Alþýðublaðið - 27.03.1975, Page 13
ÍÞKOTTIR
Um helgina fór fram bikar-
keppnin i sundi og voru þá sett tvö
Islandsmet og eitt jafnaB.
Það var Þórunn Alfreðsdóttir,
Ægi, sem setti íslandsmetin, i 800
metra skriðsundi fékk hún tim-
ann 10:03,3 min og i 400 metra
fjórsundi timann 5:40,1 min.
Þá jafnaði Vilborg Sverrisdótt-
ir, SH, Islandsmetið f 100 metra
skriðsundi 1:03,3 min. og var það
besta afrekið i kvennasundinu á
mótinu.
Besta afreki karla náði Guð-
mundur Ólafsson i 200 m bringu-
sundi, fékk timann 2:32,1 min. Þá
fékk Guðmundur einnig mjög
góðan tima i' 100 m bringusund-
inu, 1:09,5 min.
Það var sundfélagið Ægir sem
sigraði með nokkrum yfirburðum
ikeppninni, fékk 233stig. Armann
varð i 2. sæti með 150 stig og i
þriðja sæti varð HSK með 125, 5
stig.
Glíma
Landsflokkagliman fór fram 22.
mars i iþróttahúsi Kennarahá-
skólans. úrslit urðu þessi:
Yfirþyngd (yfir 84 kg)
1. Pétur Ingvason, Vikv. 3v
2. Guðmundur ólafss., Árm. 2+2v
3. Ingi Ingvason, HSÞ 2+lv
Milliþyngd (75 að 84kg)
1. Gunnar Ingvarss. Vikv. 2 1/2+1
2. Kristján Ingvason, HSÞ 2 l/2v
3. Pétur Sigurðsson, Árm. lv
Léttþyngd (undir 75 kg)
1. Guðmundur Halldórss.,
Árm 2+11/2 +1 v
2. Rögnvaldur Ólafss. KR 2+1
1/2+1
3. Halldór Konráðsson, Vikv. 2v
Unglingaflokkur
1. Eyþór Pétursson, HSÞ. 51/2v
2. Haukur Valtýsson, HSÞ. 4 l/2v
3. Hjörleifur Sigurðsson, HSÞ. 4v
Drengjaflokkur.
1. Auðunn Gunnarsson, UIA. 2v
2. Marinó Marinósson, UIA. 1
3. Kári Þorgrimsson, HSÞ Ov.
Sveinaflokkur.
1. Helgi Bjarnason, KR. 2v
2. Skúli Birgisson, UtA. lv
3. Þorvaldur Ingason, KR. Ov
Judo
Á sunnudaginn fór fram ts-
landsmeistaramótið i Júdó og var
keppnin oft hörð og spennandi,
sérstaklega var viðureign þeirra
Sigurjóns Kristjánssonar og Við-
ars Guðjohnsen i millivigt tvísýn.
Keppt var i 5 flokkum karla og 2
flokkum kvenna og urðu úrslit
mótsins þessi:
Þungavigt:
1. Svavar Karlsen, JR.
Léttþungavigt:
1. Benedikt Pálsson, JR.
Millivigt:
1. Sigurjón Kristjánsson, JR.
Léttmillivigt:
1. Halldór Guðbj.&,'nsson, JR.
Léttvigt:
1. Jóhannes Haraldsson, UMFG.
KONUR
Þyngri flokkur:
1. Sigurveig Pétursdóttir, Á.
Léttari flokkur:
1. Ólafia Jensdóttir, UMFG.
í Iok handknattleíksvertíðar
Stefán Gunnarsson fékk loksins náð I landsliðinu i leikjunum
gegn Dönum og var einn besti maður liðsins. Hann var i hópnum
1972 og 1974 og myndaði þann kjarna.
Þá er handknattleikskeppnis-
timabilinu þvi sem næst lokið og
á nú aðeins eftir að ljúka bikar-
keppni HSt.
