Alþýðublaðið - 05.04.1975, Qupperneq 7
A sunnudag, klukkan 16.25 er
á dagskrá Hljóðvarpsins um-
ræðuþáttur um fóstureyðingar
og sjálfsákvörðunarrétt kon-
unnar i þeim efnum. Stjórnandi
þáttarins er Árni Gunnarsson,
fréttamaður, en þátttakendur,
auk hans eru þau Ellert
Schram, alþingismaður, Guð-
mundur Jóhannosson, læknir,
Vilborg Harðardóttir, blaða-
maður og Jón G. Stefánsson,
læknir.
Undanfarið hafa miklar um-
ræður spunnist um fóstur-
eyðingar og þau ýmsu mál sem
að þeim lúta. Það sem valdið
hefur umræðum þessum er
frumvarp það sem nú liggur
fyrir Alþingi, en það hefur
vakið eindæma mikið fjaðrafok.
Alls kyns félagasamtök og all-
margir einstaklingar hafa látið i
sér heyra opinberlega um þetta
mál og hefur hver haft þar sina
skoðun á. Það sem harðast er
um deilt, er þó ekki hvort
fóstureyðingar skuli leyfðar,
eða ekki, heldur hver skuli hafa
úrslitavald um það hvort þær
eru framkvæmdar i einstökum
tilvikum. Upp hefur komið
ákaflega sterk hreyfing, sem
heldur fram þeirri kröfu, að
hver kona, sem er með barni,
skuli sjálf og ein hafa úr-
skurðarvald um það hvort
fóstri er eytt. Aðrir benda á
lækna og jafnvel félagsráðgjafa
sem eðlilega ákvarðendur og
hafa deilur þessar orðið all
miklar. Þátturinn i útvarpinu,
ætti þvi að geta orðið ærið at-
hyglisverður, þvi þar eru á
ferðinni fulltrúar tveggja gagn-
stæðra hópa: þeirra sem halda
rétti konunnar fram, og þeirra
sem vilja halda völdum þessum
i höndum lækna.
Annað það sem athyglisvert
virðist i dagskrá Hljóðvarpsins
um helgina, er næsta fátt. Jón
Kl. 22.05: Hoffman.
Hoffman er bresk gaman-
mynd, gerð árið 1971. Með aðal-
hlutverk fer hinn bráðsnjalli
Peter Sellers, en hann leikur
einmana miðaldra mann, sem
verður ástfanginn af stúlku,
sem hann vinnur með.Hún er
heitbundin öðrum og lætur sér
fátt um finnast allar tilraunir
Benjamins Hoffman til að stiga
i vænginn við hana. Hún lætur
sér fátt um finnast, þegar Hoff-
man býður henni að snæða með
sér.
Benjamin Hoffman er ekki sú
manngerð, sem gefst upp vio
fyrstu misheppnaða tilraun.
Hann bruggar ráð, sem hann
telur að muni duga.
Rétt er að geta þess, að mynd
þessi var sýnd i' Háskólabiói fyr-
ir fáum árum. Aðrir aðalleikar-
ar eru Sienad Cusack og Jermy
Bulloch.
Annað virðist ekki sérlega at-
hyglisvert i dagskrá Sjónvarps-
ins. Mest ber þar á framhalds-
þáttum og föstum liðum, svo
sem venja er, enda svo komið að
vart er hægt að imynda sér
sjónvarpsáhorfendur sem
áhugasama neytendur. Sjón-
varp opnar fólk liklega meir til
þess að fá „skammtinn sinn”,
en af forvitni.
R. Hjálmarsson, skólastjóri,
mun þó flytja okkur erindi um
Friðrik mikla, ætt hans og upp-
runa, og takist honum upp, gæti
þar verið á ferðinni skemmti-
legt erindi, fyrir þá sem leggja
athygli sina að sögu, eða skyld-
um greinum. Þetta er fyrsta er-
indi Jóns, en fleiri munu fylgja á
eftir. Erindi þessi nefnir hann
Einvaldur i Prússlandi og hefur
hann flutning þeirra klukkan
21.45 á sunnudagskvöld.
STJÖRNUSPÁIN
Vatnsberinn 20. janúar—18. febrúar
Andstaða gegn hugmyndum þinum er i lágmarki
i dag. Vinir þinir verða liklega hjálpsamir og
dagurinn er hagstæður til viðræðna við áhrifa-
fólk.
Fiskarnir 19. febrúar—20. mars
Þú verður að sinna heilsu þinni betur. Likamleg
streita er nokkuð sem þú verður að forðast.
Heimsóknir og ferðalög eru ekki heppileg og fólk
verður þér ekki sammála i dag.
Hrúturinn 21. mars—20. apríl
Þetta verður liklega leiðinlegur dagur og fjöl-
skylduvandamál trufla þig og valda áhyggjum.
Astarmálin verða viðkvæm og deilur gætu risið
af minnsta tilefni. Reyndu að sýna tillitssemi og
lagni, en treystu ekki loforðum.
Nautið 21. apríl—20. mai
Þú gætir orðið fyrir miklum vonbrigðum i dag.
Utgjöld þin gætu aukist vegna vandamála ætt-
ingja og atvinna veldur þér áhyggjum. Láttu
samt ekki hagga rósemi þinni og forðastu likam-
lega streitu.
Tviburinn 21. mai — 20. júni
Góður dagur til viðskipta við lögfræðinga, presta
og aðra slika. Einnig góður dagur til einbeiting-
ar við nám og skapandi störf. Þinir nánustu
verða hjálpsamir og dagurinn i heild ánægjuleg-
ur.
