Alþýðublaðið - 05.04.1975, Síða 2

Alþýðublaðið - 05.04.1975, Síða 2
Gat á kerfinu Félagsleg og pólitisk barátta verkalýöshreyfingar- innar og lýðræðissinnaðra vinstri manna á tslandi hefur fyrst og fremst miðað að þvi að tryggja almenningi félags- legt, efnahagslegt og réttar- farslegt öryggi og jafnrétti. Það hefur veriö gert með ýmsu móti-. Samningsréttur verkalýðsfélaga hefur verið viöurkenndur svo og réttur þeirra til þess að standa vörð um hag félagsmanna sinna. Sjúkratryggingar, lifeyris- tryggingar, atvinnuleysis- tryggingar, slysatryggingar, orlofssjóðir o.fl. pólitiskar aðgerðir af svipuðum toga spunnar hafa veitt launþegum öryggi, sem áður var óþekkt, en er einn helsti hornsteinn velferðarþjóðfélags. Er þá ekki vel fyrir öllu og öllum séð? Vissulega eru þetta mikils- verð réttindi, sem mikill meginþorri landsmanna nýtur. En eru það allir þegnar þjóðfélagsins —allt launafólk, sem þessa öryggis nýtur? Hvað t.d. um þær hús- mæður, sem vinna í heima- húsum við fatasaum fyrir f a ta f ra m leiðe nd u r eða prjónaskap fyrir aðila, sem selja handprjónaðar flikur á innanlandsmarkaði eða til útflutnings? Hver semur um launakjör þessara kvenna? Eru þær i stéttarfélagi, sem fjallar um kjaramál þeirra með sama hætti og verkalýðs- félög fjalla um kjaramál félagsmanna sinna? Njóta þessar konur orlofsgreiöslna. eru þær slysatryggðar með sama hætti og aðrir launþegar viö störf sin, eiga þær rétt á atvinnuleysisbótum, hafa þær aðgang að sjúkrasjóöum stéttarfélaga, geta þær lagt Iram kaupkröfur og gert verk- föll ef svo ber undir? Spyr sá, sem ekki veit. E.t.v. fjalla félög iönverkafólks um kjara- mál þessara launþega. A.m.k. er eðlilegt, að svo væri. Mér er þó nær að halda, að svo sé ekki — að þjóðfélagið líti ekki á þennan vinnukraft sömu augum og á annað vinnuafl i landinu. A.m.k. virðist mér af þvi litla, sem sagt hefur verið um launamál þessara kvenna i blaða- fréttum, að kjör þeirra séu langt fyrir neðan það, sem þekkist annars staðar i þjóð- félaginu — og að þær njóti mjög takmarkaðra félags- legra réttinda samanboriö við annað starfandi fólk. Sé þetta rétt, þá er hér gloppa I kcrfinu — gat i velferðarnetinu, sem verður að loka. Mig minnir, að fyrir nokkrum árum hafi eitthvað verið rætt um kjaramál og félagsleg réttindi þessara heima vinnandi iðnverka- kvenna. Ég man ekki, þvi miður, hver varð niðurstaðan af þeim umræðum — ef hún var þá nokkur. En fróðlegt væri að fá það upplýst. SB BORGARRAD VILL EKKIFELLA NIDIIR FASTEIGNAGJÖLD GAMLA FÖLKSINS STAUR- INN FÉLL! Laust eftir hádegi í gær varð umferöaróhapp á Hverfisgöt- unni, rétt neðan við Klappar- stiginn. J>ar var ameriskri fólksbif- reið ekið á Ijósastaur með þeim afleiðingum að staurinn brotnaði um miðju og féll á gangstéttina, en sá ameriski stóð upp á endann á þeim hluta staursins, sem eftir varð. Sem betur fer var enginn á ferli á gangstéttinni, þar sem staurinn féll, en hinsvegar mun bifreiðastjórinn hafa skorist illa i andliti. Eins og Alþýðublaðið hefur áð- ur skýrt frá flutti Björgvin Guð- mundsson, borgarfulltrúi Alþýðu- flokksins, tillögu i borgarstjórn þess efnis, að ekki yrðu lögð fasteignagjöld á aldraða og öryrkja i Reykjavik. Tillögunni var visað til borgarráðs og þar var hún til meðferðar s.l. þriðju- dag. Á fundi borgarráðs gerði for- maður framtalsnefndar, Björn Þórhallsson, grein fyrir þeim reglum, sem framtalsnefnd hefur fylgt við lækkun á fasteignagjöld- um aldraðra. Lagði hann til, að áfram yrði fylgt sömu reglum. Framtals- nefnd hefur lækkað fasteigna- gjöld um 75% hjá þeim öldruðum Reykvikingum, sem ekki hafa haft meiri tekjur en svarar tvö- földum ellilifeyri. En lækkunin hefur verið minni hjá þeim, sem hærri tekjur hafa haft. Björgvin Guðmundsson lagði til á fundi borgarráðs, að fasteigna- gjöldin yrðu felld niður að fullu hjá hinum efnaminnstu meðal aldraðra, en auk þess lagði hann til, að tekjumark það, sem miðaö Lúðrasveitin Svanur býður borgarbúum upp á tónlist af ýmsu tagi i Austurbæjarbió klukkan tvö eftirhádegi næstkomandi