir sýna, að það fólk sem stundar hópkynlif er að mestu leyti á aldrin- um frá 18 til 55 ára, séu konurnar teknar fyrir, en 21 til 70 ára hjá körlum. En meðalaldurinn er 29,3 ár hjá konum en 32 ár hjá körlum. Aöallega millistéttarfólk Sjálfur hefur prófessor Bartell ekki hitt á hjón þar sem hjónabandið hefur farið út um þúfur vegna hópkynlifs, en hins vegar hefur hann heyrt um nokk ur tilfelli. Af konunum er 78% húsmæður sem eru heima allan daginn. Af þeim sem voru giftar höfðu 83% gift sig á aldrin- um 17 til 23 ára. 9% höfðú gift sig á aldrinum 15 til 17 ára. 10% viðurkenndu að þær væru ógiftar, en létu sem svo væri svo þeim yrði ekki neitað um að- gang. Prófessor Bartell: — Meðalárstekjur þessa fólks var i kringum 10 þús. dollarar, en sumir höfðu allt að 7 til 8 sinnum meira. Þvi var hér aðal- lega um millistéttina að ræða. 42% af karlmönnun- um voru sölumenn, og nokkuö stór hópur var úr kennarastétt, ásamt nokkrum kennslukonum. Eitthvað af prófessorum og verkfræðingum hafði slæðst inn i þetta. Aðeins 9% voru úr lögfræðinga- stétt, 14% verkamenn og um 5% iðnaðarmenn. Hvað trúnni viðvék var fólk þetta mest mótmæl- endur, kaþólikkar eða gyðingar. Sárafátt af fólki þessu stóð utan við trúar- brögð, þótt svo að það færi sjaldan i kirkju. 85% sendu börn sin reglulega i sunnudagaskóla, og 87% hjónanna sem spurð voru áttu 2 til 3 börn, og 74% áttu börn á aldrinum 7 til 17 ára. Aðeins 6% ólu þá von með sér að börn þeirra yrðu jafn frjálslynd og þau, er þau yxu úr grasi. Tómstundagaman þessa fólks var i aðalatriðum að horfa á sjónvarp, iþóttir, ferðast, fara á dansleiki, vera i skauti fjöiskyldunn- ar og stunda hópkvnlif. Sárafáir höfðu áhuga á bókmenntum, en lásu þó dagblöð og vikurit, og um 99% lásu Playboy að stað- aldri. Charlie og Pussycat Eiturlyf og siðhærðir karlmenn voru óæskilegir hlutir i þessum samkvæm- um, en alkohol var látið fljóta með. Þó voru það helgispjöll að drekka sig fullan, ekki af þvi að Bakkus væri þessu fólki svo á móti skapi, heldur hitt að of full persóna er léleg til ástarleikja. Það kemur einnig fram að fólk þetta er mjög þrifið og hugsar vel um likama sinn. Margar konur létu sprauta i brjóst sin, svo þær yrðu meira hrifandi en ella. Þó heldur Bartell þvi fram, að fæst af þvi fólki sem stundar hópkyn- lif sé fallegt á kropp held- ur hið gagnstæða. Þau lita upp til hins myndarlega fólks sem er notað i auglýsingamynd- um og vilja likjast þvi sem mest. Staðreyndin er sú, segir Bartell, að flest af þessu fólki er helzt til feit- lagið og bar það með sér að það hefur lifað væru- kæru lifi. En hvernig talar fólk i þessum frjálslynda hópi? Það þarf ekki mikið til, til þess að vera álitinn algjör dóni. Þarna heyrast ekki orð eins og ,,að riða” eða „negla” heldur er notað, ,,að leika”. Þegar talað er um kynfærin eru notuð orðin „kisulóra” „vinkon- an” og „Kalli”. Orðaforði hópkynlifs- fólksins er þó það sérstæð- ur, að það tekur smá-tima að skilja hvað átt er við, þegar fólkið talar saman sin á milli. „Kalli" litli er,,beinn i baki" Um 80% senda aðeins mynd af eiginkonunni þegar auglýsingum er svarað. Oftast eru þetta nektarmyndir, eða myndir af henni á nærklæðunum eöa bikini og oftast 10 til 15 ára gamlar myndir. Næst- um þvi allir færa dagbók yfir kynni sin, og lima inn i þær myndir af þeim félög- um sem þeir hafa átt ástarstund. með. Flestir hafa myndavélar með sér i samkvæmin, og þeir halda þvi lika fram að þar eignist þeir félaga og vini er þeir taka mikla tryggð við. Flest af þeim svara auglýsingum um kynörv- andi lyf, og „drauma- prinsar” eru mikið notaðir þegar verið er að hita kon- urnar upp. Einmana konur auglýsa að þær séu tilbúnar til þess að vera þriðja hjól á vagni i kynsambandi hjóna, fá oftast yfir 500 svör. Karl- mennirnir hugsa vel fyrir ástarþörf kvenfélaga sinna, og ekki óalgengt að heyra þá gorta af þvi að þeir hafi enn ekki hitt konu, sem þeim hafi ekki tekizt að fullngja. En á engin afbrýðisemi sér stað? Jú, það kemur fyrir, en slikt fólk er óæskilegt. Af öryggis- ástæðum er litið um kossa og keliri i danssal. Það hefur ekkert upp á sig. Það er beðið með allt svo- leiðis lagað þar til komið er inn i