Alþýðublaðið - 27.03.1975, Page 11
I skóla á morgnana og vann svo i
matsalnum frá kl. 14 til 22. Hann
segir,aðþaðhafi nú verið svona
og svona með námið.
Hann var tvitugur, þegar hann
fór að vinna i námunni. Þá hafði
hann unnið i fjögur ár sem
kyndari og á skrifstofunni i eitt
ár. Nú er hann hættur sem
námuverkamaður og er hús-
vörður i félagsheimilinu — en
þar er einnig pósthúsið bióið og
bókasafnið. Skólinn hefur til
skamms tima verið þar lika til
húsa, en nú hafa Longyearbæ-
verjar fengið nýtt og nýytisku-
legt skólahús.
tbúarnir i Longyearbæ voru
um að bil 500, þegar Torgny
Knudsen kom þangaðog um það
bil 400 unnu i námunum. Þá
bjuggu lika fáeinar konur og
böm i bænum.
Knutsen segir, að það sé ekki
unnt að likja saman aðstæðum
þá og nú. Braggarnir voru lé-
legir og tveir til sex menn voru i
hverju herbergi. Það var ekki
hægt að baða sig nema um helg-
ar, — ef vatnið var þá nóg.
Annars urðu menn bara að nota
fat. Gallinn var hengdur út á
ganginn eftir vaktaskipti.
t gamla „amerfkanabraggan-
um” var kynnt upp með kolavél
og kolarykið var allsstaðar. Það
var ekki til neins að taka með
sér spariföt, þvi þau urðu fljótt
ónýt af skitnum.
Maturinn var þó verstur. Það
var erfitt að geyma matinn
lengi og engar birgðir komu um
vetrarmánuðina. Það var lika
ekki sama, hver sá um flutn-
ingana á matvælunum frá
Noregi. Kjötskrokkar voru oft
bundnir ofan á lestarhlerana og
þá gekk yfir þá sjór og regn svo
að það var ógeðslegt að sjá þá
Þá var heldur ekki unnt að hafa
ákveðið hitastig i búrinu og
kartöflurnar, sem komu upp
á haustin og áttu að endast allan
veturinn, frusu fljótlega. Það
var stundum spríttlykt af
kartöfluhaugunum, þegar þær
voru sóttar.
Þá var ástæða til að kvarta
yfir matnum, segir Torgny
Knutsen. — Það er það ekki
lengur.
Veturinn er bestur
Þrátt fyrir aðstæður sem að
mörgu leyti voru frumstæðar og
erfiðar sögðu bæði Torgny
Knutsen og aðrir gamlir Sval-
barðingar, aðlifið i gamla daga
hefði haft sinar góðu hliðar —
sem ekki séu fyrirhendi lengur.
Nú er það svo, að menn sjá
bemskuárin oft i rósrauðum
bjarma, en þó virðist þetta
virkilega hafa verið þannig.
öllum kom saman um, að
veturinn hafi verið bestur. Þetta
litla, einangraða samfélag varð
svo rólegt, þegar siðasta skip
var farið. Þá var ekkert sem hét
útvarp og sjónvarp og fólk varð
sjálft að sjá um skemmtanirn-
ar. Fólk hittist i fristundum,
þekktist og varð eins og ein stór
fjölskylda.
Það voru stofnuð mörg félög
og hópar og fólk var iöið viö að
finna eitthvað til afþreyingar.
Þama var hljómsveit, leikfélag,
iþróttafélag o.s.frv. Fyrir strið-
iö voru fimm knattspyrnufélög i
Longyearbænum, segir
Knutsen, en nú er erfitt að ná i
eitt lið og það þrátt fyrir, hvað
allt er auðveldara núna. Takið
eftir þvi, að einu Svalbarðs-
söngmennirnir, sem eitthvað er
varið i, eru frá þvf fyrir strið!
Fólk var félagslyndara og
samstæðara þá og hjálpsamara
lika — það sást á söfnunum eftir
slys t.d. Stundum var j)ó gengið
út I öfgar og niðst á fornarlund
Svalbarðinga, þvi að það komu
söfnunarlistar frá Noregi lika.
Það þekktu allir gjafmildina.
Hinir „gömlu, góðu dagar”
höfðu sina skuggahlið lika. Ein
af þeim var spilamennskan,
sem varð oft brjálæðisleg. Það
var spilaður póker upp á stórfé
og sumir unnu i námunum i 10-
11 ár og áttu ekki krónu eftir.
Allt fór i spilum.
Rauðbrúnar
fjallshliðar
Veldi Torgny Knutsens er
stóra, gula steinsteypta húsið.
