Alþýðublaðið - 25.06.1975, Qupperneq 1
Enn ráðinn BUR-framkv.stj.
án þess að staðan sé auglýst
A fundi borgarráðs i gær var
samþykkt með þremur sam-
hljóða atkvæðum að ráða Einar
Sveinsson, sem áður var for-
stjóri Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar, framkvæmdastjóra
Bæjarútgerðar Reykjavikur i
stað Asgeirs Magnússonar. As-
geir hefur verið ráðinn forstjóri
málblendiverksmiðjunnar á
Grundartanga.
Fulltrúar minnihluta borgar-
stjórnar sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna, en Björgvin Guð-
mundsson, fulltrúi Alþýðu-
flokksins, bar fram tillögu um,
að embætti framkvæmdastjóra
BÚR yrði auglýst. Hún var felld
með þremur atkvæðum gegn
tveimur.
Sveinn Benediktsson, for-
maður útgerðarráðs BÚR, var á
fundinum, og sagði hann, að
Einar Sveinsson hafi þegar sagt
upp starfi sinu hjá Bæjarútgerð
Haínarfjarðar þar eð borgar-
stjóri og forráðamenn BÚR
hefðu gefið honum fyrirheit um
þetta starf, og af þeim sökum
væri ekk-i unnt að auglýsa það.
Tillaga sama efnis kom fram
þegar Asgeir Magnússon var
ráðinn forstjóri BÚR fyrir u.þ.b.
ári, án þess að staðan væri aug-
lýst, og var hún felld. Færði
meirihluti borgarstjórnar þá
fram þau rök, að þarna væri
tækifæri til að fá i starfið mjög
hæfan mann, og ekki mætti
hætta á að missa það tækifæri
úr höndunum með þvi að aug-
lýsa stöðuna og tefja þannig
fyrir þvl, að ráðningin geti farið
fram.
Björgvin Guðmundsson sagði
i samtali við Alþýðublaðið i
gær, að það hljóti að vera eðlileg
leið að auglýsa stöður sem
þessa, og benti á aö það sé orðin
viðtekin venja við ráðningar i
stöður hjá rikinu.
VIÐRÆÐUR í
snáBwinwi
HIVBIÆMI
VIÐBRETA
„Rikisstjórnin mun auðvitað
taka afstöðu til þess sérstaklega,
hvernig brugðist verður við ósk
breska forsætisráðherrans um
viðræður”, sagði Geir Hall-
grimsson, forsætisráðherra, i
stuttu samtali við Alþýðublaðið i
gærkvöldi, en hann kom til lands-
ins i gærdag.
,,Ég mun skýra rikisstjórninni
frá viðræðum minum við Harold
Wilson og aðra fulltrúa bresku
rikisstjórnarinnar á rikisstjórn-
arfundi á morgun (miðvikudag),
en þessar viðræður voru afar vin-
samlegar og gagnlegar”, sagði
Geir Hallgrimsson.
Forsætisráðherra kvaðst ekki
hafa á þessu stigi neinu við það að
bæta, sem hann hefði áður sagt
um þessar viðræður i fjölmiðlum,
þar sem hann hefði enn ekki gefið
meðráðherrum sinum skýrslu um
málið.
,,A fundinum i London kom
fram ákveðin ósk af-'Breta hálfu
um, að þeir éigi viðræ.ður við okk-
ur tslentiinga um það, sem taki
við eftir 13. nóvember n.k., en
rikisstjórn okkar mun auðvitað
taka sérstaklega afstöðu til þeirr-
ar óskar”, sagði forsætisráð-
herra,—
EIN DREYMIN, ÖNNUR REIÐ — SÚ ÞRIÐJA ÞREYTT.
Vandamálin blasa við okkur öllum og Hfið er jú hreint enginn
ieikur, en viðbrögðin gagnvart þvl eru jafn misjöfn og mennirnir
eru margir. Einn verður hugsi, annar reiður — sá þriðji sefur þá
jafnvel af sér öll él.
SKOTHELT
GLER í
V-ÞÝSKA
SENDIRABIÐ
Undanfarnar vikur hefur verið
mjög strangur öryggisvörður um
sendiráð Vestur-Þýskalands i
Reykjavik, svo sem um sendiráð
Þjóðverja i mörgum öðrum lönd-
um heims. Hefur gæsla þessi ver-
ið umfangsmeiri en tiðkast hefur
um sendiráð erlendra rikja hér,
vegna þeirra hörmulegu atburða,
sem orðið hafa við sendiráð V-
Þýskalands til dæmis i Stokk-
hólmi fyrir nokkru siðan.
Lögreglan i Reykjavik hefur
annast öryggisgæsiu við sendi-
ráðið fram að þessu, en nú mun
hún verða -leyst af hólmi bráð-
lega, þvi verið er að gera ráðstaf-
anir til þess að auka öryggi
sendiráðsbyggingarinnar við
Túngötu.
