Alþýðublaðið - 15.12.1973, Qupperneq 12
lalþýduj INNLÁNSVIDSKIPÍj LEIÐ KÓPAVOGS APÓTEK
1H pÉWl /ja^TIL LÁNSVIÐSKIPTA Opið öll kvöld til kl. 7
1M RTiTTil TOBÍNAÐ&RB4NKI Laugardaga til kl. 2
Kty ÍSLANDS Sunnudaga milli kl. 1 og 3
SA rok og
hríðarveður
verður víðast um
land í dag,
gengur í NA átt
með roki og
stórhríð um
norðaustan og
vestanvert
landið, og miklu
frosti um
sv landið
KRILIÐ
□ BELJM FOR ORT /)PK/ nöm LPUSl
m
blfiF /N
UPP HEFÐ
F/SK UR £66, L£ LéúL/fí
'J 'ftTT 'OÚKIR
'Pi FRPKK A tFUp
L FoRSK. 'lLPIT
Uf
□ V£ND skst.
. 'ft FÆRI 1 ■*
o MlKIL FeRÐ
Kaktusinn okkar hefur hjá
mörgum lent, þótt aðeins
einu sinni hafi hann verið
sóttur hingað á ritstjórnina i
Skipholti 19. Hann hafa hlotið
einstaklingar, siðast skiptu
tveir honum með sér, einu
sinni fékk rikisstjórnin hann
og þannig upp og ofan.
Að þessu sinni fcr kaktus-
inn til stærri hóps, en við höf-
um áður séð ástæðu til að
veita þessa viðurkenningu,
eða til 60 manna, sem vinna i
Húsinu við Austurvöll. Kakt-
usinn fá þingmennirnir okk-
ar fyrir þá útreið, sem frið-
unarfrumvarpið er að fá hjá
þeim, en þar stefnir allt á
hreina eyðileggingu 50 miln-
anna með tómum hreppa-
sjónarmiðum.
íslenzk veðrátta
ó, fslenzkt veður, alltaf kann ég við þig,
enda í raun og sannleika til þess fallið,
undir allsberu lofti ligg ég og sóla mig
i lautinni bak við ásinn handan við fjallið.
En þó það sé sólskin og dýrðarveður i dag
og dottið niður að sinni veðrabálið,
við reiknum með hellirigningu um sólarlag
og rjúkandi hvassviðri og snjó i fyrramálið.
Ó, islenzka veðrátta, alltaf sjálfri þér lik
i eilífri tilbreytni, það er fyrir mestu,
þú minnir einatt á okkar pólitík,
sem aldrei verður brugðið um stefnufestu.
(H)RÚS í
HNAPPA-
GATIÐ
,,Mér finnst að útgefendur
Iceland Review séu verðugir
(h)rós-hafar fyrir sitt afburða-
góða starf til landkynningar,
sem þeir hafa til þessa unnið án
nokkurs styrks frá því opin-
bera”, sagði lesandinn, sem
varð fyrir valinu sem (h)rós
höfundur okkar að þessu sinni.
Og við lögðum leið okkar á
skrifstofu Iceland Review, þar
sem Edda Sigurðardóttir, af-
greiðslustúlka i Casanova,
hengdi (h)rós Alþýðublaðsins i
hnappagöt þeirra Haralds
Hamars og Heimis Hannesson-
ar.
,,Við höfum nú klárað tiu ár”,
sögðu þeir félagar, ,, en erfið-
leikarnir hafa verið miklir. Og
eru nú svo miklir, að i raun og
veru er allt i óvissu um fram-
haldið”.
Við vonum að (h)rós Aiþýðu-
blaðsins kalli á fleiri slik við-
brögð við starfi þeirra félaga,
þannig að Iceland Review stefni
ekki lengur út i óvissuna.
FIMM á fttrnum vegi
*
Hvað verður í jólamatirm hjá þér?
Haraldur Guðmundsson, nus-
gagnasmiður:Hjá mér er ýmist
lambahryggur eða beinlausir
fuglar á aðfangadagskvöld. I ár
verður hryggur.
Jón Jónsson: Haframjölsgraut-
ur og fiskur.
Guðrún Guðmundsdóttir,
verkakona: Steiktur hryggur er
fastur liður hjá mér á aðfanga-
dagskvöld. A jóladag hef ég
vanalega hangikjöt.
Kristin Arnadóttir, fyrrverandi
húsmóðir: Ég er nú mikið boðin
út á jólunum. ég er svo gömul.
En ég er búin að kaupa hangi-
kjöt. sem ég narta liklega i á
annan i jólum.
Kristján Danielsson, mat-
reiðslumaður: Matseðillinn hjá
minni fjölskyldu á aðfanga-
dagskvöld verður hamborgari
með smjörstykkjum og parisar-
kartöflum. rauðvinsósu og
blómkál, og væntanlega
spergilskál.