Alþýðublaðið - 02.04.1975, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 02.04.1975, Qupperneq 4
í hreinskilni sagt eftir Odd A. Sigurjónsson Áfangi Samkomulagið milli samn- inganefnda verkalýðsfélaganna og vinnuveitenda nú fyrir páska, markar væntanlega þáttaskil. Enda þótt, þegar þetta er ritað, hafi það enn ekki verið fullgilt af aðilum, ber að vona að svo fari þegar timi vinnst, þótt hefði mátt vera hag- stæðara. Enda þó samningar við sjó- menn, hluta af verzlunarmönn- um og opinbera starfsmenn séu enn eftir, mun reyndin sU, að þegar rakna tekur Ur samninga- hnUtnum á einum stað i kerfinu, verður framhaldið nokkru auð- veldara. Hér skal engu um það spáð, hversu langan tima tekur að ná samningum um það, sem eftir er, aðeins látin i ljós von um að það dragist ekki lengi og vinnufriður verði niðurstaðan. Þvi er ekki að neita, að tals- vert annar svipur hvilir yfir ný- gerðum samningum en oftast áður. Hér virðist freistað að fara inn á nýjar brautir i ákvörðun kaup- og kjaramála, sem auðvitað er óséð enn sem komið er hvernig gefast. Að þessu sinni hafa kjör lág- launafólks notið meiri virktar en oft áður. Reyndar má óhætt fullyrða, að vegna taumlauss dýrtiðarflóðs og visitölubind- ingar, hafi nU þegar miklu stærri hluta launamanna verið þrýst niður á láglaunastig, en oftast áður. Niðurstaða samn- inganna hefur þvi orðið nokkur launajöfnun. Um launajöfnun hefur oft ver- ið deilt og þar sýnist oftast sitt hverjum. Skal það ekki rakið hér frekar. Hitt liggur á ljósu, að þegar að kreppir, verður að teljast fullkomið sanngirnismál, að rétta þannig hlut þeirra, sem lakast eru settir um kaup og kjör, að þeireigi kost á að hafa sómasamlegt framfæri af vinnu sinni. Ekki verður hjá þvi komizt að lita nokkuð á þátt rikisstjórnar- innar i þessum samningagerð- um. Rétt mun það vera, að fyrirheit forsætisráðherra um að notaðar verði heimildir um tolla- og skattalækkanir, sem felast i feitifrumvarpinu fræga, hafi endanlega greitt fyrir þvi samkomulagi, sem gert var. Auðvitað var engum skyldara en rikisstjórninni, sem nú um skeið, já frá þvi hún settist á stólana, hefur þrengt kosti launafólks einhliða. En ef litið er á þann feril og jöfnum höndum athuguð „rök- in”, sem hún hefur fram tint fyrir gerðum sinum, er engu lik- ara en horft sé ofan i furðuskrin. Annarsvegar hefur verið viður- kennt, að verðbólgan, sem geis- að hefur hér sem eyðandi eldur, væri þjóðarvoði. Á sama tima lét stjórnin samþykkja fyrir jól- in fjárlög, sem allir heilvita menn máttu sjá, að yrðu um- fram allt olia i verðbólgueldinn. Þótt gjaldeyrissjóður okkar væri á hraðri leið að tæmast, hélt stjórnin að sér höndum unz hann var kominn langt niður fyrir núll. Siðan er lifað á bón- björgum að þessu leyti, hversu lengi sem það nú lukkast. Af- sakanir stjórnarinnar fyrir hinni fádæma ógætilegu fjár- lagaafgreiðslu voru helztar, að fólkið vildi hafa þetta svona! Já, beinlinis krefðist þess! Hvaða fólk? Okkur var sagt fyr- ir jólin, að fjárlögin gætu, sko ekki lægri verið. Mundi það svo ekki koma eins og þruma úr heiðskiru lofti, að nú, eftir eina þrjá mánuði, skuli allt i einu vera fært, að draga saman seglin um 3,5 milljarða? Allt ber þetta að sama brunni, sýnir vingulshátt, sem mest minnir á höfuðsóttarkindur. Hér hefur áður verið bent á nokkur einstök atriði i frum- varpi stjórnarinnar, sem á ,,að treysta undirstöðu atvinnu og