ástarhreiðrin. Þó er allt i lagi af fara hönd- um um kynfæri hvors ann- ars á meðan dansinn dun- ar, og þykir sjálfsagt. h'lestir byrjendur af karlkyninu eru taugaó- styrkir og eiga erfitt með að láta sér standa i kon- una. En þetta er afsakað sem byrjendaóheppni og sagt að það gangi betur næst. Oftast eru afsakan- irnar á þessa leið: — Þér verðið að afsaka, en ég skil ekki hvað hefur komiö yfir hann „Kalla '. Hann er ávallt vanur að vera beinn i baki. En ég hef unnið helzt til mikið núna siðustu daga, og við þvi er ekkert að gera. Allavegana er þetta ekki þin sök, þvi þú hefur dá- samlegan likama, og ég hef mikla löngun til að... — Þrátt fyrir þá staö- reynd, „að það er ekki stærðin sem ræður held- ur...” þá fylgja þvi ætið viss vandamál að vera með „litinn Kalla”. Og eftirá er fyrsta spurning mannsins til konunnar á- vallt þessi: — Var hann betri en ég? — Og þegar hún svarar nei, — „venjulegast” — verður heimur hans svo yndisleg- ur og rósrauður, að heim- ilislifið stórbætist við það. Fólkið notar aldrei orðin — „ég elska þig”, — það er bannað. Þau minna á ótrú- mennsku. Fyrir utan venjulega konuskipti er 67% tekið þátt i „þrihyrn- ingsleik”. Það er að segja ■kveir karlar og ein kona i einni sæng. Og þar sem aukakonur eru ekki á hverju strái er erfitt að leika þennan leik með tveim konum og einum karlmanni, þrátt fyrir mikla löngun. Fólk sem er vant hóp- kynlifi getur átt erfitt með að byrja gleðskapinn, og er þvi oft drukkin nokkur glös, eða spilaður fata- póker áður en rétta stemn- ingin fæst. En þegar fötin fara að fækka þá gengur allt betur. Sumir eigin- menn eiga það til að leita til konu sinnar, og vilja hafa hana út af fyrir sig, en það er illa þokkað og kallast „blóðskömm”. Vændi og hjónaband. Þvi miður hefur það sýnt sig, að hluti af konun- um lendir út i vændi, eftir að hafa tekið einhvern þátt i hópkynlifi. 1 bókinni seg- ir ein slik kona: — Þvi skyldi ég ekki? Ég leggst jú með það mörgum ó- kunnum karlmönnum. Einasti mismunurinn er sá, að þú færð peninga fyrir þegar þú selur þig, Annars vil ég taka það fram, að hefði ég ekki byrjað á hópkynlifi, héfði mér aldrei dottið i hug að leggjast i vændi. Flestir hætta hópkynlifi eftir að hafa verið þátttak- endur i ein tvö ár. Sumir halda þó áfram i smá-hóp sem er mjög þröngur og erfitt að komast inn i. Aðalástæðan fyrir þvi að fólk hættir er sú, að það óttast kynsjúkdóma, ótl- inn við að börnin og ná- grannar komist að hinu sanna og svo hefur jafnvel afbrýðisemin haldið inn- reið sina. Svo er þetta einnig eitthvert dýrasta snort sem stundað er. Fn þrátt fyrir þetta eru það ætið fleiri og fleiri sem taka þátt i hópkynlifi, hversvegna? Einn svarar þvi á þessa leið: — Það er eins og hjóna- bandið verði betra. Ég hef ekkert á móti trúföstum hjónum, ef þau lifa þann- ig, en flest okkar æskja eftir meiri spennu. Ég lifi i hamingjusömu hjóna- bandi.en þó ereins og hóp- kynlif sé vitaminsprauta á ástarlif okkar.. Ég skil konu mina ósköp vel, þeg- ar hún segir: — Eftir 10 ára hjónaband hef ég löng un til þess að sjá hvaða áhrif ég hef á hitt kynið. — Þetta er i stórum drátt- um það sem prófessor Bartell hefur að segja okk- ur um hópkynlif, en höfum við eitthvað lært af þvi? Við skulum fara varlega með að dæma um lausnir þær sem þetta hefur á hjónabörn, sem virðast vera komin i úlfakreppu, þvi hver veit hvernig mórallinn verður hjá næstu kynslóð eða þeirri þar næstu. Og hvernig fer ástin út úr þessari viður- eign? Við skulum þvi snúa okkur að Nils Johan Rud, sem segir: — Hver nennir að standa i þvi að ala af sér afkvæmi þegar pillan er lausnin við þvi? Og ást- in, Eros? Sá sem vill njóta allra þeirra dásemda sem lifið hefur upp á að bjóða getur losað sig úr viðjum afbrýðiseminnar, þvi sá vill allt elska. Máske er það menntun eða jafn- rélti. Máske fjárhagslegt öryggi sem fær okkur til þess að viðurkenna og þola margt er áður fyrr þótti klúrt og dónalegt. En hin erótiska afbrýði- semi? Er það nokkur sem getur trúað þvi, að bæði kynlif og ást geti þróazt milli manns og konu án þess að hún sé ekki til staðar... tt á hópkynlífi Sunnudagur 29. apríl 1973.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.