1. deildarkeppnin i ár var
mjög spennandi og ekki séð fyrr
en I lokin hvaða lið færi með sig-
ur af hólmi. Flestir spáðu að FH
og Valur myndu bera sigur úr
býtum, en öllum á óvart voru
það Víkingar sem sigruðu að
lokum. Þeir höfðu þó sjaldnast
forystuna, heldur fylgdu efstu
liðunum eins og skugginn allt
mótið en I lokin kom góður
endasprettur sem hin liðin réðu
ekki við.
Ekki var neinn glæsibragur
yfir leik liðanna i þessu móti og
kom slök frammistaða FH
mörgum á óvart. Þeir tóku þátt
i Evrópukeppninni og stóðu sig
þar með miklum ágætum og
hefur þátttaka þeirra þar ör-
ugglega dregið nokkuð úr ár-
angri liðsins i tslandsmótinu.
Valsmenn byrjuðu mjög illa i
mótinu, en tóku svo mikinn kipp
eða þar til i lokin að liðið tapaði
mikilvægustu lcikjunum.
Árangur Fram var ekki meiri
en búist var við, eftir að Axels
naut ekki lengur við i liðinu
bjóst enginn við að það yrði
meðal hinna stóru. En öllum á
óvart stóð liðið sig með prýði
framanaf, eða þar til Björgvin
Björgvinsson hætti að leika með
þvi. Eftir það gekk ekki eins vel,
en góð byrjun i mótinu tryggði
samt 4. sætið.
Lið Hauka virtist framanaf
ætla að blanda sér i toppbarátt-
una, en i lokin átti liðið afar
slaka leiki sem bundu enda á
allar slikar vonir.
Armannsliðið kom ef til vill
mest á óvart, ef frá er talið lið
isiandsmeistaranna. Liðið vann
góða sigra á öllum liðunum og
var það fyrst og fremst góður
varnarleikur samfara góðri
markvörslu að þakka, hversu
góðum árangri liðið náði.
Grótta, nýliðarnir í 1. deild
komu lika talsvert á óvart með
þvi að halda sæti sinu i deild-
inni. Liðið byrjaði nokkuð vel I
mótinu og munaði oft litlu að
stóru félögin fengju skell. En
reynsluleysi og litil breidd hjá
leikmönnum kom þá i vcg fyrir
að liðinu tækist að láta kné
fylgja kviði. En i mikilvægustu
leikjunum tókst liðinu að sigra
og það gerði gæfumuninn.
Fæstir hefðu trúað þvi i upp-
hafi keppnistimabilsins að það
ætti eftir að verða hlutskipti ÍR-
inga að leika i 2. deild á næsta
keppnistimabili. i fyrstu leikj-
unum voru ÍR-ingar eins og
leikmenn Gróttu stundum ó-
heppnir og vantaði þá herslu-
muninn hjá þeim.
En þegar lfða tók á mótið virt-
ist vcra hálfgerð sundrung inn-
an liðsins og slikt er ekki væn-
legt til árangurs i flokkaíþrótt-
um og gerði það útslagið hjá lið-
inu öðru fremur.
Allir eru sammála að lið Vlk-
ings hafi borið mestan heildar-
svipinn af öllum liðunum. Liðið
var mjög vel samæft, hvort
heldur var i sókn eða vörn og
samvinna leikmanna til fyrir-
myndar. Hjá Víkingum sást
nokkuð sem er afar sjaldgæft
hjá islenskum handknattleiks-
liðum, en það voru hraðaupp-
hlaup.
Voru þau oft mjög vel útfærð
hjá liðinu sem skoraði mörg
mörk úr þeim.
Þá er vert að minnast á lands-
liðið og framtið þess. Það er
enginn vafi á þvi að núverandi
stjórn HSÍ er mjög dugleg og ef
til vill sú duglegasta sem setið
liefur.
