Alþýðublaðið - 05.04.1975, Blaðsíða 1
(H)ROS!
SJA BAKSIÐU
alþýðu
LAUGARDAGUR
5. apríl 1975 — 78. tbl. 56. árg.
ÖRYQGI FLUGVALLA
UNDIR SMASJANNI!
FÆSTAR BUDIR
MYNDU LQKA
„Verkfall það, sem við
höfum boðað til, frá og með
10. april, nær aðeins til
þeirra verslana og kaup-
manna sem eru i Félagi is-
lenskra stórkaupmanna,
Kaupmannasamtökunum
og Verslunarráðinu, en
eiga ekki aðild að Vinnu-
veitendasambandinu, og
það eru um 15—20% af okk-
ar félagsm önnum, sem
starfa hjá þeim aðilum,”
sagði Magnús L. Sveinsson,
formaður Verslunar-
mannafélags Reykjavikur,
i viðtali við Alþýðublaðið i
gær, en fyrsti samninga-
fundurinn milli þessara
deiluaðila var haldinn á
miðvikudag og þokaðist þá
ekkert i samkomulagsátt.
Kaupmenn fóru þá fram á
frest til dagsins i gær, en þá
var fundur boðaður klukk-
an 17.00. 1 millitiðinni ætl-
uðu kaupmenn að kanna
hvað rikisstjórnin gæti
fyrir þá gert og gengu full-
trúar þeirra á hennar fund
gærmorgun.
„Þetta fólk er allt lág-
launafólk, sem samkvæmt
samningunum við Vinnu-
veitendasambandið, Sam-
vinnufélögin og KRON, ætti
að fá láglaunabætur,”
sagði Magnús ennfremur,
„og ég trúi þvi ekki fyrr en
á reynir, að það eigi að
sitja eftirnú, i stað þess að
búa við sömu kjör og aðrir.
Eins og er hefur ekkert
þokað i áttina, en ég vona
að það gerist eitthvað á
Margir
árekstrar
lítil slys
Mjög mikið var um
árekstra og slys i Reykja-
vik i gær, en i flestum til-
vikum var um minnihátt-
ar óhöpp að ræða og slys á
mönnum óveruleg. Flest-
ir urðu árekstrarnir
stuttu eftir hádegi.
Þá var ekið aftan á
nýjan bil i Ananaustum
og hann stórskemmdur.
þeim fundum sem fram-
undan eru, þannig að ekki
þurfi að koma til verk-
falla.”
Nú stendur yfir ail vifttæk úttekt
á öryggismálum alira fiugvalla á
tslandi, og hefur flugmálastjóri,
Agnar Kofoed Hansen, umsjón með
þvi verki. Sagði fiugmálastjóri I
samtali við Alþýðublaðið i gær, að
hann vonaðist til að geta skilað áliti
i siðari hluta maimánaðar.
Flugmálastjóra var falið að gera
úttekt þessa fyrir um það bil mán-
uði, og hefur hann siðan haft sam-
vinnu við ýmsa aðila, sem koma
nærri flugmálum. Meðal þeirra er
flugöryggisnefnd flugmanna, og
sagði flugmálastjóri, að þeir hafi
þegar lagt margt mjög nytsamlegt
til málanna varðandi flugöryggi á
landinu. Þá sagði flugmálastjóri,
að m.a. verði höfð samráð við full-
trúa flugfélaganna um öruyggis-
mál, sem varðar starfsemi þeirra.
Að öllum likindum á eftir að
koma i ljós ýmislegt varðandi
öryggi á flugvöllum landsins, og
má i þvi sambandi nefna, að at-
vinnuflugmaður einn lét þau orð
falla við blaðamann Alþýðublaðs-
ins um Reykjavikurflugvöll, að
hann vari varla ílugvöllur, — m.a.
væru ýms tæki á vellinum oft biluð.
Aöflugstækin komu fyrir þremur árum
— hafa enn ekki verið tekin í notkun
Flugmenn á islensku
millilandavélunum er farið
að lengja æði mikið eftir að
settur verði upp lendingar-
búnaður við Keflavikur-
flugvöll, sem kom til lands-
ins á árunum 1971 og 1972,
en hefur enn ekki verið tek-
inn i notkun.
„Þarna er um að ræða
blindlendingarkerfi að-
flugshallaljós og aðflugs-
ljós, og við erum búnir að
biða lengi eftir þvi, að það
verði tekið i notkun,” sagði
Gunnlaugur P. Helgason
flugmaður og formaður
flugöryggisnefndar flug-
manna, þegar Alþýðublað-
ið ræddi við hann i gær.
„Það, að þessi tæki starfa
ekki gerir aðflug að vellin-
um erfiðara en það þyrfti
að vera, en þau eru flest við
þverbrautina, sem var
lengd,” sagði Gunnlaugur.
