Alþýðublaðið - 13.09.1973, Side 5

Alþýðublaðið - 13.09.1973, Side 5
Alþýðublaösútgáfan hf. Stjórnmálarit- M||%«VA|||stjóri Sighvatur Björgvinsson. **1l,*v*il Fréttastjóri Sigtryggur Sigtryggsson. Ritstjórnarfulltrúi Bjarni Sigtryggsson. Ritstjóri og ábyrgðarmaður Freysteinn J Jóhannsson. Aðsetur ritstjórnar Hverfis- 'götu 8—10. Simi 86666. Blaðaprent hf. Sundrung í stað samstöðu Það var merkur viðburður i islenskri stjórn- málasögu, þegar allir 60 alþingismenn þjóðar- innar samþykktu einum rómi ályktun um út- færslu islensku landhelginnar i 50 milur. Fram- vinda málsins átti siðan auðvitað að vera sú, að rikisstjórnin hefði ákveðna og ábyrga forystu i málinu, i nánu samstarfi við stjórnarandstöð- una, þannig að samstaða allra flokka þjóðarinn- ar yrði tryggð um sérhvert spor, sem stigið yrði. Undanfarna daga hafa hins vegar verið að gerast atburðir, sem sýna, að rikisstjórnin er þess ekki megnug að hafa farsæla forystu i þessu aðalmáli íslendinga i dag. Mánuðum saman hefur hún horft ráðvillt á njósnaflug breskra flugvéla um islenzk varðskip. Sjálfur forsætisráðherrann hefur heimskað sig á þvi að krefjast þess að Atlantshafsbandalagið stöðvi þetta flug, þótt hann ætti auðvitað að vita, að það er að engu leyti á þess vegum. Það er fyrst i gær, sem rikisstjórninni dettur i hug, að hún sjálf geti eitthvað i málinu gert með þvi að höggva á samband islensku flugþjónustunnar og njósnaf lugvélanna. Ennþá alvarlegra er þó hitt, að ásiglingar bresku herskipanna á islensk varðskip virðast gersamlega hafa ruglað ráðherrana i riminu og valdið þvi, að þeir lýsa opinberlega skoðunum á þvi, hvernig við skuli bregðast, sem eru gerólik- ar i grundvallaratriðum. Einn ráðherrann krefst þess, að stjórnmálasambandi við Breta sé slitið þegar i stað og farið úr NATO. Þótt ut- anrikisráðherrann sé erlendis, lýsir forsætis- ráðherrann þvi yfir að ef ásiglingar haldi áfram, eigi að slita stjórnmálasambandi við Breta og endurskoða afstöðuna til Atlantshafs- bandalagsins. Ennfremur eigi ekki að veita neinum breskum sjómönnum læknishjálp, nema togarinn komi sjálfur með þá i höfn. Enn aðrir ráðherrar lýsa þvi yfir, að þeir séu þessari skoð- un algerlega ósammála, það eigi að aðstoða sjúka menn án nokkurra skilyrða, auk þess sem allar yfirlýsingar um stjórnmálaslit án undan- genginnar athugunar séu ótimabærar. Málgagn þess eina þingmanns, sem er utanflokka, en styður þó rikisstjórnina, hefur mjög gagnrýnt ráðherrana, sérstaklega sjávarútvegsráðherra, fyrir að reka privatpólitik i landhelgismálinu. Slikt kann auðvitað ekki góðri lukku að stýra. Á það benti formaður Alþýðuflokksins, Gylfi Þ. Gislason, i viðtali við Alþýðublaðið i gær. En jafnframt tók hann fram, að þótt ráðherrarnir væru sjálfum sér sundurþykkir og forysta rikis- stjórnarinnar væri hvorki föst né farsæl, mundi Alþýðuflokkurinn halda fast við þá stefnu sina að stuðla að ábyrgri samstöðu allra flokka gagnvart Bretum til þess að stöðva óþolandi of- beldi herskipa þeirra á islensku miðunum. Kópavogsbær óskar að ráða starfsmann i sorphreinsun. — Bónuskerfi. Upplýsingar hjá verk- stjóra, simi 41570 kl. 11-12 f.h. Kvöldsimi 40584. Kaldhæðnislegt sjónarspil ó Grikklandi Fólk komst varla hjá að vikna af hrifningu, þegár það sá — á sjónvarpsskyggninu, auðvitað — hvar griski lifstiðarfanginn, sem böðlar stjórnarinnar höfðu misþyrmt hvað mest, Alexand- er Panagoulis, yfirgaf fangelsið sem frjáls maður. En hann var einna fyrstur þeirra 200 fanga, sem veitt hefur verið frelsi að undanförnu. Og það var einmitt þetta, sem George Papadopoulos vildi fá fram — að almenningur viknaði af hrifningu. Það mun álit flestra, að hinn hugrakki Pana- goulis hafi lög að mæla, þegar hann segir að einungis sé um aö ræða brellu i þeim tilgangi, að rikisstjórninni verði þaö auð- veldara að halda áfram harð- stjórn sinni. Reykhjúpur, segir Kanellopoulis, forsætisráðherr- ann fyrrverandi. Þrátt fyrir loforð um borg- araleg réttindi taki aftur gildi, og að auki verði stjórnmálalegt frelsi, þá gefur auga leið að Papadopoulos og klika hans ætl- ar sér ekki að fara frá völdum. Þeir aðilar sjá sig