Hún hefur nú i nokkurn tima
verið að leita fyrir sér að er-
lendum þjálfara og hefur mark-
mið hennar verið að fá tékk-
neska þjálfarann Marez hingað.
En fram að þessu hafa þær til-
raunir ekki borið þann árangur
sem i upphafi var reiknað með.
Er nú svo komið að við erum á
siðasta snúning með að undir-
búa lið okkar fyrir undankeppni
Oly mpiuleikanna sem fara
fram á næsta ári i Kanada.
Núna verður stjórn HSÍ að
gera eitthvað róttækt og hefja
leit að öörum þjálfara þegar i
stað ef ekki á illa að fara.
Vert er að minnast á það spor
sem stjórn HSÍ ætlar að stiga i
undirbúningi landsliðsins, en
það eru launagreiðslur til leik-
manna. Um það framtak er
ekkert nema gott að segja, enda
óliklegt að við náum mikið
lengra við þær aðstæður sem
landsliðið býr nú við.
Á næsta vetri verðum við að
sniða handknattleiksmótin hjá
okkur eftir þeim landsleikjum
sem landsliðið mun koma til
með að leika, en ekki öfugt eins
og nú tíðkast. Þetta er vissulega
erfitt i vöfum, vegna húsnæðis-
skortsins sem liáir okkur svo
mjög en það skref sem stjórn
HSI ætlar að stiga verður að
fylgja eftir.
Aðrar þjóðir sem taka þátt i
undankeppninni fyrir ólympiu-
leikana hika ckki við að breyta
keppnisfyrirkomulaginu hjá sér
vegna landsliðsins og spara
ekkert til að gera landslið sin
sem best úr garði.
Þá er vert að geta um þjálfun
og val á landsliði okkar i vetur. I
upphafi var sagt að Birgir
Björnsson yrði aðeins með
landsliðið til bráðabirgða, eða
þar til erlendur þjálfari fengist.
Það dröst þó á langinn og hefur
Birgir stjornað liðinu I allan
jvetur.
Starf Birgis hefur verið erfitt,
þvi er ekki að neita og hefur
hann ekki haft mikinn tima til
æfinga með liðiö.
Samt verður ekki komist hjá
þvi að deila á hann um valið á
landsliðinu. Birgir hefur verið
með allskonar tilraunastarf-
semi á liðinu. Til hvers?
Ekki var það og er hlutverk
Birgis að undirbúa liðið fyrir
væntanleg átök vegna þátttöku
okkar i ólympiuleikunum. Þvi
bar honum að tefla fram okkar
sterkasta liði hverju sinni, en
ekki standa i allskonar tilraun-
um eins og raun hefur orðið á.
Við eigum mjög góðan lands-
liðskjarna sem var uppistaðan i
liðinu sem tók þátt i ólympiu-
leikunum 1972 og HM 1974. Allir
þeir sem voru i landsliðinu i
þessum keppnum eru á besta
aldri og okkar sterkustu hand-
knattleiksmenn i dag. Að visu
falla alltaf einhverjir úr, en
kjarninn úr þessum liðum er
fyrir hendi og hann átti Birgir
að nota og byggja siðan landslið
upp frá honum.
En nú er það framtiðin sem
skiptir máli og hefur tækninefnd
HSt þegar hafið mikinn undir-
búning á uppfræðslu i hand-
knattleik og er þar byrjað á
réttum enda, það er þeim
yngstu. Hefur þegar verið gefin
út kennslubók i þjálfun mark-
varða, en það hefur verið okkar
aðalhöfuðverkur I gegnum árin,
slök markvarsla.
Ýmislegt fleira er þar á döf-
inni og má þar nefna handknatt-
leiksskóla sem verður starf-
ræktur á Laugarvatni í sumar
og er ætlaöur afreksfólki meðal
þeirra yngri.
