Alþýðublaðið - 05.04.1975, Side 4

Alþýðublaðið - 05.04.1975, Side 4
(Jtgefandi: Blað hf. Framkvæmdastjóri: Ingólfur P. Steinsson Ritstjóri: Sighvatur Björgvinsson Fréttastjóri: Helgi E. Helgason Auglýsingastjóri: Fanney Kristjánsdóttir Afgreiðslustjóri: örn Halldórsson Ritstjórn: Siðumúla 11, simi 81866 Auglýsingar: Hverfisgötu 8-10, simar 28660 og 14906 Afgreiðsla: Hverfisgötu 8-10, simi 14900 Prentun: Blaðaprent hf. HEIMSKA HLAUPASntAKA Það leynir sér ekki að i þeim deilum, sem verið hafa að undanförnu milli menntamanna- klikunnar i Alþýðubandalaginu og verkalýðs- arms flokksins tekur Þjóðviljinn eindregna afstöðu með hvitflibbungunum. Þetta kemur t.d. glöggt i ljós i sambandi við ágreininginn um hvernig haga eigi þeirri skattalækkun, sem rikisstjórnin hefur heitið. Magnús Kjartansson og menntamannaklika hans vilja, að sú skatt- lækkun verði látin koma fram með lækkun á söluskatti — þ.e.a.s. skattalækkun, sem kemur hátekjumönnum jafnt að gagni og lágtekju- mönnum og þeim mest, sem mestu eyða. Alþýðusamband íslands — þ.á m. helstu foringjar Alþýðubandalagsins i verkalýðshreyf- ingunni s.s. eins og þeir Snorri Jónsson, Eðvarð Sigurðsson og Benedikt Daviðsson — er hins vegar eindregið sömu skoðunar og Alþýðu- flokkurinn um, að skattalækkunin eigi eingöngu að koma fram i lækkun á tekjuskatti þvi þá sé hægt að tryggja það, að skattalækkunin komi láglaunahópunum i þjóðfélaginu fyrst og fremst til góða. Hefur ASÍ — þ.á m. þeir Snorri, Eðvarð og Benedikt — ritað fjárhagsnefndum Alþingis bréf með eindregnum tilmælum um, að öll hin boðaða skattalækkun verði framkvæmd á tekju- sköttum og njóta sjónarmið þessi stuðnings Þjóðhagsstofnunarinnar, eins og Björn Jónsson, forseti ASÍ, upplýsti i viðtali við Alþýðublaðið. Einnig þarna er sem sagt djúpstæður ágreiningur milli hvitflibbakommanna i Alþýðubandal og verkalýðsarms flokksins. Og auðvitað tekur málgagn flokksins, Þjóðviljinn, afstöðu með menntamannaklikunni i þessu máli sem öðrum, enda er hópurinn i kringum Þjóðviljann kjarninn i menntamanna- kliku Magnúsar Kjartanssonar. í forystugrein blaðsins i gær er ráðist harkalega að sjónar- miðum þeirra Eðvarðs Sigurðssonar, Snorra Jónssonar og Benedikts Daviðssonar i þessum málum og sagt, að þau sjónarmið, sem þeir aðhyllast, séu endemisfjarstæða, sem aðeins hafi áður sést i Morgunblaðinu og Timanum. M.ö.o. af þvi að verkalýðsleiðtogar Alþýðu- bandalagsins eru á öðru máli en menntamanna- klika Magnúsar Kjartanssonar þá lætur Þjóð- viljinn i það skina, að verkalýðsmennirnir séu komnir á mála hjá ihaldsblöðunum og segir skoðanir þeirra vera „endemisfjarstæðu”. Þær eru farnar að verða kaldar kveðjurnar, sem Þjóðviljinn er farinn að senda verkalýðs- leiðtogum Alþýðubandalagsins, þótt enn reyni leiðarahöfundar blaðsins að orða þær undir rós með þvi að nefna önnur nöfn i árásarskrifunum þótt hugurinn snúist allur um höfuðféndur hvit- flibbaklikunnar — verkalýðsforingjana, flokks- bræður þeirra. Heimska hlaupastráka Magnúsar Kjart- anssonar á Þjóðviljanum kemur svo fram i þvi, að þeir virðast halda, að Gylfi Þ. Gislason hafi fundið upp söluskatt! ,,Gylfi Þ. Gislason fann upp söluskattinn á sinum tima”!, segir Svavar Gestsson i leiðara Þjóðviljans i gær. ,,Sá vafa- sami heiður verður ekki af honum tekinn hér” er svo hið gáfulega framhald