Alþýðublaðið - 14.09.1974, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 14.09.1974, Blaðsíða 3
Eigandinn og skipstjórinn ætluðu að drepa hvor annan Færeyingar misstu vitið þegar þeir komust í vínið á Seyðisfirði og sigldu línuveiðaranum í strand Haldið þið nú bara kjafti, þrumuðu dauðadrukknir fær- eyskir sjómenn á björgunar- sveitarmenn frá Seyðisfirði, er björgunarsveitarmennirnir hugðust ræða við færeyingana, sem siglt höfðu bát sinum i strand skammt fyrir utan höfn- ina á Seyðisfirði. I fyrradag kom færeyskur linuveiðari inn til Seyðisfjarðar til að taka vatn og vistir til heimsiglingarinnar, en báturinn var þá orðinn fullhlaðinn. Strax og báturinn iá við bryggju. þustu allir skipverjar i land og beint i ,,rikið” á Seyðis- firði og keyptu sér þar birgðir. Urðu þeir brátt hyrir og lá þá ekkert á. Skipstjórinn og tveir hásetanna brugðu sér i bió, en hinir þrir fóru um borð, en einn þeirra er eigandi bátsins. Eitthvað fannst þeim kvik- myndin dragast á langinn, svo þeir leystu frá og hugðust sigla burt. Það tókst ekki betur til en svo að þeir sigldu bátnum i strand eftir svo sem eins kiló- metra siglingu. Enda þótt báturinn væri strandaður og fastur, létu þeir skrúfuna ganga fyrir fullu afli fram yfir miðnætti, og sinntu ekki tilmælum björgunarmanna úr landi að kúpla henni frá til a festa bátinn ekki meir, en flóð var. Ekki var talin ástæða til að gera neitt i málinu strax, þar sem gott veður var og báturinn i sendinni fjörunni, nema hvað skipstjórinn var leitaður uppi og fannst eftir miðnætti, þá mikið drukkinn. Hann og hásetarnir fengu inni á hótelinu um nóttina. t gær- morgun, þegar fjarað var frá bátnum, fóru björgunarmenn um borð, og sváfu þá mennirnir þrir föstum svefni og voru ekki vaktir. Nokkru siðar var svo farið með litinn bát út að þeim strandaða til að reyna að ná honum á flot. Þá höfðu mennirnir þrir náð að skjótast aftur i rikið og voru orðnir kóf- drukknir, og sömuleiðis hafði skipstjórinn og hásetarnir tveir farið beint aftur i „rikið” eftir að þeir vöknuðu á hótelinu, og voru einnig orðnir drukknir. Þegar svo skipstjórinn og bátseigandinn hittust i gær, ætluðu þeir hvor annan lifandi að drepa, og varð að flytja þá i járnum i fangageymslurnar, en hásetunum var komið fyrir á hótelinu til að sofa úr sér vimuna. Þegar blaðið hafði samband við Jóhann Grétar Einarsson, formann björgunarsveitarinnar á Seyðisfirði, sagði hann að ekki stæði til að hleypa þeim út fyrr en eftir lokun „rikisins”, og búið væri að ganga úr skugga um að ekkert vin væri um borð. í gærkvöldi stóð svo til að ná bátnum út með aðstoð stærri báta, sem væntanlegir voru úr róðri þá. — Báturinn er litið eða ekkert skemmdur, eftir þvi sem séð varð á fjörunni. — Könnun á áhuga hjúkrunarkvenna til framhaldsnáms Hjúkrunarkonur virðast hafa heldur takmarkaðan áhuga á framhaldsnámi i grein sinni, ef marka má niðurstöður kb'nnunar, sem Hjúkrunarfélag Islands hef- ur gert að beiðni menntamála- ráðuneytisins. Aðeins um 10% allra hjúkrunarkvenna tóku þátt i könnunni, eða 106 af 934, sem búist var við svari frá. Ekki var reiknað með svari frá islenskum h júkrunarkonum erlendis né heldur hjúkrunarkonum á eftir- launum, og auk þess eru 112 hjúkrunarkonur þegar i fram- haldsnámi. Meðal þeirra, sem svöruðu, er mestur áhugi fyrir framhalds- námi i heilsuvernd og geð- hjúkrun, eins og kemur fram i eftirfarandi töflu, sem tekin er úr áðurnefndu timariti: Námsgrein C*. I Heilsuvernd ................. 