Alþýðublaðið - 14.05.1974, Side 3

Alþýðublaðið - 14.05.1974, Side 3
Allt í strand í ■■túrismanuinM Ferðamannaiðnaðurinn á Islandi hefur aldrei verið i annarri eins kreppu siðan hann varð til, og sem eitt dæmi má benda á að sl. ár komu hingað 22 skemmti- ferðaskip, með um 11 þúsund ferðamenn, en nú verða þau i mesta lagi sjö, liklega ekki nema sex, með um 3 þúsund farþega samtals, sagði Geir Zoega forstjóri ferðaskrifstofu Zoega, i viðtali við blaðið i gær. Skýringarnar, sem við fáum oftast, eru að hér sé of hátt verðlag á þjónustu og öðru, sagði Geir, og sumir bera við efnahagsvandræðum um allan heim i kjölfar oliukreppunnar. Þetta varð ljóst strax i vet- ur, og skrifaði ég þá Birni Jónssyni ráðherra bréf, þar sem ég benti honum á að illa kynni að fara fyrir þessum iðnaði, ef ekki yrðu gerðar einhverjar ráðstafanir til verndar honum, svo sem að taka upp sérstakt ferða- mannagengi, sem auðvelt væri að hafa eftirlit með, með notkun ferðatékka, og for- dæmi eru fyrir erlendis, sagði hann. Ég fékk neitun frá ráðherra, sagði Geir, og nú virðist ljóst að stigandi i komu erlendra ferðamanna hingað sé stöðn- uð, svo ekki séu nefndir enn verri möguleikar. Þá sagði Geir að þetta á- stand kynni að hafa verulega LISTAHATIÐ: „EKKERT POPP 11 Endanlega hefur verið ákveð- ið, að ekkert popp verður á Listahátið i Reykjavik 1974 og er heldur þungt hljóðið i okkar fremstu popptónlistarmönnum þess vegna. Ekki tókst að fá hingað til lands bresku hljóm- sveitina Emerson, Lake & Palmer eins og reynt var og frægt er orðið og hætt var al- gjörlega við að fá islenska tón- listarmenn til að sjá um flutning popptónlistar á Listahátið. Listahátiðarnefnd snéri sér til fjögurra ungra tónlistarmanna, sem leggja þessa tónlist fyrir sig og fór þess á leit við þá, að þeir semdu hver um sig hálf- tima verk, sem siðan yrðu flutt á hátiðinni. Þessir fjórir voru Jóhann G. Jóhannsson, Kari Sighvatsson, Gunnar Þórðarson og Askell Másson. Voru þeir, beðnir að skila áætlun. Þeir fjórir ræddu málin sin á milli og gerðu tillögur um fram- kvæmd og ílutning — einn vildi t.d. hafa með sér um 30 hljóð- færaleikara og tveir aðrir um 10. Tillögunum var þegar i stað hafnað á þeirri forsendu, að hætt væri við miklu tapi af þeim (áætlað ,,tap” af Listahátið ’74 er i kringum 10 milljónir króna). Heildarkostnaður við þennan hluta hátiðarinnar mátti ekki fara upp fyrir 700.000 krón- ur með öllum sköttum, gjöldum og launakostnaði en hljóðfæra- leikarar voru áætlaðir á tima- kaupi á æfingum og við flutning. Kostnaður við framkvæmd þessara hljómleika samkvæmt áætlun fjórmenninganna var um ein milljón króna. Þá mun og innan nefndarinn- ar hafa mikið verið rætt i djúpri alvöru hvort þessi tegund tón- listar ætti rétt á sér á Listahá- tið, þar sem vafi léki á, að um listgrein væri að ræða. — Þetta er alltaf sama sagan, sagði Gunnar Þórðarson þegar fréttamaður blaðsins hafði tal af honum i gær. — Ungir tón- listarmenn, sem ekki hafa gengið þennan viðurkennda tón- menntaveg, fá ekki tækifæri til að sýna hvað i þeim býr. Óskir alls þess fjölda, sem hefur á- huga á þessari tegund tónlistar, eru fyrir borð bornar. Annars er ekki við öðru að bú- ast, bætti Gunnar við, — þegar höfð er i huga sú menningar- pólitik, sem hér er rekin. Ég er sár yfir þessu, sagði Gunnar að lokum. — Þetta hefði orðið skemmtilegt. EN ÁMUNDI Þrátt fyrir að engin popptón- list verði á dagskrá Listahátiðar i Reykjavik 1974, fá Islenskir á- hugamenn um þá tónlistarteg- und sinn skammt. Dagana 11. og 12. júni heldur hér hljómleika breska hljómsveitin Procul llarum, sem kunn er að góðu einu meðal áhugafólks. Það er umboðsskrifstofa Amunda Amundasonar, sem fær Procul Harum hingað til lands og voru samningar þar að lútandi undirritaðir i London i gær. Hljómleikarnir verða i Há- skólabiói 11. og 12. júní, eins og áður segir, og hefjast kl. 23.30, fyrra kvöldið, og 19.00. — Mér þykir undarlegt að Listahátið geti ekki staðið undir einhverjum kostnaði við að uppfylla óskir alls þessa unga fólks, sagði Ámundi Ámundason i viðtali við frétta- mann blaðsins i gær. — Ég fæ ekki séð i hverju erfiðleikarnir æltu að liggja. Mér er skapi næst að halda, að erfiðleikarnir liggi i þeirri menningarpólitik, sem hinir ráðandi i þeim efnum reka. Breska hljómsveitin Procul Harum hefur verið meðal virt- ustu hljómsveita á þessu sviði allt frá árinu 1967, þegar þeir vöktu fyrst athygli fyrir lag sitt ,,A Whiter Shade of Pale”. Sið- an hefur hver breiðskifan rekið aðra og alltaf fengið feykilega góðar viðtökur