Andstaða Þjóðviljaklikunnar gegn yfirlýstum vilja verkalýðshreyfingarinnar i skattalækk- unarmálunum er þá byggð á þvi, að hún heldur, að Gylfi Þ. Gislason hafi fundið upp söluskatt og að þeir Eðvarð, Snorri og Benedikt Daviðsson ætli að láta hjá liða að svipta hann höfundar- gleðinni. Svona geta menn verið hlægilegir á prenti. I K I l WWJ >ww’ |||||| ^^mmmm^^mmmmm^mmmmmm^^^^^^mmmmmm^^^^^^mmmmmmm^ Ringulreið í Washington kann að leiða til örvæntingarfullra aðgerða í Indókína Flóttamaður frá Danang með látiö barn sitt i fanginu. Barnið, sem hul- ið er segldúk, var ekki myrt af kommúnistum. Hún var skotin þegar aginn i Saigonhernum hrundi I rúst og hermenn réðust á óbreytta borg- ara með skothrið og handsprengjukasti til þess að komast um borð I siðustu flugvélarnar, sem fluttu flóttafólk til Saigon. Meö hruninu í Suður- Vietnam og Kambódiu# meö uppgjöf samningaum- leitananna í Miðjarðar- hafsbotnum og með valda- skriði kommúnista í Portú- gal hefur bandarísk utan- rikisstefna beöið skipbrot á þremur vettvöngum þar sem alþjóðlegir hagsmunir Bandsríkjanna — og að nokkru leyti Vestur- Evrópu einnig — voru í húf i. 1. ) Bandarikin eru nú endan- lega að yfirgefa Indókina. Upp- lausnin i Saigon og Kambódiu á sér enga hliðstæðu ef undan er skilinn hinn skipulagslausi flótti Chang Kai-shek frá meginlandi Kina árið 1949. 2. ) Bandarisk áhrif i araba- löndunum eru þverrandi eftir að eyðimerkursandurinn hefur hulið „skref — fyrir — skref; aðferð Kissingers. Nú verður að leita þar að nýju áhrifajafnvægi milli Bandarikjanna og Sovétrikjanna. Vera kann, að Vestur-Evrópa eigi eftir að gegna mikilvægu hlut- verki i samningaviðræðunum, sem nú verða hafnar i Genf. 3. ) Raunverulega er varla hægt að lita lengur á á Portúgal sem aðildarriki að NATO. Ef kommúnistum tekst að uppskera sigur i kosningunum þann 25. april n.k. er allt óráðið um NATO- herbækistöðvarnar i Lissabon, á Azoreyjum og á Madeira. Hvernig leiknum lyktar i Portúgal veit enginn enn. Þar getur brugðið til beggja vona. En enginn vafi rikir á um hverjar endalyktirnar verða i Indókina og hvaða afleiðingar það muni hafa i för með sér fyrir Bandarikin. Það eru ekki aðeins bandamennirnir i Saigon og Phnompenh, sem eru að falla. Einnig vinur þeirra i Washington, Henry Kissinger, er i hættu. Kissinger verður áreiðanlega lengi enn i sviðsljósinu sem ein- staklingur. En áætlun hans um einn allsherjar heimsfrið hefur hrunið saman með sókn hinna indónesisku þjóðfrelsisherja gegn Nguyen van Thieu og Lon Nol. Það má svo sem segja, að þótt ætlun Kissingers sé héðan i frá dæmd og grafin, þá sé allt ekki þar með glatað. Hugmyndir Kiss- ingers um lausn mála i Indókina voru hvort eð er áferðarfegurri á pappirnum en hvað þær voru raunhæfar. 1 raun og veru var hér um að ræða pólitiska þanka manns, sem hugsar eins og hugs- að var i pólitik á 19. öld og skortir skilning á þeim þjóðfélagslegu og sterku öflum, er setja svip sinn á vora tima. Upplausn En hinar sviknu og fölsku draumsýnir geta orsakað örvænt- ingarfullar athafnir af hálfu Bandarikjamanna. Bæði Kissing- er og Ford forseti þrábiðja þessa dagana bandariska þingið um leyfi til þess að Bandarikin hraði sér til hjálpar við hina sigruðu herkónga i Indókina. Hinsvegar er ekki ljost, hverju éða hverjum á að bjarga i Kambódiu eftir að Lon Nol