Alþýðublaðið - 27.03.1975, Blaðsíða 10
Kynlegasta samfélag heimsins
Getur þú gert þér í hugarlund
þjöðfélag nú á timum, þar sem
skatturinn er 4%, tollar og sölu-
skattur öþekkt fyrirbrigði, þar
sem ibúarnir borga 420 kr. fyrir
húsnæði, mat, ljós og hita á dag-
eða húsaleigan fyrir nýtisku
Ibúð (ef þú færð hana) er 5.600
kr. á mánuði með hita, ljósi og
vatni? Þar sem bensinlitrinn
kostaði 21 kr. 1974, þar sem sim-
inn kostar ekkert innanbæjar og
strætisvagnaferðir eru ókeypis.
Þjóðfélag þar sem einkafyrir-
tæki á húsin, gerir og heldur við
vegum og strætum, kostar og
rekur þjónustufyrirtæki —
sjúkrahús og skólar meðtalin-
og þar sem sama einkafyrirtæki
prentar sjálft peningaseðlana?
Geturðu ennfremur gert þér
þetta þjóðfélag i hugarlund sem
bæ með þúsund ibúum inni i
endalausri eyðimörk þar sem
villt hreindýr eru á beit milli
húsanna — þar sem feitur
moskusuxi gæti varnað ykkur
útgöngu með þvi að leggjast
fyrir framan útidyrnar og þú
yrðir að hringja i dráttavél til að
láta draga hann á brott, eða þar
sem unnt er að rekast á isbjörn
á gönguferð á götunum. Næst-
um ótakmarkaðir möguleikar
eru á veiðum og fiskveiðum fyr-
ir utan dyrnar og þó að náttúran
virðist kuldaleg er hún óvenju
fögur og tær?
Þannig bær er til. Og hann
erinnan landamæra Noregs.
Hann heitir Longyearbærinn og
er á Svalbarða, á 78 gr. 13’
norðl. og litlar 140 milur frá
Norðurpólnum.
Þetta hefur verið kallað kyn-
legasta þjóðfélag heimsins, og
það er ef til vill rétt, ef aðeins
hinn siðmenntaði heimur er tek-
inn með i reikninginn. Þetta
hefur verið kallaður nyrsti bær
heimsins, en það er ekki rétt.
Rússneski námubærinn Pira-
midinn er nokkrum kilómetrum
norðar og hefur nær þvi jafn-
marga ibúa.
Bandariskt námufélag
Longyearbærinn er frá árinu
1900 en þá var stofnað félag i
Þrándheimi, sem bar nafnið
Kolafélagið Þránd-
heimur-Spitsbergen og
tilgangurinn var aæ rannsaka
og notfæra sér kolalög á Sval-
barða. Sama ár var leiðangur
sendur norður eftir. Þeir grófu
upp töluvert af kolum og svæði
við Boheman-nesið og vestur-
strönd Adventfjarðar voru
numin.
Kolasýnin voru athuguð og
reyndust mjög góð. Næstu ár
sendi félagiðleiðangra á staðinn
og það voru grafin kol úr jörðu
og gerðar athuganir. Það kom I
ljós, að það voru mikil kolalög
við Adventfjörð, en tilraunir til
að útvega fjármagn til að reka
reksturinn i stórum stil mistók-
ust. Þá var ákveðið að reyna að
selja námurnar og eftir viðræð-
ur við mörg erlend félög fengu
Bandarikjamenn áhugann 1906.
The Arctic Coal Company með
aðsetur I Boston, Bandarikjun-
um var stofnað með Frderic
Ayer og John M. Longyear sem
aðalhluthafa.
Bandarikjamennirnir
stækkuðu námurnar og héldu
starfseminni áfram til 1915. A
þessum tima voru allmiklir
árekstrar og verkföll, og það
var meira að segja rætt um að
fá kinverska námumenn til
Svalbarða — til að fá „viðmæl-
andi” starfsfólk. Samt var
framleiðslan um 40-50 þúsund
tonn af kolum árlega.