einungis nauðbeygða til að endurskipu- leggja það kerfi, sem á að tryggja þeim völdin. Hið nakta einræði á nú að hlyja sig borgaralegum klæð- um. Rikisstjórnin að skipa borgaralega ráðherra sér til að- stoðar. Eftir hálft annað ár á nýtt þing að hafa á sér yfirskin einskonar frelsis. Verði kosið til þess, þegar allt kemur til alls, verður þvi stjórnað af ,,bylt- ingarflokki’’ herforingjanna. Hver er þá tilgangurinn með þessum harmræna skripaleik? Það er ekki útilokaö að þrýst- ingur utan frá hafi haft sin áhrif. Það mun þó ráða mestu um, að mikill meirihluti þjóðar- innar er á móti stjórninni. Sið- ustu undanfarnar vikur eru stöðugt að koma fram nýjar upplýsingar, sem eindregið benda til, að yfirvöldin hafi fals- að úrslit kosninganna. Margt bendir til að meirihlutinn hafi verið á móti Papadopoulos, jafnvel þótt þaö hafi ekki verið eins mikill meirihluti og and- stæöingar hans gerðu sér vonir um. Einræðisherrann i Aþenu kemst ekki hjá að búa sviðið kring um stjórn sina nýjum tjöldum, en það gerir hann þó ekki umfram það sem hans eig- in þjóð og aðrar þjóðir þvinga hann til. Glata 50.000 Danir heyrn sinni á næstunni vegna hávaðamenaunar? 1 tilefni af þvi að um þessar mundir er háð al- þjóðleg ráðstefna i Kaupmannahöfn um hávaðamengun, er margt ritað i dönsk blöð um það vandamál þessa dagana. Ráðstefnu þessa sækja yfir 700 sér- fræðingar frá 30 þjóð- löndum. t einu blaðinu er tekið dæmi af verkamanni i Hilleröd, Bent Ras- mussen, 29 ára að aldri, sem vinnur við það fimm stundir á dag að brjóta upp götu þar i borginni með svokölluðum loftþrýsti- meitli. Engar mælingar liggja fyrir um þá hávaðamengun, sem loftþrýstimeitillinn veldur, en hinsvegar er vitað að sú mengun er langt yfir hættumark. Og greinarhöfundur bætir þvi við, að Rassmussen sé einn af 50.000 verkamönnum i Danmörku, sem eigi við þá hávaðamengun að búa á vinnustað, sem tekur langt yfir þetta mark. Og Harald W. Ewertsen, yfir- læknir við heyrnarstofnun rikis- ins i Bispebjerg-sjúkrahúsinu, staðfestir þetta i viðtali við danskt blað, þégar hann ræðir um heyrnarmengunar-vandamálið i Danmörku: — Það munu vera um 6.000 starfsfyrirtæki með um yfir 50.000 verkamönnum, þar sem hávaða- mengunin fer langt yfir hættu- mark. Er sú tala samkvæmt skýrslu gerðri af starfseftirlitinu. Alit ég að draga megi úr hávað- anum niður fyrir hættuhiark i um 60% tilvikum með ráðstöfunum, sem ekki mundu kosta of fjár. — Nú er svo komið að við skrá- setjum árlega um 1.400 tilvik heyrnarskerðingar, sem verður af völdum hávaðamengunar á vinnustað, og eru 40% sjúkling- anna yngri en 65 ára. Það er ekki nema eðlilegt að heyrnarskvnj- unin dofni meðaldrinum, en mikil hávaðamengun leikur þá skynjun svo grátt, að hún eldist, ef svo má að orði komast, tiu eða jafnvel tuttugu árum fyrir aldur fram. Verkamenn þeir, sem þannig missa heyrn smám saman, hafa oftastnær enga hugmynd um það sjálfir, að minnsta kosti ekki fyrst i stað. segir yfirlæknirinn. Heyr'n þeirra virðist i stakasta lagi á fertugsaldri og fimmtugsaldri, en þegar þeir eru komnir yfir fimmtugt, finna þeir að heyrn þeirra er ekki likt þvi eins næm og hún var. Það torveldar og allt eftirlit, að enginn getur vitað það fyrirfram hver hefur viönáms- veik eyru, og hver hefur eyru. sem þolað geta mikla hávaða- mengun og um alllangt skeið. án þess að heyrnin skerðist. Það er þvi eina færa leiðin að koma á reglubundnum heyrnarmæling- um, jafnframt þvi sem leitast er viö að finna ráð til að draga úr hávaðamenguninni i sambandi við dagleg störf, segir Harald W. Ewertsen yfirlæknir, og sérfræð- ingur varðandi áhrif hávaða- mengunarinnar á heyrn manna. KJÖRDÆMAFUNDIR ALÞÝÐUFLOKKSINS A VESTURLANDI Sunnudaginn 16. sept. n.k. kl. 14,00 Stjórn Kjördæmisráðs Alþýðuflokksins i Vesturlandskjördæmi boðar kjördæmis- ráðið til fundar að Hótel Borgarnesi sunnudaginn 16. september n.k. kl. 14.00. GYLFI Þ. GÍSLASON, formaður Alþýðuflokksins, og BENEDIKT GRÖNDAL, varaformaður Alþýðuflokks- ins, munu mæta á fundinn og ræða stjórn- málaviðhorfið. Stjórnin Fimmtudagur 13. september 1973 o

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.