Takist þessi áform HSÍ sem á
prjónunum eru þurfum við engu
að kviða i framtiðinni i viðskipt-
um okkar við aðrar þjóðir i
handknattleik.
Búast má svo við að næsta
keppnistimabil geti orðið hið
skemmtilgasta, þvi nú má
reikna með að félögin muni
leggja meiri áherslu á sumar-
æfingar en gert hefur verið til
þessa og ættu þvi handknatt-
leiksmenn okkar að verða betur
þjálfaðir á næsta keppnistima-
bili, en verið hefur fram til
þessa.
—BB
Smá von hjá Luton
Strandamaðurinn sterki
er með ólíkindum sterkur
A þriðjudagskvöldið léku Leeds
og Ipswich sinn þriðja leik i ensku
bikarkeppninni og var þá leikið á
heimavelli Leicester, Filbert
Street.
Lauk leiknum með jafntefli 0-0,
eftir framlengdan leik og hafa þá
félögin leikið i 330 minútur i
keppninni.
Á þriðjudaginn reyna svo liðin
með sér aftur á sama velli, en sig-
urvegarinn i þeim leik mætir svo
West Ham i undanúrslitum.
En úrslit i leikjunum á þriðju-
daginn urðu þessi:
Bikarkeppnin:
Ipswich — Leeds 0-0
1. deild.
Birmingham —Carlisle 1-0
Liverpool — Newcastle 4-0
Luton — Arsenal 2-0
2. deild.
Notts Conty —Notth. For. 2-2
Sunderland — Oldham 2-2
Þar með fóru siðustu vonir Car-
lisle um að halda sæti sinu i 1.
deild og getur ekkert bjargað lið-
inu úr þessu.
Aftur á móti öðlaðist Luton smá'
von með góðum sigri á Arsenal og
er liðið nú með 26 stig. Carlisle er
á botninum með 21 stig og þá
kemur Tottenham með 24 stig.
Það var fyrrum leikmaður
Man. Utd. Jym Ryan sem kom
Luton á bragðið með marki úr
viti, en áður hafði Rimmer i
marki Arsenal sýnt frábæran
leik.
En leikmenn Luton áttu leikinn
ogengum kom á óvart þegar ann-
ar tviburinn i liði Lu^on Ron
Futcher bætti öðru markinu við.
Á Anfield vann Liverpool
öruggansigur á Newcastle og lék
liðið sinn besta leik á keppnis-
timabilinu. Það voru Keegan og
Cormack sem skoruðu i fyrri
hálfleik, Toshack bætti við þriðja
markinu og engum kom á óvart
þegar McDermott skoraði fjórða
mark Liverpool
A föstudagskvöldið fór fram
seinni hlut i: Meistaramóts ís-
lands i lyftingum og var þá keppt
i þyngri þyngdarflokkunum.
Eins og við var búist var Hreinn
Halldórsson, Strandamaðurinn
sterki, maður mótsins og eru
kraftar hans með ólikindum,
enda bætti hann Islandsmetið i
yfirþungavigt um 85 kg.
Þá voru þeir óskar Sigurpáls-
son og Guðmundur Sigurðsson
ekki langt frá þvi að setja met i
sinum þyngdarflokki.
Crslitin á mótinu urðu þessi:
Yfirþungavigt:
Hreinn Halldórsson., USS, 325
(150-175)
Þungavigt:
Óskar Sigurpálsson, Á, 320 (130-
190)
Milliþungavigt:
Guðmundur Sigurðsson, A, 320
(140-180)
Léttþungavigt:
Árni Þ. Helgason, KR, 245 (105-
140)
A þriðjudagskvöldið tryggði lið
IS sér Islandsmeistaratitilinn i
blaki, þegarliðið sigraði Þrótt 3-0
i Laugardalshöllinni.
Vikingar urðu i 2. sæti, en
Þróttarar i þriðja sæti i keppn-
inni.
Fimmtudagur 27. marz 1975.