21 Kennsla ...................... 8 Gcðhjúkrun ................... 6 Stjómun ...................... 6 Barnahjúkrun ................. 4 Ljósmóðurfræði ............... 1 Svæfingar .................... 2 Gjörgæsla ................ Hjúkrun handlæknissjúklinga —— lyflæknissjúklinga . ---- aldraðra ........... Almenn endurhæfing......... óákveðnar um val......... 7 -3 1 co 52 12 21 17 9 6 4 10 10 2 12 6 6 2 2 10 6 16 7 5 19 Samtals 55 78 46 179 HORNIÐ Gjaldheimtan innheimtir heira en henni ber Maður hringdi i Hornið: Nú er ég alveg hættur að skilja i vinnubrögðum Gjald- heimtunnar. Fyrir nokkru var ég sjúklingur i rúmt ár og hafði þarafleiðandi takmarkaða peninga handa á milli og gat ekki staðið i fullum skilum við Gjaldheimtuna. Gerði hún sér þá litið fyrir og sendi menn upp á spitala til min til að gera lög- tak fyrir skuldinni, með vöxtum og dráttarvöxtum. Ekki varð þó af lögtakinu þá og hef ég greitt mina skatta að fullu siðan. Svo var það um mitt árið i ár, að ég kemst að þvi að ég er búinn að greiða 40 þúsund krónum of mikið til gjaldheimt- unnar, en viti menn, þegar ég fer að sækja það, þá er ekki minnst á vexti né vaxtavexti af þessum peningum minum, sem ég hef i rauninni lánað stofnun- inni i langan tima. Mér er þvi eðlilega spurn, hversvegna Gjaldheimtunni liðist að inn- heimta meira en henni ber, og liggja svo með þá peninga án vaxta þar til henni þóknast að greiða þá út, sæki menn þá sjálfir. Erfiðir stigar Gamall hjartas júklingur skrifar: Félagsmálastofnun Reykja- vikurborgar er sem kunnugt er til húsa i Vonarstræti 4, og er þessi þarfa stofnun heldur betur viggirt gegn okkur, sem þurfum af og til að leita til hennar. Til þess að ná sambandi við þá háu herra, sem þar ráða húsum, þarf maður að prila upp ein- hverja erfiðustu stiga, sem ég hef ennþá komist i kynni við, og er ég þó ekkert unglamb lengur, kominn nokkuð á áttræðisaldur- inn. Ég átti erindi á skrifstofur Félagsmálastofnunarinnar á dögunum, sem i sjálfu sér er ekki i frásögur færandi, en satt að segja er það engum öðrum en Guði almáttugum að þakka, að þetta varð ekki min siðasta ganga. Stigarnir upp á skrifstofur Félagsmálastofnunarinnar eru ekki boðlegir þvi fólki, sem helst á erindi þangað. Borgaryfir- völdin hljóta að geta gert sér grein fyrir þvi, að gamalt fólk, sem oft á erfitt með gang og aðrar hreyfingar og auk þess oft veilt fyrir hjarta o.s.frv., vevergrar sér við að leggja á sig þessa erfiðu stigagöngu. Varla ætlast þeir, sem borginni ráða, til þess, að stigarnir séu þeim örugg vörn gegn kvabbi okkar, sem erum orðnir þreyttir og lúnir”. r I minningu Fleksnes „Sjónvarpsáhorfandi” skrif- ar: „Þá er einni skrautfjöðrinni færra i hatti sjónvarpsins okkar og fáar eftir, — ef nokkur. Fleksnes hinn norski söng sitt siðasta á skjánum á miðviku- dagskvöldið, og fór þá á kostum.. Undanfarnar vikur