er flúinn. Á hinn bóginn er enn timi til þess, að tryggja van Thieu ófram yfirráð yfir Sai- gon og nágrannahéröðum með mikilli bandariskri aðstoð. Suður- Vietnam yrði þá einskonar borg- riki, sem næði yfir Saigon sjálfa og óshólma Mekong. Ef þetta er i rauninni það, sem Bandarikjamenn vilja, þá er upp- lausnin i stjórnarherbúðum Fords sist minni, en sú, sem rikir i Saigon og i Pnompenh. Ford veit auðsjáanlega ekki hvað hann á til bragðs að taka. Hann veður i villu og svima. Opinberlega virðist forsetinn fylgjast með atburðunum frá minútu til minútu, en i raun hefur hann ekkert að segja. Milljónir Bandarikjamanna urðu aðfara- nótt s.l. þriðjudags áhorfendur að næstum ótrúlegum atburðum á sjónvarpsskerminum. Frétta- menn flykktust um forsetann til þess að fá eitthvað að heyra, en Jerry „tyggjó” Ford stakk af upp i þyrlu, sem beið hans, segjandi: „Nei, nei — ekki þetta”! Hvern fjandann viljið þið, að hann geri, hrópaði talsmaður for- setans, Ronald Nessen, svo til hinna reiðu fréttamanna. Þegar fréttamennirnir settust svo að Nessen sagði hann aðra, enn ótrúlegri setningu: „Þetta er ekki okkar strið”! Nokkrum sekúndum áður höfðu sjónvarpsstöðvarnar sýnt frétta- myndir frá suður-vietnömskum hafnarborgum, þar sem hermenn skutu á óbreytta borgara til þess að tryggja sér sæti i siðustu flug- vélinni, sem flutti flóttafólk til Saigon. Skelf ilegir hæfileikar En enginn getur borið á móti þvi, að striðið i Indókina er strið Bandarikjanna, sem hafa um mafgra ára skeið haldið lifinu i van Thieu og Lon Nol. Það er beinlinis hlægilegt fyrir banda- risk stjórnvöld að ætla að fara að afneita þvi nú. Að svo er enn þann dag i dag kemur t.d. i ljós með þvi, hve illa bandariska stjórnin tekur tortryggnu þingi, sem ekki vill lengur senda bandariskt fé og bandarisk hergögn til Indókina. Fyrst og siðast er striðið strið Kissingers. Með Parisarsamn- ingunum náði hann bandarisku herliði brott frá Vietnam, en frið- inn tryggði hann ekki og banda- risk hergagnaaðstoð við stjórnina i Saigon varð meiri eftir Parisar- samningana, en hún hafði nokkru sinni áður verið. Hæfileikar Kiss- ingers reyndust vera hæfileikar til að byggja skýjaborgir — ekki til þess að finna varanlega lausn mála. Það eru þessir hæfileikar, sem hann svo ákaft hefur notað allt frá Indókina, til striðs Indverja og Pakistana, yfir Kýpur og til Mið- jarðarhafsbotna og Portúgals. Þau afskipti hans hafa stór- skaðað það álit, sem hann áður naut og gert hann að skotskifu fyrir gagnrýni bandariskra þing- manna. Og það sem verra er: Þessir hæfileikar hafa beinlinis skapað efasemdirnar um trúverðugleik Bandarikjanna og gert að engu vonir manna um, að Washington undirstjórn Fords myndi reynast heiðarlegri og hreinni staður, en hún var undir stjorn forvera hans i embætti. Laus staða Kennarastaöa I eðlisfræði og stærðfræöi viö Menntaskól- ann á isafiröi er laus til umsóknar. Æskilegt er að kennar- inn geti einnig annast kennslu I hagnýtri stærðfræði og forritun. Laun samkv. launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf, sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavlk, fyrir 20. maf n.k. — Umsóknareyöublöð fást I ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 1. april 1975. 0 Laugardagur 5. april 1975

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.