Alþýðublaðið - 25.06.1975, Síða 5

Alþýðublaðið - 25.06.1975, Síða 5
Útgefandi: Blað hf. Framkvæmdastjóri: Ingólfur P. Steinsson Ritstjóri: Sighvatur Björgvinsson Fréttastjóri: Helgi E. Helgason Afgreiðslustjóri: Orn Halldórsson Ritstjórn: Siðumúla 11, simi 81866 Augiýsingar: Hverfisgötu 8-10, slmar 28660 og 14906 Afgreiðsla: Hverfisgötu 8-10, simi 14900 Prentun: Blaðaprent hf. Askriftarverð kr. 700.00 á mánuði. Verð I lausasölu kr. 40. ■ TALAST EKKI VIÐ Það hefur að vonum vakið feikna athygli á Is- landi, að forsætisráðherra, Geir Hallgrimsson, fór til fundar við Harold Wilson til þess að ræða við hann um landhelgismálin, án samráðs við rikisstjórn sina. 1 viðtali við Alþýðublaðið i gær lét Einar Ágústsson utanrikisráðherra, svo um mælt, að engin ákvörðun hafi verið tekin i rikis- stjórninni um viðræður við Breta um land- helgismálið. Fundur þeirra Geirs Hallgrims- sonar og Wilsons hefur þvi komið islenska utan- rikisráðherranum gersamlega á óvart. Hann hefur ekki haft hugmynd um hvað til stóð — enda fór Geir Hallgrimsson utan undir þvi yfir- skini, að hann væri að fara á fund ráðherra Norðurlanda i Stokkhólmi. Eitt af þvi, sem setti hvað mestan svip á starfsaðferðir rikisstjórnar Ólafs Jóhannesson- ar, var hvað ráðherrarnir virtust eiga erfitt með að hafa samráð sin á milli um veigamikil mál. Það bar oft við á þeim árum, að einn ráðherrann i rikisstjórninni vissi ekki hvað annar var að að- hafast og æ ofan i æ fóru ráðherrarnir inn á verksvið hver annars án þess að hafa fyrir þvi að láta samráðherra sina vita, hvað til stæði. Eitt gleggsta dæmið um það er einmitt úr sögu landhelgismálsins, þegar ólafur Jóhannesson, þáverandi forsætisráðherra gerði hið fræga ,,tveggja manna samkomulag” sitt við Heath og Einar Ágústsson, utanrikisráðherra hafði ekki hugmynd um neitt fyrr en hann las fregnirnar i fréttum islensku blaðanna á leiðinni heim frá útlöndum. Nákvæmlega sama leikinn er Geir Hallgrims- son nú að leika. Hann fer af landi brott og lætur samráðherra sina, þar á meðal Einar Ágústs- son, standa i þeirri trú, að hann sé aðeins að fara á norrænan ráðherrafund i Stokkhólmi. Aðal- erindið er þó að ræða við forsætisráðherra Breta um landhelgismálið. Um það veit sjálfur utan- rikisráðherra íslands ekki nokkurn skapaðan hlut fyrr en hann les um það i blöðunum og stendur þá uppi eins og glópur. Tortryggni ráðherranna i rikisstjórn Ólafs Jó- hannessonar i garð hvers annars og afleiðingar hennar, skorturinn á samráði og virðingarleysi fyrir samstarfsmönnum og samstarfsflokkum, varð án efa banamein þeirrar rikisstjórnar ásamt almennri vangetu til stjórnunar. Sama sagan er nú að endurtaka sig með rikisstjórn Geirs Hallgrimssonar. Forsætisráðherra leikur sér að þvi að auðmýkja samstarfsflokk sinn og ráðherra hans, Einar Ágústsson, og hefur ekki einu sinni samráð við stjórn sina um starfsað- ferðirnar i afdrifarikasta máli þjóðarinnar, landhelgismálinu. Núverandi rikisstjórn hefur tekið fyrrverandi rikisstjórn sér til fyrirmyndar um flesta hluti. Stefna hennar i efnahagsmálum er sama stjórn- leysisstefnan. Stefna hennar i launamálum er sama ójafnaðarstefnan. Stefna hennar i rikis- fjármálum er sama óreiðustefnan. Og starfsað- ferðir hennar allar bera sömu upplausnarein- kennin. Forsendan fyrir þvi, að menn geti stjórnað landinu saman er auðvitað sú, að þeir geti talað saman. Það virðast ráðherrar núverandi rikis- stjórnar ekki geta fremur en ráðherrar þeirrar fyrrverandi. Fundur Geirs Hallgrimssonar og Wilsons um landhelgismálið, sem haldinn var án vitundar sjálfs utanrikisráðherra, Einars Ágústssonar, er glöggt dæmi um þetta. lalþýduj mm Miövikudagur 25. júní 1975.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.