1916 seldu Bandarikjamenn
námurnar hinu nýstofnaða
norska félagi Store Norske
Spitsbergen Kulkompani A/S,
en það félag tók við öllum hinum
miklu og verðmætu námum á
Spitsbergen. Kaupverðið var
980 milljónir og þar af voru 560
milljónir i mynd hlutabréfa i
nýja félaginu.
Margar aðrar þjóðir komu til
greina sem kaupendur og við
megum prisa okkur sæla fyrir,
að það voru Norðmenn, sem
fengu Svalbarða. Það er vafa-
samt, að Noregur hefði fengið
Svalbarða skv. Parisar-sátt-
málanum 1920, ef ensk, rúss-
nesk, þýsk eða sænsk félög
hefðu hreppt hnossið.
En þessi tiltölulega stutta
starfsemi Bandarikjamanna á
Svalbarða varð til þess, að
nyrsti bær i Noregi hlaut nafn
eftir þeim dugmeiri af banda-
risku námueigendunum.
öldungurinn Harald
Strand
Það reyndist ómögulegt að
hafa upp á nokkrum þeim, sem
unnu I kolanámunum á Sval-
barða og bjuggu i námubæjun-
umþar á frumbýlingsárunum
fyrir fyrri heimsstyrjöld, en
Harald Strand, 81 árs, frá
Rödöy var þar upp úr 1920.
Hann vann að visu ekki hjá
norska félaginu heldur hjá ensk-
rússneksafélaginu Anglo
Russian Grumant i námum
þeirra i Colesbukta. Hann man
ekki ártalið nákvæmlega, en
heldur að það hafi verið 1924 eða
1922. Eftir þvi sem hann best
man voru verkamennirnir um
1100 og það stemmir við tölur
félagsins frá 1924. 1923 unnu
nefnilega aðeins 20 manns við
námugröftinn og 1922 40 manns.
Harald Strand hefur lent I
þrælavinnu og mörgu drama-
tisku dagana við Ishafið. I
Colesbukta vann hann frá vor-
byrjun til hausts og það er auð-
séð, að hann man eftir þessu
sumri sem góðu og skemmti-
legu.
Griffjöðurin I þessu félagi og
yfirmaður verksins á Svalbarða
var Nachimson námuverk-
fræðingur. Hann var fæddur i
Latviu, en fékk verkfræði-
menntun sina i Þýskalandi.
Nokkrir norskir verkamenn og
þeirra á meðal Harald Strand
ferðuðust þangað á skipi
Nachimsons, skemmtisnekkju
þar sem allt glóði af lúxus og
fáguðum messing.
Aðstæður hjá verkamönnum
Anglo Russian Grumant voru
sennilega töluvert betri en hjá
verkamönnum Store Norske þá.
Harlad Strand fór I heimsókntil
Logyearbæjarins og hafði þvi
tækifæri til að gera samanburð.
1 Colesbukta voru bæði rúss-
neskir, skoskir og norskir
námuverkamenn. Það var —
eftir aðstæðum þeirra tima —
óvenju góð samvinna milli
stjórnar og verkamanna, segir
Harald Strand og hann hrósar
rússnesku verkamönnunum og
segir, að þeir hafi verið einstak-
lega góðir félagar. Rússarnir
voru I meirihluta við vinnuna.
Nachimson var óvenju góður
yfirmaður og hann talaði góða
norsku. Það var lika annað
áberandi við hann og það var,
að hann var svo feitlaginn, að
hann get ekki beygt sig til að
hnýta skóreimarnar sinar.
Þetta sumar fékk Harald Strand
það virðulega starf og þeim hef-
ur vist samið vel. Nachimson
vildi endilega fá Norðmanninn
með sér til Englands til að láta
hann læra á bil, svo að hann gæti
orðið einkabilstjóri hans og
hann varð fyrir miklum von-
brigðum, þegar Harald tók ekki
þessu góða tilboði hans.
Launin i námunum fóru eftir
afköstum. Þeir fengu 168 kr. á
tonnið og 2 tonn þóttu gott dags-
verk. Fæði, húsnæði, tóbak og
annað sem þeir þurftu til vinn
unnar var ókeypis og á hverjum
laugardegi fengu þeir 1/2 flösku
af áfengi á mann. Maturinn var
góður og yfirmenn og verka-
menn borðuðu i sama matsal.