„Tafirnar eru af mörg-
um ástæðum,” sagði Leifur
Magnússon hjá flugörygg-
isþjónustunni, þegar Al-
þýðublaðið ræddi við hann.
,,Um blindlendingarkerfið
er það að segja, að það er
komið á sinn stað, en fram-
kvæmdirnar við brautar-
lenginguna töfðu það verk.
Sama er uppi á teningnum
hvað varðar aðflugsljósin,
þar hafa orðið afgreiðslu-
tafir, en Aðalverktakar
hafa séð um þá fram-
kvæmd á vegum hersins
og eftir því sem mér skilst
ætluðu þeir að ljúka við
uppsetningu ljósanna i
fyrra, en líklega verður
þeim lokið i þessum mán-
uði,” sagði Leifur Magnús-
son að lokum.
HÆTTUM VIÐ STUÐNINGI VIÐ KÚRDA
AF ÖnA VIÐ HEFND ARABARÍKJA?
„Hingað hafa komið
tvær sendinefndir frá
Kúrdum til þess að leita
eftir stuðningi Islendinga
við sinn málstað á vett-
vangi Sameinuðu þjóð-
anna. Siðari sendinefnd-
ina ræddi Einar Agústs-
son, þáverandi og núver-
andi utanrikisráðherra,
og var hann þeim ákaf-
lega hliðhollur og vin-
veittur i orði. Lofaði hann
þeim að leggja málið fyr-
ir rikisstjórnina, sem þá
var vinstri stjórnin
sáluga, en þegar Alls-
herjarþing Sameinuðu
þjóðanna var svo sett, þá
næst á eftir, minntist
hann ekki einu orði á
Kúrda i ræðu sinni,
hvernig sem á þvi stóð”,
sagði Erlendur Haralds-
son, sálfræðingur, i við-
tali við Alþýðublaðið i
gær, en hann er einn af
meðlimum Kúrda-
nefndarinnar svonefndu
og hefur dvalið nokkrum
sinnum meðal þessa
þjóðabrots, sem nú er
verið að ganga milli bols
og höfuðs á i Irak.
„Hvers vegna utan-
rikisráðherra gugnaði á
þvi að hefja máls á þessu
vandamál, þegar að Alls-
herjarþingi kom”, sagði
Erlendur ennfremur , „er
ekki gott að segja. Mér
segir þó svo hugur um, að
það hafi stafað af hræðslu
um að ef við tækjum upp
málstað Kúrda opin-
berlega, gæti það snúið
Aröbum gegn okkar mál-
stað á Hafréttarráðstefn-
unni. Við vorum ekki
bundin oliukaupum frá
þeim, og höfðum ekki
einu sinni stjórnmála-
samband við neitt rikja
þeirra nema Egyptaland
á þessum tima, svo að
þetta virðist eina senni-
lega skýringin.
Kúrda skipti það mjög
miklu máli, að fá okkur til
að hefja máls á vanda
sinum innan S.Þ.” sagði
Erlendur að lokum, „þar
sem þeir voru búnir að fá
loforð hjá nokkuð mörg-
um rikisstjórnum, um að
þær tækju vinsamlega
undir málstað þeirra, en
vantaði einhvern aðila,
sem þyrði að vekja fyrst
máls á þessu. Það voru
þvi mikil vonbrigði, eftir
fyrri undirtektir utan-
riksiráðherra, að hann
skyldi ekki minnast einu
orði á þá, þegar til kom.”
Alþýðublaðið hafði
samband við tvo af ráð-
herrum vinstri stjórnar-
innar, sem sat á þessum
tima, þá Magnús Kjarta-
son og Magnús Torfa
Ólafsson, til þess að graf-
ast fyrir um afgreiðslu
þessa máls hjá rikis-
stjórninni. Reynt var að
ná sambandi við aðra
ráöherra, þar á meðal
ráðherra Framsóknar-
flokksins, en það reyndist
ekki unnt. Magnús
Kjartansson minntist
þess ekki, að Kúrdar eða
þeirra málefni hefðu
nokkru sinni verið til um-
ræðu á rikisstjórnarfundi.
Orðrétt sagði Magnús:
„Ég minnist þess ekki að
utanrikisráðherra hafi
orðað þessi mál á rikis-
stjórnarfundi.”
Magnús Torfi svaraði
fyrirspurn blaðsins á
þennan veg: „Eg man
það, að sendinefnd Kúrda
átti vðræður með utan-
rikisráðherra, en hvort
þeirra mál voru rædd inn-
an stjórnarinnar, þori ég
ekki aðsegja um. Hitt veit
ég, að þar kom engin til-
laga fram til afgreiðslu
um þá eða þeirra málefni.