laugar- dag, 12. april. Alls verða þar leik- in 14 lög, þeirra á meðal nokkrir marsar, lagið Hvers vegna? eftir Sigfús Halldórsson og tónlist úr kvikmyndinni The Sting. væri við, er metið væri, hvort eða hve mikið fasteignagjöld skyldu lækkuð, yrði hækkað. Ekki vildi borgarráð á það fall- ast. Aðeins einn borgarráðsmað- ur, Albert Guðmundsson, tók undir tillögu Björgvins um niður- fellingu fasteignagjalda aldraða, en aðrir borgarráðsfulltrúar vildu halda óbreyttum reglum. Athygli vakti, að hvorki borgarráðsmaður Alþýðubanda- lagsins, né borgarráðsmaður Framsóknarflokksins vildu fella niður að fullu fasteignagjöld hjá öldruðu fólki og öryrkjum, sem aðeins hefur tekjur, sem nema tvöföldum ellilifeyri. Skjótur fengur skjótt forgengur 27 ára gamall Kýpurbúi, sem vann i knattspyrnuget- raununum brezku hálfa milljón punda (180 millj. isl króna) fyrir tveimur árum — hefur nú misst ökuréttindin I tiu ár, verið dæmdur i 370 þús. kr. sekt og er úrskurðaður alkóhólisti. Mames Miskin byrjaði að lifa hinu Ijúfa lifi eftir stóra vinninginn, en hefur þrivegis veriö tekinn ölvaður við akst- ur. Hann fer nú væntanlega i afvötnun, og ætti að hafa lært, að margur verður af aurum api. Sjónarvottum bar ekki saman um tildrög slyssins. Sögðu einhverjir, að önnur bifreið hefði ekið utan i þann ameriska, en aðrir, að öku- maðurinn hefði ekið á mikilli ferð inn Hverfisgötu og skyndilega misst stjórn á bilnum með fyrrgreindum afleiðingum. ÁRSSKÝRSLA RÍKISÚTVARPSINS KOSTAÐI 400ÞÚSUND • • VEIT ENGINN HVAÐ HONNUN LANDS- r VIRKJUNARSKYRSLUNNAR KOSTAÐI? Enn reynist ekki unnt að fá gef- ið upp, hvað hönnun á starfs- skýrslu Landsvirkjunar fyrir árin 1972—1973 kostaði. Eins og fyrr hefur verið skýrt frá i Alþýðu- blaðinu fékk stofnunin auglýs- ingastofu til þess að annast verkið og hefur hún þegar sent reikning sinn til Landsvirkjunar fyrir nokkru. Hjá Landsvirkjun er að- eins einn maður, semvirðist hafa umboð til að skýra frá upphæð reikningsins. Blaðið hefur itrekað haft samband við hann, þrjá daga iröð,en án árangurs. Fyrsta dag- inn kvaðst hann ekki hafa reikn- ing þennan handbæran, annan daginn hafði hann ekki tima til að lesa upphæðina af honum og þriðja daginn, i gær, háði tima- skortur honum svo mjög, að hann lét simastúlku svara fyrir sig. Könnun Alþýðublaðsins á kostnaði þeim, sem hinar ýmsu stofnanir hafa lagt i vegna útgáfu ársskýrslna sinna, heldur þó áfram og i dag er það skýrsla Rikisútvarpsins fyrir árið 1974, sem er skoðuð. Kostnaður við prentun og aðra aðkeypta vinnu, svo og aðkeypt efni, var rétt um 400.000 krónur. Uppsetning skýrslunnar, teiknun linurita og annað það, sem að hönnun lýtur, var unnið af starfsmönnum Sjón- varpsins, en skýrslan er gefin út i 100 eintökum. Skýrslan er 47 siður, auk kápu, og er prentuð á svipaðan pappir og skýrslur Landsvirkjunar og Rannsóknar- ráðs. Prentsmiðjan Setberg ann- aðist prentun hennar. Heildarkostnaður v*ið gerð skýrslu Rikisútvarpsins er þvi aðeins tæplega helmingur prent- kostnaðar við skýrslu Lands- virkjunar, en þær eru svipaðar að stærð. 14.000 MILLJÓNIR TIL VEGA- GERÐAR NÆSTU FJÖGUR ÁRIN? Lögð hefur verið fram á alþingi tillaga til þingsályktunar um vega- áætlun fyrir árin 1974—1977. Áætlað er samkvæmt henni að verja 14.849,6 milljónum til vegagerðar á þessum fjórum árum. Fyrir siðasta ár er upphæöin 3.354,6 milljónir en fyrir þetta ár er hún 3.543 milljónir. Um fjáröflun segir, að innflutningsgjald, þungaskattur og gúmmigjald eigi að gefa á þessu ári 2.250 milljónir, rikisframlag verði 380 miiljónir og með sérstakri fjáröflun, happdrættisskuldabréfasala og lánsfjáraflanir aðallega, fáist 913 milljónir. a á 'Hafnarfjarðar Apótek w Afgreiðslutími: | Virka daga kl. 9-18.30 f Laugardaga kl. 10-12.30. * Helgidaga kl. 11-12 Eftir lokun: í Upplýsingasími 51600. u '*é Æ1 V 'JJ I wweyfiu Sími 8-55-22. Opið allan sólarhringinn '&mw. i ÞAÐ B0RGAR SIG AÐ VERZLA f KR0N K W; i Dunfi í GlflEflBfE /ími 84900 O Laugardagur 5. apríl 1975

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.