hefur Fleksnes verið eina sjónvarps- efnið, sem fólk hefur beðið með nokkurri eftirvæntingu, og ég verð að segja fyrir mitt leyti, að ég ef reynt að stilla svo til, að ég gæti verið heima, þegar þessi þáttur hefur verið á dagskrá. En hvers vegar bar andlát Fleksnes á sjónvarpsskermin- um islenska svo skjótt að? Hafa ekki veriö gerðir fleiri þættir um þetta efni, — ef ekki þætti mér vænt um að fá að vita hvers vegna sýningum á honum hefur verið hætt (ég er nýbúinn að standa skil á iðgjaldinu minu til sjónvarpsins). Sé ekki um það að ræða að fá fleiri þætti með Fleksnes bið ég spenntur eftir að sjá þann, sem kemur i staðinn. Kannski hefur Fleksnes verið látinn vikja fyrir einhverju ennþá skemmtilegra. Hvað sem þvi liður hlakka ég til að sjá, hver kemur i hans stað, miðviku- dagskvöldið 25. september”. Kaupfélagið stendur sig illa í Norðurbæ „Kona i norðurbænum i Hafn- arfirði” hringdi i Hornið. „Ég get ekki lengur á mér setið að koma þvi á framfæri við Hornið, hvert ófremdarástand rikir hér i hverfinu hvað snertir verslunarþjónustu. Hér er að- eins ein verslun, kaupfélagið, sem virðist hafa algjöra einka- aðstöðu til verslunaraðstöðu, og þjónustan er vægast sagt engin. Verslunin er i hálfkláruðu húsnæði i jarðhæð ibúðarblokk- ar, sem Kaupfélagið lét byggja, og þar er ekkert úrval af vörum. Hillurnar eru hálftómar, svo iðulega verður fólk að fara niður i Hafnarfjörð til að kaupa, sem ekki fæst þar, eða þá til Reykja- vikur. Auk þess er sóðaskapur á háu stigi þarna, — afgreiðslu- fólkið i óhreinum sloppum og annað eftir þvi. Þarna eru þrir peningakassar, en yfirleitt er ekki afgreitt nema við einn þeirra, og yfirleitt þarf fólk að biða langa stund eftir afgreiðslu af þeim sökum. Mjólk er yfir- leitt ekki komin i verslunina fyrr en milli tiu og ellefu, og þá er mjólkurgrindunum staflað upp á gólfinu, — það er ekki sett i kæli, sem þó er vist skylda. Það er margsinnis búið að kvarta við heilbrigðisyfirvöld og bæjaryfirvöld, en ekkert er gert til úrbóta, og það er engin leið eftir önnur en fá blöðin til liðsinnis. Ég veit að annar aðili sótti um verslunarleyfi i norðurbænum en fékk ekki. Það er Hraun- ver, og finnst mér mikill skaöi, að eigandi hennar skuli ekki hafa fengið að setja upp verslun hér. Hraunversverslunin, sem fyrirer i Hafnarfirði, er mjög til fyrirmyndar, bæði hvað snertir þjónustu og vöruúrval”. Lénharður fógeti: Raunhæf kostnaðar áætlun aldrei til Greidd yfirvinna vegna gerðar kvikmyndarinnar um Lénharð fó- geta nam alls hálfri sjöttu mill- jón, eða 5.458.000. Af þvi var um það bil ein milljón greidd fyrir að- keypta vinnu. Mest yfirvinnan fór fram á timabilinu frá 27. mai til 11. ágúst i ár og á þvi timabili fékk einn einstaklingur greiddar rúmar 300 þúsund krónur fyrir yfirvinnu. Þetta kom m.a. fram á fundi, sem útvarpsstjóri, Andrés Björnsson, efndi til með frétta- mönnum i gær, þar sem gerð var grein fyrir kostnaði við gerð þessarar umræddu kvikmyndar. Ásamt útvarpsstjóra voru og á fundinum þeir Gunnar Vagnsson, fjármálastjóri útvarpsins, og Magnús Bjarnfreðsson, ráðgjafi Rikisútvarpsins um áætlanagerð. — Það sem við vitum sannast, sagði útvarpsstjóri