lifskjara” m.m. Til frekari á- réttingar þvi, sem þar var sagt, má benda á skyldusparnaðinn fyrirhugaða. Trúlegt er, að inn- heimtu hans fylgi talsverð um- svif og ærinn kostnaður, og ekki til ákafleg mikils að slægjast, ekki einu sinni að dómi höfunda. Háttalagið um sviptingu heimilanna á ráðstöfun barna- bóta er stórum alvarlegra mál. Þess verður að krefjast af Al- þingi, að það taki á sig rögg og geri sér rækilega grein fyrir þeim alvarlegu afleiðingum, sem slikar breytingar hlytu að hafa á ótalinn fjölda heimila i landinu. Það dugir ekki alltaf að fljóta sofandi að ósi, sizt undan straumi frá algerum ráðleys- ingjum. Stund milli stríða? IÐJA, félag Félagsfundur verður haldinn fimmtudag- inn 3. april kl. 5 e.h. i Iðnó. Fundarefni; samningarnir Stjórn Iðju Vantar 6 eða 8 konur eða karla Fiskvinnslustöð á Patreksfirði vantar 6 eða 8 konur eða karla, helst vant fisk- vinnu. Mikil vinna, fæði og húsnæði á staðnum. Upplýsingar i sima á Patreksfirði 94-1209 eða 1311 og eftir kl. 18 i sima 40885. t tJtför eiginmanns mins, föður okkar og afa BJARNA ÁSGEIRSSONAR frá ísafirði Norðurbrún 1 fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 2. aprll ki. 3 e.h. Unnur Guðmundsdóttir Ásgerður Bjarnadóttir, Þorsteinn Jakobsson og börn .Hjartkær móðir okkar Rannveig Bjarnadóttir Stólholti 26 andaðist að Hrafnistu, föstudaginn 28. mars. Jón R. Ásmundsson Björn R. Asmundsson, Reynir R. Ásmundsson Hilmar Sv. Ásmundsson, Sigurður S. Ásmundssson. VIPPU - BltSKÖRSHURÐIN Lagerstærðir miðað við múropí Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm 210 - x - 270 sm Aðrar stærðir. smíðaðar eítir beiðni. GLUGGASMIÐJAN Síðumúlo 12 - Sími 38220 SKIPAUTC.CRÐ RÍKISINS M/s Esja fer frá Reykjavik föstudag- inn 4. þ.m. vestur um land I hringferð. Vörumóttaka: þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag til Vestfjarða- hafna, Norðurfjarðar, Siglu- fjarðar, ólafsfjarðar, Akur- eyrar, Húsavikur, Raufar- hafnar, Þórshafnar, Bakka- fjarðar, Vopnafjarðar og Borgarfjarðar eystra. TRÚLOFUNARHRINGAR Fljót afgreiðsla. Sendum gegn póstkröfu GUÐM. ÞORSTEINáSON gullsmiður, Bankastr. 12 Barnabókavikan: Fyrirlestrar, bókasýn- ing, barnaskemmtun. Miðvikudag, 2. apríl kl. 20:30. Setning barnabókavikunnar. Opnunbókasýningar. Erik Skyum-Nielsen flytur erindi um H. C. Andersen og Sigurð- ur A. Magnússon les þýðingu sina á ævin- " týrinu Álfhól eftir Andersen. Fimmtudagur 3. april kl. 20:30 íslenzkt barnabókakvöld. Þrir islenzkir rithöfund- ar (Jenna Jensd., Vilborg Dagbjartsd., Guðrún Helgad.) segja frá afstöðu sinni til barnabókaritunar. Upplestur. Umræður. Föstudagur4. april kl. 20:30. Barnabækur og fjölmiðlar. Tordis Örjasæter frá Noregi flytur erindi. Umræður. Laugardagur 5. april kl. 16:00 Ole Lund Kirkegaard frá Danmörku flytur fyrir- lestur um bækur sinar. Sunnudagur 6. april kl. 14:00. Barna- skemmtun. Brúðuleikhús. Leikbrúðuland sýnir þættina Meistari Jakob gerist barn- fóstra. Meistari Jakob og pylsusalinn og J. J. og Djúpsystur syngja. Aðgangur kostar kr. 150, miðar seldir við innganginn. Dagskráin fer fram i fyrirlestrasal Nor- ræna hússins. Norræna húsið Félag bókasafnsfræðinga NORRÆNA HÚSIÐ Stúdíó GUÐMUNDAR Garðastræti 2 er flutt i ■ ■ ■ st5?£i„’ myndatökur í lit og svart/hvit. Litpassamyndir tilbúnar samstundis. Simi 20900. 0 Miðvikudagur 2. apríl 1975.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.