lærðra og leikra. Sérstaka athygli hefur vakið plata, sem þeir fimmmenning- arnir gerðu i félagi við Sinfóniu- hljómsveit Edmontonborgar i Kanada. Þeir áhugamenn, sem blaðið hafði tal af i gær, voru á einu máli um, að koma þessarar hljómsveitar væri mikill hval- reki á fjörur tónlistarlifs borgarinnar. En dýrt er drottins orðið: miðinn mun að likindum kosta 1400 krónur. Milljón Nokkrir urðu milljónamæringar fyrir helgina, er dregið var i fimmta flokki happa- drættis Háskóla Islands, en alls voru 4000 vinn- ingar dregnir út að f jár- hæð 37,5 milljónir króna. Hæsti vinningurinn, fjórir milljón króna vinningar, kom á númer 10734. Tveir miðanna voru seldir hjá Frí- manni Frímannssyni, Hafnarhúsinu, einn i umboðinu í Vestmanna- eyjum og einn í Höfn i Hornaf irði. 500 þúsund króna vinningur kom á miða númer 54082, og voru allir þeir vinningar seid- ir á Akureyri. Bestu þakkir færum við öllum þeim sem auðsýndu okkur vinsemd og samúð við andlát og útför Svanbergs Magnússonar skipstjóra, Mjósundi 2, Hafnarfirði. Guðrún Sigfúsdóttir, Þórhildur Svanbergsdóttir, Unnur llelgadótlir, Gunnbjörn Svanbergsson, og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu við andlát og útför konu minnar og systur okkar Sigriðar Eiriksdóttur, Nóatúni 32. Sigurður Jónsson, Sólberg Eiriksson, Runóifur Eiriksson. Innilegustu þakkir færum við öllum fyrir vinarhug og samúð við andlát og útför INGÖLFS KRISTJANSSONAR, RITHÖFUNDAR, Drápuhlið 17. Hilda Hinriks, Unnur B. Ingólfsdóttir, Daniel Axelsson, Anna Þ. Ingólfsdóttir, Magnús Þ. Iiilmarsson og barnabörn. slæm áhrif i nokkur ár, jafnvel þótt einhver bót yrði ráðin á þvi fyrir næsta ferðamanna- timabil. Ferðaskrifstofa rikisins, tekur einnig á móti fjölda er- lendra ferðamanna hér, og rekur m.a. Edduhótelin. Skrif- stofan var rekin með gróða ár- in ’70, ’71 og ’72, en siðan hefur hún tapað, enda varð ferða- mannaaukningin sáralitil hingað sl. ár. Sigurður Magnússon, for- stjóri skrifstofunnar, sagði i viðtali við blaðið i gær, að greinilega væru færri bókanir nú en á sama tima i fyrra. Kæmi þar til almenn dýrtið i þeim löndum, sem fólk hefur aðallega heimsótt okkur frá. Oliukreppan hefði sin áhrif, og svo siðast en ekki sist verð- bólgan hér, sem væri meiri en annars staðar. Sagði hann að skrifstoían ætti nú i vök að verjast rekstrarlega og þrátt fyrir að hún hafi fengið 11,6 milljónir króna úr rikissjóði, utan fjár- laga, og fimm milljóna króna lán úr ferðamálasjóði, hefði skrifstofan ekki fengið það fé, sem hann teldi nauðsynlegt til að halda rekstri hennar áfram eðlilega.— SHITT GAMAN MD Með stolið ávisana- hefti upp á vasann, hóf þjófur einn mikið mun- aðarlif, sem reyndar stóð stutt. Hann braust inn i fiskverkunarstöð- ina Malir i Hafnarfirði um siðustu helgi og stal þaðan ávisanahefti. Hann hélt með það til Reykjavikur daginn eft- ir og tók sér þar hótel- herbergi, og var ekkert til sparað. Þá varð hann sér út um kvenmann og bilaleigubil, og var nú ferðinni heitið út á land i visitasiu. Kvenmaðurinn hafði nefnilega verið i sveit fyrir vestan þegar hún var barn, og langaði nú að heimsækja fólkið þar, enda hafði hún ekki komið þangað siðan hún var barn. Heimsóttu þau þar tvo bæi, en áður en lengra varð komist, skarst lögreglan i Stykkishólmi i leikinn, að ósk rannsóknarlög- reglunnar i Hafnarfirði, og handtók parið. Upphæðin af þeim á- visunum, sem þegar eru komnar inn eftir mann- inn, nemur nálægt 100 þúsundum króna, en liklega munu 16 til 18 á- visanir ókomnar enn. ÚTBOÐ Tilboð óskast i að leggja 5. áfanga dreifikerfis hitaveitu i Kópavogi. Útboðsgögn eru afhent i skrifstofu vorri, gegn 5000 króna skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 29. mal 1974, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 Volkswageneigendur Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — V'élarlok — Geymslulok á Volkswagen i allflestum litum. Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð. Reynið viðskiptin. Bílaspraulun (iarðars Sigmundssonar Skipholti 25. Simar 19099 og 20988. Laghentir menn óskasttilstarfa. Gluggasmiðjan, Siöumúla 20. Tilkynning frá Berklavörn, Vestmannaeyjum Ákveðið hefur verið að frestur til að sækja um styrk úr sjóði þeim er Norðurlöndin gáfu, framlengist til 1. júni 1974. Rétt til umsóknar hafa virkir félagar i Berkla- vörn, sem búsettir voru á Heimaey 23. janúar 1973. — Umsóknir sendist til Helgu ólafsdóttur, Illugagötu 75, Vestmannaeyj- um. Þriðjudagur 14. mai 1974. o

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.