Meðal annarra ráðstafana við
sendiráð V-Þýskalands mun vera
isetning skothelds glers i glugga
byggingarinnar og einnig upp-
setning lokaðs sjónvarpskerfis,
VARNARLIDSMENH (SIFELLT
FUH STORF a vellinum
SAMDI EINAR AF SÉR í WASHINGTON?
Svo virðist, sem varnarliðsmenn
hafi nú I auknum mæli tekið I sin-
ar hendur ýmis þau störf, sem ts-
lendingar hafa unnið á Kefla-
vikurflugvelli mörg undanfarin
ár.
Fyrir nokkrum dögum birtist
frétt i Alþýðubiaðinu um við-
gerðarframkvæmdir á veginum
frá svonefndu Grænahliði á
Keflavfkurflugvelli að þjóðvegin-
um, sem iiggur gegnum Ytri-
Njarðvik, en þær hafa varnariiðs-
menn annast i sumar.
t tiiefni af þessari frétt hafa
margir Suðurnesjamenn haft
samband við Aiþýðublaðið og
fullyrt, að það sé ranghermi hjá
YLRÆKT) BORGINNI
FÆR ODYRARI HITA
Borgarráð samþykkti á fundi i
gær, að ylræktarmenn, sem
rækju gróðurhús, sem samþykkt
eru af borgaryfirvöldum, fái
lækkun á hitaveitutaxta til starf-
semi sinnar. Lækkun þessi nemur
sem næst 80% frá húsahituna-
taxta. Tillaga Alberts Guðmunds-
sonar um að lækkunin gildi frá 1/1
1974 var felld, en hinsvegar sam-
þýkkt að hún gildi frá 1/1 1975.
Þar til og með nær iækkunin til
söluaðstöðu i gróðurhúsunum og
ennfremur taldi tillögumaður, Al-
bert Guðmundsson, að það næði
einnig til veitingaaðstöðu, sem
rekin kynni að verða undir sama
þaki.
Páli Asgeiri Tryggvasyni, hjá
varnamáiadeiid utanrikisráðu-
neytisins, að umræddar vegavið-
gerðir hafi jafnan verið fram-
kvæmdar af varnarliðsmönnum.
Hið rétta sé, varnarliðsmenn hafi
aldrei fyrr komið nálægt þessum
störfum.
Segja Suðurnesjamenn, að svo
virðist, að stefnt sé að því, að her-
menn taki að sér sifellt fleiri störf
innan vailarsvæðisins, en ts-
lendingar þeim mun færri.
Eins og bent var á I frétt Al-
þýðublaðsins á fimmtudaginn i
siðustu viku gengur nú fjöidi
skólanemenda á Suðurnesjum at-
vinnuiaus. En ailt þangað til i
sumar hefur fjöldi skólanemenda
fengið vinnu viö ýmiss konar störf
á flugvellinum.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Alþýðublaðið hefur aflað sér,
hafa varnarliðsmenn nú yfirtekið
m.a. allan grasslátt á vallarsvæð-
inu, sem Islenskir aðilar hafa allt-
af annast hingað til. Þá munu
varnarliðsmenn hafa tekið að sér
alla helstu málningarvinnu á
vallarsvæðinu, steypuvinnu og
ýmsa byggingavinnu.
Ennfremur hefur flogið fyrir
syðra, að til standi, að til Kefla-
víkurflugvallar verði sendur sér-
stakur hópur hermanna frá
Bandarfkjunum til að vinna
ýmiss konar viðgerðarstörf i
, ,Rockville-s töðin ni ”.
Alþýðublaðið hafði i gær sam-
band við Karl Steinar Guðnason,
formann Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Kefiavikur til aö
leita frekari upplýsinga um þessi
mál. Hann sagði: ,,Þvi miður
virðist mér, að allt önnur stefna
riki nú hjá bandariska varnarlið-
inu en okkur hafði verið sagt, að
fylgt yrði”.
Karl Steinar sagði, að allmargt
hefði að undanförnu verið ráðiö I
vinnu við byggingaframkvæmdir
á Kefiavlkurflugvelli hjá tslensk-
um aðalverktökum. Hins vegar
virtist sér, að ýmiss konar þjón-
ustu- og viðgeröarstörf á vellin-
urn hefðu færst yfir á hendur
varnarliðsmanna.
Alþýðublaðið spurði Karl
Steinar, hvort hann væri þeirrar
skoðunar, að Einar Agústsson,
utanrikisráðherra, hefði samið af
sér varðandi rétt tslendinga til
vinnu, sem til fellur á Keflavíkur-
flugvelli, I samningunum við
Bandarikjamenn á siöastliðnu
ári.
,,Um það vil ég auðvitað ekkert
segja”, svaraði Karl Steinar, ”en
hitt er annað, að við höfum
áhyggjuraf atvinnuástandinu hér
á Suðurnesjum”. —