Það stendur eitt sér nær mitt
milli hinna fjögurra bæjarhluta
Longyearbæjarins. Það er hlýr
ágústdagur og hið sérkennilega
heimskautalandslag minnir oft
menn á, að þeir eru ekki heima i
Noregi. Adventfjörðurinn
er himinblár og Hiorthfjöllin
gnæfa fyrir handan eins og
musteri. Það eru lika háir og
brattir „musterisveggir” um-
hverfis þröngan dalinn, sem
Longyearbærinn er í. Breið og
grýtt á rennur um flatan dals-
botninn og bæjarhlutarnir eru
tveir sitt hvoru megin dalsins.
Það er töluvert bil milli þeirra,
en vegurinn er góður og hér eru
ekki ófáir bilar.
Gamli bærinn er niður við
hafið og bryggjuna. Þar er
kirkja, prestsetur og sýslu-
mannsbústaður. Umhverfis
gamalt námuop i fjallinu fyrir
ofan er fjallshliðin rauðbrún.
Það er minning um námu-
sprenginguna miklu 3. janúar
1920, sem kostaði 26 menn lifið
og kveikti i námunni — sá eldur '
logaði 110 ár. Kirkjugarður með
mörgum hvitum trékrossum er
þögull vitnisburður um sorgar-
leikinn.
I
Sömu megin dalsins, en innar,
er Sverdrupbærinn nær opinu á
útgrafinni námu. Þéssi bær stóð
af sér hermdarverk striðsins
svo til óskemmdur. Sem betur
fer eöa þvi miður, eftir þvi sem
hver vill hafa það.
Beint á móti Sverdrupbæ hin-
um megin dalsins er Nýibær og
þar er m.a. eina verslun bæjar-
ins og stóri matsalurinn. Hátt i
fjaílshliðinni fyrir ofan eru
gömul námuop og rauðbrúnar
fjallshliðarnar umhverfis þau.
Þetta er minnismerki um heim-
sókn „herraþjóðarinnar” til
Svalbarðs 1943, en þá var kveikt
I námunum og mestur hluti
Longyearbæjar jafnaður við
jörðu með sprengjum frá
herskipinu „Tirpitz”.
Innar í dalnum er gráblár
isfláki, sem er einkennilega mó-
rauður við ræturnar. Þessi is-
breiða hefur hörfað allmikið frá
þvi, að Longyeárbæ var
byggður. Knutsen segir, að allir
skriðjöklar, sem hann viti um,
hafi hörfað. Og Thorgny Knut-
sen þekkir landið vel. Hann
viðurkennir, að það sé eins með
hann og flesta aðra, sem ilengst
hafa á Svalbarða, að náttúran,
veiðarnar og fiskveiðarnar hafi
heillað þá.
Noregur er heima!
Ung kona með tvö smábörn
kemur gangandi rólega eftir
veginum. Hún leiðir tvo ákafa
stráka við hönd sér.
— Konan min er heima i
Noregi, segir Knutsen.
- Heima i Noregi? Finnst þér
Svalbarði og Longyearbærinn
ekki vera heimili þitt eftir að
hafa búið svona lengi hérna?
Finnst þér ekki þú næstum hafa
Noreg hér?
Honum bregður við spurning-
una.
Nei, Noregur er nú alltaf
föðurlandið, segir hann loks.
— Gæti ekki ný kynslóð, sem
fæðist og elst upp hér, litið á
Svalbarða sem föðurland sitt og
sem hluta Noregs?
— Nei, svarar hann. — Nei„
ég held ekki.
Þó er það vist, að settust
Torgny Knutsen og kona hans
að i Noregi fyrir fullt og allt,
myndi hugurinn oft hvarfla til
norðurs — heim til
Longyearbæjar og Svalbarða.
Þyrla flýgur yfir bæinn og býr
sig til lendingar og út á Hotell-
nesinu heyrist dynur frá stærri
vélum, sem vinna við gerð flug-
vallarins.
Nútiminn er á leið til norðurs-
ins.
Gamlir Svalbarðingar biða
hans I eftirvæntingu. — Eftir-
væntingu, sem er óttablandin
hjá mörgum.
En stóri hreinninn, sem er á
beit við ána milli húsanna hefur'
engar áhyggjur af morgundeg-
inum.
Kynlegasta þjóðfélag heimsins.
Við bjóðum yður nytsamar vörur til
FERMiNGARGJAFA:
Skatthol, snyrtikommóður, kommóður
í ýmsum stærðum, skrifborð, svefn-
bekkir, stakir stólar í mörgum
gerðum o. fl. o. fl.
VERZLIÐ AAEÐAN VERÐIÐ ER LÁGT
Opið til kl. 7 á föstudögum — Lokað á laugardögum
Verzlið
þar sem
úrvalið er
mest og
kjörin bezt
28-600 Byggingavörukjöideild 28-602 Raftækjadeild
28-601 Húsgagnadeild 28-603 Teppadeild
Fimmtudagur 27. marz 1975.