Alþýðublaðið - 13.09.1973, Síða 12

Alþýðublaðið - 13.09.1973, Síða 12
alþýðu InRMii INNLÁHSVIÐSKIPTILEIÐ /^\TIL LÁNSVIÐSKIPTA ttBÚNAÐARBANK W ÍSLANDS KOPAVOGS APÓTEK Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Sunnudaga milli kl. 1 og 3 SENDIBIL ASTODIN Hf Veöurstofan spáir okkur áframhaldandi hlýviðri hér á höfuöborgarsvæðinu, og reynd- ar á suður og vesturlandi næsta sólarhringinn. A morgun má búast viö þokulofti, og sums staðar er hætt við rigningu, þeg- ar liður á daginn. Annars veröur suðlæg átt um allt land og á norður- og austurlandi er gert ráð fyrir úrkomulausu hlýviðri og sums staðar sólskini. Mestur hiti á landinu mældist i gær á Staöarhóli i Aðaldal, 21 stig. Kl. 6 i gærkvöldi var 11 stiga hiti i Nýjabæ uppi á há- lendinu. Sem sagt yndislegt'; haustveöur um allt land i dag. KRÍLIÐ nw s ayo i/>u 7 9 L WNUA tíNOdtí anoji ona Z í TWn u, , npo,5 dtíWtí IWí dtídOd^ u, ðU70Q c f / m tí&ílH H39 /Mtíu/ /JS/tí UM nO.JH MS/ s 3/ ’ dntíiHtí. UU/tíld í * 1 /<ín ~7b/,U/ NN/vn tíNtíV .W~7J UHHO /jv/j- J.J.IJA /HtíH t, LNI3Q JJtít tíd/VJS 9 $/>//& XWJ7S/ ÞÆGINDABlÚ 06 SYNINGAR ALLAN DAGINN EIGA AD RÉTTA HLUT KVIKMYNDA- HÚSANNA GEGN SJÚNVARPI Siöustu árin hefur kreppan i kvikmyndahúsarekstri fariö mjög vaxandi. Aðsókn að kvik- myndahúsum hefur farið hrað- minnkandi um heim allan, þrátt fyrir að flestum beri saman um, að myndirnar hafi aldrei veriö betri en einmitt nú siöustu árin. Munar þar mestu, að Banda- rikjamenn eru farnir að hugsa um eitthvað annað en glans- myndir með „gamansömu” ivafi. Nú siðustu misserin hefur mjög verið rætt um þetta meðal áhugamanna um kvikmyndir i Sviþjóö, bæði kvikmyndahúsa- eiganda og annarra. Það nýjasta i gerð kvik- myndahúsa þar i landi er að hafa þrjá eða fleiri sali i sama húsinu. Einn kvikmyndahúseig- andinn i Stokkhólmi sagði, að svona bió ættu að borga sig á fimm árum og reiknað meö 10% vöxtum. Þessi hús byrja sýning- Þannig hefur arkitektinn Lennart Clemens hugsað sér kvikmyndahús þar sem gestir liggja meöan þeir horfa á myndina. ar kl. 12 á hádegi og sýna allan daginn. Menn fóru nefnilega að gefa þvi gaum, að kannski heföi almenningur áhuga á að fara i bió um miðjan daginn, þvi vinnutimi manna hefur breyst og þaö hentar mörgum mjög vel að fara i bió á miðjum degi. Ekki þarf nema tvo 2-3 starfs- krafta i svona bió þvi að allar vélar eru hálfsjálfvirkar. Eftir árs rekstur á svona biói i Svi- þjóö kom i ljós aö 1/3 sýningar- gesta kom um miðjan daginn. Grundvallaratriði i bióum núna er, að gestum liði vel og verða þvi sætin að vera af bestu gerö, þvi reynslan sýnir að fólk fer frekar i þau bió þar sem eru þægileg sæti en hin þar sem menn liða vitiskvalir vegna sæt- anna og skiptir myndin þá litlu máli. Það hefur einnig sýnt sig að fólk vill ekki sjá myndir um sinn eigin hversdag. Myndirnar mega ekki vera of likar okkar eigin lifi. Nú eru menn farnir að leita fyrir sér um algjörlega nýja skipan kvikmyndahúsa. T.d. hefur komið fram sú hugmynd að áhorfendur liggi i makindum og aö tjaldinu verði komið fyrir i loftinu. Að visu veröa sætin 25% færri með þessu móti, en það skiptir i sjálfu sér ekki máli segja arkitektar, þar sem sæta- nýting i kvikmyndahúsum er hvort eö er svo léleg. Til þess að auka aösóknina hefur kvikmyndahúsaeigendum komið til hugar að koma fyrir sjónvarpsvélum á götum úti og sýna þar spennandi kafla úr myndunum. En þó svo að ýmsar hug- myndir hafi komið fram um ný- skipan kvikmyndahúsanna, þá eru kvikmyndahúsaeigendur mjög varkárir i öllum breyting- um. Þeir eru þess meðvitaðir að tækniþróunin er mjög ör og eng- inn sér fyrir þær breytingar er kunna að verða á allri fjölmiðl- un. Nú er t.d. timaspursmál hvenær verður farið að taka kvikmyndakassettur i notkun á heimilum. Þess vegna þora fjármálamenn ekki aö leggja út i mikinn kostnað og halda þvi að sér höndum. PIMM á förnum vegi 1,1,1 Ætlarðu aó stunda leikhús í vetur? Eggert G. Þorstcinsson, alþing- ismaður: Ég hef nú engin plön gert um það svona fyrirfram. Ég læt liklegast einstök verk- efni, sem verða sýnd i vetur, ráða þvi hvað ég fer mikiö i leik- hús. örlygur Geirsson, stjórnarráös- fulltrúi: Er ekki ábyrgöarhluti af embættismanni i mennta- málaráðuneytinu að svara þess- ari spurningu neikvætt? Hfns vegar áætlar maður ekki slikt fyrirfram, en ég ætla aö sjá þau verk, sem eru þess virði, aö eytt sé i það tima. Guörún Agústsdóttir, skrif- stofustúlka: Ég hef nú ekki mik- ið hugsað um það. En maöur hugsar sér alltaf að fara i leik- húsin, þegar þau byrja á haust- in. Ætli maður fari ekki, ef eitt- hvað skemmtilegt verður sýnt. Þóra Jónsdóttir, ráöskona: Ég hef hugsað mér aö sjá jólaleikrit Þjóðleikhússins, Leðurblökuna, og yfirleitt góð stykki. Ég hef reyndar ekkiséð hvað veröur i leikhúsunum i vetur, nema þetta, sem ég hef ákveöið, — en hef sérstaklega gaman af söng- leikjum. Þorsteinn Vilhjálmsson, nemi: Að sjálfsögðu geri ég það. Helst ætla ég að sjá Kabarett, en ég sleppti þvi að sjá hann i vor. Svo reyni ég að standa mig i þvi að sjá það sem islenskt er.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.