Krabbinn 21. júni—20. júli
Nú er tíminn til að ráðast i þær framkvæmdir
sem þú hefur frestað undanfarið. Fjölskyldan
verður samvinnufús og þér gæti tekist að leysa
gamalt vandamál, sem lengi hefur hrjáð þig.
Ljónið 21. júli — 21. ágúst
Góður dagur, að þvi er varðar persónuleg sam-
bönd þfn. Samvinna og hópvinna geta fært
undraverðan árangur og yfirmenn verða auð-
veldir viðureignar. Sinntu skapandi störfum.
Meyjan 22. ágúst—22. september
Hlustaðu á tillögur þinnanánustu og leitaðu eftir
álitiþeirra á skapandi verkefnum þinum. Sinntu
heimilinu og fjölskyldunni og reyndu að hafa
bætandi áhrif á umhverfi þitt.
Vogin 23. september—22. október
Sérlega góður dagur til þess að koma skapandi
störfum og viðfangsefnum á rekspöl. Fjármálin
bjóða upp á minni áhættu en verið hefur og ást-
armálin lofa góðu.
Sporðdrekinn 23. október—22. nóvember
Góður dagur til að sinna heimili og fjölskyldu.
Þér gefst færi á að tryggja þér stuðning áhrifa-
fólks. Hafðu augun opin fyrir ágóðamöguleikum
og láttu bjartsýnina rikja.
Bogmaðurinn 23. nóvember—20. desember
Allt það sem krefst andlegrar áreynslu ætti að
ganga sérlega vel i dag. Reyndu að ná upp
bréfaskriftum þinum. Vinir og nágrannar ættu
að vera hjálpsamir og þægilegir og stutt ferða-
lög gætu fært óvæntan hagnað.
Steingeitin 21. desember—29. janúar
Einkar góður dagur hvað snertir fjármál. Við-
skipti ganga vel og skila meiri hagnaði en verið
hefur. Astandið heima fyrir er einnig betra og þú
skalt notfæra þér þessar aðstæður eins og þú
getur. Einnig skapgæði yfirmanna þinna.
F
RAGGI ROLEGl
FJALLA-FÚSI
Nú hef ég ekki fleiri'
slúðursögur að segja
þér i dag Loðvlsa..
Fgev
LASSUJE.LI—.
J og ég vona aö þér heilsist
vel og kvefiö batni fljótt
Sveitarstjórnir og
menningarmái
Akveðið hefur verið að
halda ráðstefnu i Reykjavik
dagana 6.-8. april á vegum
Sambands islenskra sveitar-
félaga, og taka til umræðu
efnið Sveitarstjórnir og menn-
ingarmál. Langt er siðan til
orða kom að helga eina ráð-
stefnu þessu efni, og margt
bendir til, að menningarmál
séu sveitarstjórnarmönnum
ofarlega I huga um þessar
mundir.
Setningarathöfn verður i
Þjóðleikhúsinu sunnudaginn 6.
april kl. 17.00, en afhending
gagna hefst nokkru áður, eða
kl. 16.30. Formaður sam-
bandsins setur ráðstefnuna,
en siðan mun Vilhjálmur
Hjálmarsson, menntamála-
ráðherra, flytja erindi um
rikisvald og menningarmál.
Sýnd verða atriði úr starfi,
sem unnið hefur verið á veg-
um sveitarfélaga i vetur.
Þátttakendum og gestum
þeirra verður boðið upp á ó-
formlega máltið i leikhúsinu
um kl. 13.30, og kl. 20.00 gefst
þeim kostur á að sjá leikritið
„Hvernig er heilsan?”. Starf-
semi Þjóðleikhússins verður
kynnt, og tækifæri gefst til að
ræða við leikhúsfólk eftir sýn-
inguna.
Mánudaginn 7. april og
þriðjudaginn 3. april fer ráð-
stefnan fram i Súlnasal Hótel
Sögu. Þá verður nánar fjallað
um samstarf rikis og sveitar-
félaga á sviði menningar-
mála, kynnt verksvið mennta-
málaráðs og Listasafns Is-
lands. Nokkrir fulltrúar sveit-
arstjórna, hver úr sinum
landshluta, annast framsögu
um hlutverk sveitarstjórna i
menningarmálum og tals-
menn áhugamannasamtaka
og listamanna lýsa viðhorfum
sinum til málsins. Rúmur timi
er ætlaður til almennra um-
ræðna og skoðanaskipta um
hina ýmsu þætti menningar-
mála. M.a. verður reynt að
leita svara við þvi, hverjar séu
skyldur sveitarstjórna i
menningarmálum, hvert sé
eðlilegt hlutverk þeirra á
þessu sviði, hvernig ástandið
er i raun og veru og hvernig
stubningi rikis og sveitarfé-
iaga vð menningarmál verði
best hagað i framtiðinni.
Fyrstu undirtektir gefa til
kynna, að sveitarstjórnar-
mönnum þyki gagnlegt að
bera saman bækur sinar um
þessi efni einmitt núna.
Auk þess að þetta er 25. ráð-
stefnan, sem sambandið held-
ur, er nú rétt 10 ár frá þvi að
þessi þáttur i starfsemi sam-
bandsins hófst og 30 ára af-
mæli sambandsins. Stjórninni
þykir þvi efni til að hafa
nokkru meira við i þetta skipti
heldur en titt er á öðrum ráð-
stefnum, enda vel við hæfi
umræðuefnisins að fella setn-
ingarathöfnina inn i kynningu
á starfsemi Þjóðleikhússins,
en það á 25 ára starfsafmæli i
sama mánuði.
Laugardagur 5. apríl 1975
o