Það var auðvelt að vinna i
námunni, þvi að kolalögin lágu
svo hátt, að þeir gátu gengið
uppréttir i göngunum. Það kom
heldur ekkert slys fyrir þann
tima, sem Harald Strand vann
þar. Flutningar frá námunum
voru með hestum. Siðan voru
kolin send með brattri renni-
braut um borð til að auðveldara
væri að flytja þau yfir á
flutningapramma, sem lágu
fyrir akkeri við ströndina. Þeg-
ar prammarnir fylltust voru
þeir dregnir að flutningaskip-
inu, sem lá fyrir akkeri úti á
firðinum. Þar var engin höfn þá.
Aðstæður hjá Anglo Russian
Grumant eins og Harald Strand
lýsir þeim er vist einn af
ljósgeislunum frá bernsku
námugraftar á Svalbarða, séð
frá sjónarhóli verkamannanna.
Frá öðrum námum höfum við
heyrt sögur um verkfræðinga og
verkstjóra, sem gengu með
hlaðna skammbyssu við hlið
sér, um brennivinsflóð og þræt-
ur, sem enduðu með blóðugum
slagsmálum.
En endirinn á sögu Harald
Strands segir samt ögn frá hin-
um „erfiðu dögum”. Hann segir
frá ungum Rússa, sem fór til
Noregs með sama báti og hann
eftir sumarið. Rússinn hafði
verið um veturinn og hann hafði
verið svo lengi við námugröft,
að hann hafði safnað saman 840
þúsund krónum —- sem var stór-
fé þá. I Tromsö hélt hann veislu
og eignaðist fljótt nýja félaga.
Morguninn eftir vaknaði
Rússinn auralaus.
Lifandi Alfræðiorðabók
Longyearbæjar
Einn af elstu ibúum á
Svalbarða heitir Torgny
Knutsen. Hann minnist þess,
þegar hann kom sem strákur til
Svalbarða 9. des. 1924. Hann
hefur búið þar siðan að tveimur
árum undanskildum og svo auð-
vitað striðsárunum. Hann er lif-
andi alfræðiorðabók Longyear-
bæjar og hann getur sagt frá
þróun hans og miklum breyting-
um á þessu timabili.
Faðir Torgny Knutsens var
frá Röros og hann var verk-
stjóri. Mamma hans var frá
Kongsberg. Þau ferðuðust
mikið um á námusvæðum i
Noregi og öll fjölskyldan var al-
in upp I þvi umhverfi. Systkinin
voru ellefu svo að eitthvað
þurfti til að útvega þeim öllum
fæði og skæði. Börnin urðu að
fara ung að vinna og Torgny var
ekki nema hálfs tólfta árs, þeg-
ar hann varð að skipta sér milli
skólans og vinnunnar. Hann var
VETRARVERTÍÐIN
Þorskanet
Japönsk „Clear" (hálfgirni) no. 210
d/15 — no. 210 d/12 — no. 210 d/9 7" — 7
1/2" möskvi.
Japönsk (girni) 6" — 7 1/4" möskvi —
nylon T — 700 þorskanet frá Formósu
no. 210 d/12 7 1/4" — 32 möskva.
Netahringir á þroska- og grásleppunef
Steina- og hringjahankar úr gerfiefni
og sísal.
Teinatóg á þorskanet. Færatóg.
Plastbelgir og baujur.
Bambusstangir og glögg
Viögeröarefni í loðnunætur.
Garn 210 d/12 — 210 d/15 210 d/18 — 210
d/21 — 210d/24 — 210 d/36 — 210 d/48 —
210 d/60.
Uppsettar lóðir og ábót.
. v fiska sem róa met
Þe,r ' veiðarfæn fra
Skagfjörð!
KRISTJÁN QSKAGFJÖRÐ HF
Hólmsgötu 4 - Reyk|avík - P.O. Box 906 - Sími 24120 - 24125
m
Fimmtudagur 27. marz 1975.