Alþýðublaðið - 08.01.1974, Síða 12

Alþýðublaðið - 08.01.1974, Síða 12
INNLÁNSVIÐSKIPT* LEIÐ É TIL LÁNSVIÐSKÍPTA BÚNAÐARBANKI J ÍSLANDS KOPAVOGS APÓTEK Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Sunnudaga milli kl. 1 og 3 Engar stórvægilegar breytingar verða á veðr- inu næsta sólarhringinn. SA-kaldinn breytist i sunnan kalda er líður á daginn og fylgja þvi skúrir með um það bil fjögurra stiga hita i Reykjavík. Hiti í gær var á láglendi 2—5 stig og virðist þvi verða heldur hlýrra. Enn verð- ur víðast hvar þýðviðri. KRILIÐ FRftV/KA Ho o u/ FUOL /A/rO Flj'úT/R. 'OfúS/ f P ÚERft fuótfR V£/T/R r/óA' (jHFOk ■WR l f UTI £rnrt)i ■=.»' 5? /<£/T)ST SRrtVft LTH&D £ÍN. 1 /£/r $/nk TUf/KU ■ nyjfí / ELV FJALL! RfWSfíR m ★ Kohoutek er komin „Ég er hræddur um, að hala- stjarnan verði mun daufari en gert var ráð fyrir”, sagði Þor- steinn Sæmundsson, stjörnu- fræðingur, þegar Alþýðublaðið innti hann frétta af Kohoutek, halastjörnunni, sem um þessar mundir er i sjónmáli frá tslandi. Þorsteinn sagðist sjálfur hafa hugað að henni á laugardags- kvöldið, en þá var hún svo dauf, að hún sást ekki nema með góð- um sjónauka. Kohoutek er þessa dagana lágt á suðvestur- horninu eftir að dimmt er orðið, frá Reykjavik séð, en eftir þvi sem liöur á mánuðinn fjarlægist hún sólu og sést þvi seinna á kvöldin með hverjum sólar- hringnum, en um leið verður hún daufari. Staðsetning halastjörnunnar i gærkvöldi var rétt fyrir ofan Venus, en sú stjarna er mjög skærá suðurhimninum, og örlit- ið til vinstri við hana sést önnur reikistjarna, Júpiter, og sagði Þorsteinn, að hugsanlega gætu menn ruglað þessum stjörnum saman. Kohoutek sagði Þorst., að megi þekkja á þvi, að hún sést sem óskýr, dreifður blettur með hala, sem snýr frá sólu, eða til vinstri. Stefna hala- stjörnunnar er einnig frá sólu, og fer halinn þvi á undan henni. Eins og fyrr segir geýsist stjarnan upp eftir himinhvolf- inu og i átt frá sólu, eða austur- eftir suðurhimninum héðan séð, og dofnar þar til hún sést ekki að lokum. — I gærkvöldi var ekki unnt að segja.til um það, hvort Kohoutek hefur eitthvað skýrst, þar eð skýjað var. Hámarkshraði Kohoutek er misjafn, eftir fjarlægð frá sólu, eins og er með aðrar halastjörn- ur, en hámarkshraði stjörnunn- ar, þegar hún er næst sólú, er llOkm á sekundu. Halastjörnur ganga á braut umhverfis sólu, og eru þær misjafnlega langar. Braut Kohoutek er mjög löng, og hefur fjarlægð hennar frá sólu mælst sem svarar 100 þús- und sinnum fjarlæð jarðar frá sólu, eða nánar tiltekið tveimur ljósárum. Aðrar halastjörnur eru nær sólu og ganga eftir styttri braut. Þannig er með stjörnur eins og Halley, sem sást siðast árið 1910, en sést væntanlega næst árið 1986, og er hún um leið næsta halastjarnan, sem sést á jörðu á eftir Kohoutek. á suðvesturhimininn > < I Myndin sýnir sporbaug jarðarinnar um sólu og ferðlag halastjörnunnar frá 1. desember 1973 til 1. mars 1974. Eftir mynd- inni virðist jarðnánd halastjörnunnar vera mest nálægt lokum janúarmánaðar, eins og lesa má úr útreikningi á ferðaáætlun hennar. Hinn 7. mars 1973 sá þýski stjörnu- fræðingurinn Lobos Khoutek, sem býr í Hamborg, þennan flæking á stjörnu- himninum, sem sið- an var heitinn eftir honum. Snorri Helgason, póstamaður: Hún hefur nú ekki vakið áhuga minn ennþá, svo ég hef ekkert verið að horfa upp i loftið. En kannski vaknar áhuginn, ef ég rek augun i hana. Róbert Arnfinnsson, leikari: Mig langar nú til að sjá hana, en ég vona, að hún fari ekki að slá halanum i jörðina, eins og ein- hver spáði að hún muni gera. Það veitti þó ekki af þvi að hún dustaði halanum einhversstað- ar niður i kerfið eins og það er orðið. Steinunn óttarsdóttir, hús- freyja: Ég hefði gaman af þvi, og hef verið að hugsa um að reyna að sjá hana. En veistu hvar hún á að sjást. og hvenær hún sést? FIMM á fttrnum vegi ÆTLARÐU AÐ FYLGJAST MEÐ HALASTJÖRNUNNI KOHOUTEK? Ævar Jóhannesson ljósmvndari: Ég hugsa að mað- ur liti til lofts, ef veður verður sæmilegt. Annars hef ég engin tæki til að skoða hana, bara venjulegan kiki. Ég get þess- vegna ekki myndað hana, — til þess á ég ekki nægilega sterka aðdráttarlinsu. Björgúlfur Jensen, húsavið- gerðarmaður: Ég geri ráð fyrir,p að ég hafi öðrum hnöppum aði hneppa. Annars er nóg af is-l lenskum halastjörnum á stjórn- málasviðinu, sem vel má horfa á.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.