á fundinum, — er að heildarkostnaður myndarinnar verður 17.3 mill- jónir króna. Upphafleg áætlun, sem lögð var fyrir útvarpsráð i júni á siðasta ári, hljóðaði upp á 4 milljónir 545 þúsund krónur. Siðan fór allt úr böndum ýmissa^ hluta vegna, aðallega vegna mikilla hækkana á vinnu og efni, að sögn þre- menninganna. Kostnaður skiptist þannig: Lista— og skemmtideild: 1.1 milljón; laun leikara: 3.5 mill- jónir: leikmyndadeild: 5.8 mill- jónir; kvikmyndataka: 3.3 mill- jónir; klipping og hljóðsetning: 1.4 milljónir og „ýmis kostnaður”: 2.2 milljónir króna. Af þessu er svokallaður fastur kostnaður (dagvinnukaup starfs- fólks, tækjaleiga o.þ.h.) 4 mill- jónir sléttar, en útlagður kostnaður, sem i er reiknað kaup fyrir yfirvinnu og aðkeypta vinnu, laun leikara, leikstjóra, annarra listamanna, efniskaup öll, akstur og þess háttar 13.3 milljónir. — Þaðmá segja, sagði útvarps- stjóri, — að veiki punkturinn i okkar stofnun sé skortur á áætlanagerð. Ef til vill ætti fyrir löngu að hafa verið komið á stofn áætlanadeild, en við höfum samt sem áður sparað á þvi að hafa ekki slika deild. Nú hefur Magnús Bjarnfreðsson, sem gjörþekkir þessi mál orðið eins konar visir að slikri deild. þar sem hann er ráð- gjafi okkar um slika áætlanagerð. Það skal þó skýrt tekið fram, að Magnús á engan þátt i áætlana- gerðinni um þetta tiltekna verk. Breytingar á reglugerð Háskóiaráð samþykkti fyrir um það bil hálfum mánuði breytingu á reglugerð lækna- deildar Háskóla Islands, sem felur i sér, að nemendur, sem falla á prófum, gefst ekki kostur á að þreyta þau að nýju fyrr en i fyrsta lagi að ári liðnu. Guðlaugur Þorvaldsson, há- skólarektor, sagði i samtali við Alþýðublaðið i gær, að með reglugerðarbreytingunni séu möguleikarnir til áframhald- andi náms við deildina, eftir að nemendur hafa fallið á prófum, greinilega takmarkaðir. Hins vegar hafi allir háskólanem- endur rétt samkvæmt háskóla- lögunum á öðrum möguleika til próftöku, þó svo að þeir hafi ekki áður staðist próf. En sam- kvæmt breyttri reglugerð læknadeildar verði nemendur, sem ekki standast próf, að bíða i eitt ár til að geta haldið áfram, og myndi breytingin þannig valda verulegri seinkun i námi hjá þeim, sem hún kemur til með að snerta. 1 samtalinu við Alþýðu blaðið sagði Guðlaugur Þor- valdsson, háskólarektor, að ekki væri hægt að lita á reglu- gerðarbreytinguna sem tak- mörkun á inntökuskilyrðum i læknadeildina, þó að hún hafi takmarkandi áhrif. — RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður VÍFILSTAÐASPÍTALI: MEINATÆKNIR óskast til starfa nú þegar eða eftir samkomulagi. Upplýsingar veitir yfirlæknir, simi 42800. LANDSPÍTALINN: HJÚKRUNARKONUR óskast á hinar ýmsu deildir. Hlutavinna, svo og vinna einstaka vaktir, kem- ur til greina. Upplýsingar veitir forstöðukona. Simi 24160. GEÐDEILD BARNASPÍTALA HRINGSINS: AÐSTOÐARMAÐUR við meðferð barna óskast nú þegar. Upplýsing- ar hjá yfirhjúkrunarkonunni alla virka daga milli kl. 9 og 17. Reykjavik, 14. september, 1974. SKRIFSTOFA RÍKfSSPtTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 11765 Laugardagur 14. september 1974.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.