Alþýðublaðið - 15.06.1975, Side 1

Alþýðublaðið - 15.06.1975, Side 1
alþýðu AÐ LEGGJAST Á SVEIF MEÐ ÞEIM SEM TIL RÉTTLÆTIS HORFA 1 gær, laugardag, hófst hér i Reykjavik dagskrá i tilefni kvennaárs Sameinuðu þjóö- anna. Af þvi tilefni má vel rifja upp smáatburð úr atvinnulifinu frá þvi i vetur. Á vinnustað nokkrum i Reykjavik vinna nokkrir tugir ungs menntafólks meirihluti karlmenn. Að gömlum sið prýða þeir veggi vinnuátaðarins með vissri tegund ljósmynda af feykilega fáklæddu kvenfólki. Konunum sem vinna á staðnum, þótti miður að vera þannig hverja stund minntar á þá . óvirðulegu kvenimynd sem svo mikið rúm skipar i hugmynda- heimi íslendinga. Þær bjuggust ekki við að fortölur eða kvartan- ir myndu vekja mikla samúð vinnufélaganna, og tóku þær þvi það til bragðs að verða sér úti um sambærilegar myndir af karlmönnum (sem að visu eru ekki jafn algeng verzlunarvara og stúlknamyndirnar, en þó fáanlegar) og festa þær upp meðal hinna myndanna. Auðvitaðgramdistherrunum að hafa þessar myndir fyrir aug- um, enda hurfu þær jafnharðan, sporlaust og án skýringa, hvenær sem engin stúlkan var viðstödd, og gekk svo skamma hrið áður birgðir þraut. Sögulokin koma lesendum naumast á óvart: það breyttist ekkert, menntamennirnir ungu lærðu ekkertaf tiltækinu. Það er enginn siður að hafa uppi klammyndir af karlmönnum: en kvenfólk — það er allt annað. Það markverða við þessi sögulok er einmitt það hve sjálf- sögð þau eru. Eitt af þessum ótal mörgu sjálfsögðu litlu dæmum um það, að kvenfólk — það er allt annað. Þessum litlu dæmum sem verða að ókleifum múr þegar þau koma nógu mörg saman. En af hverju þetta uppistand allt i einu, þegar búið er að kúga konur svo lengi sem sögur ganga og hlutur þeirra er þó loksins farinn að batna merkjanlega? Kemur þetta ekki allt saman af sjálfu sér — að þvi leyti sem það yfirleitt getur komið — þegar konurnar fá ný hlutverk á vinnumarkaðnum, þegar heimilisstörfin verða minni og léttari, þegar barn- eignir verða sjálfráðar o.s.frv.? Er ekki nær að treysta á þjóð- félagsþróunina i stað þess að þyrla upp ryki með ráðstefnum og ræðuhöldum? Auðvitað er það rétt að staða kvenna verður ekki ákveðin eftir uppskrift, svona i dag og svona á morgun, án samhengis við þróun þjóðfélagsins. En þær framfarir og réttarbætur sem þjóðfélagsþróunin gerir mögu- legar, koma samt ekki af sjálfu sér. Það þarf að berjast fyrir þci»n. Allra sizt væri sæmandi jafnaðarmönnum að halda að sér höndum með þeirri afsökun að hinn skaröi hlutur kvenna sé eðlileg afleiðing sögulegra afla. Eða grundvallast ekki sósialisminn einmitt á þeirri trú að unnt sé aö botna i þróunaröfl- um samfélagsins og leggjast á sveif með þeim sem til réttlætis horfa? Hið dauða farg hefðar og for- dóma sem hvilir á kvenþjóðinni, er eitt þeirra afla sem þjóð- félagsþróunin hefur gert tima- bært að leggja til atlögu við og sigrast á. Nú er bara að bretta upp ermarnar. HSK. VIÐ BYGGJUM BYGGJUM VIÐ V)ö byggjum, — byggjum viö . . . og nu hofum viö opnað nýbyggingu Samvinnubankans í Bankastræti. Við bætt skilyrði verður okkur nú unnt að veita viðskiptavinum okkar meiri og betri þjónustu. Öll afgreiðsla bankans fer fram á fyrstu hæð. Geymsluhólf, sem bankinn hefur ekki haft aðstöðu til að hafa áður, verða nú til reiðu. Okkur er það mikil ánægja að geta tekið betur á móti viðskiptavinum okkar, verið velkomin I Bankastræti 7. Saitmnnubankinn HBS Blikkiðjan Ásgaröi 7, Garöahreppi Önnumst þakrennusmíöi og uppsetningu - ennfremur hverskonar blikksmíöi. Gerum föst verötilboö. SI'MI 53468 Stofnfuntlur Stofnfundur foreldrafélags barna með sérþarfir i Hafnarfirði og Garðahreppi verður hald- inn miðvikudaginn 18. júni næstkomandi kl. 20.30 að Suðurgötu 72 i Hafnarfirði. Undirbúningsnefndin. Sunnudagur 15. júní 1975 — 134. tbl. 56. árg

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.